Morgunblaðið - 20.05.2006, Qupperneq 68
68 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ef hrútnum finnst hann vera ungur á
hann eftir að græða mikið á atburðum
dagsins. (Hrútur, hvenær finnst þér þú
ekki vera ungur?) Skemmtanir eru á
hverju strái og rómantíkin er áhættusöm
og spennandi. Galopið tækifæri blasir við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Skynsemi nautsins gerir það óvenju lán-
samt. Fylgdu eftir ákvörðunum varðandi
eitthvað sem á aldrei eftir að ganga, forð-
astu það sem þér virðist andstyggilegt og
meðtaktu það sem lætur þér líða vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er sama hvort um er að ræða umferð,
pípulagnir eða reglur í samskiptum, gott
kerfi gerir lífið auðveldara. Þótt stór hluti
vélbúnaðarins sem stýrir félagslegum
samskiptum sé ómeðvitaður, er hann
þarna. Fylgstu með, farðu yfir og ák-
veddu hvernig þú getur bætt árangurinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er í djúpum stellingum. Hann
getur nánast mælt þyngd sálar sinnar og
augun eru alveg nógu áköf til að stara fólk
í burtu. Skrifaðu ljóð fullt af áhyggjum
eða reifaðu vel ígrundaða kvörtun við
þjónustuborð einhvers staðar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu aðra um að liðka málbeinið. Þú nýt-
ur þess að fá tækifæri til þess að gleðjast
yfir áföngum þeirra, velta þér upp úr bita-
stæðum fréttum og skiptast á fyrsta
flokks upplýsingum. Ekki láta koma þér á
óvart þótt þú njótir skyndilega mikilla
vinsælda.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er erfitt fyrir meyjuna að hafna boði,
en með því að segja nei skapast pláss í
dagskránni til þess að hugsa um sjálfa þig
á mikilvægan hátt ... kannski með því að
lesa, hlusta á tónlist eða fá nudd.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Kortið sem blasir við þér virðist allt öðru-
vísi en uppdrátturinn sem þú notaðir fyrr
á þessu ári. Hinir skynsömu bæta og
breyta á leiðinni og þú ert, sem lofts-
merki, eins klár og hugsast getur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu tjáningu og samskipti ganga fyrir.
Bréf og símtöl greiða leiðina fyrir góðum
straumum til þín. Það merkir samt ekki
að þú þurfir að leggja spilin á borðið. Dul-
úðin sem hvílir yfir þér, er enn þinn helsti
kostur. Haltu spilunum að brjóstinu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ágreiningur í viðskiptum kemur að gagni
– hann eykur umfjöllun, sem á móti ýtir
undir viðskipti. Um ástina gegnir öðru
máli. Reyndu að ýta ekki á auma bletti
ástvinar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vísbendingar gefa til kynna að dagurinn
muni einkennast af draumlyndi. Ef þú
hugsar um það sem gæti kannski hugs-
anlega mögulega gerst getur þú allt eins
búið til framtíð sem þú átt eftir að njóta
þess að vera í.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn lumar á frábærum tjá-
skiptahæfileikum. Í stað þess að glíma við
ágreining í sambandi, siglir hann lygnan
sjó. Tækifæri til að bæta tengslin við
börnin gefst seinna í dag. Finndu út hvað
þeim fellur í geð.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Athyglisgáfa fisksins kemur fólki í opna
skjöldu, hversu hversdagsleg sem þér
kann að finnast hún. Þú þarft ekki leit-
arhunda til þess að vita hvenær einhver
er við það að tapa sér. Farðu eftir því sem
þú veist, þó að þú vitir ekki að þú vitir
það.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Sól fer í tvíburamerkið.
Þetta er síðasta ferðalag sól-
ar að vori og tími til að
leyfa sér að vaxa og dafna. Orka tvíburans
er á félagslega sviðinu. Eins og skólabörn
lærum við mest og hraðast með því að
leika við jafnaldrana. Að læra nýjar venj-
ur, segja nýja hluti og skoðanir gerist nán-
ast án þess að maður taki eftir því. Gáðu
því að því í hvaða félagsskap þú ert.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Café Aroma | Hljómsveitin Menn ársins
spilar í kvöld.
