Morgunblaðið - 22.04.2006, Qupperneq 1
VÍÐA um lönd hafa menn fyrir satt að götusóp-
urum fjölgi á strætunum þegar líður að sveitar-
mátti í gær alltént sjá bæði glaðbeittan götu-
sópara og brosandi frambjóðendur á mynd.
stjórnarkosningum. Hvort þetta lögmál á við í
Reykjavík skal ósagt látið, en í miðbænum
Morgunblaðið/Sverrir
Göturnar sópaðar
á kosningavori
STOFNAÐ 1913 108. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Silvía Nótt í
þriðja sæti?
Breskir Evróvisjón-fræðingar spá
Íslandi góðu gengi | Menning
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Þorvaldur Þorsteinsson og leikritin Endalok
fréttamennsku? Börn | Halldór Gylfason bregður sér í allra
kvikinda líki Íþróttir | Helena og Friðrik best í körfunni
Brussel, Jerúsalem, Ramallah. AFP. |
Mahmud Abbas, forseti Palestínu-
manna, varar við hörmungum haldi
fjárhagskreppa heimastjórnarinn-
ar áfram og leggur jafnframt til að
stuðningsmenn hans beini framlög-
um beint til skrifstofu hans, en
ekki til ríkisstjórnar Hamas.
„Það verður stórslys ef alþjóða-
samfélagið hættir ekki að snið-
ganga stjórnina og fjárskorturinn
heldur áfram,“ sagði Abbas í gær.
Hann ógilti jafnframt þá ákvörðun
stjórnarinnar að stofna nýja ör-
yggissveit úr herskáum fylkingum.
Að viðbættri niðurfellingu á
greiðslum frá Evrópusambandinu
(ESB) og Bandaríkjunum er
stjórnin í vanda eftir að Ísraelar
ákváðu að halda eftir 3,9 milljarða
kr. mánaðarlegum tolla- og skatta-
greiðslum til Palestínumanna.
Framkvæmdastjórn ESB neitaði
hins vegar í gær fullyrðingum um
að fjárskortur stjórnar Hamas
væri sambandinu að kenna og
sagði sökudólgana Ísraela.
Þá vakti hátt settur herforingi í
Ísraelsher máls á möguleikanum á
að hertaka aftur Gaza-svæðið. „Ef
flugskeytaárásirnar halda
áfram … munum við taka nauðsyn-
leg skref, sem gætu falið í sér að
taka aftur yfir Gaza-svæðið,“ sagði
Yoav Galant, herforingi í Ísr-
aelsher, í samtali við dagblaðið
Maariv.
Abbas varar við hörmungum
Foringi í Ísraelsher
útilokar ekki að hertaka
aftur Gaza-svæðið
FYLGI flokka sem vilja gera
róttækar breytingar í málum
innflytjenda hefur vaxið
mjög í Noregi, Frakklandi
og Englandi að undanförnu
og mælist fylgi norska
Framfaraflokksins nú um
þremur prósentustigum
meira en fylgi Verkamanna-
flokksins, sigurvegara síðustu kosninga.
Þetta kom fram í tveimur könnunum sem
birtar voru í gær, en í þeim mældist fylgi
Framfaraflokksins um 34 prósent og hefur
stuðningur við flokkinn aldrei verið meiri.
Fylgi Framfaraflokksins eykst enn frekar
frá því sem það var fyrr í mánuðinum, þegar
andstaða leiðtoga hans við frekari straum
innflytjenda í kjölfar danska skopmynda-
málsins jók verulega stuðning við flokkinn.
Carl I. Hagen, leiðtogi flokksins, var
ánægður með stuðninginn og sagðist bjart-
sýnn á gott gengi í kosningunum 2009.
Svipuð þróun í Bretlandi
Í Bretlandi hafa málefni innflytjenda einn-
ig verið í brennidepli að undanförnu. Hefur
það hvergi betur komið fram en í skyndilegri
fylgisaukningu Breska þjóðarflokksins
(BNP) nú skömmu fyrir sveitarstjórnar-
kosningar 4. maí. Bendir könnun sem fram-
kvæmd var fyrir dagblaðið The Daily Tele-
graph til að 24 prósent kjósenda hafi íhugað
að kjósa flokkinn. Fylgi BNP mælist nú sjö
prósent, en var vart mælanlegt fyrir mánuði.
