Morgunblaðið - 25.03.2006, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 51
Dodge Stratus 2.4 árg. 2003, ek.
46 þ. m. Góður bíll á aðeins kr.
1.390 þús. Uppl. í síma 567 4000.
Vegna mikillar sölu vantar okkur
nýlega bíla á skrá og á plan.
Dodge Ram 3500 Dually diesel
330 hp, ek. 2 þús. km. Silfurgrár
(nýr), leður, cd, ryðfrí gangbretti
o.m.fl. Uppl. í síma 892 4163 og
ansa@internet.is.
Dodge Grand Caravan 3,3 árg.
1993, sjálfskiptur, 4 stólar + bekk-
ur, 7 manna bíll. Skipt um allt í
bremsum sl. haust. Heilsársdekk
hálfslitin. Góð hljómtæki. Ekinn
210.000 km. Nýskoðaður og í
ágætu lagi, verð samkomulag.
Uppl. í síma 569 1458 á daginn og
669 1458 á kvöldin.
Toyota Land Cruiser '88 bensín.
Ekinn 235 þús. Verð 200 þús. stgr.
Vel með farinn bíll í topplagi.
Hlaðinn aukahlutum. Uppl. 553
2233 eða 893 1090 Birgir.
Toyota Carina 2,0 árg. '96. Bein-
skiptur. Nýsk. '07. Næsta skoðun
des. 2007. Talsvert yfirfarinn.
Smurbók, ný tímareim, nýtt í
bremsum að framan o.fl. Verð kr.
270.000. Sími 896 6181 eða
557 6181.
Toyota Avensis árg. 2000, ek.
45 þús. km. Mjög fallegur og vel
með farinn bíll. Verð 950 þús.
Sími 566 6062.
Til sölu Landcruser VX árg. 5/
2004. Silfurgrár, 8 manna, vel
með farinn, ek. 86.000 km. Leður-
klæddur, loftpúðar aftan, filmur
í rúðum, dráttarkúla, húddhlíf,
gluggahlífar. Uppl. í s. 453 7425.
Subaru árg. '01, ek. 103 þús. km.
4 dyra, 4x4, 2.0 vél, góður og vel
með farinn bíll. Álfelgur og ný
vetrardekk á felgum. Ásett verð
980 þ. Tilboðsverð 850.000. Uppl.
í síma 699 8334.
Sem nýr Opel Astra Cara-
van 1,6 árg. 12/03, sjálfsk. Cd, álf-
elgur o.fl. Ek. aðeins 19.800 km. Í
ábyrgð hjá umboði fram í des.
Nýskoðaður '08, sérlega fallegur,
lipur og vel með farinn stationbíll.
Listaverð 1.330.000. Tilb. 980.000.
Ath. skipti. Uppl. í s. 896 6181.
Renault Clio 1,4 árg. 1997, bein-
skiptur, 5 dyra, 4 góð sumardekk
á felgum + 2 góð laus sumardekk.
4 góð vetrardekk negld, á felgum.
Ekinn ca 110.000. Skoðaður og í
góðu lagi. Nýtt útvarp m. geisla-
spilara og USB tengi, MP3 spilari.
Verð ca 330.000. Umtalsverður af-
sláttur við staðgreiðslu. Uppl. í
síma 569 1458 á daginn og 669
1458 á kvöldin.
Nýr bíll - frábært verð - Chrysl-
er PT Cruiser 2005.
Ekinn 4 þús. 2,4 vél, sjálfskiptur,
framhjóladrif, 17" krómfelgur og
breið dekk + aukadekk. Verð 2,1
millj. Upplýsingar í síma 899
2005.
Nissan Terrano 2,7 TDI árg. '04.
5 gíra, fjarstýrðar samlæsingar,
rafdrifnar rúður, álfelgur, ný vetr-
ardekk. Ekinn 17 þús. km. Verð
2.990 þús. Gott bílalán. Ath. ýmis
skipti. Sími 690 2577.
Þjónustuauglýsingar 5691100
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 577 2000
Ford Focus Ambiente árg. 2000,
ek. 70 þús. Nýskoðaður '07, 5
dyra, sparneytinn og hagkvæmur.
Þarf að seljast fljótt, góð kaup á
aðeins kr. 630 þús. Upplýsingar
í s. 692 9800.
Ford F350 King Ranch Diesel
4x4, '05, ek. 1.600 km, leður,
sjálfsk., rafm. í öllu, Fx4, bakksk.,
shift on the fly o.fl. o.fl.+ aukahl.
fyrir 330.000. Skipti möguleg.
