Morgunblaðið - 20.05.2006, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2006 77
UMRÆÐAN í kvikmyndaheim-
inum hefur snúist um aðeins eitt
verk síðustu vikurnar, Da Vinci-
lykilinn. Frá þeim leikstjóranum
Ron Howard og Akivu Goldsman,
sem færðist það erfiða verkefni í
fang að semja kvikmyndagerð
skáldsögunnar. Eftirvæntingin hef-
ur farið stigmagnandi fram að
frumsýningu og nú hefur hulunni
verið svipt af sköpunarverkinu. Á
sumum sviðum stendur myndin
undir væntingum en veldur tals-
verðum vonbrigðum á öðrum.
Kvíðablandin virðing fyrir les-
endum bókarinnar, sem er ein sú
mest selda í sögu prentlistarinnar,
fer augsýnilega úr böndunum.
Engu líkara en Goldsman hafi að
leiðarljósi að því minna sem er
sleppt, því betra. Afleiðingin alltof
langur sýningartími þar sem ótelj-
andi, merkingarlítil afturhvörf og
langar einræður og útskýringar frá
munni persónanna draga framvind-
una á langinn og slátra spennunni á
köflum.
Á hinn bóginn er Da Vinci-
lykillinn útlitslega lýtalaus, fram-
leiðslustjórnun og listræn stjórnun,
búningar og sviðsmunir, allir þessir
þættir eru augnayndi. Jafnvel ger-
semar, líkt og lykilsteinninn. Kvik-
myndatakan er fagmannleg, eink-
um í fjölmörgum atriðum innandyra
þar sem lýsingu er beitt af kunn-
áttusemi. Best af öllu er tónlist
Hans Zimmer, hrífandi tónaflóð
með trúarlegar vísanir í bland við
spennuþrungnar stemmur og seið-
andi myrka tóna miðalda. Tónsmíð-
arnar jaðra við að vera of góðar fyr-
ir innihaldið.
Það hafa ekki allir lesið bókina
hans Dans Brown, og engum greiði
gerður með því að tíunda innihaldið
og leyndardómana sem upplýsast
eftir því sem mínútunum fjölgar. Da
Vinci-lykillinn hefst í París, Robert
Langdon (Hanks) heimsfrægur pró-
fessor í táknmálsfræðum, er í
miðjum fyrirlestri þegar lögreglan
kallar hann á vettvang glæps sem
framinn hefur verið í Louvre-
listasafninu. Einn safnvarðanna
hefur fundist myrtur og hefur skilið
eftir sig dularfulla slóð tákna, gátna
og tilvísana. Lögreglan hefur kom-
ist að því að safnvörðurinn hafði
mælt sér mót við Langdon, í augum
Bezu Fache (Reno), æðsta manns
lögreglurannsóknarinnar, er hann
tvímælalaust sá seki.
Á vettvang stormar Sophie
Neveu (Audrey Tautou), dulmáls-
fræðingur sem kemur Langdon til
hjálpar, líkið á gólfinu, sem reyndar
er afi Sophie, reynist toppurinn á ís-
jaka, leyndarmáli sem varðar bylt-
ingarkenndar kenningar sem tekist
hefur verið á um bak við tjöldin, allt
frá því á 4. öld e. Kr.
Sophie og Langdon sleppa úr
gæslu og við tekur stígandi af-
hjúpun leyndardómsins sem er lífs-
hættulegur þeim sem reyna að
nálgast lausnina. Leikurinn berst
víða; í bankahvelfingar, á fund
fræðimannsins Sir Leigh Teabing
(McKellen), á hælum þeirra er lög-
reglulið Faches og munkurinn Silas
(Bettany), andlega vanheill og ofsa-
fenginn böðull þeirra kirkjunnar
manna sem varðveitt hafa leynd-
armálið um aldir.
Sir Leigh, sem helgað hefur líf
sitt rannsóknum leyndarmálsins,
kemur tvímenningunum til hjálpar.
Þremenningarnir eru knúnir til að
finna lykilinn að þessari dularfullu
helgisögn sem hefur skilið eftir sig
blóði drifna slóð, frá París, yfir
sundið til London og að lokum til
kastala Musterisriddara í Skot-
landi.
Meira þarf ekki að rekja af æv-
intýralegum söguþræðinum en í
hann fléttast sagnfræði- og guð-
fræðilegar deilur sem farið hefur
fyrir brjóstið á ýmsum trúarhópum,
ekki síst katólskum. Hvað snertir
sannleiksgildi þeirrar kenningar
sem er til grundvallar Da Vinci-
lyklinum og upplýkst á Skotlands-
heiðum, á hver við sig. Brown er
ekki höfundur hennar, en nýtti sér
til framdráttar, hún er mýta sem
farið hefur leynt í aldanna rás.
