Morgunblaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 43
MINNINGAR
✝ Gústaf Sigur-jónsson fæddist
í Vestmannaeyjum
15. ágúst 1926.
Hann lést á sjúkra-
húsi Vestmannaeyja
16. apríl síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún Páls-
dóttir og Sigurjón
Eiríksson. Bræður
hans voru sex, Jak-
ob (látinn), Sigur-
páll (látinn), Sigur-
páll (látinn), Adolf
(látinn), Garðar (lát-
inn) og Gaukur.
Gústaf kvæntist Aðalheiði
Hjartardóttur. Barn þeirra er
María Gústafsdóttir, gift Krist-
jáni Birgissyni.
Börn þeirra eru: a)
Aðalheiður, b) Jóna
Dís, c) María Ýr, d)
Gústaf, e) Kári
Kristján. Barna-
barnabarn er Krist-
jana María.
Gústaf var vöru-
bílstjóri mestalla
starfsævi sína en
síðustu starfsárin
var hann verkstjóri
hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja við salt-
fiskframleiðslu.
Útför Gústafs verður gerð frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag og hefst athöfnin klukkan
10.30.
Jæja, pabbi minn. Þá er hann kom-
inn þessi tímapunktur sem ég hef
kviðið fyrir frá því ég var lítil stelpa,
að missa þig, pabbi minn, að hafa þig
ekki lengur og að fá ekki að hitta þig
aftur. En núna verð ég að hugga mig
við það að ég er ekki lítil stelpa (samt
ekki sterk), heldur fullorðin kona sem
hef fengið að hafa þig svo lengi hjá
mér og á svo margar minningar sem
ég get yljað mér við.
Þú varst svo yndislegur maður,
pabbi minn, máttir ekkert aumt sjá og
elskaðir dýr, sem sást best á sam-
bandi ykkar Tomma (kisu) enda sagð-
ir þú oft við mig: „Maja mín, það lýsir
okkar innri manni best hvernig við er-
um við dýrin.“
Þú varst einn af sjö bræðrum, einn
dó í frumbernsku en hinir sex ólust
upp saman á Boðaslóð 1 enda oft
nefndir Boðaslóðarbræðurnir. Sá
yngsti, Gaukur, býr enn á Boðaslóð-
inni en hinir fjórir þeir Kobi, Palli,
Addi og Gæi dóu allir á besta aldri og
það var þér mjög erfitt.
Pabbi var mjög ungur þegar hann
keypti sinn fyrsta vörubíl og gerðist
vörubílstjóri og má segja að það hafi
verið hans ævistarf fyrir utan síðustu
tíu starfsár hans, þá var hann verk-
stjóri yfir saltfiskframleiðslu hjá Ís-
félagi Vestmannaeyja.
Já, pabbi minn, þitt líf var vinna, þú
sagðir það ósjaldan, það byggist allt á
því að vera duglegur að vinna og það
varst þú svo sannarlega.
Svo kynntist þú mömmu og þið
giftust og eignuðust eina dóttur (und-
irritaða). Þið byggðuð húsið að Hóla-
götu 46 og þar hafa árin liðið.
Svo stækkaði þessi litla fjölskylda,
tengdasonurinn hann Kiddi kom í
spilið og þar með fóru hlutirnir að
gerast, barnabörnin fæddust hvert af
öðru, fyrst var það Aðalheiður
(Heiða). Það var mikil stund í þínu lífi,
þér fannst það kraftaverk, ekki var
gleðin minni hjá þér þegar Jóna Dís,
María Ýr, Gústaf og Kári Kristján
fæddust, þá fannst þér þú orðinn rík-
ur maður. Enda varst þú mjög mikið
fyrir barnabörnin þín og þú þeim
mjög náinn. Síðan bættist langafa-
barnið þitt hún Kristjana María í hóp-
inn og þá fannst þér þetta orðið full-
komið.
Já, elsku pabbi minn, þú varst mjög
mikið fyrir okkur öll.
Síðustu árin hjá þér byggðust á því
að rúnta á bílnum þínum um Eyjuna
okkar sem þér fannst hafa allt sem þú
þurftir á að halda í lífinu. Enda hafðir
þú ekkert upp á land að gera, eins og
þú sagðir svo oft.
