Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 68
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ENDURSKOÐUN
REIKNINGSSKIL
SKATTAR / RÁÐGJÖF
www.ey.is
SKIPVERJARNIR Oddur Brynj-
arsson, Halldór Kristmundsson,
Vilhjálmur Birgisson og Þór Krist-
mundsson á dragnótarbátnum
Steinunni SH frá Ólafsvík, réðu sér
ekki fyrir kæti þegar fréttaritara
Morgunblaðsins bar að garði. Voru
þeir að landa um 45 tonna afla en
þá höfðu þeir fengið um 90 tonn á
tveimur dögum. Það sem af er mán-
uðinum hefur Steinunn landað um
400 tonnum. Aflinn sem skipverj-
arnir eru að landa á myndinni náð-
ist í fjórum hölum og voru um 60%
aflans stór og góður þorskur en
hinn hluti aflans ýsa.
Góð aflabrögð á Steinunni SH
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
ÁKVEÐIÐ hefur verið að viðræður
milli Íslands og Bandaríkjanna um
varnarsamstarf þjóðanna fari fram í
Reykjavík nk. föstudag, 31. mars.
Geir H. Haarde utanríkisráðherra
segist reikna með að viðræðunefnd
Bandaríkjanna muni á fundinum
leggja fram hugmyndir um hvernig
Bandaríkjastjórn telur skynsamlegt
að haga vörnum Íslands eftir að orr-
ustuþoturnar hafa verið kallaðar frá
landinu.
„Við töluðum saman í síma í dag,
ég og Nicholas Burns, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, þar
sem ákveðið var að viðræðunefnd-
irnar hittust nk. föstudag og hugs-
anlega næstu daga eftir því hvernig
viðræðurnar ganga.
Við gerum fastlega ráð fyrir því að
þeir komi með á fundinum sínar hug-
myndir um hvað gæti tekið við eftir
að þoturnar fara og síðan þarf að
ræða samvinnu á öðrum sviðum sem
tengist þessu beint og óbeint. Við
þurfum að ræða björgunarmálin og
samstarf gegn hryðjuverkastarfsemi
sem þegar hefur verið ámálgað af
hálfu dómsmálaráðuneytisins og lög-
regluyfirvalda. Síðan geri ég ráð fyr-
ir að rætt verði um hugsanlegan þátt
Nató eða Nató-ríkja í þessu máli. Við
gerum ráð fyrir að þetta verði efnis-
mikill og góður fundur,“ sagði Geir.
Geir sagði að þó að hann vonaðist
eftir að mál myndu skýrast verulega
á þessum fundi mætti reikna með að
sendinefndirnar þyrftu að hittast
aftur. Hann sagðist hafa skilið Burns
á þann veg að vilji væri af hálfu
Bandaríkjastjórnar til að flýta við-
ræðum.
Albert Jónsson sendiherra mun
leiða viðræðunefnd Íslands. For-
maður sendinefndar Bandaríkja-
manna er Carol van Voorst, sendi-
herra Bandaríkjanna á Íslandi. Með
henni í nefndinni verða fulltrúar frá
utanríkisráðuneyti og varnarmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna.
Síðast þegar viðræðunefndir Ís-
lands og Bandaríkjanna ræddust við
um varnarmál fór Robert G. Loftis
fyrir bandarísku viðræðunefndinni.
Varnarviðræður hefjast í Reykjavík 31. mars
Reikna með tillögum
frá Bandaríkjamönnum
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„STAÐAN í dag er gjörsamlega óvið-
unandi fyrir aldraða og öryrkja, að vera
boðið upp á þessi vinnubrögð,“ segir
Karl Steinar Guðnason, forstjóri Trygg-
ingastofnunar. Hann segist eiga von á því
að heilbrigðisráðherra taki á þessu máli.
Karl segir að nú hafi verið sent út bréf
til þeirra sem hafi andmælt endur-
útreikningi bóta, þar sem fram kemur að
það geti tekið allt að 6–8 mánuði að svara
erindi þeirra við núverandi aðstæður.
„Auðvitað fá flestir afgreiðslu fyrr, en
þetta er nýtt verkefni sem hefur sett
stofnunina gjörsamlega á hliðina. Fólk er
yfirkeyrt,“ segir Karl, sem segist mikið
finna fyrir því að starfsfólk sé farið að
hugsa sér til hreyfings.
Óviðunandi
staða fyrir aldr-
aða og öryrkja
ÞAÐ styttist óðum í páskana, enda ekki nema
tæpar þrjár vikur þar til þeir halda innreið sína.
yrkjustöð Ingibjargar gerir á myndinni, en það eru
einmitt ein til tvær vikur í að þær verði tilbúnar.
