Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 54

Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Árni HálfdánBrandsson fæddist á Reyni í Mýrdal 6. október 1924 en ólst upp á Suður-Götum í sömu sveit. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 11. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Brandur Ein- arsson, f. 8. ágúst 1889, d. 1. febrúar 1969, og Guðbjörg Árnadóttir, f. 5. mars 1893, d. 7. október 1956. Systkini Árna Hálfdáns eru Einar, sem lést stuttu eftir fæðingu, Ólöf, f. 26. maí 1926, og Einar, f. 1. jan- úar 1931, d. 18. mars 2005. Árni Hálfdán kvæntist 1. janúar 1950 Þuríði Einarsdóttur frá Tjörnum undir Vestur-Eyjafjöll- um, f. 15. febrúar 1923, d. 23. júní 1999. Þau eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Guðbjörg, f. 21. apríl 1951, maki Þorgrímur Gestsson, f. 14. júní 1947. Þau skildu. Börn: Þuríður Björg, f. 5. júlí 1973, Sig- rún Vala, f. 12. jan- úar 1984, sambýlis- maður Þórgnýr Thoroddsen, f. 25. mars 1982. 2) Krist- björg Lóa, f. 7. ágúst 1954, maki Fjölnir Ásbjörnsson. Þau skildu. Börn: Árni Sveinn, f. 24. júlí 1974, Sigur- björg, f. 8. desember 1975, Þórdís, f. 24. janúar 1990, Hrafn- kell, f. 16. mars 1992. Kristbjörg Lóa er nú gift Indriða Aðalsteins- syni, bónda á Skjaldfönn, f. 10. júlí 1941. 3) Einar, f. 13. febrúar 1956. Langafabörn Árna Hálfdáns eru fimm. Árni Hálfdán stundaði nám við Samvinnuskólann í Reykjavík. Hann starfaði lengst af við bók- hald og rak eigin bókhaldsþjón- ustu um árabil. Útför Árna Hálfdáns verður gerð frá Kópavogskirkju í dag klukkan 11 en jarðsett í Stóra- Dalskirkjugarði klukkan 16. Það er hafinn sauðburður í sveit- inni og ég því flogin þangað eins og hinar lóurnar. En mitt í sauðburð- arönnum bráðliggur mér á að hringja í pabba. Ég tek upp tólið, en þá er síminn bilaður, sem gerist nokkuð oft í þessari sveit. Ég segi við Árna son minn: „Það er allt í lagi, ég hringi bara á morgun eða hinn, pabbi fer ekki langt“. En sú varð ekki raunin, hann fór lengra en mig grunaði og svo ótrúlega snöggt. Ég veit að hann fyrirgefur mér að hafa ekki verið nálægt honum síð- ustu stundirnar og jafnframt að hon- um hefði þótt miður ef ég hefði hlaupið undan skyldum mínum við sauðburðinn. Hann vildi okkur allt hið besta í búskapnum. Við lát svo kærs manns kemur ýmislegt upp í hugann og eitt af því er hvernig hann lýsti sjálfum sér þegar hann var um það bil að komast á ellilífeyrisaldurinn: „Ég hlakka mikið til að komast í tölu löggiltra gamalmenna, ég hef nú alltaf verið hálflatur maður að eðlisfari og get þá legið löglega í bælinu“. En þessi lýsing á engan veginn við, að vísu þótti honum gott að sofa fram eftir, en aldrei var hann upptekinn eða treysti sér ekki þegar að því kom að leggja þeim lið sem til hans leituðu. Og ekki hætti hann að vinna fyrr en hann var kominn vel yfir sjötugt, reyndar var hann enn að hjálpa hin- um og þessum að gera skatta- skýrslur þó töluvert hefði dregið úr því síðustu ár. Hann var sannkallaður þúsund- þjalasmiður og allt sem hann gerði lék í höndunum á honum eins og hann hefði aldrei gert neitt annað, t.d. að byggja, gera við og endur- bæta hús bæði að innan og utan, gera við dráttarvélar