Það var mikið erfitt að horfa upp á
þig þegar þú komst heim og lagðir
bílnum þínum í síðasta skipti. Það var
sorglegt. En við ákváðum að þú
skyldir ekki gefast upp, þó fæturnir
byðu ekki upp á mikið. Þá fórst þú að
fá þér göngutúra á hverjum degi og
það gerðir þú á meðan fæturnir
dugðu. En svo kom að því sem við
hræddumst, að fæturnir dygðu ekki
lengur. Þú fékkst slæmt fótasár og
sýkingu og varst lagður inn á sjúkra-
hús mikið veikur, og þar hefur þú ver-
ið síðustu mánuði.
Þetta eru búnir að vera erfiðir
mánuðir, en með hjálp þessa frábæra
fólks sem vinnur á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja við að lækna, hjúkra og
líkna sjúklingum sínum og aðstand-
endum, gátum við verið saman til
hinstu stundar. Þvílíkt umburðar-
lyndi, þvílík umhyggja og þvílík hlýja
hjá ykkur. Takk fyrir þetta allt.
Jæja, elsku pabbi minn, nú ert þú
kominn til Guðs og farinn einn rúnt í
rólegheitum um götur himnaríkis.
Guð geymi þig.
Þín dóttir
María Gústafsdóttir.
Elsku afi minn. Nú ert þú farinn og
ég á eftir að sakna þín svo óendanlega
mikið. Þú varst svo einstakur afi og í
raun svo miklu meira fyrir mér. Þú
gafst mér svo mikið og kenndir mér
svo margt.
Hjarta mitt er fullt af dýrmætum
minningum um tímann sem við áttum
saman. Þú gafst mér svo mikinn tíma
og við gerðum svo margt saman, það
er mér svo mikils virði. Þú varst mér
svo góður.
Manstu þegar þú kenndir mér að
keyra niðri í fjöru, ég hef ekki verið
eldri en tíu ára og þú varst svo þol-
inmóður við kennsluna og mér þótti
svo gaman.
Og allar ferðirnar sem við fórum til
að gefa kindunum, og svo auðvitað all-
ir bíltúrarnir.
Þú varst svo rosalega mikið fyrir
bíla og við það vannstu mestan hluta
ævi þinnar. Bílarnir voru þitt áhuga-
mál og síðustu árin varðirðu miklum
tíma í bílnum.
Þú varst yndislegur maður og vildir
öllum alltaf allt það besta.
Í vinnu varstu einstaklega vel lið-
inn, gerðir hlutina á þinn hátt og viss-
ir upp á hár hvernig hámarksafköst
næðust.
Þú varst svo laginn við mannleg
samskipti og öllum líkaði vel við þig.
Það tók mikið á þig þegar þú máttir
ekki lengur keyra, það var þér og
okkur öllum mjög erfitt. Þú hélst
samt áfram að fá þér göngutúra á
hverjum degi en svo gáfu fæturnir
sig.
Síðustu mánuðina varstu mikið
veikur, afi minn, og þú lást á sjúkra-
húsinu. En mikið rosalega var vel
hugsað um þig, fyrir mér var það ein-
stakt.
Núna er komið að kveðjustund.
elsku afi minn, og þrautir þínar eru á
enda. Nú ert þú hjá Guði og þar vaka
englarnir yfir þér og ég veit í hjarta
mínu að nú líður þér vel.
Það er svo sárt að kveðja þig, elsku
afi minn, en við hittumst aftur og þá
verðum við saman á ný.
Með ást þinni
kenndir þú mér að elska.
Með trausti þínu
kenndir þú mér að trúa.
Með örlæti þínu
kenndir þú mér að gefa.
Þín
Aðalheiður.
