Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 63
Upplifðu magnaðan söngleikinn!
Stútfull af stórkostlegri tónlist!
eee
L.I.B. - Topp5.is
18 krakkar. Foreldrarnir.
Það getur allt farið úrskeiðis.
eee
S.V. Mbl.
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
G.E. NFS
e e e
Ó.H.T Rás 2
2 fyrir 1
fyrir viðskiptavini
Gullvild Glitnis
kl. 2, 4 og 6
kl. 10 - Allra síðustu sýn.
ALLIR
EIGA SÉR
LEYNDAR-
MÁL
Rolling Stone Magazine
eeee
Roger Ebert
Empire Magazine
ee e
Topp5.is
eeee
GOYA VERÐLAUNIN
Besta Evrópska myndin
Sýnd kl. 8
Sími - 551 9000
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.15
VINSÆLASTA
MYNDIN Á ÍSLANDI
Í DAG
200 kr. afsláttur
fyrir XY félagawww.xy.is
Mamma allra grínmynda
er mætt aftur í bíó!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 14 ára
MATCH
POINT
-bara lúxus
Klassísk og spennandi ástarsaga um forboðið samband ungra elskenda,
sem blandast inn í stríð og valdabaráttu kónga og riddara.
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU Sýnd kl. 2
The Producers kl. 8 og 10.45
Big Momma´s House 2 kl. 3 og 5.50
Rent kl. 5.20 B.i. 14 ára
Capote kl. 8 B.i. 16 ára
Constant Gardener kl. 5.30 B.i. 16 ára
Brokeback Mountain kl. 2.40 og 10
Walk the Line kl. 3 og 10.20
Hinsegin bíódagar
D.E.B.S. kl. 4
Strákar – Strákum kl. 6 Trannyshack kl. 8
Sevigné kl. 10 Transamerica kl. 8
eee
S.K. - Dv
eee
Kvikmyndir.com
eee
Topp5.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 63
Hell, League of Extraordinary
Gentelmen og nú síðast Constant-
ine. Allar verða þessar myndir að
teljast nokkuð langt frá þeim upp-
runalegu hugmyndum sem Moore
lagði fram í sögum sínum enda varð
hann að lokum svo afhuga kvik-
myndabransanum að hann neitaði að
taka nokkurn frekari þátt í kvik-
myndun myndasagna sinna. Í
Constantine bað hann því kvik-
myndafyrirtækið að afmá allar vís-
anir í sig í kynningu á myndinni og
lét einnig allar greiðslur fyrir rétt-
inn að kvikmynduninni renna til
teiknaranna sem komið höfðu að
sköpun John Constantine. Með
þessu vildi hann skapa skýr skil milli
myndasagnanna og kvikmyndanna
sem tveggja óskyldra fyrirbæra og
segir sjálfur að hann hafi verið mjög
feginn þegar hann hafði tekið þessa
ákvörðun. Þrátt fyrir það héldu
menn í Hollywood sínu striki við
gerð V for Vendetta. DC-mynda-
söguútgáfan á réttinn að V eins og
mörgum öðrum verkum Moores og
menn á þeim bænum taka kvik-
myndun myndasagna ekki jafn
nærri sér og höfundurinn sjálfur
gerir enda um mikla peninga að
tefla.
Þegar Larry Wachowsky náði tali
af Moore við upphaf kvikmyndunar
V for Vendetta skýrði sá síðarnefndi
honum frá áhugaleysi sínu á kvik-
myndaiðnaðinum og vonbrigðum
sínum með handritið að myndinni
sem hann hafði þá lesið. Í kjölfarið
baðst hann undan allri umfjöllun um
sig í tengslum við myndina og taldi
heiðri sínum þar með borgið. Þegar
myndin fór í framleiðslu lét með-
framleiðandi þeirra Wachowsky-
bræðra, Joel Silver, þau orð falla á
fréttamannafundi að Moore væri
mjög spenntur yfir kvikmynduninni
og að hann væri þeim félögum innan
handar við framleiðsluna. Orð sem
ekki fengu staðist á neinn hátt að
sögn Moore. Hann krafðist að Silver
og kvikmyndafyrirtækið drægju til-
kynninguna til baka og gæfu út leið-
réttingu á þessum ummælum. Það
var þó ekki gert og því ákvað Moore
að slíta öll tengsl við DC-útgáfufyr-
irtækið þar sem honum fannst þeir
fara helst til fjálglega með sköp-
unarverk sín og seldu þau hæstbjóð-
anda til misgáfulegrar kvikmynda-
gerðar. Af þessu leiðir að komandi
útgáfa á League of Extraordinary
Gentelmen verður sú síðasta sem
birtist undir merkjum DC. Í fram-
tíðinni ætlar Moore að binda trúss
sitt við útgáfur sem bera meiri virð-
ingu fyrir rétti höfundarins yfir
sköpunarverkum sínum. Það mætti
telja það harla ómerkilega frétt að
myndasöguhöfundur hætti hjá út-
gefanda sínum í fússi og fari annað.
Þegar á hinn bóginn er litið til þess
að Alan Moore er einn vinsælasti og
virtasti höfundur myndasögunnar
og að eldri verk hans eru sífellt end-
urútgefin við miklar vinsældir má
glöggt sjá að um verulegt tekjutap
er að ræða hjá DC auk þess gríð-
arlega álitshnekkis sem málið hefur
fyrir útgáfuna. Einnig sýnir þetta
hversu brothætt samskipti höfunda
og myndasögu- og/eða kvikmynda-
bransans geta verið þar sem menn
eru að sýsla að því er virðist á gjör-
ólíkum sviðum; annars vegar á eigin
listrænu forsendum og hins vegar á
forsendum fjöldaneyslu og við-
skiptahagsmuna. Það er aldrei að
vita nema kvikmyndin V for Vend-
etta verði hin besta skemmtun þrátt
fyrir andstöðu Moores en fyrir þá
sem vilja kynna sér verk hans og
raunverulega hugsjón væri farsæl-
ast að lesa myndasöguna einnig.
V og Evey takasta á um heimspekileg málefni.
Reuters
Natalie Portman leikur Evey í kvikmyndaútgáfunni en hér er hún ásamt Hugo Weaver í hlutverki V.