Morgunblaðið - 21.05.2006, Page 40
40 SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hvernig vilt þú að staðið verði
að fjármálastjórn borgarinnar á
næsta kjörtímabili? Þarf borgin
að taka þátt í að vinna gegn
vaxandi verðbólgu og ójafnvægi
í hagkerfinu með auknu að-
haldi, lækkun útgjalda og frest-
un framkvæmda?
„Sveitarfélögin mynda hið
opinbera ásamt ríkisvaldinu og
þurfa að sjálfsögðu að gæta að
efnahagslegum stöðugleika
eins og aðrir. Með því tryggja
þau best hagsmuni íbúa sinna
til lengri tíma litið. Reykjavík-
urborg þarf ávallt að gæta
fyllsta aðhalds í sínum rekstri,
en hún þarf líka að halda uppi
ákveðnu þjónustustigi við sína
íbúa og tryggja að sveitarfélag-
ið sem slíkt sé ekki aðeins sam-
keppnisfært við önnur sveit-
arfélög hér á landi, heldur
einnig á alþjóðavísu. Þetta þýð-
ir m.a. að tryggja þarf nægt
vinnuafl við ummönnunarstörf,
nægt framboð á dagvistun og
þjónustu við aldraða, nægt
framboð á lóðum og ákjós-
anlegt umhverfi fyrir barna-
fjölskyldur. Sem stórum fram-
kvæmdaaðila er borginni
jafnframt skylt að haga
stærstu framkvæmdum sínum
í samræmi við aðrar stór-
framkvæmdir í þjóðfélaginu
hverju sinni. Þetta hefur áður
verið gert, t.d. að því er varðar
stórframkvæmdir á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur sem
skipulagðar hafa verið í
tengslum við aðrar fram-
kvæmdir við uppbyggingu
stóriðju hér á landi.“
Á Reykjavíkurborg að auka
þjónustu sína við börn og
foreldra þeirra eftir að fæðing-
arorlofi lýkur og á leik-
skólaaldri?
„Já. Við framsóknarmenn
höfum kynnt áform okkar um
gjaldfrjálsan leikskóla fyrir öll
börn á næsta kjörtímabili, sem
er í samræmi við áform sem
kynnt voru af Reykjavíkurlist-
anum á því kjörtímabili sem nú
er að ljúka. Samkvæmt núgild-
andi markmiðum eiga öll börn
18 mánaða og eldri að hafa rétt
til leikskólagöngu og ég tel að til
framtíðar muni þetta færast
niður í öll börn frá eins árs aldri
og að fæðingarorlofið lengist
einnig upp í 12 mánuði og þann-
ig komi samfella í þessum efn-
um. Í dag er bil frá lokum fæð-
ingarorlofs og þar til leikskóli
hefst og fjölmargir foreldrar eru
í miklum vandræðum af þeim
sökum og þurfa jafnvel að
bjarga málunum frá degi til
dags, eða hafa þurft að segja
upp störfum þar sem þau fá
ekki inni hjá dagforeldrum. Við
höfum því kynnt hugmyndir um
svokallaðar fjölskyldugreiðslur
upp á 50 þúsund kr. á mánuði
fyrir foreldra þessara barna.
Þetta yrðu valkvæðar greiðslur
og gætu nýst foreldrum til að
vera lengur heima með börnum
sínum, til að greiða aðstoð vina
eða ættingja, t.d. ömmu og afa,
eða þá til niðurgreiðslu á þjón-
ustu dagforeldra eða smábarna-
leikskóla.“
Með hvaða hætti vilt þú
standa að framboði á bygging-
arlóðum á næsta kjörtímabili?
„Við viljum halda áfram
uppbyggingu á þétting-
arsvæðum, en teljum að gera
þurfi átak í úthlutun á lóðum
undir sérbýli, þ.e. raðhús, par-
hús og einbýli, og höfum sett
fram markmið um úthlutun
1.200 slíkra lóða í Úlfarsárdal
á fyrstu átján mánuðum næsta
kjörtímabils.“
Hvernig vilt þú að tryggt verði
að aldraðir njóti mannsæm-
andi umönnunar og þjónustu
og að starfsfólk fáist til starfa
á heimilum fyrir aldraða?
„Ég tel að efna þurfi til þjóð-
arátaks í málefnum aldraðra og
hef áður lýst þeirri skoðun
minni að Íslendingar þurfi að
senda skýrari skilaboð um
hvernig þeir meti störf um-
mönnunarstétta. Ég tel að flest-
ir séu þeirrar skoðunar að
hækka beri laun þessara hópa,
en kalla um leið eftir ábyrgð
þeirra sem tilheyra hærri launa-
hópum svo þeir komi ekki allir í
framhaldinu og biðji um annað
eins og jafnvel meira. Gerðist
það, væri þessum launamun við-
haldið og ástandið myndi ekki
batna. Ummönnunarstörf eru
erfið störf, ekki síst líkamlega,
og það er okkur nauðsynlegt að
í þau fáist gott starfsfólk. Það á
að vera metnaðamál okkar að
vel sé gert í þessum efnum, ekki
aðeins rétt fyrir kosningar.“
Hver á að vera framtíð Reykja-
víkurflugvallar og hvar vilt þú
að miðstöð innanlandsflugs-
ins verði?
