Morgunblaðið - 20.05.2006, Blaðsíða 30
Daglegtlíf
maí
Fallin spýta
BEST er ef þátttakendur séu
sem flestir en lágmark eru þrír.
Einn leikmaður „er’ann“. Spýtu
er stillt upp við vegg, tré eða tyllt
ofan í jarðveg miðsvæðis. Sá sem
er’ann telur upp á t.d. 50 meðan
hinir leikmennirnir fela sig. Sá
sem er’ann fer svo af stað að leita
að hinum, ef hann finnur einhvern
hleypur hann að spýtunni, fellir
hana og segir: „Fallin spýta fyrir
X (nafn þess sem hann fann),
einn, tveir, þrír“. Þá verður sá
sem fannst úr leik. Ef sá sem
fannst er á undan að komast að
spýtunni og fella hana sleppur
hann í mark og er hólpinn það
sem eftir lifir leiksins. Ef sá sem
er’ann hættir sér langt frá spýt-
unni geta þeir sem eru í felum
hlaupið að henni og fellt hana en
þá kalla þeir: „Fallin spýta fyrir
mér (eða nafn), einn, tveir, þrír“
og er sá hinn sami hólpinn það
sem eftir er leiksins. Sá sem spýt-
an er fyrst felld fyrir er’ann í
næsta leik.
Hollí hú
Þátttakendur standa hlið við
hlið nema einn sem stendur and-
spænis hópnum og heldur hann á
litlum bolta. Kastar hann síðan
boltanum til þess sem er lengst til
vinstri í röðinni og kallar t.d. „A,
karlmannsnafn!“ Á þá sá eða sú,
sem fékk boltann, að reyna að
geta einu sinni upp á karlmanns-
nafni sem byrjar á A og kasta um
leið til baka. Sé nafnið rangt er
boltanum kastað til næsta þátt-
takanda í röðinni. Sé getið upp á
réttu nafni fær stjórnandinn bolt-
ann aftur, kastar honum í jörðina,
kallar „hollí“ og hleypur sem
lengst frá boltanum áður en sá
sem gat upp á nafninu grípur
hann og kallar „hú!“ Á stjórnand-
inn þá að nema staðar og mynda
„körfu“ með báðum handleggjum.
Sá sem gat upp á nafninu fær að
taka þrjú stór skref og þrjú
hænuskref í áttina að stjórnand-
anum og reyna að hitta með bolt-
anum ofan í „körfuna“. Takist það
verður hann næsti stjórnandi en
takist það ekki fær sá sem er
næstur í röðinni að spreyta sig.
Dimmalimm
Einn þátttakandi stendur upp
við vegg og snýr baki í aðra þátt-
takendur. Þeir raða sér aftur á
móti hlið við hlið á merktri línu í
hæfilegri fjarlægð. Keppt er um
að læðast að þeim sem grúfir sig á
meðan hann telur upphátt; „einn,
tveir þrír, fjórir, fimm, dimma-
limm“, og þá má hann snúa sér við
en um leið og hann segir „dimmal-
imm“ og snýr sér við eiga þeir
sem eru að læðast að frjósa kyrrir
þar sem þeir standa. Sjái hann
einhvern þátttakandann hreyfast
þegar hann lítur við verður sá eða
sú að byrja að nýju. Þátttakendur
verða því að læðast mjög varlega.
Sá eða sú, sem kemst síðast alla
leið að þeim sem grúfir, klappar
létt á bak hans og allir reyna síð-
an að forða sér aftur fyrir byrj-
unarlínu. Sá sem grúfði reynir að
ná einum úr hópnum áður en
hann nær línunni. Ef það tekst
tekur sá sem náðist við hlutverk-
inu en annars heldur sá sami
áfram að grúfa sig upp við vegg-
inn.
Útileikir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gaman er að leika með húlla-
hring á góðum degi.
Börn og fullorðnir geta gertsér margt til skemmtunar ísumar. Ekki þarf góð
skemmtun alltaf að kosta mikla
peninga og stundum þarf hún ekki
að kosta neitt.
Tilvalið er að safna nokkrum ætt-
ingjum og/eða vinum á öllum aldri
saman og fara út í garð heima eða í
næsta almenningsgarð og leika.
Hægt er að kaupa ódýr sumar-
leikföng í flestum búðum og má þá
m.a. nefna frisbídisk, snúsnúband,
allskonar bolta, badminton- eða
tennissett, húlahring, teygjóband og
flugdreka.
En ekki þarf alltaf að hafa eitt-
hver leikföng með sér því ýmsir
skemmtilegir útileikir
eru til fyrir litla
sem stóra hópa
þar sem engra
leikmuna er
krafist.
Foreldrar
ættu að rifja
upp þá leiki
sem þeir léku
úti þegar þeir
voru litlir og
kenna börnum
sínum.
Leiki eins og: Fall-
in spýta, hlaupa í skarðið,
fram, fram fylking, ein króna,
brennó, eltingaleik, dimmalimm, yf-
ir, köttur og mús, parís, pokahlaup
og hollí hú.
Þessir leikir eru ekki endilega
fyrir börn því vinahópar
á öllum aldri geta
komið saman og
leikið þá og það
kemur á óvart
hversu skemmti-
legt er að leika
sér þrátt fyrir
að aldurinn fær-
ist yfir. Allir
verða samt að
muna að það spill-
ir leikgleðinni ef
einhver er tapsár eða
klekkir á öðrum þátt-
takendum.