og bíla, útbúa áhöld sem ekki voru til, leggja vatns- lagnir, parket og flísar, bara að nefna það og það gat hann. Og hann ekki bara gat heldur gerði enginn það eins vel og nákvæmlega og hann. Hann hafði yndi af söng og var fram á síðustu stundu að syngja í tveimur kórum, hafði einstaklega fallega handskrift, las mikið og var því ótrúlega fróður um alla skapaða hluti. Með honum er farinn hafsjór af fróðleik sem honum entist ekki aldur til að miðla öðrum nema að litlu leyti, enda var hann ekki að flíka vitneskju sinni og visku nema hann væri spurður. Á sínum yngri árum vann hann í Iðnó og þá lærði hann utan að fjölmargar revíur sem hann átti til að kyrja þegar vel lá á honum. Eins og gengur með mann af hans kynslóð, þá vann hann mikið utan heimilis meðan við systkinin vorum lítil og það var eiginlega ekki fyrr en móðir okkar veiktist að ég fór að þekkja hann betur og nánar. Á þess- um tíma sýndi hann og sannaði að hann gat allt. Hann gekk í öll þau störf sem á þurfti að halda á heim- ilinu, eldaði matinn, þvoði þvott og straujaði, sá um þrif og annað þess- háttar. En hann sýndi einnig elsku sína þegar mamma var á spítala sem gerðist nokkuð oft síðustu árin henn- ar, en þá heimsótti hann hana að minnsta kosti einu sinni á dag og þó við systkinin segðumst fara til henn- ar í hans stað fannst honum hann ekki of góður að fara líka. Svona var nú hann pabbi minn og ég tel það gera mig að betri mann- eskju að hafa alist upp í návist hans. Minning hans mun lifa innra með mér alla mína ævi. Lóa. Sjaldan fellur eplið langt frá eik- inni. Það þurfti því ekki að koma mér á óvart eftir að hafa kynnst henni Lóu að Árni Hálfdán verðandi tengdafaðir minn væri slíkt einstakt gull af manni og ætti raunar ekki langt að sækja það. Brandur faðir hans var eftirsóttur af sveitungum sínum í Mýrdalnum til að liðsinna skepnum og tókst líka vel í ljós- móðurhlutverkinu þegar svo bar undir. Tengdapabbi vann lengi hjá Véla- sjóði enda þúsundþjalasmiður og skildi eðli og „sálarlíf“ véla, tóla og tækja sem riðu í garð hérlendis fyrir um miðja síðustu öld. Það var því ekki lítill happafengur að fá slíkan snilling til liðsinnis á sveitaheimili þar sem húsbóndanum er flest ann- að betur léð en ráða fram úr kvillum véla og tækjabúnaðar. Að hafa hann innan seilingar þegar mikið lá við í heyskap var því ómetanlegt. Ekki kippti tengdapabbi sér heldur upp við að hagræða heyi með hrífu og taka rök þó víða telji bændur nú það sér til tekna að eiga ekkert slíkt am- boð. Í stuttu máli má segja að hann hafi verið boðinn og búinn, svo sem kraftar leyfðu framast, til að stuðla að búskaparlegum vexti hér á Skjaldfönn. Tengdapabbi var hafsjór af fróð- leik um menn og málefni, eindreginn vinstri maður og hernámsandstæð- ingur af bestu gerð. Þegar undir- tyllu í Washington var falið í vetur að hringja í utanríkisráðherra lýð- veldisins og tilkynna að nú nennti kaninn ekki lengur að púkka undir hina gírugu íslensku mammonshít og herinn á Miðnesheiði yrði kall- aður heim þá gladdist Árni Hálfdán innilega. „Ætti ég fánastöng þá hefði verið flaggað í dag,“ sagði hann mér í símtali um kvöldið. Tengdapabbi var glaðsinna maður og söngvinn í besta máta, kunni