Morgunblaðið - 20.05.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 43
UMRÆÐAN
ORKUVEITA Reykjavíkur hef-
ur í tíð Reykjavíkurlistans
blómstrað, byggt upp umhverfis-
væna raforkufram-
leiðslu á Nesjavöll-
um og stendur nú í
stórhuga virkj-
unum á Hellisheiði.
Orkuveitan hefur
einnig á þessum
tíma útvíkkað þjón-
ustusvæði sitt með
kaupum á hita- og vatnsveitum frá
Grundarfirði til Hvolsvallar. Jafn-
framt hefur fyrirtækið með upp-
byggingu á gagnaveitu verið virk-
ur þátttakandi í að skapa hér
samkeppnishæft umhverfi fyrir
fyrirtæki í þekkingariðnaði og
fjarskiptum. Þá eru ónefnd hin já-
kvæðu áhrif sem fyrirtækið hefur
haft á atvinnuuppbyggingu bæði
með þátttöku í nýsköpunarverk-
efnum og raforkusölu.
Kvalræði sjálfstæðismanna
Þessi uppbygging, sem varla á sér
hliðstæðu í opinberum reksti á Ís-
landi, skilar eigendum fyrirtæk-
isins verulegum arði en Reykja-
víkurborg á rúm 94% í
fyrirtækinu. Reykvíkingar njóta
uppgangs Orkuveitunnar með
beinum hætti í lágu verði á raf-
magni, hita og drykkjarvatni.
Jafnframt greiðir OR arð í borg-
arsjóð sem hefur á undanförnum
árum numið um 1,5 milljörðum á
ári.
Afstaða sjálfstæðismanna til
Orkuveitunar er mjög umhugs-
unarverð. Þeir hafa barist gegn
hverju framfaraskrefi sem þar
hefur verið stigið og reyna hvað
mest þeir mega að gera fyrirtækið
og uppbyggingu þess tortryggi-
lega í augum almennings. Þetta
þarf ekki að koma á óvart þar sem
uppbygging og öflugur rekstur á
fyrirtæki í almannaeigu er and-
stæð hugmyndafræði þeirra. Sjálf-
stæðismenn vilja ekki trúa því, að
það geti verið jákvætt að fyrirtæki
í eigu almennings vaxi og dafni.
Þess vegna eru þeir algerlega
metnaðarlausir þegar kemur að
reksti fyrirtækja í almannaeigu.
Það hefur verið þeim kvalræði að
horfa upp á nútímalega uppbygg-
ingu, útrás og áræði OR. Kjarnin í
þeirra hugmyndafræði er að til að
einhver geti rekið fyrirtæki al-
mennilega verði hann að eiga það.
Annars geti hugur aldrei fylgt
máli, enginn hafi raunverulegan
metnað fyrir neinu öðru en sjálf-
um sér.
Fyrsta flokks opinber rekstur
Ég vil biðja kjósendur að staldra
við og hugleiða þetta, á að treysta
fólki, sem ekki trúir á góðan op-
inberan rekstur, fyrir opinberum
rekstri? Samfylkingin hefur metn-
að fyrir hönd borgarinnar og
borgaranna, við viljum halda
áfram að byggja upp kraftmikið
samfélag byggt á virðingu fyrir
öðru fólki og sameiginlegum auð-
lindum okkar. Við höfum sýnt það
og sannað, meðal annars með upp-
byggingu Orkuveitunnar, að opin-
ber rekstur getur verið fyrsta
flokks. Í viðskiptalífinu er það
úreld hugsun að menn þurfi að
eiga fyrirtæki til að stjórna þeim
vel. Atvinnustjórnendur stjórna
flestum stærstu fyrirtækjum
landsins og þurfa ekki að eiga þau
til að gera það vel. Sjálfstæðis-
flokkurinn er einangraður í þess-
um sjálfhverfa miskilningi og ég
bið borgarbúa að hleypa þeim ekki
í þau verk sem þeim er ekki
treystandi fyrir. Við eigum að
standa vörð um Orkuveitu Reykja-
víkur og tryggja að við stjórn
borgarinnar sitji fólk sem trúir á
það sem það er að gera og veit að
það er hægt að gera það vel.
Er trúlausum treystandi?
Eftir Sigrúnu Elsu Smáradóttur
Höfundur er varaformaður
stjórnar OR og í 6. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
FYRIR nokkru bárust okkur fréttir af nið-
urstöðum rannsóknar sem Barnaverndarstofa og
Rannsóknir og greining stóðu fyrir. Athyglisverðar
voru að mínu mati tölur um kynferðislegt ofbeldi
sem þar voru kynntar en þær voru
sem betur fer lægri en áður hefur
verið haldið fram. Átta til níu prósent
barna hafa orðið fyrir þesskonar of-
beldi. Sárast af öllu er svo að vita að
bak við þessar tölur standa börn og
ungmenni. Þetta þýðir í raun að með-
al hinna 3500 nemenda í leik- og
grunnskólum Akureyrar ættum við
að geta fundið u.þ.b. 300 börn sem við 18 ára aldur
hafa orðið fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis. Og
samkvæmt tölum sem unnar eru upp úr rannsókn
Barnaverndarstofu og BA verkefni Þorbjargar
Sveinsdóttur og Jóhönnu Jónsdóttur hafa 20-25%
gerendanna verið á sama aldri. Þessar tölur eru svo
gríðarlegar að bara við að skrifa þetta svitnar mað-
ur.
