Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 69
����� ������ ���
���
�
11. mars 200
6
Menntaveg
urinn
MK
Þér er b
oðið í he
imsókn!Námskynning
hjáMK:
Allar námsleiðir í Menntaskólanum í
Kópavogi, Hótel- og matvælaskólanum,
Ferðamálaskólanum og Leiðsöguskólanum
verða kynntar laugardaginn 11. mars.
Við bjóðum þér að ganga „Menntaveginn“
og kynna þér þær námsleiðir sem eru í
boði í MK.
Við hlökkum til að sjá þig.
Spenna
ndi dag
skrá frá
kl. 12.0
0 – 16.0
0
Glæsileg
t og vel b
úið kenn
sluhúsnæ
ði
Í fararbr
oddi í up
plýsinga
tækni
Tungumá
latorg
Leyndard
ómar sm
urbrauðs
listarinn
ar
24 náms
leiðir
Hönnuna
r- og list
asmiðja
Getrauni
r - glæsi
legir vin
ningar
Skoðuna
rferð um
Kópavog
Fjörugt f
élagslíf
Nemend
ur bjóða
gestum
upp á ým
islegt se
m
kitlar br
agðlauk
ana með
an á hei
msókn s
tendur.
FA
B
R
IK
A
N
ANNAR helmingur plötusnúðatvíeykisins
Deep Dish er á leiðinni til Íslands í
fyrsta skipti. Flex Music stendur fyrir
uppákomunni en herlegheitin fara fram í
skemmtihöllinni NASA við Austurvöll
miðvikudagskvöldið 12. apríl, daginn fyr-
ir skírdag.
Deep Dish skipa tveir íransk-ættaðir
plötusnúðar frá Bandaríkjunum, sem
heita Ali Shirazinia og Sharam Tayebi,
oftast þekktir undir nöfnunum Dubfire
og Sharam. Þeir koma fram saman og í
sitthvoru lagi en það er Ali sem leggur
leið sína hingað til lands og spilar ásamt
Grétari G. á þessu klúbbakvöldi.
Deep Dish hefur unnið til Grammy-
verðlauna m.a. fyrir besta danslagið og
bestu dansplötuna. Sem stendur er Deep
Dish í fimmta sæti á listanum yfir
stærstu plötusnúðana á www.the-
djlist.com.
Saman hafa þeir endurhljóðblandað
lög eftir fjölda listamanna eins og Ma-
donnu, Rolling Stones, Depeche Mode,
Dido, Janet Jackson og Justin Timber-
lake. Ennfremur sendi Deep Dish nýver-
ið frá sér plötuna George is On og hefur
fylgt henni eftir víðsvegar um heiminn.
Undirbúningur kvöldsins er í fullum
gangi en það verður með nokkuð öðru
sniði en venjulega. Sett verður upp sér-
stök leysigeislasýning og einnig verður
hljóðkerfið stækkað til muna.
Deep Dish á leið til landsins
Sharam Tayebi og Ali Shirazinia skipa Deep Dish en sá síð-
arnefndi er á leið til landsins í apríl.
Forsala hefst laugardaginn 1. apríl og fer
fram í Þrumunni við Laugaveg og á
www.midi.is.
GHOSTIGITAL er samstarfs-
verkefni tveggja íslenskra tónlist-
armanna. Einar Örn Benedikts-
son er mörgum kunnur úr Purrki
Pilnikk og Sykurmolunum en
Birgir Örn Thoroddsen hefur
starfað við tónlist í mörg ár undir
nafninu Curver.
In Cod We Trust er skrýtin
plata. Á henni úir og grúir af
hljóðum og margar stefnur bland-
ast saman á þann hátt að engin
þeirra verður fyllilega greind.
Það er ekki auðvelt að taka svona
grip í sundur og gagnrýna því að
það má finna á plötunni hiphop,
kvikmyndatónlist, rokk, dans-
tónlist, klassík og ýmislegt fleira,
ef vel er gáð. Stefnurnar passa
misvel saman en þar sem tónlist-
in er mjög framsækin gengur
þetta í sjálfu sér upp. Við fyrstu
hlustun er jafnvel erfitt að skilja
hver tilgangur kraðaksins á að
vera. Einar Örn æpir ljóð sín á
örvæntingarfullan hátt á meðan
Curver hækkar í hljóðunum sem
hann býr til. Stundum breytast
lögin í fínasta hiphop, þar sem
góðvinur Ghostigital, Sensational,
rappar í ágætum stíl. Í önnur
skipti þróast þau út í vélrænan
takt og dramatískan söng. Því
meira sem hlustað er á plötuna
því fjölbreyttari verður hún, það
tekur langan tíma að læra að að-
greina hljóðin og fyrir tónlistar-
áhugamanneskju er þetta ansi
skemmtilegt.
Það er margt um gesti á In
Cod We Trust. Gestirnir setja
óhjákvæmilega mikinn svip á þau
lög sem þeir eiga þátt í. Reyndar
sjá gestirnir til þess að lögin
haldi enn skýrar einkennum en
þau gerðu fyrir. Þetta eykur enn
á breidd plötunnar. Þessi plata er
nútímalistaverk í hljóði. Stundum
er hún skemmtileg, stundum leið-
inleg, að mörgu leyti áhugaverð
en að mestu leyti óskiljanleg.
Það má því með sanni segja að
þessi plata sé ekki fyrir þá sem
eru að leita sér að hefðbundinni
popptónlist. Því þrátt fyrir að
Ghostigital ferðist vítt og breitt
um aðgengilegt tónlistarumhverfi
og eigi margt skylt við tónlist-
armenn eins og t.d. Mugison og
Björk, þá er þessi plata afar tor-
melt. Eina skilgreiningin sem
mér dettur í hug er abstrakt
popptónlist, en ég er ekki viss um
að sú skilgreining gangi upp … Í
hulstri disksins stendur „Confus-
ion is the message“ sem þýðir á
íslensku að skilaboðin séu ring-
ulreið. Ekki er um annað að vill-
ast. Hver verður sjálfur að kljást
við þá óreiðu sem tónlist Ghost-
igital er. En hver sem niður-
staðan er, verður að segjast að
þeir hanna þessa óreiðu afar vel.
Vel skipu-
lögð
óreiða
TÓNLIST
Íslenskur geisladiskur
Geislaplata Ghostigital, nefnd In Cod
We Trust. Ghostigital eru Birgir Örn
Thoroddsen/Curver og Einar Örn Bene-
diktsson. Gestir á disknum eru Sensa-
tional, Ásgerður Júníusdóttir, Elís Pét-
ursson, Gísli Galdur, Hrafn Ásgeirsson,
Katiejane Garside, Mark E. Smith,
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, Viðar
Hákon Gíslason, Steve Beresford,
Frosti Logason, Siggi Baldursson,
Mugison, Hrafnkell Flóki og Dälek. Öll
lög og textar eru eftir þá Einar og
Birgi, auk þess sem að í lögum 1, 2,
3, 7 og 8, eiga Sensational, Smith,
Garside og Dälek texta. Platan var
tekin upp í Tíma, Bakkastöðum og
b109 Reykjavík, á tónleikum í Klink
og Bank, í London og Manchester, í
Studio G. í New York og The Mayan
Ruins í Newark, New Jersey. Um upp-
tökur sáu Ghostigital, Tony Maimone
og Will Brooks. Curver sá um hljóð-
blöndun en Ghostigital útsettu og
stjórnuðu upptökum. Smekkleysa gef-
ur út.
Ghostigital – In Cod We Trust
Helga Þórey Jónsdóttir