Jæja, elsku afi minn, nú er löngum
og farsælum bíltúr lokið hjá þér. Ég
man það bara þegar ég og Gústaf
hlupum út yfir malarveginn heima,
niður tréstigann og beinustu leið nið-
ur á Hóló og fórum í einhvern æv-
intýralegan bíltúr sem voru hver öðr-
um skemmtilegri. Við fórum oft rúnt
og keyptum kók og prins og þurftum
svo líka að fá pappamál því við
gleymdum því alltaf en þú sendir okk-
ur alltaf inn í Tóta til Lalla frænda og
lést okkur ná í þau. Skemmtilegast
þótti mér alltaf þegar við fórum upp á
hauga að kveikja í smá pappadrasli,
þetta upplifði ég sem eina mestu
skemmtun og prakkarstrik í heimin-
um. Þetta var bara einn af þeim fjöl-
mörgu hlutum sem við gerðum og
ekki hefði ég getað hugsað mér æsku
mína án þín. En að lokum klárast
bensínið hjá okkur öllum og vonandi
hefurðu það gott á himnum líkt og þú
hafðir með mér og fjölskyldunni.
Þinn
Kári Kristján.
Elsku afi minn, það hafa verið for-
réttindi að eiga þig, þú ert besti afi í
heimi.
Við eigum ótal minningar saman
sem ég mun aldrei gleyma. Þó að síð-
ustu mánuðir hafi verið okkur erfiðir
hafa þeir líka gefið okkur mikið, afi
minn, og mun ég ávallt geyma það í
hjarta mínu.
Ég kveð þig, elsku afi minn,
þú stefnu tókst á himininn.
Í faðmi drottins nú þú býrð,
í björtu ljósi og litadýrð.
Er svefn á sækir þú kemur inn,
og kossi smellir á vanga minn.
Á nóttu sem degi, hvar sem ég er,
ég veit þú vakir eftir mér.
Góða nótt, elsku afi minn, og Guð
geymi þig. Mundu mig, ég man þig.
Þín
María Ýr.
Jæja, elsku afi minn, núna ertu bú-
inn að kveðja í bili og er þetta eitthvað
það erfiðasta sem hefur gerst í lífi
mínu. Þú hefur ávallt verið stór part-
ur af mínu lífi og munt þú ekki verða
minni núna þó svo að þú sért kominn
til himna. Við eigum svo margar góð-
ar minningar saman, afi minn, og er
ég svo þakklátur fyrir þær, ég er svo
þakkátur fyrir að hafa fengið allan
þennan tíma með þér. Þú varst alltaf
til staðar fyrir mig, afi minn, í gegnum
tíðina og sagðir svo oft: ,,Þetta bjarg-
ast, Gústaf minn.“
Ég mun sakna þín svo, elsku besti
afi minn, og það verður erfitt að þurfa
að sætta sig við að geta ekki séð þig
eins oft og ég gerði.
Elsku afi minn, nú bíðum við bara
og hlökkum til að við getum farið rúnt
saman um þær götur sem þú keyrir
svo yfirvegað nú, allavega get ég ekki
beðið.
Hvíldu í friði, elsku besti afi minn.
Þinn dóttursonur
Gústaf.
Elsku afi minn, ég á ennþá svo erf-
itt með að trúa því að þú sért farinn og
það að geta ekki fengið að sjá þig aft-
ur finnst mér ólýsanlega sárt. Minn-
ingarnar um alla „rúntana“ sem farn-
ir voru þegar við systkinin vorum lítil
skjóta upp kollinum. Þar var ýmislegt
gert en þó allt í rólegheitum, því þú
varst ekki fyrir læti og hækkaðir aldr-
ei röddina, þegar þú talaðir við okkur.
Eftir að við Steingrímur fórum svo
að búa á Kirkjuveginum og eignuð-
umst Kristjönu Maríu okkar, sem þú
varst svo óendanlega hrifinn af, þá
komst þú til okkar við og við í smá
spjall. En þú manst að við segjum
engum frá því.
Elsku afi, ég geymi í hjarta mínu
allar góðu stundirnar og minningu
um besta afa í heimi.
Sofðu nú vel og Guð vaki yfir þér.
Góðar minningar
skal varðveita.
Allir ættu að eiga sérstaka
manneskju sem þeir
virða og dá,
einhverja sem þeir læra af,
einhverja sem þeir elska.
Þess vegna ættu
allir að eiga
afa eins og þig.
Þín
Jóna Dís.