Hér á eftir koma þrír skemmti-
legir útileikir sem allir aldurshópar
geta leikið. Leikreglurnar eru
fengnar úr Leikjabókinni eftir Hörð
G. Gunnarsson og Pál Erlingsson.
LEIKIR | Allir aldurshópar geta leikið sér úti í sumar
Snú snú, fallin spýta og
brennó eru fyrir alla
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Snú snú er fyrir alla aldurshópa, skemmtilegur leikur með góðri hreifingu.
MARGIR stressa sig um of á vinn-
unni og getur það haft áhrif á
heilsu og lífsgæði. Á vef sænska
tímaritsins Affärsvärlden er fjallað
um leiðir til að losna við streitu og
koma jafnvægi á lífið.
Streituviðbrögð líkamans eru oft
vakin að óþörfu og þegar streitu-
hormón fara á fullt, hjartslátturinn
verður hraður, vöðvarnir spennast
upp og andardráttur örvast, erum
við tilbúin að takast á við erfiðan
andstæðing án þess að þess sé í
raun þörf.
Til að takast á við óþarfa streitu-
viðbrögð og styrkja varnir lík-
amans eru gefin nokkur ráð:
Dragið andann djúpt. Heilinn
þarfnast súrefnis þegar mikið er að
gera. Heilinn túlkar líka rólega
öndun sem svo að ekkert sé að og
önnur streituviðbrögð minnka.
Nauðsynlegt er að æfa rólega önd-
un því auðvelt er að gleyma henni í
hita leiksins. T.d. er hægt að venja
sig á að draga djúpt andann fimm
sinnum þegar maður sest við skrif-
borðið eða inn í bíl. Einnig áður en
maður borðar hádegismat eða áður
en maður fer á fund.
Slappið af. Langvarandi streita
veldur vöðvaspennu. Til að losna
við hana þarf líka reglulegar æfing-
ar. Í tengslum við djúpöndunina má
æfa að slappa af í öxlum og kjálka.
Slappið markvisst af í líkamanum
þegar farið er að sofa á kvöldin, frá
hvirfli til ilja.
Gerið streituhormónin hlutlaus.
Nútímamaðurinn fær ekki sömu út-
rás fyrir streituhormónið adrenalín
og áður var þegar handalögmál og
veiðar voru eins og náttúruleg út-
rás. Í staðinn getur stressað nú-
tímafólk hreyft sig og fengið útrás-
ina þannig. Hreyfing gerir
streituhormónin hlutlaus þar sem í
staðinn losnar um endorfín og fleiri
hormón sem auka vellíðan.
Fyllið á geyminn. Borðið reglu-
lega og leggið áherslu á ávexti,
grænmeti og gróft brauð.
Rútína er nauðsynleg til að takast á
við streitu. Djúpöndunar- og af-
slöppunaræfingar auk hreyfingar
þurfa þannig að verða hluti af dags-
skipulaginu.
Einföld ráð við streitu
LÍFSGÆÐI
MAGNESÍUMRÍKT fæði getur
minnkað hættu á krabbameini og
hjartasjúkdómum, að því er frönsk
rannsókn bendir til. Í Svenska
Dagbladet kemur fram að nið-
urstöður rannsóknarinnar bendi til
þess að jafnvægi á milli steinefn-
anna magnesíums, kopars og sinks í
líkamanum hafi mikil áhrif á heils-
una.
Grænt blaðgrænmeti, bananar,
mjólk, kjöt og egg er magnesíumríkt
fæði og magnesíum er næstalgeng-
asta steinefnið í líkamanum á eftir
kalki. Sink styrkir einnig ónæm-
iskerfið og er að finna í ostrum,
hnetum, kjöti, mjólk og ostum. Kop-
ar er einnig nauðsynlegt steinefni
sem aðstoðar við upptöku járns.
Frönsku vísindamennirnir við
Pasteur-rannsóknarstofnunina í
Lille, fylgdust með 4.035 karl-
mönnum á aldrinum 30–60 ára í
átján ár. Reglulegar rannsóknir
voru gerðar og spurningalistar lagð-
ir fyrir. Á rannsóknartímabilinu lét-
ust 339, þar af 176 úr krabbameini
og 56 úr hjartasjúkdómum.
Frönsku vísindamennirnir rann-
sökuðu samspil þessara steinefna,
og komust að því að hátt magn-
esíumgildi í blóðinu minnkaði hættu
á að deyja úr krabbameini um 50%.
Ef hátt magnesíumgildi fór saman
við lágt sinkgildi, minnkaði hættan á
að deyja úr hvaða sjúkdómi sem er
um heil 80%.
Niðurstöðurnar eru í samræmi
við sænska rannsókn á yfir 60 þús-
und konum þar sem í ljós kom að
þær sem neyttu mest af magnesíum
áttu 40% síður á hættu að fá krabba-
mein í meltingarfæri en þær sem
fengu í sig minnst magnesíum.
Niðurstöðurnar eru taldar sýna
enn einu sinni fram á hve mikilvægt
er að borða fjölbreytt fæði og mikið
af ávöxtum og grænmeti. Með því að
rannsaka samspil steinefnanna kem-
ur einnig í ljós að ekki er nægilegt
að taka viðbótarsteinefni af einni
tegund, heldur skiptir fjölbreytnin
máli. Sink og magnesíum virðast
vinna hvort á móti öðru, en hvort
tveggja er nauðsynlegt, og neyslan
verður því að vera í jafnvægi. Skort-
ur á magnesíum hefur áður verið
tengdur við beinþynningu, nýrna-
krabbamein, sykursýki og hátt hlut-
fall vonda kólesterólsins LDL.
Minnkar hættu á
krabbameini
HEILSA