Morgunblaðið - 22.04.2006, Side 41

Morgunblaðið - 22.04.2006, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 41 MINNINGAR ✝ Unnur Pálsdótt-ir fæddist í Tungu í Fáskrúðs- firði 9. júní 1911. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 5. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Páll Þorsteins- son, bóndi í Tungu (1863–1959) og kona hans Elínborg Stef- ánsdóttir (1867– 1951). Foreldrar Páls voru hjónin Þorsteinn Jónsson, bóndi í Víðivallagerði í Fljótsdal (1832–1909) og Sigurbjörg Hin- riksdóttir (1833–1907) ættuð frá Eyvindarstöðum í Vopnafirði. For- eldrar Elínborgar voru hjónin Stefán Jónsson, bóndi m.a. á Þór- eyjarnúpi í Víðidal og í Hvammi í Langadal (1815–1881) og Gróa Sveinsdóttir (1829–1912) ættuð frá Grímstungum. Unnur var yngst 14 systkina. Sigsteinn lifir systkini sín 101 árs. Látin eru Sigurbjörg og Valgerður, sem dóu ungar, Hall- 2) Sigríður, f. 1944, gift Sigurgeir Gíslasyni. Börn þeirra eru Sigrún, Gísli, Daníel Brandur, Kristín og Davíð. Þau eiga eitt barnabarn. 3) Gerður, f. 1946, gift Guðmundi Bergssyni. Börn þeirra eru Björn og Guðbjörg. Dóttir Guðmundar er Berglind. Barnabörnin eru fimm. 4) Ingibjörg, f. 1954. Sam- býlismaður hennar er Þorsteinn Guðmundsson. Dætur þeirra eru Ásta og Unnur. Unnur Pálsdóttir lauk prófi frá Kvennaskólanum á Blönduósi 1930 og Kennaraskólanum 1933. Á námsárunum vann hún í fiski í Við- ey, saltaði síld í Hrísey, var stofu- stúlka í Reykjavík og gekk um beina á Alþingishátíðinni 1930. Hún stundaði barnakennslu í Hafnarfirði 1933–34, var kennari við farskóla í Hvítársíðu 1934–38 og 1943–44 og kenndi í Skorra- dalnum 1939–1940. Unnur var formaður Kvenfélags Hvítársíðu í 12 ár og starfaði í Sambandi borgfirskra kvenna um árabil. Unnur var í hópi kvenna, sem unnu mikið starf við að byggja upp Dvalarheimilið í Borgarnesi. Hún fluttist þangað haustið 1996 og dvaldist þar til æviloka. Útför Unnar verður gerð frá Reykholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. dór (1887–1967), Jón (1891–1988), Þor- steinn (1892–1964), Stefán (1893–1973), Gunnar (1896–1987), Kirstín (1897–1980), Valgerður (1899– 1983), Lára (1901– 1985), Ingibjörg (1902–1994) og Sig- urbjörg (1906–1990). Unnur giftist 19. maí 1938 Daníel Brandssyni frá Fróðastöðum í Hvít- ársíðu (1910–1994). Foreldrar hans voru Brandur Daníelsson, bóndi á Fróðastöðum (1855–1936) og kona hans Þuríður Sveinbjarnardóttir (1868–1948). Unnur og Daníel byrjuðu búskap í Fróðhúsum í Borgarhreppi árið 1938, en fluttu að Fróðastöðum í Hvítársíðu 1943 og bjuggu þar upp frá því. Börn þeirra eru: 1) Elín Birna, f. 1939, gift Óttari Yngva- syni. Börn þeirra eru Unnur Guð- rún, Helga Melkorka, Yngvi Daní- el og Rakel. Barnabörnin eru átta. Einhver léttlyndasta og skapbesta manneskja sem ég hef hitt er nýlátin tæplega 95 ára gömul. Þetta er Unn- ur tengdamóðir mín. Hún lifði mestan hluta síðustu aldar og var af þeirri kynslóð sem vann hörðum höndum allt sitt líf og grundvallaði þannig vel- ferð afkomenda sinna og þjóðarinnar. Unnur fæddist og ólst upp í Tungu í Fáskrúðsfirði og var komin af aust- firskum og vesturhúnvetnskum ætt- um. Hún var yngst 14 systkina í Tungu og með þeim ólst einnig upp Þórir Þorleifsson frændi þeirra. Mik- ill vinskapur var ætíð á milli þeirra