Gústi var fastagestur í Bílaverk-
stæðinu Bragganum. Þangað kom
hann til að hitta og ræða við frændur
sína. Alltaf hafði ég jafn gaman af
heimsóknum hans. Hann talaði mikið
um fótboltalífið á eyjunni og lét sig
ekki vanta á heimaleiki ÍBV. Hann
ræddi líka um bæjarlífið og hafði allt-
af sínar föstu skoðanir á hlutunum og
ekki var auðvelt að hagga þeim. Svo
hafði Gústi gaman af því að búa til
smá þras, sem var nú yfirleitt bara í
léttu gríni. Hann hafði mikinn og
lúmskan húmor og oft láku út úr hon-
um ansi skondin skot, þegar fólk átti
síst von á því.
Gústi var þekktur fyrir að keyra
,,mjög“ rólega, en flestir bæjarbúar
tóku tillit til þess og leyfðu honum að
rúnta um á sinni ferð. Hann keyrði
stóran hluta af deginum, kíkti á
bryggjurnar, keyrði hana Öllu sína í
búð, fór niður í Herjólfsdal, lagði bíln-
um þar og labbaði hringinn í kringum
tjörnina. Hann sagði alltaf að meðan
hann gæti það þá væri hann sáttur við
heilsuna.
Stundum kom það fyrir að hann
kom í Braggann til að fá smá aðstoð
við að laga bílinn, þá var það yfirleitt
vegna þess að hann nuddaði bílnum
utan í vegginn við innkeyrsluna hjá
þeim hjónum. Gústi var þá oftast
fljótur að koma sökinni á vegginn:
„Ansans veggurinn er á svo leiðinleg-
um stað,“ sagði hann og brosti.
Þegar Gústi þurfti að hætta að
keyra, varð ég ekki mjög bjartsýnn á
að heimsóknirnar í Braggann yrðu
fleiri. En karlinn kom mörgum á
óvart og byrjaði að rölta, mætti svo í
Braggann í smá þras og fékk svo
skutl heim. Hann hringdi líka stund-
um í okkur ef hann þurfti að skjótast
eitthvað, þá var ekkert sjálfsagðara
en að renna eftir honum og skutla
honum á þá staði sem hann þurfti að
fara á.
Gústi var mikið góðmenni og mikill
dýravinur, honum þótti alltaf jafn
gaman að hitta tíkina mína, hana
Brák, og kom hann reglulega til að
kíkja á hvernig hún hefði það eftir að
hún veiktist. Það fór ekkert á milli
mála að þeim þótti vænt hvoru um
annað þegar þau hittust. Gústa þótti
líka rosalega vænt um fjölskylduna
sína, talaði oft um hvað barnabörnin
og barnabarnabarnið væru að gera í
lífinu og þá heyrði maður vel, hversu
stoltur hann var af fólkinu sínu.
Elsku Gústi frændi, þín verður sárt
saknað í Bragganum.
Ég vil senda Gauki, Öllu, Maju,
Kidda og allri fjölskyldunni mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sæþór.
GÚSTAF
SIGURJÓNSSON
eftir þig sem ég held mikið upp á og
ein jólin táraðist ég yfir því þegar þú
gafst mér gullhálsmen og eyrna-
lokka sem þú hafðir átt lengi, ég veit,
Hulda mín, að þér þótti vænt um mig
eins og mér þótti vænt um þig, við
vorum vinkonur, ég, Fríða þín, og
þú, Hulda mín. Gott dæmi um
ákveðni þína er að þegar ég átti litlu
stúlkuna mína, hringdir þú í mig og
óskaðir mér til hamingju og ég sagði
þér hvað hún ætti að heita, Ugla
Rós. Þú varst nú ekki sérlega hrifin
af nafninu og hringdir í mig nokkr-
um sinnum og spurðir mig hvort ég
ætlaði virkilega að láta barnið heita
þessu nafni. Lengi eftir það gast þú
ekki einu sagt nafnið Ugla og kall-
aðir hana alltaf litlu Rós, þú sagðir:
„Hvað segir hún litla Rós mín í dag?“
En þú jafnaðir þig svo á þessu og
varst farin að kalla hana nafni henn-
ar.
Hulda, þú varst mikil fjölskyldu-
kona enda áttir þú góðan og fallegan
hóp afkomenda, fylgdist vel með
hvað hver og einn var að gera og ég
var einfaldlega svo lánsöm að vera
ein af þeim. Hulda mín, ég þakka þér
innilega fyrir allt.
