Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 18
18 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Einstein hefur
endurvakið
hjá mér guð
á morgun
Guðlaugur Kristinn
Óttarsson um vísindi,
tónlist og listsköpun.
SAMSON eignarhaldsfélag hf.
hagnaðist um 8,3 milljarða króna á
árinu 2005. Árið áður var hagnaður
félagsins 5,1 milljarður.
Félög í eigu feðganna Björgólfs
Guðmundssonar og Björgólfs Thors
Björgólfssonar eiga hvort um sig
49,5% hlut í Samson eignarhalds-
félagi en lykilstarfsmenn félagsins
eiga samtals 1,0%. Tilgangur þess er
eignarhald á hlutabréfum í Lands-
banka Íslands og rekstur og umsýsla
tengd því eignarhaldi.
Eignarhluti Samsonar í Lands-
banka er færður samkvæmt svo-
nefndri hlutdeildaraðferð í ársreikn-
ingi þess. Tekjufærð hlutdeild í
hagnaði bankans á árinu 2005 nam
11,0 milljörðum og hagnaður félags-
ins nam 8,3 milljörðum samkvæmt
rekstrarreikningi, eins og áður seg-
ir. Móttekinn arður frá Landsbank-
anum að fjárhæð 726 milljónir gekk
til lækkunar á fjárfestingu félagsins í
bankanum en var ekki færður til
tekna í rekstrarreikningi.
Eignarhluti félagsins var að nafn-
verði 4.427 milljónir í árslok 2005 og
nam hann 40,2% af útgefnu hlutafé
bankans. Markaðsverð eignarhlut-
ans nam 112 milljörðum í árslok.
Bókfært eigið fé Samsonar í árs-
lok 2005 nam 14,3 milljörðum króna
og er eignarhlutinn í Landsbankan-
um metinn á 46,1 milljarð. Sé hins
vegar miðað við markaðsverð eign-
arhlutans í árslok nam eigið fé fé-
lagsins 68,3 milljörðum, að teknu til-
liti til tekjuskattsáhrifa.
Engin skattgreiðsla
Skuldir félagsins í árslok 2005
námu 37,6 milljörðum og þar af voru
langtímaskuldir 25,2 milljarðar.
Arðsemi eigin fjár á árinu var
156% þegar miðað er við hagnað
samkvæmt rekstrarreikningi.
Tekjuskattur Samsonar eignar-
haldsfélags vegna ársins 2005 var 1,7
milljarðar króna en tekjuskattur til
greiðslu er hins vegar enginn, þar
sem tekjufærð hlutdeild í afkomu
Landsbankans myndar ekki skatt-
stofn hjá félaginu. Tekjuskattsskuld-
binding félagsins í árslok 2005 var
3,0 milljarðar króna en hún kemur
ekki til greiðslu fyrr en og ef félagið
selur hlut í Landsbankanum.
Arðsemi eigin fjár
Samsonar 156%
Morgunblaðið/Kristinn
HIÐ öfluga ís-
lenska hagkerfi
hefur allar for-
sendur til þess að
standa sig í al-
þjóðlegri sam-
keppni þrátt fyrir
daprar spár um of-
hitnun hagkerfis-
ins og þunga
skuldastöðu. Rétt
eins og Danmörk hefur Ísland verið
talið til fyrirmyndarlanda á meðal
OECD-landanna með sterka sam-
keppnisstöðu, sveigjanlegan vinnu-
markað og mikinn frumkvöðlaanda.
Þetta kemur fram í leiðara
danska viðskiptablaðsins Børsen í
gær þar sem fjallað er um stöðu
bankanna og efnahagslífsins á Ís-
landi en fyrirsögnin er: „Ísland mun
sigla milli skers og báru“.
Miklar fjárfestingar í áliðnaði
Minnt er á mikinn hagvöxt á Íslandi
á síðustu tíu árum og að hann hafi
verið meira en tvöfalt meiri en með-
altalið á evrusvæðinu. Þá er og
minnt á að miklar fjárfestingar í ál-
versframkvæmdum muni gera Ís-
land að einum stærsta álframleið-
enda heimsins.
