Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 57
KIRKJUSTARF
Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 14
OPIÐ HÚS í dag, laugardag, milli kl. 17:00 og 19:00
Verðum með sölusýningu á milli kl. 17:00 og 19:00 í dag.
Húsið er alls 269,8 fm og er hæð, kjallari og ris auk seinni tíma viðbyggingar. Á hæðinni eru í dag þrjár góðar stofur,
eldhús, gestasnyrting, forstofa og miðjuhol. Í risi eru fimm herbergi og baðherbergi. Í kjallara er stórt sjónvarps-
herbergi, stórt þvottahús, geymslur og sturta. Auk þess er gengt út í viðbygginguna úr kjallaranum en hún er skráð
23,4 fm og er hin vandaðasta.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Andrésson, sölumaður Húsakaupa, í
síma 840 4042. Einnig er nánari lýsing á eigninni á mbl.is og enn nánari á
heimasíðu Húsakaupa www.husakaup.is
Vorferðalag ferming-
arbarna Selfosskirkju
í Skálholt
ÞRIÐJUDAGINN 14. og miðviku-
daginn 15. mars fara fermingarbörn
Selfosskirkju í ferðalag í Skálholt.
Skólastjóri hefur veitt börnunum
leyfi frá skóla þessa daga. Á þriðju-
deginum fara 8. GBG og 8. SIÞ, en á
miðvikudeginum 8. BA og 8. SÞ.
Lagt verður af stað frá Vallaskóla
kl. 9 og farið upp eftir í rútu. Vegna
staðarskoðunar eru börnin beðin að
hafa með sér hlýjan skjólfatnað og
góða skó.
Ég vona, að foreldrar víkist vel
við og leyfi börnum sínum að fara í
þessa ferð, sem þótt hefur takast
með ágætum á undanförnum árum.
Sr. Gunnar Björnsson.
Dómkirkjan þakkar
tónskáldi
JÓN Nordal tónskáld varð áttræður
mánudaginn 6. mars. Af því tilefni
verður flutt kór- og orgeltónlist eft-
ir hann við messuna kl. 11.
Dómkórinn syngur kórverkið Lux
mundi sem var frumflutt á Tónlist-
ardögum Dómkirkjunnar 1996.
Skólakór Kársness, undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur, syngur Sal-
utatio Mariae, sem er Maríubæn.
Marteinn H. Friðriksson dómorgan-
isti leikur orgelverk eftir Jón. Prest-
ur verður sr. Hjálmar Jónsson. Ver-
ið velkomin.
Dómkirkjan.
Klassísk messa í
Hallgrímskirkju
LUX Aeterna, sem er áhugahópur
um klassíska messu og iðkun greg-
orssöngs, stendur fyrir messu með
gregorslagi 2. sunnudag hvers mán-
aðar kl. 20 í Hallgrímskirkju. Hóp-
urinn kallar til helgiþjónustu ýmsa
presta. Kynning og æfingar á mess-
unum verða hálfri klukkustund fyr-
ir messuna sjálfa eða kl. 19.30 í Hall-
grímskirkju.
Næsta messa verður sunnudaginn
12. mars kl. 20, prestur er sr. Sig-
urður Pálsson. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Klassísk messa og gregorssöngur
er dýrmætur arfur kirkjunnar og
kjarnmikið andlegt fóður. Það er
von þeirra sem að þessari messuröð
standa að með henni skapist vett-
vangur fyrir þau sem gleði hafa af
því að iðka klassíska tilbeiðsluhætti,
hins elsta söngs kirkjunnar, sem
tjáningarform trúarinnar.
Tveir fyrrverandi
prófastar þjóna í
Grafarvogskirkju
Í messUNNI á morgun, kl. 11, munu
tveir fyrrverandi prófastar þjóna í
Grafarvogskirkju, þeir sr. Ágúst
Sigurðsson, fyrrverandi prófastur í
Húnavatnsprófastsdæmi og sr. Sig-
fús Jón Árnason, fyrrverandi pró-
fastur í Múlaprófastsdæmi, ásamt
sr. Bjarna Þór Bjarnasyni.
Félagar úr Kvennakór Reykjavík-
ur syngja við athöfnina undir stjórn
Sigrúnar Þorgeirsdóttur. Vignir
Þór Stefánsson píanóleikari mun
annast undirleik. Boðið verður upp
á kaffi og kleinur að messu lokinni.
Guðsþjónusta í London
SUNNUDAGINN 19. mars verður
Íslensk guðsþjónusta í Þýsku kirkj-
unni á Montpelier Place í London og
hefst athöfnin klukkan 15.
