Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
HÓLMAR Örn Finnsson, sem
skipar 1. sæti á lista Framfylking-
arflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri, í lok
mánaðarins, segir einn helsta til-
gang framboðsins að virkja ungt
fólk til þátttöku í kosningum til
sveitarstjórnar og í stjórnmálum
almennt.
„Margt af því sem við leggjum
áherslu á er það sama og aðrir
tala um, en bæjarpólitík er oft
þannig. Þar snúast hlutirnir oft
frekar um það að kjósa ákveðið
fólk en um málefnin,“ sagði Hólm-
ar Örn þegar flokkurinn kynnti
stefnuskrá sína. „Ungliðahreyf-
ingar flokkanna hafa oft hátt í
kosningabaráttunni en þess á milli
finnst okkur lítið heyrast í þeim,“
sagði hann.
Á meðal þess sem framboðið
leggur áherslu á er eftirfarandi:
Tryggja að Akureyri laði til sín
fyrirtæki með því að skapa þeim
góðar aðstæður, góð rekstrarskil-
yrði og bjóða þeim hentugar lóðir
fyrir starfsemi sína.
Skapa kjöraðstæður fyrir
sprotafyrirtæki og alla nýsköpun.
Akureyri verði þekkingarbær
þar sem vel er búið að háskólanum
og fyrirtækjum á sviði rannsókna
og vísinda.
Framfylkingarflokkurinn vill
beita sér fyrir flutningi opinberra
stofnana til Akureyrar.
Koma á samstarfi Svæðisvinnu-
miðlunar Norðurlands eystra og
fyrirtækja á Akureyri um að
virkja kraft atvinnulausra.
Fella niður fasteignagjöld
fyrsta árið hjá þeim sem kaupa
sér íbúð í fyrsta sinn á Akureyri
til þess að draga fleira fólk til bæj-
arins og til þess að halda í fólk
sem sest hér að t.d. vegna há-
skólanáms.
Þétta byggðina, t.d. með bygg-
ingu fleiri íbúða í og við miðbæinn.
Bættar verða merkingar í og
við bæinn og sett upp kort með
leiðalýsingu við aðkomuleiðir.
Gerðar verði ráðstafanir til að
gera bæinn meira aðlaðandi fyrir
ferðamenn að dvelja í. T.d. mætti
skoða þá hugmynd að gerð verði
baðaðstaða við skautahöllina. Með
því að leiða heitt vatn í tjörnina
við skautahöllina, í svipuðum dúr
og Nauthólsvík.
Janúarfest, samstillt átak bæj-
aryfirvalda og fyrirtækja í bænum
til að draga ferðmenn til bæjarins.
Halda í hlut Akureyrarbæjar í
Landsvirkjun.
Vímuvarnir auknar svo forða
megi æskufólki frá því að lenda í
viðjum eiturlyfja.
Framfylkingarflokkurinn mun
beita sér fyrir opinni umræðu um
forvarnir í bæjarfélaginu og leita
lausna í samvinnu við aðra.
Skemmtanastjórar á öll dval-
arheimili. Tilgangur þeirra er að
skipuleggja menningartengda við-
burði á dvalarheimilum s.s. kvik-
myndasýningar, ferðir og fleiri
viðburði til að uppfylla þarfir vist-
manna.
Heldriborgaraskólinn fyrir 60
ára og eldri. Í HBS væri fjölbreytt
nám fyrir heldri borgara s.s.
tölvunám og tungumálanám.
Heldri borg: Skipulagt framtíð-
arsvæði með íbúðum fyrir 60 ára
og eldri ásamt dvalarheimil og
þjónustumiðstöð.
Framfylkingarflokkurinn vill
efla íþróttastarf á Akureyri með
því að færa starf íþróttafélaga inn
í grunnskóla. Búa þannig til sam-
felldan skóladag og fjölbreyttara
val.
Aukin niðurgreiðsla á íþrótta-
og tómstundastarfi barna og ung-
linga.
Ýta undir starfsemi sjálfstæðra
menningarhópa í sviðslistum og
tónlist og stuðla að því að verk
myndlistarmanna njóti sín í bæn-
um.
Efla safnastarf í bænum með
því að nýta sem best aðstöðu og
eignir bæjarins, til dæmis með
sjóminjasafni í nýja menningar-
húsinu, náttúruminjasafni í gamla
barnaskólanum og aðstöðu til
listastarfsemi í leikhúsinu þegar
það flytur í menningarhúsið.
Virkja krafta listamanna í þágu
leik- og grunnskóla.
Treysta mannlíf í miðbænum
og gera hann fjölskylduvænan á
ný, með því að byggja fleiri íbúðir
í miðbænum og hraða skipulagi
miðbæjarins með fleiri grænum
svæðum. Efla Akureyrarvöll sem
útivistar- og menningarsvæði og
tengja það lista- og menningar-
starfsemi í bænum.
Göng verði gerð í gegnum
Vaðlaheiði.
Gjaldtaka í strætisvagna Ak-
ureyrar verði felld niður.
Efla það góða starf sem unnið
hefur verið í þeim leikskólum sem
bærinn rekur.
Tryggja bættan hag Háskólans
á Akureyri jafnvel með beinni að-
komu bæjarins, t.d. með því að
kosta lektora við skólann.
Framfylkingarflokkurinn býður fram til bæjarstjórnar á Akureyri
Viljum virkja ungt
fólk til stjórnmálastarfs
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Framfylking Þrír af frambjóðendum Framfylkingarflokksins við bæj-
arstjórnarkosningarnar á Akureyri. Frá vinstri: Sigurður Karl Jó-
hannsson, Hólmar Örn Finnsson og Halldór Brynjar Halldórsson.
