Morgunblaðið - 02.05.2006, Page 30

Morgunblaðið - 02.05.2006, Page 30
Elsku langafi, mér finnst svo skrýtið að þú sért farinn og eig- ir ekki lengur heima hjá lang- ömmu. Mér þótti gaman að heimsækja þig og man þegar ég og vinur minn fórum oft í heimsókn til ykkar langömmu og það var mjög gaman. Mér fannst líka gaman þegar þú varst hjá okkur á jólunum, borðaðir með okkur og horfðir á okkur taka upp pakkana. Veit að Guð geymir þig fyrir okkur. Þinn Hjalti Ásberg. Elsku langafi, ég er leið af því að þú ert dáinn. Afi, þú varst svo skemmtilegur og góður, það var svo gaman að leika við þig. Þú varst svo kátur og hress, hlóst svo mikið og sagðir bara já og nei. Við skulum passa langömmu fyrir þig. Þín Elín Rut. HINSTA KVEÐJA 30 ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Oddur Sigurðs-son fæddist í Einholtum í Hraun- hreppi 27. október 1908. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 23. apríl síðastliðinn. Hann var sonur Sigurðar Jósefssonar, f. 13.6. 1854, d. 24.6. 1940 og Sesselju Davíðs- dóttur, f. 26.7. 1868, d. 1.4. 1958. Systkini Odds voru Jón, f. 1897, d. 1992, Davíð Valdimar, f. 1899, d. 1998, Þórarinn Herluf, f. 1901, d. 1987, Þorleifur, f. 1903, d. 1976, Guðrún, f. 1905, d. 1992, Hjör- leifur, f. 1906, d. 2000 og Stefán, f. 1910, d. 1988. Oddur kvæntist 24. júní 1944 Guðbjörgu Helgadóttur, f. 5.8. 1918. Börn Odds og Guðbjargar eru: 1) Jónasína, f. 19.10. 1946, gift Reyni Bragasyni, þau eiga þrjú börn, a) Odd, b) Fanneyju í sambúð með Ingvari Ragnarsyni og eiga þau tvö börn og c) Finn- boga. 2) Sigurður, f. 28.9. 1947. 3) Helgi, f. 30.11. 1949, kvæntur Sigríði Þórðardóttur, þau eiga Boga, í sambúð með Unni Sig- urðardóttur, þau eiga eitt barn, Jóhannes, Soffíu, Helgu, Teit, Guð- björgu, Margréti, Láru, Þóri og Þórð. 4) Hjalti, f. 25.8. 1951, kvæntur El- ínu Þorsteinsdótt- ur, börn þeirra eru a) Guðrún Berg- lind, gift Jóni Þor- steinssyni, þau eiga þrjú börn, b) Guð- björg, í sambúð með Þorleifi Reyn- issyni, þau eiga tvö börn, c) Hildur, í sambúð með Jóni Pálma Ólafs- syni, þau eiga tvö börn, d) Hlyn- ur Þór, e) Þorsteinn Oddur og f) Hrannar Ingi. 5) Sesselja, f. 2.11. 1952, gift Lárusi Fjeldsted, þau eiga Kristínu Lilju, Lárus Viðar og Arnþór. 6) Jón, f. 2.11. 1954, kvæntur Herdísi Þórðardóttur, þau eiga Stíg, Þórdísi, á hún einn son, Gunnhildi og Guðmund Elv- ar. 7) Þorbjörn, f. 7.9. 1957, kvæntur Jóhönnu Þorvaldsdótt- ur, þau eiga Jónínu Margréti, í sambúð með Jóni Inga Einarsyni, þau eiga eina dóttur, Elsu, Rögn- vald, Reyni, Þorvald og Hrefnu. Útför Odds verður gerð frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar til að minnast afa míns hans Odds Sigurðssonar sem bjó lengst af ævi sinni í Kolviðarnesi í Eyjahreppi. Að heimsækja afa og ömmu í Kolviðarnesi var alltaf til- hlökkunarefni aðallega vegna þess að maður fann alltaf fyrir hlýju og vænt- umþykju hjá þeim. Það hljómar enn í eyrum mínum þau orð og tóninn í röddinni sem afi sagði alltaf þegar maður kom í heimsókn en þau voru „komið þið nú sæl og blessuð“ og allt- af varð hann jafn glaður þegar maður kom hvort heldur þegar hann bjó í Kolviðarnesi eða á Dvalarheimilinu í Borgarnesi. Mikið sport var það þeg- ar ég