Unnar og Þóris. Það var gæfa barnanna í Tungu að foreldrarnir voru einstakt dugnaðar- og framfarafólk. Þau hjónin Páll Þor- steinsson og Elínborg Stefánsdóttir stuðluðu að menntun og velferð barna sinna og fósturbarna og reyndar einn- ig vinnuhjúa sinna. Ungt fólk sóttist gjarnan eftir að dveljast um tíma í Tungu, þar sem margt var að læra af vinnubrögðum, svo sem velþekktri ullarvinnu hjónanna beggja og ullar- dúkagerð Elínborgar, en einnig af umhyggjusemi og góðum ráðum. Þar var jafnframt heimiliskennari alla tíð nokkurn hluta vetrar, sem vinnufólk og aðkomubörn nutu góðs af til jafns við barnahópinn. Þarna var mann- margt og oft glatt á hjalla með fróð- leik og skemmtan og góðir siðir í heiðri hafðir. Þegar Unnur komst á legg fór hún til náms í Kvennaskólanum á Blöndu- ósi og lauk þaðan prófi 1930 og þrem- ur árum síðar kennaraprófi frá Kenn- araskólanum. Til að afla tekna á námsárum sínum vann hún m.a. í fiski í Viðey og var stofustúlka hjá Ellings- en-fjölskyldunni í Reykjavík, sem hún bar ákaflega vel söguna. Að námi loknu hóf hún kennslustörf, fyrst í Hafnarfirði og síðan í Hvítársíðu og í Skorradal. Í Borgarfirðinum urðu tímamót í lífi Unnar, þegar hún hitti mannsefni sitt, Daníel Brandsson frá Fróðastöð- um í Hvítársíðu, sem hafði þá ráðið sig vetrarmann í Síðumúla. Þau giftu sig árið 1938 og stofnuðu heimili í Fróðhúsum í landi Svigna- skarðs í Borgarhreppi. Þau hófu bú- skap á erfiðum tímum upp úr krepp- unni og þar fæddist þeim fyrsta barnið, en alls eignuðust þau fjórar dætur og lifðu í farsælu hjónabandi í rúmlega 56 ár þar til Daníel lést árið 1994. Í Fróðhúsum byrjuðu þau Daní- el ýmsa nýlundu í búrekstri svo sem svína- og aligæsarækt. Unnur og Daníel færðu sig um set árið 1943, þegar þau fluttu í torfbæinn á ætt- aróðalinu Fróðastöðum í Hvítársíðu. Þar byggðu þau nýtt íbúðarhús og síðan á örfáum árum öll útihús. Jafn- framt voru tún sléttuð og mikið land ræktað. Sem húsfreyja á Fróðastöð- um hafði Unnur í ærnu að snúast og nýttist þá vel þrautseigja hennar og útsjónarsemi. Ég man ekki eftir að hafa nokkru sinni séð Unni á heim- ilinu án verkefnis eða vinnu. Hún var ætíð grannvaxin og kvik í hreyfingum og glaðlynd með afbrigðum. Um áratuga skeið sóttust vinir og ættingjar eftir að koma börnum sín- um í sveit til þeirra hjóna og dvaldist hver unglingur yfirleitt í mörg sumur. Mörg barnabarnanna nutu góðs af lærdómsríkri sumardvöl á Fróðastöð- um og umhyggju afa og ömmu. Þrátt fyrir annasöm störf í kyrrð heimilisins gaf Unnur sér tíma til ým- issa félagsmála. Þá segir það töluvert um atorku og félagslyndi húsfreyj- unnar að á Fróðastöðum var fyrst spiluð félagsvist í Hvítársíðu og þar var þorrablót haldið í þrjú ár í röð fyr- ir sveitungana. Síðan hafa þorrablót eða góugleði verið árviss. Unnur hélt heilsu fram á síðustu ár og hafði fótavist nánast til síðasta dags. Hún bjó á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi frá 1996. Ættingjar þakka starfsfólki þar hlýlegt viðmót og vin- áttu við Unni í þau rúmlega níu ár, sem hún dvaldist þar. Langri og farsælli ævigöngu er lok- ið. Ég votta öllum afkomendum og ættingjum samúð. Guð blessi minn- ingu Unnar. Óttar Yngvason. Fjörkálfur alltaf, amma mín, áttræð þú hljópst yfir hlaðið. Þökk sé þér fyrir gæðin þín, þú