Næsta jarðlestarstöð er Knig-
htsbridge. Sunnudagaskólinn verð-
ur aldursskiptur og í umsjón þeirra
Hafdísar, Láru og Þóru. Einsöng
syngur Björg Þórhallsdóttir en ein-
leik annast Guðni Franzson. Íslenski
kórinn í London syngur undir stjórn
Margrétar Sigurðardóttur, sem nú
er á heimleið í vor til Íslands eftir
farsæl og góð störf fyrir kórinn.
Eins mun Kór Kvennaskólans í
Reykjavík syngja í athöfninni undir
stjórn Margrétar Hjartardóttur en
kórinn er nú í söngferð í London.
Eftir guðsþjónustuna verður veg-
leg kaffisala til styrktar starfi Ís-
lenska safnaðarins í London og auð-
vitað eru allir velkomnir.
Tónleikar Kórs
Kvennaskólans í
Reykjavík í London
KÓRINN mun halda tónleika í
Þýsku kirkjunni á Montpelier Place
sunnudaginn 19. mars næstkomandi
klukkan 17. Næsta jarðlestarstöð er
Knightsbridge. Stjórnandi er Mar-
grét Hjartardóttir og dagskrá tón-
leikanna verður fjölbreytt. Enginn
aðgangseyrir.
Kvöldvaka í Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði
KVÖLDVAKA verður í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði á morgun sunnudag
kl.20. Umfjöllunarefni kvöldvök-
unnar að þessu sinni er fastan og
verður fluttir sálmar í anda föst-
unnar.
Hljómsveit og kór Fríkirkjunnar
leiðir tónlist og söng að venju og eft-
ir stundina verður kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Mattheusarguðspjall
í Neskirkju
SUNNUDAGINN 12. mars kl. 15
verður sýnd og rædd í safnarheimili
Neskirkju Passolinimyndin Matth-
eusarguðspjallið frá 1964.
Myndin er n.k. andsvar við banda-
rísku Jesú-myndunum, sem gerðar
voru um svipað leyti. Þetta er svart-
hvít mynd, sem byggir á texta fyrsta
guðspjallsins. Alþýðufólk er í helstu
hlutverkum. Kristur birtist sem
reiður umbótamaður, sem ögrar
samtímafólki sínu með krefjandi
boðskap. Oddný Sen og Arnfríður
Guðmundsdóttir flytja innlýsingar.
Aðgangur ókeypis og allir velkomn-
ir á Jesúbíó á föstu.
Barnaleikritið „Við
Guð erum vinir“ í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
VIÐ fáum barnaleikritið Við Guð er-
um vinir eftir Kari Vinje í flutningi
Stoppleikhópsins í heimsókn í
barnaguðsþjónustuna til okkar í Frí-
kirkjuna kl.14. Leikritið er aðallega
ætlað er fyrir aldurshópinn 1-8 ára.
Að sjálfsögðu höfum við okkar um-
gjörð í stundinni, með sögu, söng,
bænum og andabrauði í lokin.
Kvöldmessa og
trúfræðsla
í Laugarneskirkju
NÚ ER komið að hinni mánaðarlegu
kvöldmessu í Laugarneskirkju kl.
20.30 á sunnudagskvöldið. Að þessu
sinni er það hinn nívígði prestur
safnaðarins, sr. Hildur Eir Bolla-
dóttir, sem þjónar við sína fyrstu
messu. Djasskvartett Gunnars
Gunnarssonar mun leika og kór
Laugarneskirkju leiða gosp-
elsönginn, en Sigurbjörn Þorkelsson
er meðhjálpari. Athugið að Djass-
kvartettinn hefur leikinn kl. 20.
Þess skal líka geta að á þriðju-
dagskvöldum kl. 20 hefjast alltaf
mannræktarkvöld Laugarneskirkju
á kvöldsöng í kirkjuskipi þar sem
Þorvaldur Halldórsson leiðir söng
við undirleik Gunnars Gunnarsson-
arog sr. Bjarni Karlsson flytur Guðs
orð og bæn. Að kvöldsöng loknum,
kl. 20.30 býður Bjarni svo upp á trú-
fræðslu í gamla sal safnaðarheim-
ilisins um leið og 12 spora hóparnir
ganga til sinna verka. Næstu þrjú
þriðjudagskvöld mun Bjarni fjalla
um mannréttindi í ljósi Biblíulegrar
trúar. Velkomið er að koma beint á
trúfræðsluna kl. 20.30, einvörðungu
til kvöldsöngsins kl. 20 eða vera með
frá upphafi til loka.
Kvennakirkjan í
Seltjarnarneskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guð-
þjónustu í Seltjarnarneskirkju
sunnudaginn 12. mars kl. 20.30. Yf-
irskrift messunnar er: Gunna,
Gunna, safnaðu sjálfri þér saman.
