Morgunblaðið - 21.05.2006, Side 31

Morgunblaðið - 21.05.2006, Side 31
ingarþorp“, þar sem spítalinn þarf að vera í góðu göngufæri frá Háskólan- um til þess að margs konar þekking fari ekki í vaskinn og má láta sér koma til hugar, að þegar Páli dettur eitthvað frumlegt í hug, á hvorum staðnum sem er, þá taki hann sprett- inn og yfir göngubrúna á Hring- brautinni. En þá er ekki víst að Jón á hinum staðnum sé við og er þá til einskis hlaupið. Á tímum tölvu- og rafrænna samskipta er þessi þorps- hugmynd út úr kú. Mörgum læknum og hjúkrunar- fólki finnst líka fjarstæðukennt að stjórnmálamenn hafa tekið upp á því að kalla þennan tilvonandi spítala há- tæknisjúkrahús, rétt eins og hátækni á þessu sviði sé óþekkt á Íslandi. Ég vona bara að menn hafi hug- rekki til að taka þá ákvörðun að byggja framtíðarhús Landspítalans alls ekki þar sem gert hefur verið ráð fyrir þessu stórvirki í bili; það væri hrapalleg vitleysa og ávísun á margs konar vandræði sem ég nenni ekki að rekja hér. Mér þótti gleðilegt að heyra Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokks- ins, segja tveim vikum fyrir kosning- ar, að hann gæti jafnvel orðið til við- tals um þá lausn að hafa flugvöllinn áfram á sínum stað. Önnur vond hugmynd snýst um flugvallargerð uppi á Hólmsheiði. Það þekkja þeir sem aka Suðurlands- veginn að staðaldri að vetrarlagi að oft verða umskipti þegar kemur upp fyrir Lækjarbotna og upp á Sand- skeið; þar aukast snjóalög og oft er þar glerhált. Þetta hafa reyndar þrautreyndir flugmenn eins og Þór- ólfur Magnússon bent á og jafnvel vegur þó hugsanleg mengun enn þyngra í nánd við vatnsverndarsvæði borgarinnar. Fráleit hugmynd um færslu Árbæjarsafns Að lokum: Hugmynd um að færa Árbæjarsafn út í Viðey er bæði vond og óþörf. Að vísu er það rétt hjá Hrafni Gunnlaugssyni að safnið færi betur einhvers staðar á sjávarkambi, en áður hafði hann viðrað hugmynd um að færa safnið í Hljómskálagarð- inn. Ef til vill yrði safnið eitthvað fjöl- sóttara þar en nú er. Mig grunar að á bak við hugmyndina um tilfærslu Ár- bæjarsafns séu hagsmunir ein- hverra, til að mynda byggingaverk- taka sem sjá fyrir sér auðseljanleg íbúðarhús á Árbæjartúni. Starfsfólk í Árbæjarsafni er eindregið á móti flutningi safnsins út í Viðey og Gerð- ur Róbertsdóttir, deildarstjóri varð- veizlu hjá Minjasafni Reykjavíkur er alveg á sama máli og einnig Ragn- heiður H. Þórarinsdóttir, fyrrverandi borgarminjavörður og forstöðumað- ur Árbæjarsafns. Báðar hafa tjáð hug sinn í greinum í Morgunblaðinu. En það eru fleiri með hugann í Við- ey. Hópur nemenda frá Viðskiptahá- skólanum í Bifröst hefur gert rekstr- aráætlun fyrir golfvöll í Viðey, sem Hannes Þorsteinsson golfvallahönn- uður hefur hannað, og kann að hafa þann kost að lítið ber á honum til- sýndar og hann snertir alls ekki eða breytir fjölförnum slóðum þar. Golf- völlur þar mundi bæta úr brýnni þörf og eitthvað mundi þá fækka á biðlist- unum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Ég hef samt litla trú á að slík áætlun gangi upp nema menn ráðist í að brúa álinn við austurenda Viðeyjar og leggja veg út eftir grynningunum. Fróðir menn telja það ekkert risafyr- irtæki, en það mun alveg skipta sköp- um varðandi hvaðeina sem reynt verður að bjóða upp á í Viðey. En Ár- bæjarsafn á ekkert erindi þangað. Í Árbæjarsafni. Húsið stóð áður við Lindargötu. Höfundur er blaðamaður. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 31 1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál löglega upp borin. Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar sjóðsins og rétthafar rétt til setu á fundinum. Þeim sjóðfélögum sem hafa áhuga á að kynna sér tillögur til breytinga á samþykktum eða ársreikning sjóðsins fyrir fundinn er bent á að hægt er að nálgast þær á eftirfarandi hátt: • Á skrifstofu sjóðsins í Borgartúni 30, Reykjavík • Fá þær sendar með því að hafa samband í síma 510 5000 • Fletta þeim upp á vefsíðu sjóðsins, www.lifeyrir.is Reykjavík, 8. maí 2006. Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins DAGSKRÁ Ársfundur Sameinaða Lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 23. maí 2006, kl. 16.00, á Nordica hótel, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Borgartún 30 • 105 Reykjavík • S. 510 5000 F. 510 5010 • mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is ÁRSFUNDUR 2006 Sony Ericsson Z300i 11.980 kr. • Fallegur samlokusími • Ytri skjár • Valmyndakerfi á íslensku • Vekjari og dagbók Sony Ericsson W810i 37.980 kr. • 2.0 megapixel myndavél • Walkman MP3 spilari • 512 MB minni • Íslensk valmynd www.siminn.is/davinci Fáðu þér Da Vinci síma Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.