Í lögum um barnavernd nr.80/2002 segir í IV
kafla 6.gr. ,,Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að
ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður,
verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni
og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það
...“ Barnaverndaryfirvöld sveitarfélagsins kanna þá
málið og bregðast við því á viðeigandi hátt.
Öllum, bæði mér og þér, ber að tilkynna um grun.
Það er sérfræðinganna í barnaverndinni að athuga
hvort grunurinn eigi við rök að styðjast. Ef grunur
reynist réttur þá er það fyrsta skrefið sem tekið er
til að koma barninu til hjálpar. Því miður er grunur
okkar alltof oft á rökum reistur en óttinn við frið-
helgi einkalífs fólksins í næsta húsi, eða foreldra
barnsins sem er í skólanum eða leikskólanum hjá
okkur verður til þess að oft er gripið of seint inn í
málin.
Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum. Þeir eiga
rétt á hjálp við foreldrahlutverkið ef eitthvað geng-
ur ekki eins og skyldi. Óviðunandi uppeldisaðstæður
er hægt að laga.Við verðum að styðja foreldra í
uppeldisstarfi sínu og við verðum að grípa inn í
málefni barna sem eru á leið út á hálu brautina.
Umhyggja, kærleikur og gott eftirlit með börnum í
leikskólum, skólum, tómstundastarfi og daglegu lífi
er stór þáttur í barnavernd.
Samverustundir fjölskyldunar
eru því miður sjaldan nægar
Við vinstri græn viljum
– gefa fjölskyldunni færi á að vera meira saman
– sveigjanlegri vinnutíma hjá stofnunum Akureyr-
arbæjar svo auðveldara verði að samræma atvinnu-
og fjölskylduábyrgð
– lengri opnunartíma í sundlaugum bæjarins
– hafa leikskólann gjaldfrjálsan
– að fjölskyldum verði gert kleift að kaupa svo
kallað vegabréf sveitarfélagsins sem veitir aðgang
að Skautahöll, Hlíðarfjalli og sundlaugum bæjarins
– byggja hér upp heilbrigt samfélag þar sem allir
fái notið sín.
Til að svo megi verða þurfum við þinn stuðning
þann 27. maí.
Barnavernd í verki
Eftir Dýrleifu Skjóldal Ingimarsdóttur
Höfundur skipar 3. sæti á lista vinstri grænna á Akureyri
og var fulltrúi VG í BNE á síðasta kjörtímabili.
www.smjor.is
ÓSANNINDI eða vanþekking?
Blaðið birti viðtal við Gísla Mar-
tein Baldursson hinn 15. maí. Þar
segir frambjóðand-
inn sem er annar
maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins og
því arftaki borgar-
stjóraefnisins ef
eitthvað hendir
þann mæta mann.
1. Það er aukning á
árekstrum á götum borgarinnar
með tilheyrandi líkamlegu og
eignarlegu tjóni.
2. Það hefur nákvæmlega ekkert
gerst í umferðarmálum í borginni
í áratug.
3. Forgangsröðun R-listans í um-
ferðarmálum er skringileg og
frekar hefði hann viljað sjá úr-
lausnir til að draga úr umferð-
arhraða inni í íbúðahverfum.
4. Ég hef miklu meiri áhyggjur af
hraðakstri innan íbúðahverfa.
Mér finnst það vera forgangsmál
að minnka hraða þar frekar en að
byrja á hraðbrautunum.
Það er hægt að kalla það sem Gísli
Marteinn lætur hafa eftir sér ýms-
um nöfnum en aðalatriði er að ekk-
ert, hreint alls ekkert, af því sem
hann segir er rétt.
Að móðga gott fólk
Þá er um tvennt að ræða. Ann-
aðhvort það að hann veit ekki betur
og þá er hann ekki hæfur til starf-
ans sem hann býður sig fram til eða
að hann veit að hann fer með rangt
mál og þá á hann að biðja það fólk
afsökunar sem staðið hefur í fram-
kvæmd þeirrar áætlunar R-listans
um fækkun umferðarslysa sem fór
af stað 1994 og lýkur 2007. Árangur
þeirra aðgerða sem áætlunin hefur
stuðlað að má sanna með óhrekj-
andi gögnum.
Ósannindi hrakin
Í skýrslu Umferðarstofu fyrir 2005
segir: ,,Umferðarslysum með
meiðslum í Reykjavík hefur fækkað
frá árinu 1996 úr 595 í 237 eða um
61%. Þá hefur alvarlega slösuðum í
borginni fækkað á sama tímabili úr
85 í 34 eða um 60%.“
Stefán Agnar Finnsson verk-
fræðingur hefur líka gert greiningu
á umferðaróhöppum í 30 km hverf-
um. Gísli Marteinn býr í svoleiðis
hverfi. Stefán segir í greiningu
sinni:
„Óhöppum þar sem slys verða á
fólki hefur fækkað að meðaltali um
27% og alvarlegum slysum um 62%
í 30 km hverfum,“ segir í greiningu
sem
Ef Gísli Marteinn vill ekki trúa
Umferðarstofu eða Stefáni Finns-
syni þá getum við boðið fram vitn-
isburð samflokkssystur hans.