Gunna, Gunna farðu með sjálfa þig
heim. Séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir prédikar. Hópur flautuleikara
sem eru nemendur Hallfríðar Ólafs-
dóttur í Tónlistarskólanum í
Reykjavík leika á flautur. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir sönginn
við undirleik Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur. Á eftir er kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Messur Kvennakirkjunnar eru öll-
um opnar. Þær hafa á sér sérstakan
blæ léttleika og samstöðu. Í bæna-
stund eru lesnar bænir sem kirkju-
gestum býðst að skrifa frá eigin
brjósti og setja í körfu.
Er þjóðkirkjan
á undanhaldi?
REGLULEGA sendir Hagstofan frá
sér tölur um meðlimafjölda trú-
félaga og setja fjölmiðlar þá gjarnan
í fyrirsögn að fækkað hafi hlutfalls-
lega í þjóðkirkjunni.
Allt eru þetta áreiðanlegar tölur
og vekja til umhugsunar um þjóð-
kirkjuna og stöðu hennar, en jafn-
framt um stöðu annarra kristinna
trúfélaga í landinu. Er að fækka í
kristnum trúfélögum almennt eða
er hér fyrst og fremst um tilflutning
að ræða? Á fræðslumorgni í Hall-
grímskirkju kl. 10. næstkomandi
sunnudag mun Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir verkefnisstjóri á Bisk-
upsstofu ræða þetta efni. Sömuleiðis
mun hún ræða hvort innra starf
kirkjunnar sé að daprast. Svigrúm
gefst til fyrirspurna að fyrirlestri
loknum.
Að loknum fræðslumorgninum,
kl. 11 hefst guðsþjónusta í umsjá sr.
Sigurðar Pálassonar og barnastarf í
umsjá Magneu Sverrisdóttur
djákna.
Vídalínshátíð
í Garðasókn
VÍDALÍNSHÁTÍÐ stendur nú yfir í
Garðasókn. Atburðir hennar dreif-
ast á mánuðinn, en messan í Vídal-
ínskirkju kl. 11 mun að nokkru end-
urspegla Jón Vídalín og samtíð hans
í tali og tónum. Arnar Jónsson, leik-
ari, mun bregða sér í hlutverk bisk-
upsins, sem fæddur var 21. mars
1666. Arnar flytur efni úr prédik-
unum sr. Jóns, en sálmalögin sem
flutt verða eru öll eftir sam-
tímamenn hans. Þau eru þó mörg
hver að góðu kunn úr helgihaldinu.
Kór Vídalínskirkju syngur undir
stjórn organistans, Jóhanns Bald-
vinssonar. Fulltrúi ungu kynslóð-
arinnar í þessari messu verður Rósa
Dögg Ægisdóttir, nemandi í Tónlist-
arskólanum og eitt af ferming-
arbörnum vorsins. Hún mun leika á
þverflautu í upphafi. Sr. Friðrik J.
Hjartarog Nanna Guðrún Zoëga,
djákni, þjóna. Sunnudagaskólinn
verður eins og venjulega á sama
tíma í umsjón þeirra Rannveigar
Káradóttur og Hjördísar Jóns-
dóttur.
Að lokinni messu annast Lions-
menn veitinga í Safnaðarheimilinu í
boði sóknarnefndar. Aðalsafn-
aðarfundur Garðasóknar hefst þar
síðan kl. 12.45. Aðalsafnaðarfundur
er vettvangur starfsskila og reikn-
ingsskila af hendi sóknarnefndar og
einstakra nefnda innan sókn-
arinnar. Sóknarbörnin eru hvött til
að taka þátt í helgihaldinu og láta
sig varða hag safnaðarins með því
að mæta vel á aðalsafnaðarfund.
Næstu sunnudaga mun Vídal-
ínshátíð halda áfram með áhuga-
verðum atburðum sem auglýstir
verða síðar. Sjá einnig heimasíðu
Garðasóknar: www.gardasokn.is
Messuferð að
Kirkjubæjarklaustri
Á MORGUN, sunnudaginn 12. mars
kl. 11, mun Kór Grafarvogskirkju
og prestar Grafarvogssafnaðar
messa í Pestbakkakirkju á Kirkju-
bæjarklaustri. Séra Vigfús Þór
Árnason prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt séra Önnu Sigríði Páls-
dóttur og séra Elínborgu Gísladótt-
ur. Organistar og kórstjórar eru:
Hörður Bragason og Brian Patrick
Fitzgibbon.
Grafarvogskirkja.
Morgunblaðið/Ómar
Fríkirkjan í Reykjavík.