Morgunblaðið - 22.04.2006, Page 47

Morgunblaðið - 22.04.2006, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 47 MINNINGAR öðru ungu fólki í þessari sveit og fljótt vissu sveitungarnir hver Lára á Reykjum var. En eins og farfuglarnir fara er haustar fór sumarfólkið úr gróð- urhúsunum til annarra starfa. Svo var einnig með Láru þó hún færi ekki langt. Hún hafði þá kynnst syni hjónanna á bújörðinni Syðri- Reykjum, Grétari B. Grímssyni, sem leiddi til þess að þau ung að árum opinberuðu trúlofun sína og flutti þá Lára að Syðri-Reykjum til Grétars. Grétar var einkabarn hjónanna Gríms Ögmundssonar og Ingi- bjargar Guðmundsdóttur sem höfðu búið á Syðri-Reykjum við mikla rausn sl. 20 ár. Á þessum tíma var mikill umsvifabúskapur á Syðri-Reykjum. Búið var með kýr, sauðfé, gróðurhús og vélaútgerð. Grímur bóndi vann að mestu við pípulagnir útifrá en búskapurinn heimafyrir var rekinn af vinnufólki þar sem sjálfstætt mötuneyti var fyrir fólkið. Inn í þetta umhverfi kom Lára er hún stuttu síðar hóf sjálfstæðan búskap með sínum manni. Fengu þau góða íbúð er foreldrar Grétars áttu á efri hæð í vélahúsi staðarins og þar við hlið- ina bjuggu þá Georg og Brynja sem ráku garðyrkjustöð búsins. Allt heimafólk tók Láru opnum örmum enda hún einstök að ávinna sér hylli með glaðværð sinni og al- úðlegri framkomu. Grétar hóf ung- ur sjálfstæðan rekstur á eigin vörubílaútgerð sem leiddi til þess að hann var oft að heiman. Það kom því fljótt í hlut Láru að ann- ast heimilið og má segja að hún hafi helgað sig þeim störfum ásamt barnauppeldinu. Þau hjónin áttu barnaláni að fagna. Afkomendahópurinn hefur vaxið fljótt og vel og það er stór hópur sem kveður móður sína og ömmu með sárum söknuði því hjá henni áttu allir öruggt skjól. Þegar fjölskyldan stækkaði byggðu þau hjón sér glæsilegt íbúðarhús á Syðri-Reykjum þar sem tekið var á móti gestum og gangandi af meiri rausn en gengur og gerist. Sem fyrr segir tóku Grétar og Lára við búrekstri á Syðri-Reykj- um er foreldrar Grétars féllu frá. Grétar var 4. ættliður er stóð þar fyrir búi en Syðri-Reykir hafa allt- af verið taldir ein allra besta bú- jörð í þessari sveit. Mikil umsvif og góðar byggingar settu svip á staðinn og um tíma ráku þau hjón stórt kúabú á jörðinni og byggðu gróðrarstöðina glæsilega upp. Um langan tíma höfum við Úthlíðar- bændur átt vinasamband við Syðri-Reykjafólkið. Feður okkar og afar okkar Grétars voru vinir og samferðafólk. Góður var sá arf- ur til þeirra Grétars og Láru og dró hún þar ekki úr. Líka kom til að börn okkar og síðar barnabörn voru á sama reki. Margar góðar stundir áttum við hjá þeim hjón- um. Þá mátti sjá myndarskap hús- móðurinnar og ekki síður er mað- ur knúði dyra óboðinn en alltaf stóð veisluborð búið gestum og þó barnafjöldi væri á heimilinu var allt pússað út úr dyrum. Þau hjón voru einnig hinir bestu ferðafélag- ar. Fórum við nokkrar ferðir með þeim bæði innanlands sem erlend- is. Á seinni árum fóru þau með húsvagn sinn vítt um landið og hittumst við þá oft norðan heiða. Alltaf var gleðin yfir því að hittast í fyrirrúmi. Fyrir nokkrum árum fór að halla undir heilsuna hjá Grétari en hann lést 19. september 2003 og sl. tvö ár bjó Lára ein í sínu húsi. Til hennar var sem fyrr gott að koma og eiga hana að tryggum vin er sorgin kvaddi dyra hjá mér fyrir einu og hálfu ári. Hinn 28. febrúar kom ég síðast að Syðri-Reykjum til Láru og þáði kaffi og góðar ferðaóskir áður en ég skrapp í hálfs mánaðar frí. Sagði Lára mér þá frá ferð sem hún ætlaði að fara með fjölskyldu sinni um páskana og hlakkaði hún mikið til. Er ég kom heim 15. mars var hún nýlega komin á sjúkrahús. Ég heimsótti hana þar nokkru síð- ar og kvaddi þennan trygga vin sem við hjónin höfum átt hér allan okkar búskap. En páskaferðin hennar var ferðin til eilífðar á móts við ástvini er fyrr höfðu kvatt þennan heim og hún kveið ekki þeirri heimkomu. Ég sendi fjölskyldunni og ást- vinum öllum hugheilar samúðar- kveðjur. Björn Sigurðsson, Úthlíð. Mig langar í nokkrum orðum að minnast hennar Láru á Reykjum sem féll frá langt fyrir aldur fram á föstudaginn langa eftir strangt en stutt veikindastríð. Ég var tíður gestur hjá þeim Grétari og Láru á mínum uppvaxt- arárum en ég og Dagný, yngsta dóttir þeirra, vorum á sama aldri og áttum það sameiginlegt að vera báðar yngstar í okkar systkina- hópi. Við sóttum því mikið í fé- lagsskap hvor annarrar sem hent- aði líka vel því foreldrar okkur voru góðir vinir svo það var mikill samgangur á milli. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn á Syðri-Reyki, rausnarskapur var þar meiri en maður átti að venjast og margt við að vera. Syðri-Reykir voru ekki eins og venjulegur sveitabær á þessum tíma. Þar var allt stærra og meira en á öðrum bæjum. Mik- ið af húsum og bílum, heill leik- völlur fyrir utan húsið, stór heitur pottur á pallinum löngu áður en slíkt tíðkaðist og búrið hennar Láru sem var engu öðru líkt alltaf fullt af kræsingum sem varla sá á þó margir munnar væru í heim- sókn. Þessi myndarskapur lýsir bara Láru svo vel sem jafnan sat fremst við stóra eldhúsborðið og prjónaði þar sem lopinn breyttist í fallegar lopapeysur upp úr stórum hvítum bala. Lára var líka mjög myndarleg í höndunum, saumaði, prjónaði og málaði styttur svo eitt- hvað sé nefnt. Meðan hún prjónaði spjallaði hún og hló með okkur stelpunum þar sem við sátum og borðuðum Coco Puffs. Það var sama þó við borðuðum Coco Puffs í öll mál, þá kláraðist það aldrei enda Lára vön að kaupa meira en nóg af öllu. Þrátt fyrir að alltaf væru margir í heimili á Reykjum var alltaf allt svo hreint og fínt hjá Láru sem hafði góð tök á því að fá heimilismenn og gesti til að ganga snyrtilega um sem getur oft reynst erfitt. Einhverju sinni þeg- ar ég hafði gist hjá Dagnýju eftir að foreldrar og eldri systkini fóru á þorrablót ákváðu Lára og Grétar að bjóða okkur í skemmtiferð til Reykjavíkur daginn eftir. Við fór- um í bíó og út að borða á fínan veitingastað og svo aftur heim um kvöldið. Þetta var á þeim tíma að ferð til Reykjavíkur var töluvert ferðalag þar sem vegirnir voru ekki eins malbikaðir og í dag auk þess að ef farið var í höfuðborgina var það gert út af einhverjum er- indum. En að fara svona í óvænta skemmtiferð var alveg nýtt og er mér svo eftirminnilegt. Þetta lýsir bara þeim sómahjónum Láru og Grétari vel sem kunnu að njóta lífsins. Eftir að skólagöngu í sveitinni lauk hitti ég Láru sjaldnar. Hún fylgdist samt vel með því hvað ég væri að gera eins og góðir vinir gera. Það var líka gott að eiga Láru og fjölskyldu að í veikindum mömmu, því hún sýndi okkur mik- inn stuðning með umhyggju sinni. Lára var góð kona sem ég lærði margt af og hef reynt að tileinka mér. Nú er Lára á Reykjum farin í sína hinstu ferð svo maður á ekki eftir að heyra dillandi hlátur henn- ar framar en minningin um góða konu lifir áfram. Ég sendi Dag- nýju og öllum systkinum hennar og fjölskyldum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Jónína Birna Björnsdóttir (Ína). Orka, kraftur og dugnaður. Þetta kemur upp í huga mínum er ég hugsa um Láru, nú þegar hún er fallin frá á svo skömmum tíma. Já, af þvílíkum krafti og dugnaði gekk hún að