Iðnó | Benni Hemm Hemm leikur á mið-
næturtónleikum Listahátíðar kl. 23.30.
Hátíðarstemmning verður á tónleikunum.
Kaffi Krókur | Hljómsveitin Signia spilar
fyrir dansi í kvöld.
Salurinn, Kópavogi | Í dag er komið að
hinum árlegu vortónleikum nemenda í Tón-
veri Tónlistarskóla Kópavogs. Á pró-
gramminu eru fjöldi elektrónískra tónverka
eftir nemendur og öll verða þau frumflutt.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og aðgangur er
ókeypis.
Öðlingar FÍH | Óvissuferð verður farin
fimmtudaginn 1. júní.
Myndlist
101 gallery | Steingrímur Eyfjörð – Bein í
skriðu. Til 3. júní.
Anima gallerí | Björg Örvar barnasaga/
fiskisaga – málverk. Til 21. maí.
Bókasafn Garðabæjar | 13 myndlist-
arnemar úr Garðabæ með málverkasýn-
ingu í húsnæði Bókasafns Garðabæjar.
Café Karólína | Gunnar Kristinsson sýnir
málverk, teikningar og prjónaskap þar sem
sigurlið heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu 2006 er kynnt. Til 2. júní.
Gallerí Galileó | Myndlistarsýning Ernu
Guðmarsdóttur í Galleríi Galileó, Hafn-
arstræti 1–3. Til 24. maí.
Gallerí Humar eða frægð! | Sýning með
hljóðtengdum myndverkum í tilefni Fjöl-
ljóðahátíðar. Finnbogi Pétursson, Haraldur
Jónsson, Steingrímur Eyfjörð, Kira Kira,
Ólafur J. Engilbertsson og listnemar við
LHÍ sem sýna bókverk.
Gallerí Lind | Listamaður maímánaðar hjá
Gallerí Lind er Guðrún Benedikta Elías-
dóttir, hún sýnir akrílmálverk sem eru að
mestu máluð í Frakklandi á síðastliðnu ári.
Til 20. maí.
Gallerí Úlfur | Gallerí Boreas frá New York
sýnir verk eftir Adam Bates. Sýningin
„Sögur“ til 31. maí.
Gel Gallerí | Dirk Leroux „A Model for The
Treeman“. Til 8. júní.
Grafíksafn Íslands | Marlies Wechner, …og
ekkert dylst fyrir geislaglóðinni…, innsetn-
ing, til 21. maí.
Hafnarborg | Rósa Sigrún Jónsdóttir er
myndhöggvari mánaðarins í Hafnarborg.
Til 29. maí.
Hafnarborg | Örn Þorsteinsson mynd-
höggvari sýnir í öllum sölum Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafn-
arfjarðar. Til 29. maí.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
Hrafnista Hafnarfirði | Eiríkur Smith, list-
málari, sýnir í Menningarsal til 12. júní.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er
þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð-
nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar
Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru ný
og unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu.
Til 18. júní.
Kaffi Sólon | Þórunn Maggý Mýrdal Guð-
mundsdóttir sýnir kröftug málverk. Til 9.
júní.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Kirkjuhvoll, Akranesi | Tolli sýnir olíu-
málverk til 28. maí.
Listasafn ASÍ | Kees Visser sýnir málverk
í Listasafni ASÍ. Aðgangur ókeypis. Til 28.
maí.
Listasafn Íslands | Sýning á verkum Birgis
Andréssonar og Steingríms Eyfjörð til 25.
júní. Ókeypis aðgangur.
Listamannaspjall kl. 14 á sunnudag. Stein-
grímur Eyfjörð ræðir um verk sín á sýning-
unni og Gunnar J. Árnason, listheimspek-
ingur, leiðir samtalið. Ókeypis aðgangur.
Kaffistofa og Safnbúð opin á sýningartíma.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Unnið í samstarfi við Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs. Safnbúð og kaffi-
stofa. Til 3. júlí.
