Morgunblaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 26
Daglegtlíf
apríl
Tíu mínútna akstur frá mið-borg Gautaborgar er fal-legur lítill herragarður,Stensjöhill, og í 40 mínútna
fjarlægð er ævintýraleg höll, Thor-
skogs Slott, sem líður gestum seint
úr minni. Báðir staðir geta tekið á
móti ferðamönnum í fæði og húsnæði
til lengri eða skemmri tíma og eru
einnig oft notaðir sem vettvangur
fyrir ráðstefnur eða brúðkaup.
„Fólk á aldrinum 30–45 ára fer nú
frekar í nokkur minni frí í staðinn
fyrir eitt langt frí. Hingað getur það
komið og upplifað rómantík, góðan
mat, ró og útivist. Við vitum að fólk
sem kemur hingað hefur miklar
væntingar og við viljum uppfylla
þær, og meira til,“ segir Lena Jons-
son, eigandi Thorskogs Slott, í veit-
ingasal hallarinnar þar sem fram-
reiddur er hádegisverður úr sænsku
hráefni.
Thorskogs Slott á rætur að rekja
til þrettándu aldar en þá tilheyrði
svæðið Noregi. Á staðnum sem höllin
var byggð, þó ekki fyrr en árið 1892,
sömdu sænski og norski kóngurinn
um frið árið 1249 þó ekki bæru samn-
ingaviðræðurnar árangur fyrr en
löngu síðar. Á átjándu öld var byggð-
ur herragarður í Thorskog sem gekk
svo í erfðir samkvæmt lögum og var
húsið, sem síðar varð höll, notað sem
einkahíbýli allt til ársins 1986 þegar
Lena og Tommy Jonsson keyptu
það. Sýnin kemur á óvart þegar
gengið er frá bílastæðinu eftir við-
burðalitla keyrslu frá Gautaborg.
Mikilfenglegur kastali ber aðkom-
endur aftur til miðalda, múrsteins-
rauður og grár. Eldur logar í arn-
inum og þjónustufólk í gamaldags
búningum líður um með rjúkandi
kaffikönnur. Það eina sem minnir á
nútímann eru viðskiptadagblöð á
borði í anddyrinu og tölvuskjár í
móttökunni, sem gefur til kynna nú-
tímaþægindi þótt umhverfið vísi til
fortíðar.
Thorskogs Slott er fyrsti herra-
garðurinn í Svíþjóð sem breytt var til
að taka á móti ferðamönnum en síðar
hafa fleiri fylgt í kjölfarið, að sögn
Lenu. „Okkur hefur gengið vel en
heimspekin er einföld: Thorskog
Slott er stórt heimili en ekki hótel,“
segir hún á gönguferð um þessa fjög-
urra hæða höll. Vistarverur eru
margvíslegar, stórar og litlar setu-
stofur, ráðstefnuherbergi og salir,
veitingastaður og barir á alls um
1600 fm. Engin tvö herbergi eins en
hvert og eitt af herbergjunum 40 á
sína sögu og nafn. Rúm eru fyrir sjö-
tíu gesti í höllinni. Herbergin eru í
höllinni sjálfri og í nokkrum húsum á
landareigninni en herbergin í höll-
inni eru dýrari. Allt frá eins manns
herbergjum til svíta sem gist hafa
ekki ómerkari manneskjur en Gorb-
atsjov, Benazir Bhutto og George og
Barbara Bush. Brúðkaupssvíturnar
eru nokkrar en sérstaka athygli
vakti sú sem er í einu af húsunum á
60 þúsund fermetra jörðinni. Þar er
baðherbergið á stærð við með-
alsvefnherbergi, með hornbaðkari og
arni. Geri aðrir betur! Lena segir að
flestir gestirnir komi til að dvelja á
staðnum, njóta umhverfisins, sög-
unnar og matarins. Sumir skreppi þó
í verslunarferðir til Gautaborgar.
Púttvöllur er á landareigninni,
nokkrir golfvellir í nágrenninu og
náttúruperlan Svartedalen við jarð-
armörkin.
Náttúra en nálægt borginni
Segja má að Stensjöhill herra-
garðurinn sé í Gautaborg þótt sveit-
arfélagið heiti Mölndal. Það er næsta
sveitarfélag við Gautaborg og 10–15
mínútur tekur að keyra niður í
miðbæ. Herragarðurinn stendur á
hæð við stöðuvatnið Stensjön og frá-
bært útsýni er til allra átta. Karin
Näsström framkvæmdastjóri segir
að gestir séu á öllum aldri og alls
staðar að. Brúðkaup og ráðstefnur
eru fyrirferðarmikill liður í rekstri
herragarðshótelsins en almennir
ferðamenn og barnafólk eru vaxandi
hópur, hvort sem er í helgarferðir
eða til lengri tíma. Karin og sam-
starfsfólk hennar í Stensjöhill benda
ferðamönnum á ýmsa afþreyingu í
næsta nágrenni: Mölndals museum
hefur hlotið verðlaun sem eitt af
bestu söfnum í Evrópu, Gunnebo-
herragarðurinn er skoðunar virði,
hægt er að veiða, sigla og synda í
vatninu og golfvellir í nágrenninu
eru nokkrir. Þar fyrir utan bíður
Gautaborg með alla sína afþreyingu
eða verslunarferðir. „Við leggjum
mikið upp úr því að kynna nánasta
umhverfið. Stensjöhill er úti í nátt-
úrunni en samt svo nálægt borginni
og það meta margir mikils. Karin
segir að hótelið hafi farið hægt af
stað en að ánægðir gestir hafi borið
því gott orð og það sé nú að skila sér.