Í Frakklandi er svipað uppi á teningnum,
en í könnun sem birt var í gær sagðist þriðj-
ungur kjósenda vera langt til hægri. Þá hefur
fylgi við Þjóðarfylkingu Jean-Marie Le Pen
vaxið mjög að undanförnu, nú þegar um ár er
í næstu forsetakosningar landsins.
Vaxandi
andúð á inn-
flytjendum
Carl I. Hagen
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
VIÐRÆÐUR milli Orkuveitu Reykjavíkur og
Símans um samnýtingu eða kaup á dreifikerfum,
sem átt hafa sér stað frá því um miðjan mars,
standa enn yfir.
Samkvæmt heimildum sem Morgunblaðið
hefur aflað sér losa verðhugmyndir Símans í við-
ræðunum 20 milljarða króna. Verður málið tekið
fyrir á næsta stjórnarfundi Orkuveitunnar næst-
komandi miðvikudag.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, vill
ekki gefa neinar upplýsingar um mögulegt verð
á fjarskiptaneti Símans, færi svo að það yrði selt
OR.
Brynjólfur segir að í viðræðunum sé í raun allt
fjarskiptanet bæði Símans og OR undir – ljós-
leiðarar, breiðband og kopar.
nets Símans með fyrirtækinu. Grunnnet er hug-
tak sem ekki hefur verið skilgreint almennilega,
en hefur af sérfræðingi í fjarskiptaheiminum
verið skilgreint sem allt það kerfi Símans sem
grafið er í jörðu, að viðbættum örbylgju-
möstrum. Þar sem viðræður eru í gangi um
mögulega sölu á ljósleiðurum, breiðbandi og
koparleiðslum Símans er því ljóst að um er að
ræða stóran hluta þess sem kallað hefur verið
grunnnet Símans.
Aðskilnaður kostnaðarsamur
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mat
það svo fyrir einkavæðingu Símans að aðskiln-
aður grunnnets Símans og annarrar starfsemi
yrði afar kostnaðarsöm aðgerð, og myndi kostn-
aðurinn annaðhvort leiða til hærra verðs fyrir
neytendur eða til þess að endurnýjun og upp-
bygging yrði hægari.
Brynjólfur vildi lítið gefa upp um gang við-
ræðnanna, en hann átti fund með Guðmundi
Þóroddssyni, forstjóra OR, vegna málsins í vik-
unni. Brynjólfur segir að á þessum tímapunkti sé
ekki hægt að segja neitt um mögulega niður-
stöðu; bæði sé mögulegt að OR kaupi fjarskipta-
net Símans og að samið verði um einhvers konar
samnýtingu fyrirtækjanna á fjarskiptanetunum.
Hann segir að markmiðið sé að ná aukinni
hagkvæmni í rekstri fjarskiptanetanna, og
samningaviðræður geti tekið einhvern tíma enn,
enda málið afar flókið. Eins og fram hefur komið
áformar OR að leggja ljósleiðara á hvert heimili í
Reykjavík, á Akranesi, Seltjarnarnesi og í
Hveragerði, og þar með koma sér upp dreifing-
arkerfi sem fyrirtæki í fjölmiðlun eða fjarskipta-
þjónustu geti keypt aðgang að.
Við einkavæðingu Símans á síðasta ári varð
hávær umræða um sölu hins svokallaða grunn-
Allt fjarskiptanetið er undir í viðræðum Símans og Orkuveitu Reykjavíkur
Verðhugmynd Símans
losar 20 milljarða
Eftir Brján Jónasson og
Agnesi Bragadóttur
Ofurgrannar
fyrirsætur úr tísku
FULLTRÚAR helstu tískuhúsa Spánar
hafa ákveðið að falla frá því sem þeir kalla
„einræðisvald stærðar númer 36“ og vísa
þar með til þeirrar tilhneigingar að leggja
áherslu á föt fyrir ofurgrannar fyrirsætur.
Tískuverslanakeðjan Zara, sem hefur
útibú á Íslandi, er á meðal þátttakenda í
þessu átaki, sem Elena Salgado, heilbrigð-
isráðherra Spánar, telur mikilvægt fram-
lag til að draga úr átröskun ungra kvenna.
Breska dagblaðið The Times greindi frá
þessu í gær.
♦♦♦