Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SLYS Í HVALFIRÐI
Göngunum undir Hvalfjörð var
lokað um hálfellefu í gærmorgun eft-
ir að ökumaður bifreiðar missti
stjórn á henni þar með þeim afleið-
ingum að hún rakst utan í ganga-
veggi. Tvennt var í bílnum og slapp
með minniháttar meiðsl en loka
þurfti göngunum til hádegis.
Síld finnst við Rauða torgið
Mikið af vænni norsk-íslenskri
síld fannst innan íslensku efnahags-
lögsögunnar í vikunni, en það var
færeyskt hafrannsóknarskip sem
fann hana norðaustur af Rauða torg-
inu svonefnda.
Í hættu á að lenda utangarðs
Fátæk börn og önnur kynslóð inn-
flytjenda eru þeir hópar sem eiga
það helst á hættu að lenda utangarðs
í framtíðinni samkvæmt könnun
Rauða kross Íslands.
Írakar mynda stjórn
Þingmenn á íraska þinginu sam-
þykktu í gær myndun fyrstu eig-
inlegu ríkisstjórnar landsins, eftir
innrás Bandaríkjamanna og banda-
manna árið 2003. Stjórninni er ætlað
að vera einskonar þjóðstjórn, en inn-
an hennar eru ráðherrar úr röðum
sjíta, súnníta og Kúrda.
Hundraða sjómanna saknað
Hundraða víetnamskra sjómanna
var í gær enn saknað eftir að felli-
bylurinn Chanchu reið yfir Suður-
Kínahaf í síðustu viku. Að minnsta
kosti 92 hafa farist af völdum felli-
bylsins í Suður-Asíu, sem átti upp-
tök sín í Kyrrahafi, áður en hann
skall á Filippseyjum og reið svo yfir
Suður-Kína.
Ný sundlaug á Eskifirði
Ný og glæsileg sundlaug hefur
verið tekin í notkun á Eskifirði.
Mannvirkið kostaði um 437 millj-
ónir. Laugin sjálf er 25 metrar og við
hana eru tveir heitir pottar. Það
voru frambjóðendur í Fjarðabyggð
sem tóku fyrsta sundsprettinn.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 69/73
Fréttaskýring 8 Myndasögur 76
Hugsað upphátt 33 Dagbók 76/79
Stangveiði 38 Víkverji 76
Sjónspegill 40 Staður og stund 78
Forystugrein 44 Leikhús 80
Reykjavíkurbréf 44 Bíó 82/85
Menning 47/48 Sjónvarp 86
Umræðan 48/67 Staksteinar 87
Hugvekja 67 Veður 87
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is
Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu
Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir,
ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is
Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók |
Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður
Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
! "##$
%
&& ##$ ' % (
$
( $#( )
*( ( %
+! ,
( *( (( (
! *(
( ##
!
- .
/
*! 0
1 ' $#(
#( !
2
3
$ #( $#
4
& ( !
# )/ *
( % 5 (
$#
&
( ( /( * .
* % ## ! $!6 !
2
7&&8
7&&
)
*((
$# 6 &
*( +9 )
*( # 6 *( ,6 !
2
27&&8
7&&
5$ :5 * %*%
+
$# (
!(
* ;
) ( *(( ##
<= /6
* + %! ( *(( ##
>? >:% (
% ; 6
6
2 6 @
% $( (
( (
$# (( $#
:5
3
#
((
$# ( ( A $#
,/ 6
- A B/ .( ( ( ( C? *6+9 6 .?6
<= 6 ,6 4;6 '
6 :5 /(
( %(6 3
#
6 + #
+
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir Tímaritið – Séð og heyrt.
KAPPAKSTURSBRAUT á heimsmælikvarða er
fyrirhuguð á gríðarstóru svæði á Reykjanesi þar
sem verktakafyrirtækið Toppurinn hefur samein-
að alþjóðlega samstarfsaðila í að leggja aksturs-
svæði fyrir keppni og æfingar. Ráðgert er að hægt
verði að æfa og keppa í nánast öllum kappakstri
nema Formúlu 1.
Reykjanesbær hefur úthlutað Toppnum 370
hektara svæði sunnan Reykjanesbrautar og vest-
an Grindavíkurafleggjarans og segir Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, að hér sé um að
ræða metnaðarfullt verkefni sem einkaaðilar ann-
ist alfarið.