Elsku vinkona, nú hefur þú kvatt
okkur hér í þessum heimi, okkur öll
sem elskuðum þig. Ég veit að þér
mun líða vel í þeim næsta, með þínu
fólki þar, sem elskar þig og bið ég
kærlega að heilsa Veturliða eigin-
manni þínum og Veturliða syni þín-
um. Kæra vinkona, ég þakka þér fyr-
ir okkar trúu og góðu vináttu í 27 ár.
Ég kveð þig nú, mín kæra.
Ég líða vil um lög og geim.
Ó, löngun mín er sterk.
Vindur minn, ljáðu mér vængi heim,
það væri kærleiksverk.
Hvort sem ég brosi, harma eða hlæ
er hugur minn ávallt þar.
Varpaði ég mér í votan sæ,
ég veit mig ræki þar.
(Indriði Einarsson.)
Fríða Sveinbjörnsdóttir.
Elsku amma. Nú ertu orðin fal-
legur engill sem vakir yfir okkur.
Mér þykir svo vænt um að hafa verið
hjá þér síðustu dagana þar sem ég
var í heimsókn hjá mömmu og pabba
með strákana mína. Þegar við
mamma og strákarnir komum í
heimsókn til þín þá varstu sofandi og
varst mjög svekkt yfir því að hafa
misst af okkur. Þú beiðst spennt eft-
ir að fá að sjá yngsta afkomandann
þinn, Eið Sölva, í fyrsta sinn, og
hann Daða Snæ. Ég mun aldrei
gleyma þeim degi þegar þú sást Eið
Sölva fyrst. Þú leist svo vel út og
hárið á þér var svo fallegt. Þú vildir
fá Eið Sölva upp í til þín og þú kysst-
ir hann, faðmaðir og straukst. Svo
baðstu innilega að heilsa Daða í
þetta sinn en varst svo ánægð þegar
hann kom svo í heimsókn til þín með
allar risaeðlurnar sínar.
Þú varst alltaf svo handlagin og
sýndir svo mikinn áhuga á því sem
við systur vorum að föndra og þú
hafðir svo gaman af því að sjá peys-
urnar sem við vorum að prjóna. Þú
varst alltaf svo dugleg að hrósa
manni, sem var þinn sterki eigin-
leiki. Það var mér svo mikil hvatning
í lífinu að heyra hrós frá þér sem
voru alltaf svo einlæg.
Minningarnar um þig eru margar.
Ég var svo heppin ásamt fleirum að
þú og afi áttuð heima nálægt okkur
og því gátum við heimsótt ykkur oft.
Það sem mér er efst í huga er þegar
við vorum í Leirufirði. Við fórum á
hverju ári frá 1979–1991 og engu
sumri sleppt. Þú, Stína ljósa og
Magna sögðuð mér sögur frá því að
þið voruð litlar, afi og Bubbi að kíkja
í netin, mamma og Valdís að sjóða
fiskinn, pabbi að passa að Bubbi
dytti ekki í sjóinn og afi að fá fréttir í
gegnum talstöðina. Þetta var ynd-
islegur tími sem þið afi áttuð þarna
og ykkur þótti svo gaman að fá gesti
og tókuð alltaf vel á móti öllum sem
komu. Nú held ég að þú og afi séuð
komin í Leirufjörð í gamla hjólhýsið
ykkar með Stínu, Bubba, Mögnu,
Stínu Alla og öllum þeim sem helg-
uðu sér þennan stað.
Bless, elsku amma, ég sakna þín.
Guð blessi og varðveiti minningu
þína.
Þín „leira litla“
Kristín Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar
alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í
fliparöndinni – þá birtist valkosturinn
„Senda inn minningar/afmæli“ ásamt
frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir for-
máli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar
um hvar og hvenær sá, sem fjallað er
um, fæddist, hvar og hvenær hann
lést, um foreldra hans, systkini, maka
og börn og loks hvaðan útförin fer
fram og klukkan hvað athöfnin hefst.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargreinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynn-
ingu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um
annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt
að senda hana á myndamóttöku:
pix@mbl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningargreinar