Morgunblaðið - 20.05.2006, Síða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 73
STAÐFEST hefur verið að Nick
Mason, trommuleikari Pink Floyd,
komi til Íslands og spili á tónleikum
Roger Waters, sem verða í Egilshöll
12. júní næstkomandi. Er ætlunin að
hann spili í seinni hluta tónleikanna
en sá hluti er flutningur á plötunni
Dark Side Of The Moon eins og hún
leggur sig og svo í uppklappslögum.
Guðbjartur Finnbjörnsson hljóm-
leikahaldari segir að heyrst hafi að
Roger Waters hafi haft sambandi við
bæði David Gilmore, gítarleikara
Pink Floyd, og Rick Wright, hljóm-
borðsleikara Pink Floyd, og boðið
þeim að spila á nokkrum hljómleikum
í hljómleikaferð sinni um Evrópu.
Það sé þó ekki vitað að svo stöddu
hvort þeir muni koma en Guðbjartur
segist í stöðugu sambandi við um-
boðsmenn erlendis vegna þessa.
Guðbjartur segir að stærsta hljóð-
kerfi, sem sett hefur verið upp á Ís-
landi, verði notað á hljómleikunum,
þar á meðal fullkomið 360 gráðu
„surround“ kerfi. Það þýðir að stórir
hátalarar verða settir upp um allan
salinn. Mikil ljósasýning verður einn-
ig á hljómleikunum og verður Roger
sérstaklega með risaljósahring, sem
einkennt hefur hljómleika Pink Floyd
í gegnum tíðina. Þá má gera ráð fyrir
einni stærstu sprengi- og flug-
eldasýningu innanhúss, sem sést hef-
ur á Íslandi.
Miðasala er á midi.is og í Skífu-
verslunum Reykjavík og BT á Akur-
eyri og Selfossi.
Tónlist | Nick Mason leikur með Roger Waters í Egilshöll
Hálf sveitin til Íslands
Það endar þó ekki með því að öll sveitin spili í Egilshöll?
FYRR á öldum var vaninn að tón-
listarflytjendur væru líka tónskáld,
a.m.k. voru mörkin á milli þess að
túlka tónlist og semja hana mun
óljósari en þau eru nú. Í dag er
sérhæfingin meiri, annaðhvort er
maður tónskáld eða flytjandi,
sjaldnast bæði. Ég man varla eftir
að hafa heyrt íslenskt tónskáld
frumflytja eigið verk, alltént eru
þau teljandi á fingrum annarrar
handar. Segja má því að dregið hafi
til tíðinda í íslensku tónlistarlífi á
mánudagskvöldið, en þá flutti kór-
inn Hljómeyki átta verk og eina út-
setningu eftir tónskáld sem öll eru
félagar í kórnum. Efnisskrár á kór-
tónleikum eru oft skelfilega hefð-
bundnar og því er fagnaðarefni að
aukið skuli við kórverkaflóruna með
svo afgerandi hætti. Aðrir kórar
mættu taka Hljómeyki sér til fyr-
irmyndar.
Flestar tónsmíðarnar voru í til-
tölulega aðgengilegum stíl og er
ekkert við það að athuga ef vinnu-
brögð tónskáldanna eru fagleg. Sú
var raunin hér. Örlög eftir Þóru
Marteinsdóttur var fjörleg tónsmíð
með vel ígrundaðri stígandi sem
var afar grípandi, og Á Kili og And-
ans maður eftir Skúla Hakim
Mechiat voru sömuleiðis þægileg
áheyrnar, enda snyrtilega sam-
ansett verk með skondnum und-
irtónum.
Hins vegar komu Hrafnamál
Hreiðars Inga Þorsteinssonar ekki
eins vel út þrátt fyrir húmorinn í
verkinu. Tónlistin leið fyrir nokkuð
ómarkvissan flutning; stapp og
klapp var ekki nægilega samtaka til
að grínið skilaði sér til fulls. Sömu
sögu er að segja um Bóthildar-
kvæði Hildigunnar Rúnarsdóttur
sem var fyrir fimm einsöngvara úr
röðum kórsins; söngur þeirra var
ekki sérlega vel mótaður og hefði
tónlistin örugglega virkað meira
spennandi ef einsöngurinn hefði
verið í höndum atvinnufólks.
Hin tónsmíðin eftir Hildigunni,
Martröð við draugalegan texta
Arnar Arnarsonar, var aftur á móti
glæsileg; tónmálið var einfalt en
áhrifamikið, enda skapaðist mögnuð
stemning á tónleikunum. Gaman
var líka að Gátum eftir Rúnu Esra-
dóttur og Ljóð eftir Elínu Gunn-
laugsdóttur var ákaflega seiðandi;
framsækið tónmál hennar skapaði
annarlegt andrúmsloft sem hæfði
myrkum texta Stefáns Harðar
Grímssonar fullkomlega. Loks
verður að nefna útsetningu á þjóð-
laginu Enn vil jeg einu sinni, en
hana gerði Óttar Sæmundsen af
stakri smekkvísi.
Fyrir utan þá agnúa sem hér
hafa verið nefndir var söngur kórs-
ins undir stjórn Marteins H. Frið-
rikssonar yfirleitt til fyrirmyndar á
tónleikunum. Raddir kórfélaga voru
hlýlegar og í góðu jafnvægi, notaleg
fylling var líka í heildarhljómnum.
Sömuleiðis var píanóleikur Arnar
Magnússonar í fyrri tónsmíð Hildi-
gunnar oftast pottþéttur. Óneitan-
lega voru þetta skemmtilegir tón-
leikar, og vonandi heldur kórinn
áfram að skapa nýja tónlist.
Syngjandi
tónskáld
TÓNLIST
Ýmir
Hljómeyki flutti átta verk og eina útsetn-
ingu eftir kórfélaga. Stjórnandi: Marteinn
H. Friðriksson. Píanóleikari: Örn Magn-
ússon. Mánudagur 15. maí.
Kórtónleikar
Jónas Sen
Fréttir í
tölvupósti