ógrynni af gamansögum og revíu- textum og vísnamál voru honum töm þó hann vildi alls ekki viðurkenna að hafa kastað fram stöku. En ég held að hann hafi haft gaman af að eiga tengdason sem var orðaður við slíkt og hvatti mig gjarnan til dáða. Að- eins einu sinni gerði hann breyting- artillögu við vísu, en hún varð til vegna óska Vesturheimsveldisins um að Íslendingar legðu eitthvað óafturkræft til stríðsrekstursins í Afganistan. Ef að þarf að steðja í stríð að styðja kanans óra, gott væri fyrir land og lýð að losna við hann Dóra. „Væri ekki rétt,“ sagði tengda- pabbi, „að auka á áhersluþungann í þriðju hendingu þannig: Best væri fyrir land og lýð, o.s.frv.?“ Ég sam- þykkti þetta fúslega. Annars var hann afskaplega hóf- stilltur og umtalsgóður maður og nærvera hans sérstaklega notaleg. Að trana sér fram, hafa hátt eða miklast af sínum fjölbreyttu hæfi- leikum var ekki í hans eðli. Í okkar síðasta símtali um miðjan apríl sagð- ist hann að einu leyti hafa orðið fyrir vonbrigðum með mig sem tengda- son, nefnilega að ég talaði með norð- lenskum áherslum en ekki vestfirsk- um. Ég sagðist nú reyna að venja mig af þeim fjanda svo erfiðara yrði að tengja mig við Þingeyinga eftir að þeir fögnuðu væntanlegu álveri í heimabyggð. Þá hló gamli maðurinn og sagðist ekki lá mér það. Svo kvöddumst við. Nokkru síðar var hann allur, stökk yfir á annað tilverustig. Hann var alla sína tíð heilsuhraustur, en undanfarið hafði hallað ört undan fæti í þeim efnum, líkaminn orðinn skrapatól og hagleiksmaðurinn gerði sér grein fyrir því að „skrúfjárn, skiptilykill og logsuðutæki“ kæmu hér ekki að neinum notum. Ég vil kveðja þennan einstaka heiðurs- mann og vin minn með síðasta er- indinu úr kvæði Guðmundar Böðv- arssonar „Tjaldljóði“. Enn fara lestir, það lætur í sílum og klökkum og leiðin til vaðsins er auðkennd með gamalli vörðu. Já, nú væri tíð að taka dót sitt í klíf. Tjaldhæla mína dreg ég bráð- um úr jörðu. Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn. Það varð snöggt um hann Árna Hálfdán Brandsson, tengdaföður minn. Mánudaginn áttunda maí tók hann þátt í fjögurra klukkustunda sameiginlegri söngskemmtun þeirra tveggja kóra sem hann söng með síð- ustu árin, kór aldraðra kennara og kirkjukór eldri borgara í Neskirkju. Hálfum öðrum sólarhring síðar var hann allur. Honum auðnaðist að stunda því sem næst til hinsta dags það sem hann hafði hvað mesta unun af í líf- inu, að syngja. Hann var Mýrdælingur og Skaft- fellingur í húð og hár, fæddist að Reyni en ólst upp í Suður-Götum þar sem vegurinn liggur upp á Gatna- brún, áleiðis til Víkur, yfir gamla bæjarstæðið. Sveitungar hans, vinir og vandamenn nefndu hann Hálfdán eða Halla, aðrir notuðu Árnanafnið. Þegar yngri dóttir okkar Guðbjarg- ar var fárra ára vissi hún ekki al- mennilega hvað hún ætti að kalla afa sinn en sagði að lokum: „Æ, hann afi minn Brandsson.