Morgunblaðið - 11.03.2006, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 11.03.2006, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 63 DAGBÓK Einbýlishús í Seljahverfi óskast Traustur kaupandi óskar eftir 250 fm einbýlis- húsi í Seljahverfi, gjarnan á einni hæð. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Íbúð í 101 Skuggi óskast Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð í 101 Skuggi eða nágrenni. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Stórsýningin Verk og vit 2006 verðurhaldin 16. til 19. mars í nýju íþrótta-og sýningarhöllinni í Laugardal. Ásýningunni munu um 120 fyrirtæki í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, sveitar- félög, hönnuðir og ráðgjafar kynna starfsemi sína. „Megináhersla verður lögð á fagmennsku, aukna þekkingu og tækninýjungar í bygging- ariðnaði og mannvirkjagerð en mjög örar framfarir hafa orðið á þessu sviði undanfarin ár. Einnig er lögð áhersla á nýjar lausnir í við- haldi og eflingu viðskiptatengsla. Í tengslum við sýninguna, sem er bæði fyrir fagaðila og al- menning, verða haldnar ráðstefnur, kynning- arfundir og fleiri viðburðir,“ segir Margit Elva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar. Sýningin Verk og vit er sjálfstætt framhald sýningarinnar Construct Nord sem haldin var í Laugardalshöll 2002. „Sýningin er afar fjölbreytt og spannar öll svið byggingar- og mannvirkjagerðar og skipu- lagsmála. Fjölmargir aðilar og fyrirtæki taka þátt í henni og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Til frekari fróðleiks fyrir sýningargesti verð- ur haldin ráðstefna um rekstur fasteigna og kynningarfundir, m.a. um heilbrigðan útboðs- markað, nýja tónlistar- og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfn og nýjan Landspítala. Ennfremur mun Reykjavíkurborg kynna hvað efst er á baugi í skipulagsmálum,“ segir Margit. „Mikill vöxtur og uppgangur hefur verið í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð síðustu ár, og til marks um það var velta þessa hluta atvinnulífsins fyrstu 6 mánuði síðasta árs tæpir 63 milljarðar króna, sem er um þriðjungsaukn- ing frá sama tíma árið áður.“ Valgerður Sverrisdóttir, ráðherra iðnaðar- og viðskiptamála, opnar sýninguna formlega að viðstöddum boðsgestum 16. mars. Sýningin er opin almenningi laugardaginn 18. mars og sunnudaginn 19. mars kl. 12 til 17 báða dag- ana. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna á heimasíðu sýningarinnar, www.verkogvit.is. Þar má einnig sjá skipulagningu sýningarrýmis og nálgast lista yfir sýnendur, sem og kaupa miða að sýningunni. Sýningin er haldin í samstarfi við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Sam- tök iðnaðarins, Landsbankann og Ístak. Skipu- lagning ráðstefnunnar er í höndum AP sýn- inga, sem er í eigu AP almannatengsla hf. Sýning | Stærsta sýning sem haldin hefur verið um byggingariðnað og skipulagsmál Verk og vit 2006 í Laugardal  Margit Elva Ein- arsdóttir fæddist í Reykjavík 1963. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og BS í fjölmiðlafræði frá Ohio University 1990. Margit hefur starfað við markaðs-, auglýs- inga- og kynningarmál frá 1990. Frá 2005 hefur Margit verið verkefnastjóri hjá AP- almannatengslum ehf. Margit er gift Guð- mundi Emil Jónssyni matreiðslumeistara og eiga þau tvo syni. Guðmundur á þrjú börn frá fyrra hjónabandi. