Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 54

Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 54
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn FYRSTA SNJÓKORNIÐ! HÚRRRRA! NÚ ER KOMINN TÍMI Á MIKIÐ AF HEITU SÚKKULAÐI SJÁÐU ÞETTA KALLI! ÞAÐ ER VERIÐ AÐ HALDA ÍÞRÓTTAVEISLU. ÞEIR ÆTLA AÐ BJÓÐA WILLIE MAYS, BOBBY HULL, ARNOLD PALMER OG... ...MEIRA AÐ SEGJA JOE SLABOTNIK!!! ÓTRÚLEGT! HANN ER HETJAN MÍN. MIKIÐ VÆRI GAMAN AÐ HITTA HANN ÉG SÉ SJÁLFAN MIG SITJA VIÐ HLIÐINA Á HONUM ...OG ÉG SIT VIÐ HLIÐINA Á PEGGY FLEMING FRAMTÍÐIN ER ÖRÐUVÍSI EN ÉG HÉLT JÁ, MIKIÐ ER HEITT OG MOLLULEGT. ÉG BJÓST VIÐ AÐ ÞEIR HEFÐU NÁÐ TÖKUM Á VEÐRINU SVO LYKTAR LOFTIÐ SVO ILLA. MENGUN ER GREINILEGA ENNÞÁ VANDAMÁL MÉR FINNST EINS OG ÞAÐ SÉ FYLGST MEÐ OKKUR JÁ, STÓRI BRÓÐIR ER EFLAUST ALLSSTAÐAR Í FRAMTÍÐINNI EFTIR SEX VIKNA LEIÐANGUR, ÞÁ VERÐUR GAMAN AÐ SJÁ HVAÐ ER AÐ GERAST HEIMA KANNSKI AÐ ÉG ATHUGI HVAÐ ER AÐ GERAST Á KRÁNNI FYRST VILTU HÆTTA AÐ ÖSKRA ÞETTA! ÞÚ HRÆÐIR BRÁÐINA! JÁ? SVO BYRJAÐI HÚN AÐ REYNA VIÐ MIG. ÞAÐ GERÐIST EKKERT EN ÉG ER SAMT MEÐ SAMVISKUBIT ÉG SKIL HVAÐ Á ÉG AÐ GERA? LÁTA MIG FÁ NÚMERIÐ HENNAR ÉG HITTI GAMLA VINKONU ÚR MENNTÓ Í GÆR OG VIÐ FENGUM OKKUR HAMBORGARA SAMAN HJÁLP! VERTU RÓLEG... KRAVEN, VEIÐIMAÐUR, KEMUR TIL BJARGAR Dagbók Í dag er laugardagur 25. mars, 84. dagur ársins 2006 Það er líklegt aðmargir vilji sjá Víkverja tjargaðan og fiðraðan fyrir að segja að honum þyki Reykjavík ekkert sér- staklega falleg borg. Og þó! –Æ fleiri og háværari verða þær raddir sem benda á þau mörgu byggingar- og skipulagslegu lýti sem eru á höfuðborg- inni og bæjunum í kring. Það sem gefur Reykjavík og ná- grenni hvað helst feg- urð er sá tignarlegi bakgrunnur sem náttúran hefur gefið óspennandi byggingum borgarinnar: Esjan, Keilir og sólin sem sest í Atlants- hafið sameinast um að ramma fal- lega inn annars ljóta borgarmynd- ina. Ljótleiki (eða í besta falli svip- leysi) höfuðborgarsvæðisins birtist Víkverja hvað skýrast þegar hann tekur strætó heiman frá sér úr Hafnarfirði inn í Reykjavík. Á leið- inni frá Firðinum að Kringlunni má sjá eftirfarandi fallegu hús: Hafn- arfjarðarkirkju, Tónlistarhúsið í Kópavogi. Hann verður ekki lengri, listinn, á þessari löngu leið. Annars er útsýnið svona: ljót og lúin iðn- aðar- og versl- unarhúsnæði við Reykjavíkurveg. Hræðilegt grænt grindverkið og óspennandi húsin þeg- ar ekið er gegnum austurhluta Garða- bæjar. Við Aktu-Taktu tekur við hrörlegt dekkjaverkstæðið á hægri hönd og rytju- legt túnflæmið á vinstri hönd. Þegar komið er yfir sköll- óttan Arnarneshrygginn blasir við hroðinn Hamraborg, og þar eftir ófagur Nýbýlavegurinn og Fossvog- urinn, með kumböldunum sem standa bakvið bensínstöðina í botni vogsins á vinstri hönd og á hægri hönd var, þar til nýlega, iðn- aðarskrani dreift skipulega yfir lit- boltavöllinn. Loks er komið að gul- bláu ófreskjunni sem er Kringlan. Það hvarflar stundum að Víkverja að borgin sé öll skipulögð ofanfrá, og ekkert hugað að svip bæjarins innan frá. Væri ekki ráð að gera bót á þessu, laga eða fela það sem ljótt er og hanna höfuðborgarsvæðið með panoramískum heildarsvip? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Hafnarfjörður | Í Kvikmyndasafninu, sem er til húsa í Bæjarbíóin í Hafn- arfirði verður í dag sýnd Chaplin myndin Cirkus. Þá mynd gerði meistarinn árið 1928 og varð hún jafnframt síðasta alveg þögla kvikmyndin sem hann gerði. Myndin er óhemju fyndin, með litla flækingnum í aðalhlutverki og seg- ir frá því hvernig hann fyrir misskilning lendir á flótta undan lögreglunni. Leikurinn berst m.a. inn í speglasal og síðar á sirkussvið þar sem flæking- urinn vekur mikla lukku. Sýningin er með íslenskum texta og hefst kl. 16.00. Reuters Flækingurinn frægi fer í sirkus MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jóh. 15, 12.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.