Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 39
lesa Morgunblaðið, hins vegar láð-
ist að víkja að málflutningi mínum
og greina inntak þess sem verið
var að fjalla um! En ekki meira um
þessa lágkúru samræðunnar, elti
ekki ólar við innantóman og
brenglaðan málflutning. Þó má
koma fram að þetta var ekki ein-
ungis „þus“ í hinum eldri því hinir
yngri hafa einnig sitthvað að at-
huga við gang mála, þannig kjósa
sumir að standa utan samtakanna
hvað sem afleiðingunum líður.
Sýnu alvarlegast að pólitík, fylgi-
spekt og lítilþægni skuli helst eiga
upp á pallborðið, og vei þeim sem
dirfast að leggja í róminn, hvað þá
slá á borðið, og kemur þá vikt list-
ar viðkomandi málinu ekkert við,
þeir skulu þögninni vígðir.
Með klækjum er stefnt að því að
sem fæstir hafi nenningu til að
mæta á aðalfundi þótt hitt skapaði
meira blóðflæði í samræðunni, mik-
il þátttaka ávísun á meiri giftu.
Sjálfur hætti ég öllum afskiptum af
félagsmálum FÍM er nýsamdar
sýningarreglur, sem öllum ber að
fara eftir í þróuðum samfélögum
utan landsteinanna, voru þver-
brotnar og hef lítið skipt mér af
málefnum SÍM, meðal annars
vegna hlutdrægni í úthlutun starfs-
launa. Það sem átti upphaflega að
leiða til réttlátari og heilbrigðari
starfshátta varð að þjófnaði frá
hinum eldri og rótgrónari um leið
og vinum og samherjum var
óspart hyglað. Ástæða til að minna
á að aldur í sjálfu sér er ekki ávís-
un á ferskleika og gæði mynd-
verka, þar ráða allt önnur lögmál
eins og öll listasagan er til vitnis
um. Nýbrumið ekkert frekar tengt
æskunni þannig að allir aldurs-
hópar eiga að sitja við sama borð
um stuðning og uppörvun, meg-
inveigurinn að viðkomandi séu
virkir í list sinni. Fjöldi sýninga og
brambolt á listavettvangi hér eng-
inn algildur mælikvarði, ei heldur
bein eða óbein tengsl við róttækni
í pólitík eða alþjóðavæðingu list-
arinnar.
Yfirleitt er ámóta þröng ferðalanga frá öllum heimshornum sem munda ljósmyndavélarnar og mynda Monu Lisu. Í bak-
grunni sér í hið fræga málverk Veronese, „Brúðkaupið í Kana“.
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • sími 591 9000
Akureyri • sími 461 1099 • Hafnarfirði • sími 510 9500
www.terranova.is- SPENNANDI VALKOSTUR
í maí og júní
frá kr. 34.990
Sértilboð - Glæsileg gisting
Terra Nova býður einstakt tilboð á einn vinsælasta áfangastað
Costa Dorada strandarinnar við Barcelona, Salou. Þú velur á
milli þriggja eða fjögurra stjörnu gistingar. Góð hótel, vel stað-
sett og með góðri aðstöðu. Gríptu þetta einstaka tækifæri á fríi
á frábærum stað á ótrúlegu verði.
Kr. 39.990
5 nætur **** gisting.
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
með morgunverði á Hotel California Palace ****
í 5 nætur, 25. maí, 8. júní og 15. júní.
Kr. 34.990
5 nætur *** gisting.
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
með morgunverði á Hotel California Garden ***
í 5 nætur, 25. maí, 8. júní og 15. júní.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 39
smáauglýsingar
mbl.is