öllu er hún tók sér í hönd. Hún var ekki sú manngerð sem hefði viljað neina lofræðu en ég vil bara minnast hennar með fá- einum orðum. Faðir minn keypti land af Grími bónda á Syðri- Reykjum árið 1956 og þá voru Lára og Grétar að byrja að vera saman. Eins var með okkur Björn. En er við reistum sumarbústaðinn árið 1982 hófst vinátta okkar, sem aldrei bar skugga á öll þessi ár. Barnalán var hjá okkur báðum og sonur okkar Kristján eða Stjáni eins og hann var kallaður af þeim var heimagangur hjá þeim á Reykjum í mörg sumur. Tókst vin- átta með honum og börnum þeirra. Seinna gat ég launað það með því að hafa Dagnýju dóttur þeirra hjá okkur er hún stundaði nám í Reykjavík. Áhugamál þeirra var að ferðast um landið, fara vestur til Ísafjarðar á heimaslóðir Láru. Didda og Bári vinir þeirra voru þá iðulega í för með þeim. Síðasta fellihýsi þeirra var af fínustu gerð, en því miður var heilsu Grétars farið að hraka. Samt var farið með súrefniskútinn með í ferðirnar og Lára mín stóð eins og klettur við hlið hans. Það var gaman að sjá Láru sjóða brauðið í hvernum, baka kleinur, sem hún seldi í Bjarnabúð og á Borg. Það voru hröð handtökin er hún vann í gróð- urhúsunum. Já, Lára gat allt, ork- an var óþrjótandi. Þau skipti er ég sá hana setjast niður var hún kom- in með prjónana í hönd, peysurnar urðu óteljandi. Nú verður ekki sest niður við stóra borðstofuborðið, fengið kaffi og smá tár með, spjallað og hlegið. Engin Lára, enginn Grétar. En vonandi eigum við eftir að eiga stundir með börnum ykkar fimm. Spánarferðin, Lára mín, breyttist í aðra ferð, ferð til Grétars sem féll frá fyrir tveimur og hálfu ári, hinn 19. september 2003. Þar hefjast nýjar ferðir saman. Guð blessi þig, Lára mín. Áslaug H. Kjartansson. Sumum gleymir maður en öðr- um aldrei. Láru gleymdi maður aldrei, hún átti sess í minningu unglingsáranna dýrmætu. Við kynntumst árið 1954 á Syðri- Reykjum, við gróðurhúsavinnu, og mikið óskaplega var gaman. Lára hafði sérstakt aðdráttarafl, maður var alsæll nálægt henni. Kannski kom þessi gáski frá Ísafirði en þaðan kom þessi elska. Hún bauð mér svo á skíðaviku þar árið eftir, og ég man enn eftir herberginu í risi hjá ömmu hennar, þar sem við blöðruðum svo mikið á milli skíða- ferðanna, að ekkert var sofið. Þessar fáu línur eru skrifaðar til barna Láru og Grétars í minningu unglingsára okkar. Innilegar samúðarkveðjur, elsku krakkar. Sigríður Björnsdóttir (Sidda). Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Halldór Ólafsson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR, Svalbarði 7, Hornafirði, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 19. apríl síðastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda, Jón Skeggi Ragnarsson, Olga Þórarinsdóttir, Anna Ragnarsdóttir, Ásgeir Kristjánsson, Björn Guðlaugur Ragnarsson, Dóra Sigurbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSTA ANTONSDÓTTIR, Rjúpufelli 23, lést á Landspítalanum Fossvogi að morgni fimm- tudagsins 20. apríl. Útförin verður tilkynnt síðar. Otto J. Malmberg, Einar Malmberg, Katrín Hrafnsdóttir, Anton Malmberg, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓHANNA ÁRMANNSDÓTTIR frá Neskaupstað, lést á heimili sínu Aðalgötu 5, Keflavík, miðviku- daginn 19. apríl. Gunnhildur Ásgeirsdóttir, Halldór Vilhjálmsson, Sigurbjörg Ásgeirsdóttir, Hörður Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON prentari, Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 21. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Gústaf Guðmundsson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.