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Slúbertar og aulahúmor HÁVAR Sigurjónsson skrifaði skemmtilega og beinskeytta grein í Lesbók Morgunblaðsins laugardag- inn 4. mars sl., sem var ritdómur um bókina „Biblía fallega fólksins“, eftir Egil Einarsson, öðru nafni Gillzenegger. Grein Hávars ber yf- irskriftina „Handbók heimskingj- ans“, og segir kannski allt sem segja þarf. Nú hef ég ekki lesið umrædda bók en get vel ímyndað mér að Háv- ar hitti naglann á höfuðið þegar hann segir m.a.: „Biblía fallega fólksins er skrifuð í fyrstu persónu, það er Gilzenegger sem hefur orðið; fordómafullur, sjálfhverfur og óupp- lýstur drengstauli, sem stendur þó greinilega í þeirri trú að hann sé fyndinn og því fordómafyllri og sjálfsuppteknari sem hann er því fyndnari verði hann. Það er mis- skilningur.“ Þetta er auðvitað mergurinn málsins. Því miður virðist svo að unga kynslóðin nú til dags hafi sleg- ið skjaldborg um „slúberta“ sem slá um sig með aulafyndni í útvarpi og sjónvarpi. Lítið til dæmis á þessa aumkunarverðu drengstaula sem kalla sig „Strákana“ á Stöð 2. Þarna veltast þeir hver um annan þveran í merkingarlausu tralli, sem getur stundum verið broslegt, en verður þó sjaldnast annað en hallærislegt moð og kjaftæði um ekki neitt. Og þetta virðast vera átrúnaðargoð yngstu kynslóðarinnar, sem og Silvía Nótt, sem ef til vill er dulbúin ádeila á lágkúruna? Þessir „strák- ar“ á Stöð 2 eru kannski ekki þeir verstu. „Slúbertarnir“ finnast um allt land, í öllum skólum og á flest- um vinnustöðum, varla talandi á ís- lensku og slettandi ensku í tíma og ótíma. Ég held að það sé verk að vinna fyrir ungt fólk, sem hefur ein- hverja glóru í kollinum, að sporna við þessari þróun og hefja menntir og menningu til vegs og virðingar á ný. Hrinda af stað endurreisn í anda Fjölnismanna forðum. Þarna eiga mennta- og framhaldsskólarnir að fara í fararbroddi og kveða niður lágkúruna og slúberta-dýrkunina. Koma því inn hjá yngstu kynslóð- inni að svona framkoma og talsmáti sé ekkert annað en hallærislegur aulaháttur. Fjölnismaður á nýrri öld. Þórhalls sárt saknað ÉG VIL taka undir orð bréfritara í Velvakanda hér á dögunum að það er mikil eftirsjá að Þórhalli Guð- mundssyni miðli úr útvarpi. Ég á stóran vinahóp sem hlustar reglu- lega á þessa þætti Þórhalls og ber öllum saman um ágæti þeirra. Von- andi eigum við eftir að heyra aftur í Þórhalli á öldum ljósvakans í fram- tíðinni. Nína Tveir kettir gefins TVEGGJA ára fress og eins árs læða fást gefins vegna breyttra heimilisaðstæðna. Áhugasamir vin- samlegast hafi samband í síma 554 7566 eða 695 0208. Ester. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 85 ÁRA afmæli. Hinn 14. mars nk.verður áttatíu og fimm ára Hjörtur Hannesson, Árskógum 8, Reykjavík. Hann biður vini og ætt- ingja að njóta afmælisins með sér og konu sinni og þiggja kaffiveitingar í salnum í Árskógum 8, sunnudaginn 12. mars eftir kl. 15. Gamlir meistarar. Norður ♠ÁG43 ♥Á93 S/NS ♦K52 ♣432 Vestur Austur ♠9 ♠10876 ♥4 ♥KD8765 ♦G10976 ♦D ♣G108765 ♣D9 Suður ♠KD52 ♥G102 ♦Á843 ♣ÁK Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 2 lauf * 2 hjörtu 2 spaðar Pass 5 spaðar Allir pass Guðmundur Kr. Kristinsson heitinn var hrifinn af „canapé“-sagnaðferðinni, en hún