hefur nú til himna farið. Elsku amma, þakka þér fyrir margar góðar minningar sem ég á um þig og sveitina þína. Ég minnist þess þegar ég var lítil og við vorum að keyra í sveitina, þá sá ég hvern bæinn á fætur öðrum birtast í fjarlægðinni og ég var alltaf viss um að bærinn sem við nálguðumst væri Fróðastaðir en lengi var það aðeins óskhyggja. Þegar við loks fórum framhjá Síðumúla vissi ég að Fróðastaðir væru næstir og það var hamingjan. Ég átti margar góðar og skemmti- legar stundir í sveitinni þegar ég var stelpa og minnist þeirra: í heyskap, að gefa heimalningunum, sækja beljurn- ar, mjólka, á hestbaki, spjalla við þig, gera handavinnu, lesa, reglulegar máltíðir, sækja eggin, smjörkakan sem þú bakaðir og samræður við mat- arborðið. Ein besta minningin er væntum- þykjan, friðurinn, róin og öryggið sem ég fann hjá þér í sveitinni. Þú að prjóna, klukkan tifaði og sagði ei- líbbð eins og í Brekkukotsannál og tíminn stóð í stað. Ég man eftir að þú hjálpaðir mér að prjóna ljósbláan trefil. Ég var lítil og trefillinn varð all- ur skakkur og skældur. Þú prjónaðir fyrir mig hluta af treflinum og hann varð beinn og fínn eins og það væri galdur. Oft fengum við hlátursköst. Þá urð- um við máttlausar af hlátri svo við gátum varla staðið í fæturna. Þú hafð- ir líka alltaf tíma til að spjalla og spila við okkur krakkana og kenndir Jóni Karli syni mínum að spila rommý. Þegar ég var orðin fullorðin var sveitin þín griðastaður. Ég kom stundum þreytt til þín og þá var hvergi eins gott að hvíla sig og hjá þér í örygginu og friðnum. Þú hugsaðir líka vel um Jón Karl son minn. Ég minnist þess þegar þú varst áttræð og hann tíu ára, þá fóruð þið í kapphlaup yfir hlaðið, sem lýsir því hversu létt í lund og spræk þú varst. Þegar ég kom til þín á seinustu ár- um leið mér alltaf vel eftir að hafa ver- ið hjá þér. Ein síðasta minningin er þegar ég heimsótti þig á síðastliðinni Þorláksmessu. Þá puntaði ég þig og naglalakkaði og við áttum indæla stund. Minningarnar um þig ylja mörgum okkar. Um daginn þegar við Jón Karl vorum að tala um hversu hláturmild þú varst minntist hann þess að þú sagðir oft „hláturinn lengir lífið“. Eins þegar við Rakel systir mín vorum að tala um minningarnar mundi hún með ánægju eftir því hvernig þú kenndir henni að spila trekant og hversu góð kakósúpan þín var. Elsku amma, þú varst góð, sjarm- erandi og skemmtileg alla tíð. Meira að segja þegar starfsfólkið á spítalan- um var að annast þig seinustu dagana þegar þú varst fótbrotin og þér leið mjög illa, þá sagði hjúkrunarkonan: „Það er ánægjan ein að annast þessa konu,“ sem lýsir því vel hvernig þú varst. Ég fylgdist líka með því hversu gott starfsfólkið á Dvalarheimilinu í Borgarnesi var við þig. Ég færi því og starfsfólkinu á Sjúkrahúsinu á Akra- nesi bestu þakkir fyrir að hafa annast þig vel. Guð geymi þig. Unnur Guðrún. Amma var góð kona. Ég kynntist henni sem unglingur þegar ég var nokkur sumur í sveit á Fróðastöðum. Hún var sérstaklega dugleg, nærgæt- in og mannblendin manneskja sem hugsaði fyrir öllu því sem þurfti til að öllum liði vel á erilsömu heimili. Aldr- ei heyrði ég hana hallmæla fólki og var jákvæðni henni í blóð borin. Hún var léttbyggð, kvik í fasi og ávallt vel til höfð og hefur heilbrigt líferni henn- ar og hófsemi