“ Þar með var þriðja nafnið komið, en það notuðu þó aðeins hinir allra nánustu. Hálfdán byrjaði ungur að vinna á bílaverkstæði Kaupfélags Vestur- Skaftfellinga í Vík en eftir fáein ár hélt hann til höfuðstaðarins og sett- ist í Samvinnuskólann í Reykjavík. Að námi loknu fór hann að vinna hjá Leikfélagi Reykjavíkur og annaðist ýmsar smíðar og lagfæringar fyrir félagið, enda var hann lagtækur með afbrigðum, og vann einnig við bók- hald. Síðar starfaði hann um árabil við bókhald hjá Vélasjóði ríkisins en opnaði loks eigin bókhaldsþjónustu við Ármúla í Reykjavík, sem hann rak fram yfir 1970. Þá réðst hann sem bókari á lögfræðistofu Ragnars Ólafssonar en þegar hann lést flutti Hálfdán sig til Endurskoðenda hf. við Þórsgötu þar sem hann starfaði fram á eftirlaunaaldur. Hann hélt raunar áfram að vinna þar með hléum til 75 ára aldurs, af þeirri ein- földu ástæðu að illa gekk að fylla skarð þessa nákvæma, samvisku- sama og hugkvæma bókhaldara. Auk þess tók hann langleiðina fram undir áttrætt að sér skattframtöl fyrir einstaklinga, mest vini og kunningja undir það síðasta. Árni Hálfdán Brandsson kvæntist Þuríði Einarsdóttur frá Tjörnum undir Vestur-Eyjafjöllum 1. janúar 1950 og saman gerðust þau, ásamt stórum hópi ungs fólks, landnemar í Kópavogi, fengu ókeypis lóð og reistu með eigin höndum einbýlishús að Álfhólsvegi 44. Þar fæddust þeim börnin þrjú, Guðbjörg, Kristbjörg Lóa og Einar, og þar óx fjölskyldan og dafnaði næsta aldarfjórðung, og þar auðnaðist mér að kynnast þessu greinda og skemmtilega fólki. Þegar börnin voru orðin uppkomin fluttu Halli og Þuríður að Neshaga 9 í Reykjavík og bjuggu þar ævi sína á enda. Þuríður lést eftir langa og erf- iða sjúkdómslegu sumarið 1999 og Halli stundaði hana af mestu alúð og ástríki, fór meðal annars tvisvar á dag mánuðum saman suður á Vífils- staði og sat þar yfir henni Þuríði sinni. Nú er hann líka farinn og er sárt saknað, ekki síst af afa- og lang- afabörnum, sem hafa misst mikið. Hin stóra þversögn í lífi Árna Hálfdáns Brandssonar var að hann hafði aldrei mjög gaman af að vinna við bókhald þótt það yrði ævistarf hans. Hann vildi verða handverks- maður og hefði getað orðið hvað sem var, smiður, vélsmiður, járnsmiður, allt lék í höndum hans; hann var sannkallaður völundur á járn og tré og átti ófá handtökin í íbúðum og húsum okkar Guðbjargar. Alltaf gekk hann fumlaust og örugglega til verks, vissi upp á hár hvað hann var að gera, og alltaf var yfir honum sama hógværðin, sem nálgaðist þá skaftfellsku hlédrægni að kveða aldrei svo sterkt að orði að segja já eða nei, heldur ætíð „svo mun“. En alltaf var stutt í góða skapið, glettnislegt blik í auga og glaðværð- ina og hann kunni skemmtileg skaft- fellsk orðtök um hvaðeina. Segði hann: „Það væri verra ef það væri betra“ vissi maður að hann væri ánægður. Og allt var nýtt, aldrei skorið á hnúta, þeir voru leystir og snærin gerð upp og sett á góðan stað, „það er ekki bagi að bandinu“, sagði hann með sínum skaftfellska framburði. Stundum romsaði hann upp úr sér heilu gamanbrögunum, sem hann hafði heyrt suma við kvöldbjástur sitt í Iðnó í gamla daga þegar hann var eins konar sviðsmaður þar og um síðir skildist mér að ef til vill hefði það verið einn besti tími ævi hans, að vera innan um leikhúsfólkið og fá að smíða og skapa. En óend- anleg samviskusemi hans, kalt raunsæi og glöggur skilningur hans á því hvað skipti máli hér í heimi skipaði honum að fást við það sem var fjölskyldunni fyrir bestu. Hann hætti öllu bókhaldsvafstri fyrir fáum