Karin fæst nú við óskastarfið hót-
elrekstur og á að baki farsælan feril
á Scandic- og Sheraton-hótelum. Þar
sem Stensjöhill stendur nú var áður
bústaður forstjóra smjörlíkisverk-
smiðju sem staðsett var í nágrenninu
í upphafi 20. aldar. Karin hefur rekið
hótel í herragarðinum frá árinu 2000
en þá var hótelið opnað eftir miklar
endurbætur á húsnæðinu þar sem
leitast var við að færa innréttingar í
upprunalegt horf. Í millitíðinni var
húsið leigt ýmsum fyrirtækjum og
félagasamtökum og um tíma var þar
Hare Krishna hof. Tíu mismunandi
herbergi eru í húsinu og rúm fyrir
nítján manns. Veitingastaður er í
Stensjöhill og þangað koma heima-
menn einnig út að borða. Kokkurinn
er Fredrik Persson sem m.a. hefur
lært hjá Leif Mannerström, einum
þekktasta kokki Svíþjóðar og eig-
anda Sjömagasinet sem af mörgum
er talinn besti veitingastaður Gauta-
borgar. Ekki ónýtt að prófa að njóta
góðs matar í fallegum vistarverum
með ómótstæðilegu útsýni.
GAUTABORG | Óhefðbundin gisting
Stensjöhill-herragarðurinn er úti í náttúrunni en samt svo nálægt borginni.
Thorskogs Slott er fyrsti herragarðurinn í Svíþjóð sem breytt var
til að taka á móti ferðamönnum en síðar hafa fleiri fylgt í kjölfarið.
Og þá var
kátt í höllinni
Sumum leiðist að gista á risastórum hótelum sem eru
jafnvel hluti af enn stærri keðju og finnst þeir njóta
frísins betur ef gististaðurinn er lítill og persónulegur.
Steingerður Ólafsdóttir kíkti á tvö óhefðbundin hótel
í nágrenni Gautaborgar.
Verð á mann í tveggja manna her-
bergi með morgunmat er allt frá
sem samsvarar um 7.300 íslensk-
um krónum í Thorskogs Slott og
4.700 krónum á Stensjöhill. Hægt
er að panta á Netinu og fá allar
nánari upplýsingar um verð og
pakkatilboð, t.d. með kvöldverði.
www.thorskogsslott.se
www.stensjohill.se
steingerdur@mbl.is
ÍBÚAR Zürich í Sviss búa við
mest lífsgæði í heiminum en
íbúar Bagdad í Írak við þau minnstu. Greiningarfyr-
irtækið Mercer í London hefur birt lífsgæðalistann
undanfarin ár og er Zürich á toppnum í þriðja skipt-
ið, að því er m.a. kemur fram á vef Berlingske Tid-
ende. Genf í Sviss er í öðru sæti og Vancouver í Kan-
ada í þriðja. Í næstsíðasta sæti af 350 borgum í
heiminum er Bangui í Miðafríkulýðveldinu og
Brazzaville, höfuðborg Kongó.
Evrópskar borgir eru yfirleitt í efstu sætunum og
lífsgæðin í borgum í Kanada og Ástralíu eru einnig
talin mikil. Bandarískar borgir lenda aðeins neðar.
Listinn er settur saman út frá ýmsum viðmiðum, t.d.
stöðugleiki í stjórnmálum, menntakerfi, veitinga-
staðir og umhverfi.
LÍFSGÆÐI
Bestu borgirnar
BÖRN verða oft bíl-
veik en það getur elst
af þeim og breyst þegar þau venjast bílferð-
um. Á fréttavef norska blaðsins VG er for-
eldrum gefin ráð áður en haldið er í lang-
ferð á bílnum.
Börnin eiga að sitja hátt þannig að þau
sjái út. Börn geta orðið bílveik vegna þess
að misræmi er á milli þess sem þau sjá og
hvernig jafnvægisskynið bregst við hreyf-
ingu.
Mikilvægt er að bílstjórinn dragi úr
snöggum stýrishreyfingum eins og hægt er
og haldi bílnum stöðugum.
Marianne Aas barnalæknir gefur einnig
ráð: Ferðist á forsendum barnanna.
Takið hlé svo allir geti rétt úr sér og farið
út úr bílnum ef börnin finna til flök-
urleika.
Reynið að fá börnin til að horfa út á sjón-
deildarhringinn en ekki á eitthvað inni í
bílnum.
Ekki er mælt með lyfjagjöf við einkenn-
um bílveiki sem geta verið flökurleiki og
e.t.v. uppköst, þreyta, svimi, höfuðverkur
og almenn vanlíðan.
Aas bendir á að engifer geti gefið góða
raun, það geti virkað róandi á magann og
dregið úr flökurleika.
Mælt er með því að börnin hafi MP3 spil-
ara fyrir tónlist eða hljóðbækur eða að
slíkt sé spilað í geislaspilara bílsins.
FERÐALÖG
Ferðist á forsendum barnanna
Morgunblaðið/Jim Smart