Sólveig Pétursdóttir þáverandi
dómsmálaráðherra segir 11. des.
2002:
„Ég nefni sérstaklega eitt af því
sem leitt hefur til fækkunar bana-
slysa og alvarlegra slysa í Reykja-
vík en það er sú stefna að lækka
hámarkshraða í íbúðahverfum, svo-
kölluð 30 km svæði. Þau hafa verið
vel afmörkuð. Settar hafa verið
hraðahindranir þar sem ástæða hef-
ur verið talin til og það hefur haft
umtalsverð áhrif á slysahættu.“
Hverjir eru traustsins verðir?
Í Stefnuskrá Samfylkingarinnar
segir: „Við viljum að Reykjavík
verði slysaminnsta höfuðborg Evr-
ópu árið 2012. Þetta er raunhæft
því þegar hefur slysum verið fækk-
að um helming frá 1998.“
Að athuguðu máli hlýtur maður
að draga þá ályktun að Gísli Mar-
teinn Baldursson, varaforingjaefni
sjálfstæðismanna í Reykjavík, hafi
vísvitandi logið til þess að koma sér
og sínum flokki á framfæri í kosn-
ingabaráttunni. Slíkt er auðvitað
skammarlegt en auðveldar auðvitað
kjósendum að gera upp við sig
hverjum þeir eiga að treysta til að
stjórna Reykjavík af heilindum.
Óhróður frambjóðanda
Sjálfstæðisflokksins
Eftir Stefán Benediktsson
Höfundur er arkitekt og í 9.
sæti á lista Samfylkingarinnar
í Reykjavík.
ÞAÐ ER algengur misskiln-
ingur að skipulagsmál snúist ein-
vörðungu um hvernig mann-
virkjum sé fyrir
komið. Við sjálf-
stæðismenn í
Garðabæ teljum að
skipulagsmál eigi
að snúast fyrst og
fremst um lífsgæði.
Við ákvörðun á því
hvar og hvernig
götur séu lagðar þurfi að líta til
þarfa íbúanna, tryggt sé öryggi
allra vegfarenda, gætt sé að nátt-
úru í landi Garðabæjar og skil-
yrði um góða hljóðvist séu upp-
fyllt.
Lífsgæði íbúanna eru þannig
það sem máli skiptir við meðferð
skipulagsmála í Garðabæ.
Sjálfstæðismenn í Garðabæ
hafa sýnt það á undanförnum
misserum að þeir bera hag íbúa
bæjarins fyrir brjósti. Nýr oddviti
sjálfstæðismanna, Erling Ásgeirs-
son og nýr bæjarstjóri, Gunnar
Einarsson gengu fram fyrir
skjöldu og komu með tillögur til
lausnar hljóðvistarmálum í
Garðabæ þar sem Reykjanesbraut
liggur. Náið samráð við íbúa
hófst þá að nýju og tryggð var
lausn sem unnt var að sætta sig
við enda fólst í henni að öll laga-
skilyrði um hljóðvist væru upp-
fyllt án útsýnisskerðingar. Þann-
ig sýndu bæjaryfirvöld í Garðabæ
að manngildið skiptir máli. Hið
sama á við um nýjan miðbæ í
Garðabæ sem er í undirbúningi.
Þar hefur verið víðtækt samráð
við íbúa sem skipta mun verulegu
máli hvernig endanleg útfærsla
hins nýja miðbæjar verður.
Önnur stórverkefni í skipulags-
málum bíða úrlausnar á næstu ár-
um, ný íbúðahverfi, þétting
byggðar og breytingar á stofn-
brautum í gegnum bæinn, svo
sem Hafnarfjarðarveg í gegnum
stokk. Það skiptir miklu máli
hvernig til tekst með þessa þætti
og hvernig lífsgæði íbúa eru met-
in. Þá er mikilvægt að stjórn bæj-
arfélagsins sé skipuð reyndu og
framfarasinnuðu fólki. Listi sjálf-
stæðismanna í Garðabæ með
kraftmiklum og samheldum ein-
staklingum uppfyllir það skilyrði.
Samráð við íbúa síðustu miss-
eri, orðheldni ráðamanna og
styrk stjórn í fjármálum bæjarins
hefur sýnt að sjálfstæðismönnum
í Garðabæ er best treystandi til
að fara með stjórn skipulagsmála
og önnur mál í Garðabæ. Veitum
D-listanum í Garðabæ braut-
argengi á kjördag 2006 til að
fara áfram með stjórn bæj-
arfélagsins.
Skipulagsmál í Garðabæ
og samráð við íbúa
Eftir Dagmar Elínu Sigurðardóttur
Höfundur skipar 9. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
Fréttir
í tölvupósti