Það er því ekki seinna vænna en huga að páskalilj-
unum, eins og hann Björn Þórisson hjá Garð-
Morgunblaðið/Ásdís
Styttist í páska
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
skrifað heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra bréf þar sem hann
vekur athygli á því að verkefnis-
staða Tryggingastofnunar ríkisins
(TR) sé sú að það geti tekið 6–8
mánuði fyrir hana að afgreiða er-
indi sem til hennar berast.
Umboðsmaður bendir jafnframt
á að TR hafi óskað leyfis hjá ráðu-
neytinu til þess að ráða fleira
starfsfólk vegna þeirrar miklu
manneklu sem þar er, en ráðuneyt-
ið hefur ekki orðið við þeim óskum.
Fram kemur í áliti umboðsmanns
að honum hafi borist kvörtun þess
efnis að einstaklingur hafi ekki
fengið viðbrögð frá TR við andmæl-
um sínum vegna endurreiknings
lingi og öðrum í sömu stöðu til-
kynningar í samræmi við stjórn-
sýslulög þar sem fram kæmi
hverjar væru ástæður tafa á af-
greiðslu erinda þeirra og hvenær
ákvörðunar væri að vænta.
Í svarbréfi TR kom fram að
stofnunin hefði ákveðið að senda
viðkomandi einstaklingi og öðrum
lífeyrisþegum, sem sent hefðu inn
hliðstæð andmæli vegna endur-
reiknings bóta ársins 2004, bréf
þessa efnis.
„Umboðsmaður ákvað að vekja
athygli heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra á málinu og þeirri
stöðu sem uppi væri hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins varðandi af-
greiðslutíma erinda,“ segir í álitinu.
bóta ársins 2004 en þau höfðu bor-
ist stofnuninni í desember 2005. Í
álitinu segir að í svari TR við fyr-
irspurnarbréfi umboðsmanns hafi
komið fram að stofnuninni hefðu
borist liðlega 1.000 andmæli vegna
endurreiknings bóta ársins 2004 og
væri erindi viðkomandi einstak-
lings þeirra á meðal. „Vegna mann-
eklu og rekstrarfjárskorts væri
hins vegar fyrirséð að allt að 6–8
mánuðir gætu liðið þar til unnt yrði
að svara þessum erindum,“ segir í
álitinu.
Í framhaldinu ritaði umboðsmað-
ur TR á ný bréf þar sem hann ósk-
aði eftir upplýsingum um hvort
áform væru uppi hjá stofnuninni
um að senda viðkomandi einstak-
Hátt í 8 mánaða biðtími
Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir afgreiðslutíma Tryggingastofnunar
STANGVEIÐIFÉLAGIÐ Lax-á hef-
ur samið um leigu á Svartá í Húna-
vatnssýslu til næstu fimm ára, auk
þess sem samið hefur verið um
leigu á öllum fjórum veiðisvæð-
unum í Blöndu. Stangveiðifélag
Reykjavíkur hefur haft Svartá á
leigu undanfarin ár og mun tals-
verð óánægja vera innan félagsins
vegna málsins, ekki aðeins yfir að
hafa misst Svartá, heldur einnig
vegna þess að tilboði þeirra í leigu
á ánni var aldrei svarað. | 14
SVFR missir
Svartá úr leigu
LÖGREGLAN á Akranesi hand-
tók í gærkvöldi mann við venju-
bundið eftirlit og fundust á hon-
um 15 grömm af amfetamíni. Í
framhaldi af því var gerð húsleit
og fundust þar átta grömm af
amfetamíni og voru tveir menn
handteknir þar til viðbótar. Að
sögn lögreglunnar lék grunur á
að mennirnir hefðu yfir að ráða
meira magni af fíkniefnum og
stóð rannsókn á því yfir þegar
blaðið fór í prentun. Naut lög-
reglan aðstoðar fíkniefnaleit-
arhunds lögreglunnar í Borg-
arnesi við aðgerðirnar í gær.
Handteknir
með fíkniefni á
Akranesi
LÝÐUR Guð-
mundsson mun
láta af störfum
sem forstjóri
Bakkavarar síð-
ar á árinu og
taka við sem for-
stjóri Exista.
Gerð var grein
fyrir þessari
breytingu á aðalfundi Bakkavarar í
gær.
Sagði Ágúst Guðmundsson,
stjórnarformaður Bakkavarar,
breytinguna stafa af því að umsvif
Exista hefðu aukist mikið und-
anfarin ár og krefðist það aukinnar
athygli stjórnenda Bakkavarar.
Viðræður væru í gangi við KB
banka um að bankinn léti af eign-
arhlut sínum í Exista og líklegt sé
að félagið verði skráð í Kauphöll Ís-
lands í framhaldinu. | 20
Lýður hættir
hjá Bakkavör