byggist á því að opna á styttri litn- um og segja þann lengri í næsta hring. „Þú veist að „canapé“ er franska og þýðir smáréttur eða forréttur,“ sagði Guðmundur gjarnan. Frakkinn Pierre Albarran (1894– 1960) er hugsuðurinn að baki canapé- aðferðinni. Ítalir gerðu tilraunir með ca- napé í Bláa laufinu, en núorðið sést það varla – spilarar nútímans byrja strax á aðalréttinum. Albarran var álitinn sterkasti spilari Frakka um langt árabil og spilaði fyrir þjóð sína á 30 stórmót- um. Spilið að ofan kom upp í Monte Carlo árið 1951 og Albarran var í suð- ursætinu, sagnhafi í fimm spöðum eftir nokkuð glannalega slemmuáskorun norðurs. Útspilið var hjartafjarki. Albarran lét smátt úr borði og tíuna heima undir drottningu austurs. Hjarta um hæl hefði verið banvænt, en austur spilaði laufi. Tromplegan kom fljótlega í ljós og þar með að vestur átti 11 spil í láglit- unum. Tvo slagi vantaði upp á ellefu og Albarran sá möguleika á þeim með inn- kasti á austur og þvingun á vestur. Fyrst var austur aftrompaður. Næst tók Albarran síðari laufslaginn og dúkk- aði svo tígul yfir á drottningu austurs, sem varð að gefa slag með því að spila hjarta upp í gaffalinn. Síðari slagurinn kom svo þegar Albarran tók síðasta hjartað, því vestur gat ekki haldið í hæsta lauf og valdað tígulinn um leið. Virkilega tilþrifamikið spil. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 d6 3. d4 exd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Be7 6. Bf4 0–0 7. Dd2 d5 8. Rdb5 c6 9. exd5 cxb5 10. d6 Bxd6 11. Dxd6 Da5 12. 0–0–0 Be6 13. Bxb5 Bxa2 14. Be5 a6 15. Bxf6 axb5 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti í Hastings í Englandi sem lauk á fyrstu dögum ársins. Alþjóðlegi meistarinn Stefán Kristjánsson (2.467) hafði hvítt gegn franska kollega sínum Jean- Pierre Le Roux (2.497). 16. Bxg7! Kxg7 17. Hd3 hvítur hótar nú illilega Hd3-Hg3+. Svartur reyndi að blíðka goðin með því að leika 17. … Rd7 en eftir 18. Dxd7 Bc4 19. Hg3+ Kh8 20. Dg4! lagði hann niður vopnin enda er stutt í að hann verði mátaður. 6. um- ferð Reykjavíkurmótsins hefst kl. 17 í dag í skákmiðstöðinni í Faxafeni 12. Allir skákáhugamenn eru hvattir til að mæta og fylgjast með spennandi móti. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. 80 ÁRA afmæli. Í dag, laugardag-inn 11. mars, er áttræð Kristín S. Marteinsdóttir, Valsmýri 1, Nes- kaupstað. Kristín verður að heiman á afmælisdaginn. Á MORGUN, sunnudag, verður boðið upp á leiðsögn um sýn- inguna „Listamaður verður til – Úr Errósafninu“ í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir sýningarstjóri fylgir gestum um sýninguna og fræðir þá um verkin og listamann- inn. Á sýningunni gefur að líta ýmis verk Erró, allt frá barnsaldri þar til hann hélt sína fyrstu einkasýn- ingu á Íslandi árið 1957. Meðal annars má finna verk sem lista- maðurinn gerði á uppvaxtarárum sínum á Kirkjubæjarklaustri, á námskeiði sem unglingur í Hand- íðaskólanum í Reykjavík og mynd- ir frá námsárum hans við Akadem- íuna í Ósló, í Flórens og Ravenna. Leiðsögnin hefst kl. 15 og er ókeypis, en kaupa þarf aðgöngu- miða að safninu. Safnið er opið daglega frá klukkan 10 til 17. Á sýningunni eru verk listamannsins frá æskuárum til fyrstu einkasýningar. Leiðsögn um Erró Fréttir á SMS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.