AIGAR Lazdins handknattleiksmaður var
kosinn íþróttamaður Þórs 2005, en til-
kynnt var um kjörið á opnu húsi Þórs í
Hamri um síðustu
helgi. Formaður
Þórs tilkynnti einn-
ig að stjórn félags-
ins hefði einum
rómi kjörið Hrein
Óskarsson heið-
ursfélaga Þórs, en
hann er fyrrver-
andi ritari og síðar
formaður félagsins
og síðar formaður
knattspyrnudeild-
ar.
Aigar Lazdins
var einnig handknattleiksmaður Þórs,
körfuknattleiksmaður Þórs var kjörinn
Magnús Helgason, knattspyrnumaður fé-
lagsins var Freyr Guðlaugsson og Rut Sig-
urðardóttir taekwondomaður Þórs.
Sett var upp ljósmyndasýning úr starfi
Íþróttafélagsins Þórs þar sem sjá má sögu
félagsins í máli og myndum. Er um að
ræða myndir í eigu félagsins sem og úr-
klippur úr einkasafni félagsmanna. Þess
má geta að sýningin verður opin eitthvað
fram eftir næstu viku.
Hreinn Óskarsson heiðursfélagi og Sigfús
Ólafur Helgason, formaður Þórs.
Aigar Lazd-
ins íþrótta-
maður Þórs
Aigar Lazdins, íþrótta-
maður Þórs.
LANDIÐ
Ísafjörður | „Þetta þýðir að end-
urbygging hússins er tryggð,“ segir
Jón Sigurpálsson, formaður stjórn-
ar Edinborgarhússins ehf. Í gær
var gengið frá samningi Ísafjarð-
arbæjar og félagsins um stofnstyrk
bæjarins til endurbyggingar Edin-
borgarhússins á Ísafirði og um að
Edinborgarhúsið ehf. taki við stofn-
styrk ríkisins og þeim skuldbind-
ingum sem bærinn hefur tekið á sig
í samningum við ríkið.
Ísafjarðarbær og menntamála-
ráðuneytið gerðu samning um upp-
byggingu menningarhúsa á Ísafirði
fyrir tveimur árum. Samkvæmt
þeim tryggði ríkið stofnstyrki til
þriggja menningarhúsa, samtals
206 milljónir kr. á tíu árum. 106
milljónir eru eyrnamerktar Edin-
borgarhúsinu, 50 milljónir tónleika-
sal Tónlistarfélagsins í Hömrum og
50 milljónir kr. til Safnahússins á
Eyrartúni.
Með þeim samningi sem Ísafjarð-
arbær og Edinborgarhúsið ehf.
gerðu í gær tekur félagið við þeim
skuldbindingum sem bærinn hefur
tekið á sig samkvæmt þessum
samningi gagnvart endurbyggingu
þess húss enda fylgi það fjármagn
sem um er rætt. Jafnframt leggur
Ísafjarðarbær fram 70 milljónir kr.
til viðbótar.
„Það hefur verið baráttumál okk-
ar frá 1999, þegar þessi menningar-
húsahugmynd kom fram, að fá
stofnstyrki til þriggja menningar-
húsa. Samningar náðust við ríkið
2003 og er það gríðarlega mikil-
vægt að gott samstarf náðist milli
ríkisins og bæjarins um málið,“
segir Halldór Halldórsson bæjar-
stjóri. Hann segir stefnt að því að
gera samning við Tónlistarfélagið
um framkvæmd samningsins við
ríkið, vegna Hamra.
Fjölnotasalur
vígður á næsta ári
Jón Sigurpálsson segir að heil-
mikið sé búið að gera í Edinborg-
arhúsinu. Nú verði áhersla lögð á
að ljúka gerð fjölnotamenningarsal-
ar. Þar sé hægt að vera með leik-
sýningar og tónlistarviðburði. Hall-
dór bæjarstjóri bætir því við að
tilkoma fjölnotasalarins muni
styrkja mjög stöðu Ísafjarðar sem
ráðstefnubæjar. Þar sé hægt að
hafa stærri fundi og veislur en unnt
hafi verið áður.
Jón segir stefnt að því að opna
fjölnotasalinn á sjómannadaginn á
næsta ári en þá verður húsið 100
ára gamalt. Það var byggt af Ed-
inborgarverslun árið 1907 og teikn-
að af Rögnvaldi Ólafssyni húsa-
meistara ríkisins en Listaskóli sem
kenndur er við hann er með starf-
semi í húsinu.
Edinborgarhúsið er stórt og þar
verður fjölbreytt starfsemi í fram-
tíðinni, að sögn Jóns. Þar verða
menningarfélögin með aðstöðu. Í
suðurenda hússins er ferðaskrif-
stofa og upplýsingamiðstöð ferða-
mála og ætlunin er að koma þar
upp veitingastað. Að sögn Jóns hafa
nokkrir aðilar sýnt áhuga á að taka
þátt í því verkefni.
Ísafjarðarbær bætir við stofnstyrk ríkisins til Edinborgarhússins og framselur samning við ríkið
Stefnt að opnun
fjölnotasalar
eftir eitt ár
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Skrifað undir Fulltrúar Edinborgarhússins og Ísafjarðarbæjar ganga frá
samningum, f.v. Gísli Jón Hjaltason, Gísli Halldór Halldórsson, Jón Sigur-
pálsson, Halldór Halldórsson og Guðni Geir Jóhannesson.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Aldargamalt hús Edinborgarhúsið verður 100 ára á næsta ári og þá er stefnt að opnun fjölnotamenningarsalar.