árum, hátt á áttræðis- aldri, og fór að syngja, ekki í einum kór heldur tveimur. En fyrir fáein- um mánuðum greindist hann með blóðkrabba og hann fór vikulega á spítalann í blóðgjöf, en var sæmilega sprækur þótt það gengi í bylgjum. Engum duldist að farið var að draga af líkamskröftum hans en aldrei kvartaði hann, æðruleysið var samt við sig og seiglan ótrúleg. Eftir fjögurra klukkutíma söng í Neskirkju á mánudagseftirmiðdag- inn þennan maídag var hann orðinn allfölur og þreytulegur og söngstjór- inn bauðst til að aka honum heim en Halli hélt nú að hann gæti gengið þennan spotta, í næsta hús, og heim komst hann. En hann var vissulega orðinn máttfarinn og náði sér aldrei eftir þennan söng. Heitir það ekki að syngja sitt síðasta? Ég er viss um að Halli myndi samsinna því ef … Sem betur fer, mín vegna, leit ég öðru hverju inn hjá honum síðustu misserin og sat þá góða stund í eld- húsinu og drakk kaffi og spjallaði, reykti einn vindil (þar til við hætt- um!). Síðast nú fyrir fáeinum vikum. En þetta var allt of sjaldan og nú kveð ég fyrrum tengdaföður minn með sárum söknuði. Hann var gull af manni, heiðursmaður og allt það sem gott má segja um einn mann. Þorgrímur Gestsson. Með hlýjum hug og þakklæti minnist ég Árna Brandssonar. Kynni okkar urðu er hann kom til liðs við Ekkó, kór eftirlaunakennara, og starfaði sem raddformaður. Árni söng léttri, bjartri tenórrödd, hafði góða tónheyrn, kunni allgóð skil á nótnalestri og lagði sig fram um að syngja rétt. Æfingar sótti hann reglulega eftir því sem brest- andi heilsa leyfði. Hann var víðles- inn, fróður og skemmtilegur í við- ræðum, hnyttinn og kom vel fyrir sig orði – í allri umgengni hið mesta ljúf- menni. Réttilega mætti segja að Árni hafi verið sannur unnandi sönglistarinn- ar með því að hann söng í tveim kór- um – kór Eftirlaunakennara, Ekkó, undir stjórn minni og „Litla kór“ Neskirkju undir stjórn Ingu Back- man. Hinn 8. maí, sl., mánudag, efndu þessir kórar til sameiginlegra loka- tónleika í Neskirkju. Þar söng Árni, sem áður segir, í báðum kórum. Í heild varð þetta alllöng athöfn og sá ég, að Árni var orðinn nokkuð þrek- aður. Daginn eftir, þriðjudag, var hann orðinn fárveikur og fluttur á bráða- móttöku Landspítalans, síðan sam- stundis á gjörgæzlu þar sem hann lá miðvikudaginn. Það kvöld tjáði son- ur hans mér, að tvísýnt þætti, að hann lifði næsta dag. Brá ég því skjótt við og fór að sjá hann – kveðja og þakka, þó lengur fengi hann ekki tjáð sig. Næsta dag, fimmtudag, lézt hann svo árla morguns, kl. hálffimm. Því má réttilega segja að Árni hafi sungið allt til hinztu stundar – svo kær var honum söngurinn. Við Sólveig kveðjum hann með djúpri virðingu og þakklæti. Kveðj- um okkar fylgja einnig kærar kveðju frá Ekkó. Góðir ástvinir, meðtakið einlæga samúð. Guð blessi ykkur öll. Jón Hjörleifur Jónsson. ÁRNI HÁLFDÁN BRANDSSON Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði LEGSTEINAR SteinsmiðjanMOSAIK Hamarshöfða 4 – sími 587 1960 www.mosaik.is Granítlegsteinar og fylgihlutir Legsteinasala Suðurnesja, s. 421 3124 Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð- ur en skilafrestur rennur út. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.