Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 53
FRÉTTIR
Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is
Landbúna›arháskóli Íslands
Kynntu flér námslei›ir vi› LBHÍ,
vi› bjó›um grunn a› framtí›.
www.lbhi.is
Umhverfisskipulag (landslagsarkitektúr)
Búvísindi /gar›yrkja
Náttúru- og umhverfisfræ›i
Skógfræ›i og landgræ›sla
Nám í LBHÍ – grunnur a› framtí›
Fyrstu húsin í þorpinu á Hellnum eru nú risin og verða til sýnis og sölu laugardaginn 25. og
sunnudaginn 26. mars nk. milli kl. 12 og 16
Vönduð norsk timburhús byggð á staðnum
eftir ströngustu stöðlum um heilsárs íveruhús
Framúrskarandi handverk, kjörviður og frábær frágangur
Nýtt þorp rís á Hellnum
Hellisvellir ehf.
Uppl. í síma 893 6653
Sími 555 3000
www.iceland.as
PERLA Investments s.l. heldur
fasteignakynningu á morgun,
sunnudaginn 26. mars á Grand
Hótel Reykjavík. Kynningin stend-
ur frá kl. 13-18 og mun starfsfólk
Perlu kynna fasteignir á Spáni og í
Brasilíu.
Frá Spáni verða kynntar fast-
eignir á strandlengjunum Costa
Blanca, Costa Calida og Costa Al-
meria. Einnig verða kynntar fast-
eignir í Brasilíu.Veittar eru upplýs-
ingar um menningu, svæðið,
staðsetninguna og lánamöguleika.
Allir sem kaupa fasteign hjá
Perla Investments s.l. á þessu ári
eiga þess kost að vinna bíl að ári.
Kaupanda að fasteign frá sl. ári
verður afhentur Ford KA bíll á
kynningunni, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Kynning á
fasteignum á
Spáni og Brasilíu
Jón varaformaður
RANGHERMT var á viðskiptasíðu
blaðsins í gær að Jón Kristjánsson
væri stjórnarformaður Icelandic
Group. Hið rétta er að hann er vara-
formaður og Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson er sem fyrr stjórnar-
formaður. Beðist er velvirðingar á
þessu ranghermi.
Upphlutur
Í MYNDATEXTA í Daglegu lífi í
blaðinu í gær var talað um vesti af
upphlut. Það er ekki rétt heldur er
um að ræða efri hluta af upphlut.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTGUNNAR Svavarsson (S), forseti
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, og
Magnús Gunnarsson (D) bæjar-
fulltrúi hafa sammæltust um að
leggja fram sameiginlega ályktun í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar um að
ríkisvaldið þyrfti strax að endur-
skoða samgönguáætlun m.t.t. þess
að aukið fjármagn komi til fram-
kvæmda á höfuðborgarsvæðinu.
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hvetur ríkisvaldið til að endurskoða
nú þegar samgönguáætlun með það
að markmiði að stofnsamgöngu-
kerfi höfuðborgarsvæðisins verði
gert markvissara fyrir íbúa lands-
ins og fjármagn til verkefna verði
aukið til mikilla muna frá því sem
nú er,“ segir ályktuninni.
Vilja aukið fé
til vegamála
STJÓRN Ungra vinstri grænna
fagnar því að Bandaríkjaher skuli
vera að fara burt. Stjórnin krefst
þess að stjórnvöld taki forystu sem
friðelskandi, herlaus þjóð. „Þó að
Ísland sé að losna við stríðstækin er
sannleikurinn sá að Bandaríkjaher
ætlar sér að nota þessi stríðstól í
öðrum löndum til að myrða fólk. Ís-
land á að berjast gegn stríðsvélinni
en ekki vera huglaust, sérhlífið og
sjálfselskt eins og Bandaríkin,“
segir í ályktun.
Fagna ákvörðun
Bandaríkjanna
BLINDRAFÉLAGIÐ og sveitarfé-
lagið Álftanes hafa gert með sér
samning um ferðaþjónustu blindra
á Álftanesi. Samkvæmt honum geta
lögblindir Álftnesingar fengið allt
að 40 ferðir á mánuði með leigubíl-
um milli staða á höfuðborgarsvæð-
inu og greitt fyrir sem samsvarar
fullu fargjaldi í strætó.
Samið um ferða-
þjónustu blindra