var í Laugargerði að fá að fara labbandi niður í Kolviðarnes til að heimsækja afa og ömmu og fórum við þá oft nokkur saman. Afi hafði alveg sérstakan húmor og gott dæmi er það er að þegar maður spurði hann „hvað hann segði gott“ þá varð hann yfirleitt snöggur að svara „ég segi það ekki“ og svo hló hann. Afi var alveg ótrúlega heilsuhraustur maður og alltaf gekk hann teinbeinn þó hann væri orðinn 95 ára og nánast alltaf fór hann sinn daglega rúnt út úr matsalnum á Dvaló og út og inn niðri. Hann afi var sannarlega betri en eng- inn við ömmu bæði í að sinna heim- ilisverkum í Kolviðarnesi og þá sér- staklega uppvaski og eins að annast hana ef hún veiktist og ég tala nú ekki um þegar hún fótbrotnaði. Þá var það hann sem sá um að koma henni á milli staða í hjólastólnum og fannst það sjálfsagt. Afi las mikið og var mikill marka- maður og kunni markaskrárnar utan að. Hann var líka fróður og alltaf gat maður spurt hann ef það var eitthvað sem maður vildi vita. Þegar ég var að vinna í Hyrnunni kom hann reglulega til að kaupa sér krossgátur en þá iðju stundaði hann mikið og ekki voru mörg orðin sem hann gat ekki. Ég var svo lánsöm að dvelja hjá ömmu og afa í Kolviðarnesi í eitt sumar þegar ég var að vinna á Eldborg og sá tími er mér ómetanlegur. Afi vaknaði alltaf á morgnana til að skutla mér í vinnuna og sótti mig líka alltaf á kvöldin. Þakklátust er ég fyrir þau 7 jól sem afi eyddi aðfangadagskvöldi með mér og fjölskyldu minni. Elsku afi, takk fyrir allt og við munum gæta ömmu fyrir þig. Guðbjörg. Mig langar að kveðja hann afa með örfáum orðum. Afi og amma bjuggu lengst af í Kol- viðarnesi. Alltaf var gaman að koma í heimsókn til þeirra, var það mjög mikið tilhökkunarefni að fara að heimsækja þau hjá okkur systkinun- um. Þegar ég var í Laugargerðisskóla þá löbbuðum við oft að heimsækja þau, það var alltaf mjög gaman og kom þá oft hópur af krökkum með okkur. Alltaf heyrðist viss ánægju- tónn í röddinni þegar við komum í heimsókn, þessi sama gleði var einnig þegar við komum að heimsækja þig og ömmu núna í síðustu skiptin, þegar þú gast nánast ekkert tjáð þig nema já og nei, þú varst svo glaður að sjá okkur, hlóst og varst ofsakátur, varst að glettast við Bóel og Heiðar Óla. Það var svo ánægjulegt að heyra hvað þú varst glaður, þó það hafi verið sárt að sjá hvað þú varst orðinn aldraður. Afi var alltaf hraustur til heilsunn- ar, leit alltaf vel út, teinréttur og hressilegur, ég held svei mér þá að hann afi hafi ekki orðið gráhærður fyrr en hann var orðinn níræður. Vil ég þakka guði fyrir hvað við höfðum þig lengi hjá okkur hérna megin. Elsku afi, nú er það í okkar höndum að passa hana ömmu fyrir þig eins vel og þú gerðir það. Guð geymi þig. Hildur. ODDUR SIGURÐSSON Elsku Sigríður mín, nágranni og vinur. Þá ert þú búin að yfirgefa líkama þinn og ég trúi því að vel hafi verið tekið á móti þér, konu sem sagði aldrei styggðaryrði við nokkurn mann, gerði frekar gott úr öllu. Þú fluttir hingað í húsið eftir að þú misstir eiginmann þinn svo að við höfum búið hér saman í 20 ár. Það er mikil gæfa að vera bæði greind og viðræðugóð. Þú áttir mikla ástúð að gefa börnunum þínum og ég held að það hafi verið gagnkvæmt. Þegar ég kom til þín og við sátum yfir kaffibolla leið ekki á löngu að þú minntist ekki á börnin þín og ekki hvað síst á Gunnar Þór. Við komum báðar heim af sjúkra- húsi sama dag, þú með göngugrind SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR ✝ Sigríður Bjarna-dóttir fæddist í Reykjavík 14. febr- úar 1920. Hún lést á heimili sínu, Lyngmóum 14 í Garðabæ, 24. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Ví- dalínskirkju í Garðabæ 6. apríl. og ég á hækjum. Ég hélt einhvern veginn að þú myndir ná þér aftur en svo reyndist ekki vera. Þinn tími var kominn. En ekki varst þú að kvarta, ég held að þú hafir ekki kunnað það. Ég fór niður til þín 24. mars. Kristín dóttir þín stóð í dyr- unum og sagði mér að þú værir sofnuð svefninum langa. Þú varst búin að klæða þig og sast í græna stólnum þínum. Ég vil þakka Kristínu dóttur þinni fyrir að bjóða mér inn. Þú varst eins og engill á kodd- anum. Þannig fékk ég að kveðja þig. Ég held að ekki sé hægt að kveðja þennan heim á friðsælli hátt. Ég og aðrir íbúar að Lyngmóum 14 þökkum fyrir að hafa fengið að hafa þig á meðal okkar. Þú hafðir svo góða nærveru. Farðu í friði og ró til Gunnars þíns. Guð fylgi þér og gefi þeim líkn sem lifa. Kveðja, þín Elín Stefánsdóttir. Við komum til að kveðja hann í dag, sem kvaddi löngu fyrir sólarlag. Frá manndómsstarfi á miðri þroskabraut, hann má nú hverfa í jarðarinnar skaut, sem börnum átti að búa vernd og skjól er burtu kippt af lífsins sjónarhól. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Elsku Lúlli. Við fengum þær sorg- legu fréttir að morgni 3. apríl að þú hefðir látist í slysi kvöldinu áður. Tím- inn hreinlega stöðvast og minning- arnar um þig hrannast upp í huga okkar og söknuðurinn gagntekur okkur þó svo að við gerum okkur varla enn grein fyrir því að þú sért farinn. Það er svo erfitt að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að rekast á þig á balli eða í sveitinni heima svo það sé nú ekki talað um að geta ekki komið í kaffi til þín oftar og gantast í þér og fá til baka þínar athugasemdir og stríðnisbros.Við höfum hugsað mikið til þín á síðustu dögum og rifj- ast upp svo margt allt frá því við vor- um litlir grallarar að gera ýmsar til- raunir á ánamöðkum og fiðrildum eða bara að horfa á sjónvarpið og borða nammi til síðustu skiptanna sem við hittum þig, þú varst svo hamingju- samur og ánægður. Við eigum marg- ar góðar minningar sem við geymum í hjarta okkar um ókomna tíð. Þín verður sárt saknað en er missirinn þó mestur hjá dætrum þínum sem missa góðan og hjartahlýjan föður. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert einn af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Hvíldu í friði, kæri vinur. Guðrún og Björn, Krithóli. Fallinn er nú frá mikill vinur og fé- lagi minn, Lúðvík Alfreð Halldórsson, eða Lúlli á Krithóli eins og hann var alltaf kallaður. Ég fékk hringingu á sunnudagskvöldið 2. apríl og var sagt að hann hefði dáið í vinnuslysi við Kárahnjúka. Þetta var erfitt og tók mikið á mig og ég er enn að átta mig á að þetta sé satt. LÚÐVÍK ALFREÐ HALLDÓRSSON ✝ Lúðvík AlfreðHalldórsson fæddist á Sjúkra- húsi Sauðárkróks 19. janúar 1973. Hann lést af slysför- um sunnudaginn 2. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Sauðárkróks- kirkju 15. apríl. Það er margs að minnast af vináttu okk- ar og frá þeim stundum sem við áttum saman á Krithóli og hjá systrum þínum þar sem ég og allir okkar vinir vorum alltaf velkomnir. Gæsa- veiðarnar voru nú oft skrautlegar og varst þú oftast ragur við að snúa þær, ef þess þurfti þá kom í minn hlut að gera það. Svo fórum við sam- an á grásleppu á Þórs- höfn með pabba þínum. Það var nú meiri gleðin hjá okkur þar, en fæst orð um það ævintýri. Við vor- um svo samrýndir og það sem okkur datt í hug þá var það framkvæmt og gert með stæl og það eru margar skýrslur til um það hjá okkur. Við vor- um svo mikið á mótorhjólunum og fór- um víða um og þó oftast á Akureyri til Siggu systur þinnar þar sem við gist- um oft og vorum í góðu yfirlæti hjá hennar fjölskyldu. Þú varst mjög duglegur í vinnu og þó að þú værir handarbrotinn í tvo mánuði misstir þú ekki dag úr vinnu en læknirinn á Hólmavík sagði að þú værir tognaður og gaf þér bólgueyð- andi og sagði að þetta myndi jafna sig á hálfum mánuði. Þetta lýsir þér svo vel, hvað þú varst harður af þér. Þú varst búinn að vinna á gröfu í mörg ár og með góða reynslu á því sviði. Það eru margar góðar sögur til af okkur, Lúlli minn, en þær verða í huga mér um ókomna tíð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég votta foreldrum, fósturforeldr- um og systrum Lúlla, vinum, unnustu og fjölskyldu innilega samúð mína. Megi góður guð blessa minningu góðs drengs og vinar. Þorbjörn Ólason (Tobbi). Við fráfall Gretu hlaðast upp minningar úr barnæsku tengdar þeim hjónum Gretu og Bomma (Birgi). Greta var gift ömmubróður okkar og voru þau hjónin tíðir gestir á heimilinu. Sum- ir sem verða á vegi manns hafa þannig afstöðu til lífsins að maður vildi óska að fleiri væru þessum kostum búnir. Jákvætt hugarfar, ró- lyndi og eljusemi var henni Gretu eðlislæg. Sumt fólk hefur einstaklega þægi- lega viðveru og barngæsku að börn laðast að. Þannig áhrif hafði Greta á öll börnin á okkar heimili enda voru hún og Bommi ósjaldan fengin til að GRETA MARÍA JÓHANNSDÓTTIR ✝ Greta María Jó-hannsdóttir fæddist í Skógarkoti í Þingvallasveit 5. september 1916. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 29. mars síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Seltjarnarnes- kirkju 7. apríl. gæta okkar systkin- anna þegar foreldrar okkar voru að heiman. Óhætt er að segja að tilhlökkun hafi verið í brjóstum okkar þegar von var á þeim hjón- um því aldrei var nein lognmolla í kringum þau. Endalausir spila- leikir, vöfflur, hlýja og gott atlæti var alltaf að finna hjá þeim. Við minnumst þess til dæmis aldrei að Greta hafi nokkurn tímann skipt skapi þó að oft hafi eflaust verið tilefni til með 6 börn á okkar heimili. Það er ógerningur að setja á blað hve þakklát við erum fyrir að hafa fengið að njóta nærveru hennar á uppvaxtar- og mótunarárum okkar. Við vorum sannarlega lánsöm og vafalaust betri manneskjur fyrir vikið. Við vottum aðstandendum Gretu samúð okkar. Kristján Tómas, Gunnar, Margret, Hallgrímur Helgi og Guðjón Halldór. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. . Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.