„Þessar hugmyndir eru unnar af miklum fag-
mönnum og þarna er alveg ný hugmyndafræði í
er Clive Bowen sem hannaði Formúlu 1 kappakst-
ursbrautina í Dubai auk fleiri erlendra sérfræð-
inga. „Þetta er í fullum gangi og ég er mjög
ánægður með að finna einkaaðila sem drífa allt
verkefnið áfram,“ segir Árni.
Þá er gert ráð fyrir ökugerðum fyrir ökunem-
endur á svæðinu og segir Árni að sveitarfélagið
vilji taka þátt í slíkri uppbyggingu í samræmi við
fjögurra ára stefnu um að útrýma alvarlegum um-
ferðarslysum í Reykjanesbæ og á tvöfaldri
Reykjanesbraut. „Þarna eru tækifæri til að þjálfa
unga fólkið í ökugerði, og þarna eru gokart-braut-
ir og stærri æfinga- og keppnisbrautir. Einnig er
þarna iðnaður og þjónustustarfsemi sem tengist
bifreiðastarfsemi.“
Svæðið hefur fengið heitið MotoPark Iceland og
er á vegum Toppsins, sem Vilhjálmur Þór Vil-
hjálmsson er framkvæmdastjóri fyrir.
atvinnusköpun,“ segir Árni. „Við skilyrtum landið
við stigskipta framkvæmd og mér sýnist menn
vera komnir mjög vel á veg með þá vinnu og það er
fátt sem getur stöðvað það að framkvæmdir hefj-
ist.“
Aðdragandi málsins nær þrjú ár aftur í tímann
og stefnt er að því að byrja framkvæmdir á þessu
ári. Auk áherslu á akstursíþróttir og -kennslu
verður gert út á ferðamennsku á svæðinu, skóla-
starfsemi, íbúðarbyggð, nýtingu á orku og fleira
að sögn Árna. „Þetta er heildarsýn á svæði, þar
sem saman fer íbúabyggð og ýmis önnur starfsemi
en akstursíþróttirnar. Það var nauðsynlegt að
skipuleggja þetta allt núna, til þess að geta séð
hvernig það félli saman. En engu að síður þarf að
gefa gott svigrúm fyrir alvöru keppnis- og æf-
ingabraut.“
Meðal þeirra sérfræðinga sem koma að verkinu
Kappakstursbraut á heims-
mælikvarða í Reykjanesbæ
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HÆTTULEGAR aðstæður mynd-
ast oft á þjóðvegi 1 við Bjarnarflag
þegar gufumökk leggur yfir þjóð-
veginn. Við slíkar aðstæður sést
ekki handa skil á stuttum kafla
vegarins. Þetta gerist þegar saman
fer köld norðanátt og mikill hiti á
vatni í kælilóni við veginn. Mik-
ilvægt er að aka þar rólega áfram
ið og eru jafnvel taldir ónýtir.
Ekki urðu slys á fólki.
en stoppa alls ekki inni í gufu-
mekkinum og sannaðist dæmið
fyrir helgi þegar hörð aftaná-
keyrsla varð þar. Lítill fólksbíll
var stöðvaður inni í gufumekki eft-
ir að hann byrgði ökumanni sýn.
Kom þá þar aðvífandi jeppi sem ók
aftan á smábílinn með þeim afleið-
ingum að bílarnir skemmdust mik-
Morgunblaðið/BFH
Hættulegar aðstæður við Bjarnarflag
LÖGREGLAN í Reykjavík þurfti
að grípa inn í mikið fyllirí hjá ung-
lingum sem höfðu leigt félagsheimili
í Hvalfirði á föstudagskvöld án þess
að nokkur hefði eftirlit með því sem
fram fór.
Lögreglunni barst tilkynning um
að margir unglingar væru innan-
sem utandyra, meira og minna ölv-
aðir, og lægju margir úti í móa.
Kom í ljós að þarna voru allt að 90
unglingar á aldrinum 16–18 ára sem
höfðu verið að ljúka óvissuferð með
framhaldsskóla sínum. Þegar lög-
reglan kom á staðinn var mjög bág-
borið ástand á fólkinu. Voru leigðar
rútur fyrir fólkið og það keyrt í bæ-
inn og lauk flutningunum um kl.
hálfsjö í gærmorgun.
Velti bílnum í ölvunarakstri
Engin slys urðu er ungur maður
missti stjórn á bíl sínum og keyrði
út af veginum við Hvolsvöll í fyrri-
nótt. Bifreiðin fór að sögn lögreglu
eina veltu og reyndist bílstjórinn
ölvaður.
Gripið inn í
mikið ung-
lingafyllirí