Hugmyndin gagnaðist Brown vel
(a.m.k. sölulega), í hreinræktaðri af-
þreyingarbók, og myndin er sömu-
leiðis ekkert annað og meira en
stundargaman. Ef kristið umburð-
arlyndi reynist ekki burðarmeira en
svo að hún fer fyrir brjóstið á ein-
hverjum hópum, ættu þeir hinir
sönu að minnast The Speaker’s
Corner í Hyde Park. Guðlast virðist
í ljósárafjarlægð frá Hollywood-
mynd sem er ætlað að verða einn af
sumarsmellunum. Leitin er heldur
ekki mikilfengleg í sjálfu sér, þar
blasa við þversagnir og fléttan
krefst þess að vera ekki tekin alvar-
legar af áhorfandanum, en flestar
aðrar afþreyingar.
Samtalið undir lokin þegar Lang-
don ræðir við Sophie um trúarlega
reynslu sína og skoðanir, er falleg-
asta og eftirminnilegasta atriði
myndarinnar, ríkt af jákvæðum
boðskap og verður hápunktur Da
Vinci-lykilsins.
Í upphafi var minnst á gamal-
kunnan Akkilesarhæl stórmynda,
óhóflega lengd handritsins og er
meginókostur Da Vinci-lykilsins.
Málalengingarnar gera framvind-
una langdregna, stundum leið-
inlega, þess á milli koma vel gerðir
en stuttir spennukaflar. Leikurinn
er upp og ofan, eins og flest annað í
Da Vinci-lyklinum. Hanks fer með
aðalhlutverkið og fer í sjálfu sér
ekki illa með það sem að honum er
rétt, en persónan er vannærð, því
þessi gæðaleikari er alltaf á skjön
við miðju. Bettany og hinn hrífandi
McKellen, fá betri línur og hirða
flestar senur sem þeir koma nærri.
Tautou veldur einfaldlega ekki hlut-
verki Sophie, afgreiðslan er litlaus
og samleikur þeirra Hanks er alltof
máttlaus. Þáttur leikstjórans er
einnig mishæðóttur, Howard er
vandvirkur iðnaðarmaður sem hef-
ur sjaldan náð að ýta rækilega við
manni, líkt og listfengari starfs-
bræður hans á borð við Scorsese,
Mann og Spielberg. Hann er flink-
ari við að fága og snurfusa yfirborð
en innihald, líkt og sannast á Da
Vinci-lyklinum, sem minnir á glæsi-
lega innrammað máverk, málað eft-
ir númerum.
Innrömmunin
innihaldinu betri
„Howard er vandvirkur iðnaðarmaður sem hefur sjaldan náð að ýta rækilega við manni, líkt og listfengari starfs-
bræður hans á borð við Scorsese, Mann og Spielberg,“ segir m.a. í dómi.
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn, Laug-
arásbíó, Háskólabíó, Sambíóin,
Selfossbíó, Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Ron Howard. Aðalleikarar:
Tom Hanks, Audrey Tautou, Ian McKel-
len, Alfred Molina, Paul Bettany, Jürgen
Prochnow, Jean Reno. 149 mín. Banda-
ríkin 2006.
Da Vinci-lykillinn (The Da Vinci Code)
Sæbjörn Valdimarsson
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
MI : 3 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 12 - 1:50 - 4 - 6:05 - 8:10 - 10:15
SCARY MOVIE 4 kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.I. 10 ára
BAMBI 2 m/ísl. tali kl. 12
SÝND Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
THE DA VINCI CODE kl. 3 - 6 - 9 - 12 B.I. 14 ára
THE DA VINCI CODE LÚXUS VIP kl. 3 - 6 - 9 - 12
SHAGGY DOG kl. 1:40 - 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10
FAILURE TO LAUNCH kl. 8
MI : 3 kl. 3 - 5:30 - 6 - 8 - 9 - 10:30 - 12 B.I. 14 ára
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 6 B.I. 10 ára
FIREWALL kl. 10:10 B.I. 16 ára
LASSIE kl. 2 - 4
BAMBI 2 m/ísl. tali kl. 2
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
eeeH.J. mbl
“ÞAÐ ER VEL HÆGT AÐ MÆLA MEÐ
“M:I:III” SEM GÓÐRI AFÞREYINGU
OG SUMARSMELLI.”
eee
JÞP blaðið
S.U.S. XFM
MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
LEITIÐ SANNLEIKANS
Byggð á vinsælustu skáldsögu veraldar
Sýnd í Álfabakka og Keflavík
Stærsta frumsýning ársins!