Upplýsingar í síma 892 4163.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Ttilboð! Nissan Terrano II 2.4
bensín árg. 1995, beinskiptur, 33"
breyting. Verð 580 þ. Tilboð 380
þ. stgr. Upplýsingar í síma 567
4000. Vantar nýlega bíla á skrá
vegna mikillar sölu.
Tilboð! Nissan Patrol GR 2.8
dísel árg. 1991. Beinskiptur, ekinn
ca 70 þ, á vél, nótur fylgja. Verð
570 þ. Tilboð aðeins 380 þ. stgr.
Upplýsingar í síma 567 4000.
Vantar nýlega bíla á skrá vegna
mikillar sölu.
FRÉTTIR
OPNAÐUR hefur verið vefur þar
sem ungmenni fá úrlausn vanda-
mála á einfaldan og skilvirkan hátt,
www.totalradgjof.is. Viðstödd opn-
unina var Steinunn Valdís Óskars-
dóttir borgarstjóri.
Vefsíðunni er ætlað að vekja at-
hygli og virkja áhuga ungs fólks
fyrir því að þau geti leitað sér að-
stoðar þar sem aðgengi er hrað-
virkt og móttakan í höndum ráð-
gjafateymis sem tekur heildrænt á
vandamálum ungs fólks. Reynslan
hefur sýnt að það er þörf fyrir að-
gengilegri ráðgjöf fyrir ungt fólk í
tímabundnum vanda, segir í frétta-
tilkynningu.
Samstarfsverkefni
„Tótalráðgjöfin gætir fyllsta
trúnaðar og þagmælsku við þá sem
til hennar leita. Tótalráðgjöfin er
samstarfsverkefni nokkurra stofn-
ana, samtaka og fyrirtækja í
Reykjavík. Þau eru; Hitt húsið
(Trójuhesturinn), Þjónustumið-
stöðvarnar í Reykjavík, FKB
(Fræðslusamtök um kynlíf og barn-
eignir) og Ný leið (sálfræðiþjón-
usta). Fyrirspurnir sem sendar eru
á vefinn eru af margvíslegum toga
t.d kynsjúkdómar, offita, lélegt
samband eða almenn vanlíðan.
Fyrirspurnirnar eru nafnlausar
og ekki er hægt að rekja þær til
fólks. Allir ráðgjafarnir eru fag-
menntaðir á sínu sviði. Fyrirspurn-
um er að mestu leyti svarað á net-
inu en einnig er hægt að hringja í
tvo ráðgjafa í Hinu húsinu í síma
520-4621 og 520-4611. Ef þeir geta
ekki gefið ráð vísa þeir fólki áfram
og finna viðeigandi ráðgjafa innan
tótalteymisins. Á tótalráðgjafarsíð-
unni er lagður metnaður í að veita
skjót svör og svara innan þriggja
daga,“ segir í fréttatilkynningu.
Vefstjóri Totalradgjof er Her-
mann Finnbjörnsson fyrir AP
media og grafískur hönnuður síð-
unnar er Helgi Páll Einarsson.
Ráðgjöf fyrir unglinga á vefnum
Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók þátt í opnun vefjarins.
STARF rektors Skálholtsskóla sem
er kirkjuleg menningar- og
menntastofnun í eigu þjóðkirkj-
unnar er laust til umsóknar. Ráðið
er í starfið frá 1. júlí 2006 til fjög-
urra ára.
Rektor ber fyrst og fremst
ábyrgð á faglegu starfi skólans.
Skólaráð er rektor og stjórn Skál-
holts til faglegrar ráðgjafar um
stefnu og starf skólans. Stjórn Skál-
holts ræður í starfið og heyrir rekt-
or undir hana. Umsóknum skal skil-
að fyrir 8. apríl nk.
Núverandi rektor sr. Bernharður
Guðmundsson lætur af störfum í
júlílok eftir 5 ára feril sem rektor í
Skálholti.
Starf rektors
í Skálholti laust
til umsóknar
AÐALFUNDUR Sunnuhlíðar-
samtakanna sem haldinn var 17.
mars sl. hefur sent frá sér eftirfar-
andi ályktun: „Fundurinn gerir þá
kröfu að daggjöld til hjúkrunar-
heimila aldraðra taki mið af raun-
kostnaði og sá hallarekstur sem er,
verði leiðréttur tafarlaust.
