Morgunblaðið - 21.05.2006, Síða 25
„Ég sagði svo mömmu að hún væri
alltof góð þegar hún væri að kenna,
píanókennari ætti að vera strangur
og nákvæmur og ég vildi fá slíkan
kennara. „Biddu hann Pál Ísólfsson
um að kenna mér,“ sagði ég við hana.
Hún gerði það og Páll stóð undir
væntingum mínum, hann var bæði
góður kennari og góður við mig og
vissi hvert ætti að stefna með mig.
Um þetta leyti var Tónlistarskólinn
stofnaður og þegar hann hafði starfað
í tvö ár sagði ég mömmu að ég vildi
fara í þann skóla. Ég var látin taka
inntökupróf og stundaði þar nám með
Árna Kristjánsson sem aðalkennara,
samhliða því sem ég var í Mennta-
skólanum í Reykjavík. Ég hafði því
nóg að gera. Ég fékk sjaldan að kom-
ast í píanóið svo ég fékk að æfa mig
heima hjá Óskari frænda mínum og
Sigríði konu hans, fyrst í Bankastræti
11og síðar á Fjólugötunni.
Til Berlínar í framhaldsnám
Fyrstu tónsmíðar mínar skrifaði ég
ekki niður, þær bara komu og ég
mundi þær, en það er ekkert sem ég
myndi nokkurn tíma láta á prent.
Eftir stúdentspróf fór ég til Berl-
ínar í framhaldsnám í tónlist. Ég tók
inntökupróf í Hochschule für Musik
og kunni þau verk sem áskilið var. Ég
spilaði og svo var heyrnin prófuð. Ég
var látin snúa upp að vegg og einir
þrír prófessorar pikkuðu á píanóið og
spurðu mig hvað nótur þetta væru.
Eftir alllanga stund sagði einn þeirra:
„Bravo, absoluto.“ Þetta dugði til að
koma mér inn í skólann.
Ég var byrjuð að vera með Lárusi
Fjeldsted þegar ég fór út til Berlínar,
við vorum skólasystkin. Hann sagði
mér síðar að hann hefði viljað fara
með mér til Berlínar og læra þar t.d.
tannlækningar en faðir hans var lög-
fræðingur og rak lögmannsstofu og
vildi fá Lárus með sér á stofuna.
Hann byrjaði því í lögfræði við Há-
skóla Íslands.“
Leigði hjá barónessu
Jórunn var í Berlín í tvö ár.
„Ég tók bæði vetrarnámið og líka
sumarnámskeið sem boðið var upp á.
Ég var látin spila Mozartkonsert með
hljómsveit á tónleikum á öðru se-
mestrinu sem ég var þarna. En svo
var komin svo mikil ólga sumarið 1939
að Lárus hringdi og bað mig að koma
heim undireins, það lægi í loftinu að
það yrði stríð. Hann var þá búinn að
panta far fyrir mig með Eddunni og
ég var komin heim í júlílok, stríðið
braust út 1. september, á afmælisdegi
mömmu minnar.
Það hafði ekki farið framhjá mér
hvernig nasistar fóru með gyðinga, ég
sá í blöðunum hvernig ráðist hafði
verið inn í fínustu gyðingabúðirnar á
Kurfürstendamm. Gyðingar áttu allt í
Þýskalandi eftir fyrra stríð en Þjóð-
verjar ekkert, það var líklega kveikj-
an að þessum miklu gyðingaofsókn-
um nasista.“
En hvar bjó fröken Jórunn Viðar á
námsárunum í Berlín?
„Ég bjó hjá barónessu, það dugði
ekkert minna,“ svarar hún sposk
„Síðar átti ég eftir að leigja hjá bar-
ónessu í Vínarborg. Mér líkaði ágæt-
lega við þýska aðalinn.
Ég hafði gott herbergi með fínum
flygli hjá barónessunni. Hún var snið-
ug kona, hún hafði eftirlaun eftir
mann sinn sem verið hafði hermaður,
en hún drýgði tekjurnar með því að
halda spilapartí einu sinni í viku. Það
var aðalsfólk sem kom og það borgaði
aðgang og svo var spilað brids. Það
stofunni …
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 25
Fréttir á SMS
Nú getur þú fengið ATLAS kreditkort hjá öllum bönkum
Á atlaskort.is
5.000 kr. MasterCard ferðaávísun við stofnun korts.
SMS með upplýsingum um stöðu og notkun kortsins.
ATLAS fríðindahópur á atlaskort.is. Víðtækar ferða-
tryggingar og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis.