Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 19
ERLENT
Bausch & Lomb hafa ákveðið að taka til frambúðar
augnlinsulausn sína MoistureLoc™ af markaði um allan
heim og ráðleggja neytendum að skipta yfir í aðra lausn
fyrir linsur. Þetta kemur í kjölfar skýrslna um óvanalega
tilhneigingu til sjaldgæfrar augnsýkingar sem kallast
Fusarium, í Bandaríkjunum og sumum hlutum Asíu.
Eftir þúsundir prófana eru engin merki um að varan sé
spillt, átt hafi verið við hana, hún fölsuð eða misbrestur
hafi orðið á dauðhreinsun. Því er það ályktun okkar að
einhverjir þættir MoistureLoc™ efnaformúlunnar geti
aukið hlutfallslega hættu á Fusarium sýkingu við mjög
óvanalegar aðstæður. Við höldum áfram rannsókn á
þessari hugsanlegu tengingu, en í millitíðinni grípum við
til okkar ábyrgustu aðgerða í þágu neytenda okkar
með því að hætta með MoistureLoc™ efnaformúluna
um allan heim. Við grípum til þessara aðgerða á
heimsvísu, einnig í Evrópu, Mið-Austurlöndum og
Afríku, þó engin óvanaleg tilhneiging til Fusarium
sýkinga hafi komið fram þar.
Bausch & Lomb mæla með því að notendur MoistureLoc™
skipti yfir í aðrar mikils metnar vörur, þar með taldið
ReNu® Multi-Purpose, vörumerki sem fleira fólk um
allan heim hefur valið fyrir augnlinsurnar sínar.
ReNu® Multi-Purpose hefur um langan tíma verið
þekktur fyrir óviðjafnanlegt öryggi og árangur og
efnaformúla hans er ólík MoistureLoc™. Við erum að
safna upp birgðum af þessari vöru og búumst við að
hafa hana fáanlega í nægu magni eins fljótt og auðið er.
Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta
kann að valda.
Við þökkum ykkur fyrir stuðninginn. Bausch & Lomb
gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda augum
ykkar heilbrigðum og öruggum.
Að skipta út MoistureLoc™ vörunum ykkar
Fyrir upplýsingar um hvernig skipta má út öllum
MoistureLoc™ vörum sem þig kunnið að hafa keypt,
vinsamlegast farið á slóðina www.moistureloc.eu/is.
Að öðrum kosti, vinsamlegast hafið samband
sjóntækjafræðing eða þann útsölustað þar sem
MoistureLoc™ var keyptur.
Afturköllun
og skipti vöru
Dublin. AFP, AP. | Írska lögreglan girti í gær af
dómkirkju heilags Patreks í Dublin en hópur
afganskra hælisleitenda hefur hafst þar við og
verið í hungurverkfalli sl. sex daga. Samandar
Khan, sem er nítján ára, hefur haft orð fyrir
Afgönunum, en hann sagði í gær að þeir
myndu reyna að fremja sjálfsmorð ef lög-
reglan réðist til inngöngu.
Alls er 41 afganskur karl í kirkjunni en
mennirnir eru á aldrinum 17 til 45 ára. Hafa
þeir kvartað undan því að yfirvöld innflytj-
endamála hafi ekki komið rétt fram við þá og
þeir halda því jafnframt fram að líf þeirra
væri í hættu ef þeir yrðu sendir aftur heim til
Afganistans.
Bertie Ahern forsætisráðherra og Michael
McDowell dómsmálaráðherra hafa hins vegar
báðir sagt að ekki kæmi til greina að ganga til
samningaviðræðna við mennina. Segja þeir að
Afganarnir verði að sækja um hæli á Írlandi
eftir formlegum leiðum, en það ferli allt sam-
an er sagt geta tekið tvö til fjögur ár.
Með rakhnífa tilbúna
Afganarnir hafa hafst við í kirkjunni frá því
á sunnudag en Khan sagði í gær að nokkrir
þeirra hefðu rakhnífa og reipi við höndina og
að þeir myndu reyna að skera sig á púls eða
hengja sig ef lögreglan réðist til inngöngu.
Hefur lögreglan hafst við í hæfilegri fjarlægð
frá dyrum kirkjunnar á meðan fulltrúar kirkj-
unnar, lögmenn og ýmsir aðrir hafa reynt að
finna friðsamlega lausn á málinu.
Osman Hotak, annar talsmanna hælisleit-
endanna, hafði áður heitið því að mótmæl-
unum myndi ekki linna þó að lögregla fjar-
lægði mennina. „Ef einhver vill fjarlægja
okkur með valdi úr þessu guðs húsi sem við
höfum kosið að leita ásjár í þá förum við fram
á að alþjóðasamfélagið komi okkur til hjálp-
ar,“ sagði Hotak. „Þeir geta flutt okkur hvert
sem þeir vilja. Við munum halda áfram í
hungurverkfalli.“
Til frekari tíðinda dró svo í málinu í gær-
kvöldi þegar að talsmaður kirkjunnar sagði
að nokkrir af hælisleitendunum hefðu klifrað
upp á orgelloftið og hótað að fleygja sér nið-
ur.
„Eftir því sem ég kemst næst hafa þeir sett
reipi umhverfis hálsinn á sér með drama-
tískum hætti,“ sagði fulltrúi kirkjunnar í sam-
tali við AFP-fréttastofuna í gær.
Hópur afganskra hælisleitenda í hungurverkfalli í dómkirkju heilags Patreks í Dublin
Hafa hótað því að
fremja sjálfsmorð
AP
Afganarnir segjast munu svelta sig til dauða fái þeir ekki pólitískt hæli á Írlandi.
Katmandú. AP. | Sjerpi nokkur, sem
vinnur sem leiðsögumaður við
Everest-fjall, kleif fjallið í sextánda
skipti í gær, en hann átti fyrra met í
fjölda ferða upp
fjallið sem er það
hæsta í heimi.
Sjerpinn heitir
Appa (sjerpar
nota flestir að-
eins eitt nafn) og
komst á tindinn í
gær með hópi er-
lendra fjall-
göngumanna
sem hann leiðbeindi um leið.
Veður var gott í gær og komust
alls 42 fjallgöngumenn á tindinn í
gær frá þeirri hlið fjallsins sem
snýr að Nepal. Sú leið er vinsæl en
hefur verið illfær í marga daga
vegna snjókomu og mikilla vinda.
Biðu margir fjallgöngumenn því
þess að geta farið á tindinn.
Sjerpinn Appa er fæddur og upp-
alinn við fjallsrætur Everest og hóf
að bera búnað og birgðir fyrir
göngumenn ungur að árum. Sjerp-
ar eru þekktir fyrir ótrúlegt úthald
og þekkingu á Himalaja-fjöllunum
og hafa um áratugaskeið leiðbeint
fjallgöngumönnum þar. M.a. varð
sjerpinn Tenzing Norgay ásamt
Nýsjálendingnum Edmund Hillary
fyrstur til að ná á tind Everest
1953.
Á tindinn
í 16. skipti
Sjerpinn Appa.
Katmandú. AP, AFP. | Nepalþing sam-
þykkti á fimmtudag þingsályktun
sem ætlað er að draga verulega úr
völdum Gyanendra konungs og verð-
ur ekki lengur vísað til hans sem
þjóðhöfðingja landsins. Þá glatar
konungur stjórn yfir hernum, auk
þess sem hann mun ekki lengur njóta
friðhelgi.
„Þessi yfirlýsing endurspeglar til-
finningar fólksins,“ sagði Girija Pras-
ad Koirala, forsætisráðherra Nepals,
þegar hann tilkynnti niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar í fyrradag.
Narayanman Bijuchche, þingmað-
ur í Flokki verkamanna og bænda í
Nepal, tók í sama streng. „Þetta
markar endalokin fyrir konungsveld-
ið og gerir stöðu konungsins fyrst og
fremst táknræna.“
Draga úr
völdum
konungs
♦♦♦