Morgunblaðið - 25.03.2006, Qupperneq 60
UPPHAFSTÓNA þessa fjórða og
næstsíðasta tilraunakvölds Mús-
íktilrauna 2006 átti tríóið Doris
Daze sem kom vel undirbúið til
leiks. Sveitin var vel þétt og lagið
gott, en vantaði herslumuninn.
Helst þurfa þeir félagar að vinna í
söngnum og trommuleikur var ekki
nógu öruggur.
Perla bauð upp á myljandi progg
með fínum gítarfimleikum. Mjög
skemmtileg sveit sem kom úr
óvæntri átt. Hljóðfæraleikur var
allur til fyrirmyndar, gítarleikur í
hæsta klassa, söngur góður,
trommuleikur líka – eiginlega
hvergi snöggan blett að finna.
Eftir proggið var ágætt að fá
bara einn mann með kassagítar,
Svíann Matz Anderson. Enn betra
hefði verið ef hann hefði haft upp á
eitthvað annað að bjóða en vinnu-
konugrip, talsöng og tímaritalífs-
speki. Þokkalegir gítarsprettir voru
á stöku stað í síðasta laginu.
Aftur var slegið í þegar Anxiety
mætti á sviðið, það er að segja þeg-
ar sveitin komst loks í gang. Eng-
inn söngur var í fyrsta laginu sem
var safn af skemmtilegum gít-
arriffum, en ekki eiginlegt lag. Síð-
ara lag sveitarinnar var sungið að
hluta, en gítarar voru þó í aðal-
hlutverki, mikill hamagangur en lít-
il list. Góður bassaleikur þó og að-
algítarleikari sveitarinnar er
fingrafimur.
Le poulet de romance létti and-
rúmsloft tilraunanna töluvert,
spaugileg framkoma og látbragð,
en lítið af eiginlegri tónlist. Ekki
bar þó á öðru en að liðsmenn
kynnu að spila, en annað var í há-
vegum að þessu sinni.
Laugvetningarnir í El Rodeo
byrjuðu með látum, góð þétt rokk-
keyrsla með fínum gítarfrösum.
Þegar liðið var á lagið birtist síðan
söngvari, einkar svalur í látbragði,
en söngurinn var ekki eins svalur.
Modern Day Majesty gerðu allt
rétt í fyrsta laginu, þéttur hljómur
og ákveðni, gítarhljómur góður og
vel notaður, fyrirtaks trommuleikur
og traustur bassi. Eina sem setja
mætti út á er hvað gítarspuni var
stirður, en annars var allt í fínu
lagi. Þeir lentu í hljóðfærastappi í
seinna laginu og náðu sér ekki vel
á strik.
Ýmislegt var að hjá Black Lotus,
því þó lög sveitarinnar hafi verið
ágætlega samin vantaði allt líf í
flutninginn. Sérstaklega var söng-
urinn slakur.
Það er fín hugmynd og hefur
víða verið vel notuð að hafa marga
gítarleikara á sviði samtímis. SYS-
TEM FAILURE 3550 ERROR
ERROR hljómaði líka fínt til að
byrja með, margt skemmtilegt í
gangi, skipulögð óreiða. Söngurinn
var aftur á móti veikur punktur,
mjög veikur, og ekki bætti úr skák
að slagverksleikur var ekki alltaf í
réttum takti.
4 Ways to Kill Pain hóf leikinn á
lagi án laglínu þar sem textinn var
aðalmálið. Meira stuð var í næsta
lagi, þéttari keyrsla en það dugði
þó ekki alveg til að sveitin næði
flugi.
Kærleikskjúklingurinn franski,
Le Poulet de romance, hafði vinn-
inginn í atkvæðagreiðslu í sal, en
dómnefnd kaus Modern Day Maj-
esty áfram.
Gaman og alvara
TÓNLIST
Loftkastalinn
Fjórða tilraunakvöld Músíktilrauna. Þátt
tóku Doris Daze, Perla, Matz Anderson,
Anxiety, Le poulet de romance, El Rodeo,
Modern Day Majesty, Black Lotus, SYST-
EM FAILURE 3550 ERROR ERROR og 4
Ways to Kill Pain. Haldið í Loftkast-
alanum 23. mars.
Músíktilraunir
4 WAYS TO KILL PAIN
BLACK LOTUS
MATZ ANDERSON
SYSTEM FAILURE 3550 ERROR ERROR
ANXIETY
PERLAEL RODEO
DORIS DAZE
Árni Matthíasson
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
60 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ZAPPA
PLAYS
ZAPPA
miðasala 2. apríl
www.rr.is
Átt þú réttu græjurnar?
Láttu áhugasama vita!
Glæsilegt vinnuvélablað fylgir Morgunblaðinu
þriðjudaginn 4. apríl og nú er tíminn til
að auglýsa atvinnutæki fyrir sumarið.
Fjallað verður um atvinnubíla,
landbúnaðartæki og vinnuvélar,
stórar og smáar.
Auglýsendur, pantið fyrir kl. 16:00
fimmtudaginn 30. mars.
Allar nánari upplýsingar veitir
Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105
eða kata@mbl.is