Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR NÆTURVAKTIN NATSUO KIRINO SELDIST Í MILLJÓNAUPPLAGI Í JAPAN JAPÖNSKU GLÆPASAGNAVERÐLAUNIN JAPÖNSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNIN TILNEFND TIL BANDARÍSKU EDGAR-VERÐLAUNANNA Páll Baldvin Baldvinsson, DV NÚ Í KI LJU „VIÐ viljum með þessu búa til stefnufast skip sem getur siglt inn í nýjan spítala,“ segir Már Krist- jánsson, yfirlæknir og formaður stýrihóps um stefnumótun fyrir Landspítala – háskólasjúkrahús, en kominn er út bæklingur þar sem stefnumótun spítalans fyrir árið 2006 er rakin, en bæklingurinn verður kynntur öllum stjórnendum spítalans á allra næstu vikum. Aðspurður segir Már útgáfu bækl- ingsins eiga sér um árs aðdraganda, en hvatann að því að fara í svo víðtæka stefnumótunarvinnu segir hann vera áform ríkisstjórnarinnar um byggingu nýs háskólasjúkrahúss. Að sögn Más er bæklingurinn byggður þannig upp að í honum er að finna framtíðarsýn auk þess sem skerpt er á hlutverki spítalans. Þar sé einnig að finna ákveðin gildi og útskýringar á þeim, t.d. hvað felist í orðum á borð við „öryggi“ og „þekking“. Í bæklingnum er einnig að finna stefnukort með stefnumarkmiðum og gerð er grein fyrir hverju stefnumarkmiði í formi markmiðalýsingar. Einnig hefur, að sögn Más, verið settur upp ítarlegur að- gerðalisti um það hvernig ná skuli markmiðum, hver á að gera það og á hvaða tíma skil eigi að vera. „Jafnframt gerum við tillögu að því hvernig leggja á mat á þetta,“ segir Már og tekur fram að hér sé í raun um að ræða verkefnaætlun til næstu tveggja ára, en að framtíðarsýnin gildi næstu fimm til tíu ár- in. Segist Már sannfærður um að stefnumótunin muni leiða til bættrar starfsemi á spítalanum og aukinnar skilvirkni. Segir hann það eilífðarverkefni að reyna að fá sem mest fyrir þá fjármuni sem settir eru í reksturinn, en árlega fara 29 milljarðar í rekst- ur LSH. Rafrænar sjúkraskrár gerðar aðgengilegar sjúklingum Í bæklingnum kemur fram að til þess að flýta verkefnum þar sem ákvörðun liggur fyrir eigi að stofna fjölfaglega átakshópa. Helstu átakshóparnir sem nefndir eru í bæklingnum eru: framfarir, ný- sköpun og þróun; sjúklingurinn í fyrirrúmi; upplýs- ingatækni; starfsmannamál LSH og áhættustjórn- un í klínískri starfsemi. Sem dæmi um aðgerðaáætlun nefnir Már að þörf sé á því að setja upp mönnunarmódel t.d. hvað varðar hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða þar sem skortur er á starfs- kröfum. Segir hann brýnt að gera úttekt á því hversu marga starfskrafta vanti, hvað sé til af starfskröftum og hvað sé hægt að mennta og út- skrifa á næstu árum. „Annað sem við leggjum mikla áherslu á eru upp- lýsingatæknimálin. Það er heilmikil vinna sem hef- ur átt sér stað undanfarin ár varðandi það að inn- leiða rafrænar sjúkraskrár og uppsetningu heilbrigðisnets í samvinnu við heilbrigðisráðuneyt- ið. Við erum núna að leggja drög að því að end- urnýja heimasíðu LSH og uppfæra. Síðan viljum við fara út í aukið fræðslustarf og tengingar út í þjóðfélagið á sviði upplýsingatæknimála. Á vett- vangi sjúklingamála viljum við lyfta sjúklingum enn frekar upp,“ segir Már og bendir á að víða erlendis tíðkist að sjúklingar hafi betri aðgang að læknum sínum, heilbrigðisstarfsfólki og upplýsingum um sig. Þannig sé sums staðar farið að búa til gáttir á rafrænar sjúkraskrár erlendis þar sem fólk getur skoðað eigin sjúkraskrár. „Við þurfum að svara þessu. Við erum ekki í stakk búin til þess að gera þetta núna, en við verðum að geta gert þetta á næstu árum.