án efa skilað henni góðri heilsu fram á efri ár. Fyrir borgarbarn í sveitarvist hjá ömmu og afa voru Fróðastaðir heim- ur út af fyrir sig. Þar var rekið mynd- arheimili, haldnar hænur, kindur, beljur og hestar, gert við vélar, járn- smíði stunduð, gripið í girðingar- vinnu, húsakosti haldið myndarlega við og garðrækt stunduð af kappi svo fátt eitt sé nefnt. Amma stóð óslitið vaktina á heim- ilinu og var aðdáunarverður dugnað- ur hennar þar sem henni féll aldrei verk úr hendi og hún fór sjaldan af bæ. Hún vann verk sín í hljóði og var sífellt að. Hún stjórnaði heimilishald- inu af miklum myndugleik, matbjó dýrindis rammíslenskan mat og bar til þess kox í eldavélina. Garðrækt var henni hugleikin, hún ræktaði í garð- inum kartöflur og ýmislegt grænmeti til heimilisins. Ef laus stund var greip amma í prjóna og hafa lopapeysurnar hennar góðu yljað á köldum dögum. Það að ganga til mjalta kvölds og morgna áratugum saman án þess að úr félli dagur er dæmi um vinnusemi hennar kynslóðar, löngu fyrir tíma mjaltaróbóta. Amma var hvort tveggja í senn nýtin með afbrigðum og jafnframt rausnarleg þegar við átti. Vinnuharka og nýtni hennar var dæmigerð fyrir hennar kynslóð sem afrekaði það að færa þjóðfélag okkar úr moldarkofunum og inn í nútímann. Á Fróðastöðum var oft glatt á hjalla. Mikið var um gestakomur og var sama hvort gestir gerðu boð á undan sér eða ekki, aldrei var komið að tómum kofunum hjá ömmu og svignuðu borð undan rjómatertum og öðru góðgæti sem hún hristi fram úr erminni áreynslulaust. Rætt var um landsins gagn og nauðsynjar, veðrið, sprettuna og fréttir af mönnum og málefnum úr sveitinni. Liðlega tvítug dvaldist amma um skeið í Reykjavík og var þá stofu- stúlka á heimili Óttars Ellingsen á Stýrimannastíg 10. Eftir að ég flutti í það sama hús árið 1997 og frétti af fyrri vist ömmu þar tæplega sjötíu ár- um áður var kærkomið að fá hana í heimsókn og heyra um horfna tíma. Hún sagði okkur af góðri vist sinni, gekk um húsið og var sem lifandi sögubók þar sem hún lýsti verkefnum sínum, heimilislífinu og herbergja- skipan eins og verið hafði. Ég kveð ömmu í dag með virðingu og þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þeirri góðu konu og fá um leið innsýn í kjör og lífsbaráttu þjóð- arinnar á fyrri tíð. Yngvi Daníel Óttarsson. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór í fyrsta sinn til sumardvalar hjá ömmu og afa á Fróðastöðum. Það var í þeim heimsóknum sem ég kynntist ömmu hvað best. Þótt ótal verkefni hafi verið í dag- legum verkahring ömmu var eins og hún hefði ómældan tíma til að gefa barnabörnum sem dvöldu sumarlangt á Fróðastöðum. Þannig spilaði hún við mig löngum stundum, aðstoðaði við handavinnu, spjallaði og sýndi mikinn áhuga á og setti sig inn í það sem ég tók mér fyrir hendur. Og hún hafði einstakt lag á að ná til okkar krakkanna og gat orðið sem ein af okkur. Gott dæmi um það er að þegar við frænkurnar Berglind og ég vorum í sveitinni áttum við það til að flissa helst til mikið við matarborðið þegar gestir voru, sem var hreint ekki sjald- an, og það án nokkurs tilefnis. Þannig máttum við vart líta hvor á aðra án þess að vera farnar að hlæja. Og ömmu fannst þetta svo ansi sniðugt líka að áður en hún vissi af var hún orðin þátttakandi í flissinu og