„Fjárfesting-
arnar eru ein af
skýringunum á
miklum viðskipta-
halla en hann er
einn þeirra hagvísa
sem hafa skapað
áhyggjur af efna-
hagslífinu á Ís-
landi. Hinn vísirinn
er mikil eftirspurn
í hagkerfinu sem hefur orðið til þess
að atvinnuleysið hefur minnkað í 1%
og að verðbólga hefur farið vax-
andi.“
Í leiðaranum er fjallað sérstak-
lega um skýrslu Danske Bank og
áréttað að hún sé aðeins ein af
mörgum um stöðu viðskiptabank-
anna og stöðuna í íslensku efnahags-
lífi.
„Sérfræðingar bankans segja
sjálfir í inngangi hennar að Ísland
sé ekki þeirra kjarnasvið. Þó ekki
nema væri þess vegna er ástæða til
þess að lesa skýrsluna með varúð en
menn hafa líka með réttu gagnrýnt
að skýrslan sé gerð opinber nú þar
sem sérfræðingar bankans segja
sjálfir að þeir hefðu getað komist að
sömu niðurstöðum fyrir sex mánuð-
um,“ segir í leiðara Børsen.
„Ísland mun sigla
milli skers og báru“
Milljónaútdráttur
Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
3. flokkur, 24. mars 2006
Kr. 1.000.000,-
1450 B
1745 F
3394 H
3653 E
5150 G
5189 E
7109 H
7601 E
8222 B
9752 G
14109 E
14713 E
15748 H
20460 B
21855 B
22966 G
23442 E
25222 B
25648 B
26955 E
30008 E
30147 B
32229 E
33003 B
35731 F
40118 G
40787 F
42222 F
44744 G
50175 G
Leiðtoganámskeið
fyrir konur í Garðabæ
Farið verður yfir mikilvægi þess að skapa sér sýn og setja sér
markmið. Fjallað um framkomu, samskipti og árangur í starfi
og einkalífi. Kennd verða grundvallaratriði í ræðumennsku
og ræðuþjálfun.
Meðal gesta:
Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs
sr. JónaHrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðabæ
Margrét PálaÓlafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar
Ragnhildur IngaGuðbjartsdóttir, flugfreyja og frambjóðandi
Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur
Inga Lind Karlsdóttir, sjónvarpskona
Á lokakvöldi verður hátíðarkvöldverður í Urðabrunni. Heiðursgestur verður
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra.
Námskeiðið er haldið þriðjudagskvöldin 28. mars
og 4. apríl og fimmtudagskvöldin 30. mars og 6. apríl.
Glitnir er aðalstyrktaraðili
leiðtoganámskeiðsins
Sjálfstæðisfélagið í Garðabæ
Leiðtoganámskeið með Ásdísi Höllu Bragadóttur
fyrir konur í Garðabæ hefst 28. mars. Einstakt tækifæri
til að efla leiðtogahæfileika í starfi og einkalífi sem
og að kynnast öðrum konum í Garðabæ.
Skráning er á:
www.gardar.is
Námskeiðið er aðeins
ætlað konum í Garðabæ.
Takmarkað sætaframboð.
Námskeiðið er ókeypis.
NOREX kauphallirnar í Reykjavík,
Osló, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn
og Helsinki munu í byrjun næsta
mánaðar setja á stofn nýjar norræn-
ar vísitölur, svonefndar VINX vísi-
tölur. Í tilkynningu frá Kauphöll Ís-
lands segir að tilgangurinn með
vísitölunum sé að endurspegla nor-
ræna hlutabréfamarkaðinn á áreið-
anlegan hátt og varpa ljósi á fjárfest-
ingartækifæri á honum. Fimm
íslensk félög komast inn í viðmiðun-
arvísitöluna við fyrsta val; Actavis,
Bakkavör, Kaupþing banki, Kögun
og Straumur-Burðarás.
Um 800 félög eru skráð í þessum
fimm kauphöllum og er markaðs-
virði þeirra í kringum 1.000 milljarð-
ar evra. VINX vísitölurnar verða til
viðbótar og óháðar þeim vísitölum
sem nú þegar eru reiknaðar í kaup-
höllunum.
Mikilvægur áfangi
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir vísitölurn-
ar mikilvægan áfanga í NOREX
samstarfinu og innkoma skráðra, ís-
lenskra fyrirtækja í þær stuðli að
auknum sýnileika íslenska markað-
arins á erlendum vettvangi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kauphöllin
með í nýjum
norrænum
vísitölum