“ Spurður hvað felist í áhættustjórnun í klínískri starfsemi segir Már hana gríðarlega mikilvæga þar sem spítali sé í eðli sínu með áhættusömustu stöð- um sem hægt sé að vera á. „Á spítulum fær fólk hættulegustu sýkingarnar og þar er fólk lasið og illa fyrir kallað og því hættara við að detta. Þar fær fólk mikið af lyfjum og starfið einkennist af miklum hraða. Við viljum að í klínísku starfi verði lögð áhersla á áhættugreiningu og það felur t.d. í sér að ferlagreina eins mikið af starfinu og hægt er. Þegar við erum búin að auðkenna hætturnar þurfum við að bregðast við þeirri vá sem steðjar að sjúklingum út af því hvernig kerfið okkar er,“ segir Már og nefnir sem dæmi að ein besta leiðin til þess að vinna gegn sýkingum sé að stunda handþvott. Stefnumótunin leiðir til bættrar starfsemi og aukinnar skilvirkni Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is ÍSLENSK erfðagreining hlaut um- hverfisviðurkenningu Reykjavík- urborgar sem afhent var í Grasa- garðinum, en þetta var í tíunda skipti sem viðurkenningin var veitt. Í rökstuðningi segir meðal annars að fyrirtækið uppfylli ákvæði laga og reglna á sviði umhverfisverndar, það hafi sett sér umhverfisstefnu í siðareglum sínum sem það framfylgi með markvissum hætti og að vinnu- umhverfi starfsmanna jafnt innan dyra sem utan væri til fyrirmyndar. Eiríkur Sigurðsson, kynningarstjóri ÍE, sagði við móttökuna að viður- kenningin hvetti ÍE til að gera enn betur á sviði umhverfismála og að þau hafi verið í öndvegi við bygg- ingu höfuðstöðva fyrirtækisins við Sturlugötu. Árni Þór Sigurðsson, formaður umhverfisráðs, afhenti Eiríki viðurkenninguna. Íslensk erfðagreining hlaut umhverfisviðurkenningu Yfirlýstur vilji að gera breytingar á tekjutengingu ÁRNI M. Mathiesen fjármálaráð- herra segir að það sé yfirlýstur vilji ríkisstjórnarinnar að gera breyting- ar á tekjutengingu bóta. Ótímabært sé hins vegar að segja til um það, hverjar þær breytingar verði, fyrr en nefnd um málefni eldri borgara skilar niðurstöðum sínum. Nefndinni stýrir Ásmundur Stef- ánsson ríkissáttasemjari og er henni ætlað að skila tillögum eigi síðar en í haust. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu hafa 12.806 öryrkjar og eldri borgarar ritað undir áskor- un til stjórnvalda um að bæta kjör þessara hópa og afnema tekjuteng- ingu bóta við maka. Inntur eftir viðbrögðum við þess- ari áskorun bendir Árni á að Ás- mundarnefndin svonefnda sé m.a. að fara yfir þessi skerðingarmál. „Það er yfirlýstur vilji ríkisstjórnarinnar að gera breytingar í þeim efnum. Nákvæmlega hverjar þær verða er ótímabært að tjá sig um fyrr en nefndin hefur lokið störfum.“ Brákarbyggð eða Mýrabyggð? ÍBÚAR í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar, Borgarfjarð- arsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kol- beinsstaðahrepps, geta gefið álit sitt á nýju nafni sveitarfélagsins í komandi sveitarstjórnarkosn- ingum. Kjósendum gefst kostur á að velja eitt eftirtalinna nafna:  Borgarbyggð.  Brákarbyggð.  Mýrabyggð.  