Auk þess lýsir aðalfundurinn
áhyggjum sínum af erfiðleikum í
mönnun vegna lakra kjara starfs-
manna. Að óbreyttu er ljóst að ekki
er hægt að þjónusta aldraða eins og
þarf án þess að viðbótarfjármagn
komi til,“ segir í ályktuninni.
Hallarekstur
hjúkrunarheimila
verði leiðréttur
MÁLEFNAÞING og landsráðs-
fundur Frjálslynda flokksins verð-
ur haldið á Hallveigarstöðum við
Túngötu í dag, laugardaginn 25.
mars og hefst kl. 9. Umfjöllunarefni
eru: Aldraðir, fatlaðir, skattkerfið,
sveitarstjórnarmál og kosningar.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
flokksins, setur fundinn.
Málþingið er opið öllum félögum
í Frjálslynda flokknum.
Málefnaþing Frjáls-
lynda flokksins
HVÍTABANDIÐ – líknarfélag hef-
ur veitt tveim vísindamönnum hjá
Rannsóknarstofu Krabbameins-
félags Íslands í sameinda- og
frumulíffræði, Helgu M. Ögmunds-
dóttur lækni og Jórunni Erlu Ey-
fjörð erfðafræðingi og samstarfs-
fólki þeirra, styrk að upphæð
500.000 krónur til framhaldsrann-
sókna á arfgengi brjóstakrabba-
meins.
Jórunn Erla Eyfjörð og sam-
starfsmenn hennar áttu drjúgan
þátt í að einangra BRCA2 genið
og fundu íslenska stökkbreytingu í
því geni.
Helga M. Ögmundsdóttir og
samstarfsfólk hennar í frumu-
líffræðihluta rannsóknarstofunnar
náðu góðum árangri við að rækta
frumur úr brjóstakrabbameinsæxl-
um og var þannig til dæmis unnt
að sýna fram á tengsl milli gena-
breytinga og óstöðugleika litninga
í æxlunum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Styrkurinn afhentur: Jórunn Erla
Eyfjörð erfðafræðingur, Erla Jóns-
dóttir, formaður Hvítabandsins, og
Helga M. Ögmundsdóttir læknir.
Hvítabandið
veitir styrk
til krabbameins-
rannsókna
AÐALFUNDUR SES (Samtaka
eldri sjálfstæðismanna) sem haldinn
var nýlega lýsir ánægju sinni yfir
stefnumörkun síðasta landsfundar
Sjálfstæðisflokksins í málefnum
aldraðra.
Aðalfundurinn leggur sérstaka
áherslu á, að stefnumörkun lands-
fundarins verði framfylgt í reynd hið
fyrsta. Meðal þess sem unnt er að
framkvæma með jákvæðum hætti
fyrir málsaðila, eldri borgara og rík-
isvaldið, er eftirfarandi:
Að afnema tekjutengingu á
grunnlífeyri, að hjón/sambýlisfólk
njóti fullra lífeyrisgreiðslna al-
mannatrygginga án tillits til tekna
maka, að tryggt verði nægilegt
framboð húsnæðis, dagvistunar- og
hjúkrunarrýmis fyrir aldraða, að
heimaþjónusta við aldraða verði efld
verulega frá því sem nú er, með það
að markmiði að aldraðir geti dvalið
sem lengst á eigin vegum utan stofn-
ana, að nefnd sú, sem fjármálaráð-
herra skipaði fyrir skömmu til að
fjalla um hugsanlegar breytingar á
gildandi skattalögum, taki m.a. til
meðferðar nauðsynlegar breytingar
á skattalegri stöðu lágtekju- og
millitekjufólks þessum aðilum til
hagsbóta. Þá vekja samtökin athygli
á núverandi neikvæðu samspili
launa og/eða lífeyrissjóðstekna
vegna skerðingarhlutfalla við út-
reikning ellilífeyris hjá Trygginga-
stofnun ríkisins og lágum skattleys-
ismörkum sem koma hvað þyngst
niður á afkomu fyrrgreindra tekju-
hópa.
Einnig lýsir aðalfundur SES
ánægju sinni yfir því að í samræmi
við stefnu Sjálfstæðisflokksins um
afnám eignaskatta, komi það að fullu
til framkvæmda frá og með árinu
2006. Í rökréttu framhaldi þessa sé
eðlilegt að fasteignaskattar verði
lækkaðir til muna og að komið verði
í veg fyrir hækkanir þótt fasteigna-
mat hækki, segir í fréttatilkynningu
frá samtökunum.
Samþykkt aðalfundar Samtaka eldri sjálfstæðismanna
Stefnumörkun síðasta
landsfundar verði framfylgt