við allar þrjár farnar að tárast af hlátri. Ekki var reynt að útskýra fyrir gestum hvað það var sem var svona sniðugt enda ekki auðvelt, en eitt er víst að við skemmtum okkur vel allar þrjár. Þarna kom létt lund ömmu líka vel í ljós sem í raun var eitt af hennar að- alsmerkjum. Gjafmild var hún og vildi alltaf allt fyrir alla gera. Oft var maður leystur út með grænmeti úr garðinum henn- ar og vildi hún gjarnan deila uppsker- unni með þeim sem hana heimsóttu. Þegar ég eitt sinn kom í heimsókn á meðan ég bjó erlendis vildi amma endilega að ég tæki með mér kart- öflur og grænmeti til útlanda, en ég treysti mér ekki til að bera líka eggin frá henni á milli landa. Þetta var vel þess virði því grænmetið var hvergi betra. Amma var umhyggjusöm og hafði mikið að gefa samferðafólki sínu. Aldrei man ég eftir henni öðruvísi en í góðu skapi og sýn hennar á lífið og til- veruna var bjartari en flestra annarra sem ég þekki. Hún tók vel á móti öll- um sem til hennar komu og allir sem komu að Fróðastöðum, hvort sem var til lengri eða skemmri dvalar, voru velkomnir. Þannig minnist ég ömmu. Blessuð sé minning hennar. Helga Melkorka Óttarsdóttir. Mig langar til að minnast hér Unn- ar móðursystur minnar sem var yngst í stórum hópi systkina frá Tungu í Fáskrúðsfirði, heimili sem var annálað fyrir myndarskap og reisn. Setti það sitt mark á systkinin öll. Ég þekkti Unni vel. Lára móðir mín og hún umgengust mikið þegar ég var barn og þær voru afar nánar þrátt fyrir tíu ára aldursmun. Unnur var mjög vel gefin bæði til munns og handa. Eftir að hafa lokið kennara- prófi stóð hugur hennar til frekara náms erlendis en af því gat ekki orðið. Hún var ekki sérlega hraust en í blóð borinn dugnaður, harka og seigla og hún hlífði sér aldrei. Unnur var mér mjög góð og leyfði mér t.d. að sitja í tímum í forskóla sem hún rak í einn vetur í Hafnarfirði að kennaraprófi loknu en hún var kennari af lífi og sál. Síðar kenndi hún um nær tíu ára skeið í Borgarfirði, lengst af sem farkennari í Hvítársíðu. Þar kynntist hún öðlingsmanninum Daníel Brandssyni frá Fróðastöðum. Gengu þau í hjónaband 1938 og hófu búskap í Fróðhúsum í Borgarhreppi. Fimm árum síðar fluttu þau að Fróðastöðum þar sem þau bjuggu góðu búi. Ég dvaldist hjá þeim hjón- um á báðum þessum stöðum: tvisvar sem snúningastelpa í Fróðhúsum og sem kaupakona á Fróðastöðum lung- ann úr sex sumrum. Ég minnist með gleði þessa tíma. Það var börnum og unglingum hollt veganesti að dveljast hjá þeim Unni og Daníel og þau voru stundum beðin fyrir börn sem lent höfðu í vanda og tókst að beina þeim á réttar brautir. Unnur var bráðmyndarleg hús- móðir og þau hjón höfðingjar heim að sækja. Hún var félagslynd og tók þátt í ýmsum félagsstörfum og var m.a. í mörg ár formaður Kvenfélags Hvít- ársíðu. Einnig vann hún ásamt nokkr- um öðrum konum í héraðinu að upp- byggingu Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi. Að eiginmanni sínum látnum brá Unnur búi og fór síðar til vistar á Dvalarheimilið í Borgarnesi og dvaldist þar til æviloka. Ég og fjölskylda mín sendum dætr- um Unnar og fjölskyldum þeirra inni- legar samúðarkveðjur. Þórdís (Día). UNNUR PÁLSDÓTTIR Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir for- máli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.