Morgunblaðið - 20.05.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 45
UMRÆÐAN
ÞAÐ fór eins og mann grunaði,
nú er söngur sjálfstæðismanna um
ómalbikuðu og holóttu göturnar í
Kópavogi byrjaður
en sú vísa er ætíð
kveðin í aðdraganda
bæjarstjórnarkosn-
inga í Kópavogi. Þá
minna þeir á hversu
götur í Kópavogi
voru holóttar fyrir
þeirra tíð. Í Kópavogi hefur Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokkur ver-
ið í meirihluta í fjögur kjörtímabil
og vissulega er Kópavogur blómleg-
ur bær og sitt hvað verið gott gert,
en almennt telur meirihlutinn að
þjónustan við íbúa felist fyrst og
fremst í steinsteypu. Þegar þessi
meirihluti tók við völdum fyrir 16
árum var það almannarómur að
Kópavogur væri félagsmálabær því
hvergi var betur hlúð að barna-
fjölskyldum og hvergi var öldr-
unarþjónusta í betri farvegi. Jú
ekki voru allar göturnar góðar,
enda sitt hvað annað uppi á ten-
ingnum að stjórna sveitarfélagi á
þeim tíma miðað við í dag, aðgang-
ur að lánsfé var takmarkaðri og
lánskjör talsvert verri. Það var
þungur róður fyrir sveitarfélög að
leita leiða til að fjármagna ýmsar
framkvæmdir sem nauðsynlegar
voru til uppbyggingar í sveitar-
félögum enda voru ómalbikaðar
usta með því versta sem gerist á
landsvísu. Kópavogsbúar aka um
rennislétta vegi en gamla fólkið í
Kópavogi fær ekki þá þjónustu sem
því ber. Nú hafa flestar göturnar í
Kópavogi verið malbikaðar, Gunn-
ar I. Birgisson sá um það, segja
Sjálfstæðismenn, og við skulum
vona að svo vel hafi verið vandað til
verksins að það dugi út næsta kjör-
tímabil. Samfylkingin í Kópavogi
ætlar ekki fletta klæðningunni af
götum bæjarins ef hún kemst í
meirihluta. Hins vegar ætlar Sam-
fylkingin að endurvekja félags-
málabæinn Kópavog með það að
markmiði að önnur sveitarfélög líti
til Kópavogs þegar kemur að þjón-
ustu við íbúa bæjarins. Samfylk-
ingin ætlar að gera betur en núver-
andi meirihluti í velferðarmálunum.
Samfylkingin ætlar að gera betur í
skólamálum og Samfylkingin ætlar
að gera betur við eldri borgara.
Samfylkingin hefur lagt fram
ábyrga stefnuskrá þar sem stigið er
varlega til jarðar í fjármálum því
við sækumst eftir því að leiða nýjan
meirihluta í Kópavogi, meirihluta
sem setur velferðarmál í forgang
umfram allt annað. Næsta kjör-
tímabil er 4 ár. Ef íbúar bæjarins sjá
að þeim tíma liðnum að göturnar
séu farnar að gefa sig geta þeir kos-
ið einhvern annan flokk sem setur
rennisléttar götur, steinsteypu og
malbik í forgang umfram allt ann-
að.
götur víðar en í Kópavogi, m.a. í
Reykjavík og Garðabæ þar sem
sjálfstæðismenn réðu ríkjum. En
Kópavogsbúar óku um sínar holóttu
götur með þá góðu vissu í hjarta að
börnunum þeirra var vel borgið á
leikskólum bæjarsins og þeir þurftu
ekki að seilast eins djúpt í vasana til
að borga fyrir þjónustuna eins og
aðrir landsmenn. Og þeir voru sátt-
ir við ýmislegt, því í Kópavogi var
öldrunarþjónusta til fyrirmyndar
og hvergi var betra að búa fyrir
barnafjölskyldur en í Kópavogi.
Nú sextán árum síðar eru einu
holurnar í Kópavogi húsgrunnar í
upplöndum bæjarins. En hér hefur
verið dýrast að búa fyrir barna-
fjölskyldur og hér er öldrunarþjón-
Holóttu göturnar í félagsmálabænum Kópavogi
Eftir Guðríði Arnardóttur
Höfundur er oddviti framboðslista
Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Í LOFORÐAPAKKA Sjálfstæð-
isflokksins vegna bæjarstjórnar-
kosninga í Kópavogi 2006 má lesa að
flokkurinn ætli að
beita sér fyrir af-
námi tekjutengingar
lífeyrisbóta. Þetta er
athyglisvert loforð í
bæjarstjórnarkosn-
ingum, einkum
vegna þess að bæj-
arstjórn Kópavogs hefur ekkert um
málið að segja. Það er Alþingi sem
ákveður hvort og þá hversu miklar
tekjutengingar skuli vera í lífeyr-
iskerfi Tryggingastofnunar ríkisins.
En hvernig ratar svona kosninga-
loforð inn í stefnuskrá fyrir bæjar-
stjórnarkosningar? Forystumenn
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
hljóta að þekkja verkaskiptingu rík-
is og sveitarfélaga og leggja þetta
því varla fram af vanþekkingu.
Í þessu efni er rétt að benda á það
að oddviti Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi var þingmaður í 6 ár áður
en hann gerðist bæjarstjóri í Kópa-
vogi. Við sæti hans á Alþingi tók 5.
maður á framboðslistanum í Kópa-
vogi. Bæði hafa þau haft alla mögu-
leika á að beita sér fyrir afnámi
tekjutengingarnar eða bæta kjör líf-
eyrisþega en kosið að aðhafast ekk-
ert.
Það athyglisverðasta við þetta
kosningaloforð sjálfstæðismanna er
að þar sýna þeir sitt rétta andlit.
Endurnýti þeir þetta kosningaloforð
fyrir alþingiskosningarnar á næsta
ári þá mun það kosta ríkissjóð um
það bil 17 milljarða kr. á ári og bætir
fyrst og fremst hag lífeyrisþega með
háar tekjur. Lífeyrisþegar sem hafa
engar aðrar tekjur en bætur TR
fengju ekki krónu af þessum 17
milljörðum. Fyrir þessa upphæð
mætti til dæmis hækka tekjutrygg-
ingu um nærri því 40 þúsund kr. á
mánuði. Það myndi bæta kjör lífeyr-
isþega verulega nema þeirra allra
tekjuhæstu. Bæði í Kópavogi og á
landsvísu er það forgangsverkefni
Sjálfstæðisflokksins að bæta kjör
þeirra tekjuhæstu umfram kjör
þeirra lakast settu.
Loforð
á fölskum
forsendum
í Kópavogi
Eftir Jón Júlíusson
Höfundur er íþróttafulltrúi
Kópavogi og skipar 3. sæti
á lista Samfylkingarinnar.