Listasafn Reykjanesbæjar | Í EYGSJÓN?
Sex færeyskir málarar. Myndefnið er fær-
eysk náttúra.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn-
ing á úrvali verka úr safneign Ásmund-
arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, stein, brons, og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum
efnum.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sam-
starfsverkefni Listasafns Reykjavíkur og
Listaháskóla Íslands þar sem um 75 nem-
endur í útskriftarárgangi myndlistar– og
hönnunarsviðs sýna verk sín. Til 25. maí.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja &
Emiliu Kabakov sem eru fremstu kons-
eptlistamenn heimsins í dag. Á sýningunni
vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum
sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti
sýningarinnar fer einnig fram í porti Hafn-
arhússins. Til 5. júní.
Listasalur Mosfellsbæjar | Sundrun – sýn-
ing á verkum Marissu Navarro Arason
stendur nú yfir til 24. maí
Norræna húsið | Sýning á dúkristum eftir
börn frá Grænlandi, Færeyjum, Noregi,
Danmörku og Íslandi. Viðfangsefnið er písl-
arsagan – frá páskum til hvítasunnu. Börn-
in eru nemendur í 6. og 7. bekk í sex skól-
um á Norðurlöndum. Íslensku
þátttakendurnir er frá Lágafellsskóla og
Varmárskóla í Mosfellsbæ.
Næsti Bar | Undanfarin ár hefur Snorri Ás-
mundsson þróað með sér andlega tækni í
málaralist. Orkuflámamyndir hans sem eru
taldar hafa lækningarmátt hafa vakið sterk
áhrif hjá áhorfendum. Til 26. maí.
Óðinshús | Málverkasýning Jóns Inga Sig-
urmundssonar – Við ströndina – í Óðins-
húsi, Eyrarbakka. Til 28. maí.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í
Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna
nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í
eigu Safns. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn
á laugardögum. www.safn.is
Salfisksetur Íslands | Anna Sigríður Sig-
urjónsdóttir – Dýrið. Til 21. maí.
Skriðuklaustur | Svandís Egilsdóttir sýnir
olíumyndir og verk unnin í gifs og lakkrís í
gallerí Klaustri. Til 7. júní.
Suðsuðvestur | Indíana Auðunsdóttir
vinnur sýningu útfrá samtíma menningu
og að þessu sinni tekur hún fyrir metnað
og myndugleik smáþjóðarinnar í norðri.
Thorvaldsen Bar | Marinó Thorlacius með
ljósmyndasýninguna „dreams“. Ljósmynd-
irnar hans eru alveg sér á báti og hafa þær
vakið mikla athygli bæði hérlendis sem og
erlendis. Til 9. júní.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob
Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um
Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og
vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu-
konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og
verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar
á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for-
réttinda að nema myndlist erlendis á síð-
ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda-
mótum. En engin þeirra gerði myndlist að
ævistarfi.
Þjóðminjasafn Íslands | Rjúpnaskyttur
hjálpuðu Bryndísi Snæbjörnsdóttur og
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 traustur, 8 renn-
ur út, 9 sterk, 10 elska, 11
kappklæðir, 13 endast til,
15 blett, 18 rýrð, 21 grein-
ir, 22 stjórnar, 23 kjánann,
24 skömmustulega.
Lóðrétt | 2 óbeit, 3 bjálfar,
4 login, 5 reyfið, 6 skinn, 7
gruna, 12 í tilbót, 14 tré,
15 gamall, 16 sjúkdómur,
17 kers, 18 matarsamtín-
ingur, 19 eru í vafa, 20
þyngdareining.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gifta, 4 gubba, 7 skinn, 8 jafna, 9 sjá, 11 alin, 13
hrun, 14 eflir, 15 traf, 17 ófár, 20 hal, 22 aumka, 23 jólin, 24
torga, 25 fjara.
Lóðrétt: 1 giska, 2 feiti, 3 agns, 4 gljá, 5 bifur, 6 afann, 10
julla, 12 nef, 13 hró, 15 trant, 16 armur, 18 fella, 19 renna,
20 haka, 21 ljúf.