Sveitarfélagið Borgarfjörður. ♦♦♦ Sami ökumað- ur stöðvaður tvívegis vegna ölvunaraksturs SAMI ökumaður var stöðvaður tví- vegis vegna ölvunaraksturs í Reykjavík í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var maður- inn, sem er um tvítugt, fyrst stöðv- aður um fjögurleytið og síðan aftur um klukkan hálfsex. Hann var færður til yfirheyrslu eftir fyrra brotið en sleppt að henni lokinni. Lyklar voru hins vegar ekki teknir af honum þar sem ekki þurfti lykla til að setja bifreiðina í gang. Eftir seinna brotið fékk maðurinn að gista fangageymslur lögreglu til morguns. ♦♦♦ ÁÆTLAÐ er að nýtt 3.300 fer- metra hesthús rísi við Háskólann á Hólum í sumar en samstarfssamn- ingur þess efnis var undirritaður á föstudaginn fyrir hönd landbún- aðarráðuneytisins, Háskólans á Hólum og Hesthóla ehf., eiganda hússins. Að sögn Ólafs Sigmarssonar, stjórnarformanns Hesthóla, verður hægt að hýsa um 200 hross í húsinu auk þess sem þar verður 800 fer- metra reiðkennsluaðstaða og munu Hesthólar sjá um byggingu og rekstur hússins en Hólaskóli mun leigja það af Hesthólum. Hafist verður handa við byggingu hússins í sumar og sagðist Ólafur vonast til að þeim framkvæmdum lyki í lok árs. Að sögn Ólafs munu fram- kvæmdir við húsið kosta um 200 milljónir. Hefur fyrirtækið fjár- magnað þær til fulls með eigin fé og lánsfé og munu stærstu hluthafar félagins vera Kaupfélag Skagfirð- inga og Þrá ehf. Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum, sagði að bygging hússins væri mikill fengur fyrir starfsemi skólans. „Við erum búin að vera í gífurlegum vandræðum með að fjölga nemendum í hrossarækt- ardeildinni. Við erum að hafna fjölda umsókna, sem er mjög slæmt ástand, og stafar það fyrst fremst af því að það vantar meira pláss fyrir hesta og reiðkennslu. Þessi aðstaða mun gera okkur kleift að tvöfalda nemendafjöldann á næstu 3–4 árum, úr 50 nemendum í 100.“ Skúli sagði að þetta hús kæmi sér einstaklega vel á þessum tíma þar sem skólinn væri nú að taka á móti umsóknum og benti Skúli á að hrossaatvinnugreinin væri í gíf- urlegum vexti og mikilvægi mennt- unar í greininni væri að aukast mikið. Skólanum lyft á hærra plan Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra sagði að skólinn myndi græða mikið á þessari framkvæmd. „Skólinn nýtur þess fyrst og fremst að þarna kemst hann í fremstu röð. Þarna verður glæsileg og fullkomin aðstaða fyrir hestaskóla, sem mér finnst mikilvægt fyrir Hólaskóla, sem kennir hestafræði. Þessi bygg- ing mun efla skólann enn betur, því að það er mikil eftirspurn eftir því að komast í Hólaskóla til að læra um hestinn.“ Guðni sagði jafnframt að með þessu væri hestinum lyft á hærra plan og skólanum einnig. Hann taldi einnig skynsamlegt fyr- ir ríkið að fara leið einkafram- kvæmda og taldi hann mikilvægt fyrir ríkisvaldið að eiga gott sam- starf við sveitarfélög og einkaaðila í verkefnum sem þessu. Samið um byggingu 3.300 fermetra hesthúss fyrir háskólann á Hólum Morgunblaðið/Árni Gunnarsson Við undirritun samningsins, f.v. Sveinn Guðmundsson, hrossaræktandi, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Víkingur Gunnarsson, deild- arstjóri hjá Hólaskóla, Einar Einarsson, fundarstjóri og Ólafur Sigmars- son, stjórnarformaður Hesthóla, stendur fyrir aftan. Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.