„Ég hef litið svo á að borg-
arstjórn Reykjavíkur hafi með
afdráttarlausum hætti ákveðið
að Reykjavíkurflugvöllur
muni víkja úr Vatnsmýrinni á
næstu árum, í síðasta lagið árið
2016. Um það vitnar m.a. nýleg
atkvæðagreiðsla í borg-
arstjórn. Ég felli mig við hug-
myndir um frekari uppbygginu
í Vatnsmýrinni í hjarta höf-
uðborgarinnar, en tel nauðsyn-
legt að halda dýrmætum störf-
um í flugrekstri áfram í
borginni, tryggja aðgengi
vegna sjúkraflugs að Landspít-
alanum og framtíð innanlands-
flugsins. Enginn flokkur hefur
lýst stuðningi við flutning inn-
anlandsflugsins til Keflavíkur
og þá standa aðeins eftir tveir
kostir, þ.e. Löngusker og
Hólmsheiði, að því er fram
kemur í áliti nefndar sam-
gönguráðherra og borgaryf-
irvalda. Hólmsheiðin er uppi á
heiðum, þar sem veður eru oft
válynd og þoka verður oft,
þannig að flugrekendur hafa
lýst yfir miklum efasemdum
um það flugvallarstæði til
framtíðar. Aukinheldur er það í
nálægð við vatnsverndarsvæði
Reykjavíkur og ég tel óhugs-
andi að taka nokkra áhættu í
þeim efnum með uppbyggingu
risavaxins flugvallar og finnst
raunar sæta miklum tíðindum
að flokkur sem kennir sig við
umhverfisvernd skuli leggja
slíkt til.“
Hvernig vilt þú að staðið verði
að lagningu Sundabrautar?
„Við teljum skynsamlegast
að fara í botngöng á ytri leið,
sem er ein þriggja leiða við
Sundabraut sem teknar voru í
umhverfismat á sínum tíma.
Tryggt hefur verið fjármagn og
unnt væri að hefjast handa inn-
an 15 til 18 mánaða, en aðrir
kostir tækju mun lengri tíma
auk þess sem engin samstaða er
um þá við íbúa beggja megin
Sundanna. Í því sambandi bendi
ég á að fyrir átta árum var tals-
vert rætt um jarðgöng en fallið
var frá þeim vegna kostnaðar
og afráðið að láta þann kost ekki
fara í umhverfismat. Það er því
ótrúlegt að ætla nú að skoða
þann kost upp á nýtt þar sem
slíkt þýðir sjálfkrafa margra
ára frestun framkvæmda, því
þá þyrfti nýtt umhverfismat og
rannsóknir frá grunni.“
Björn Ingi Hrafnsson, B-lista
Þjóðarátak í
málefnum aldraðra
Baráttumál í borginni
Fimm framboðslistar eru í kjöri í borg-
arstjórnarkosningunum næstkomandi
laugardag.V-listi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, S-listi Samfylking-
arinnar, F-listi Frjálslyndra og óháðra,
D-listi Sjálfstæðisflokksins og B-listi
Framsóknarflokks. Ómar Friðriksson
lagði nokkrar spurningar fyrir oddvita
framboðslistanna og fer röð frambjóð-
enda eftir stafrófsröð listabókstafa.
Oddvitar framboðslistanna í Reykjavík svara spurningum Morgunblaðsins um borgarmálefni
Hvernig vilt þú að staðið
verði að fjármálastjórn borg-
arinnar á næsta kjörtímabili?
Þarf borgin að taka þátt í að
vinna gegn vaxandi verð-
bólgu og ójafnvægi í hagkerf-
inu með auknu aðhaldi,
lækkun útgjalda og frestun
framkvæmda?
„Fjármálastjórn borg-
arinnar þarf að taka föstum
tökum og stöðva þá gegnd-
arlausu skuldasöfnun sem
má rekja til fyrirhyggjuleysis
í rekstri. Hreinar skuldir
Reykjavíkurborgar án lífeyr-
isskuldbindinga aukast nú
um 35 milljónir dag hvern og
stefna í að verða 116 millj-
arðar við lok árs 2009 en
voru aðeins 4 milljarðar við
lok árs 1993. Á sama tíma
hefur útsvarsprósentan verið
sett í hámark og tekjur borg-
arinnar af fasteignagjöldum
hafa hækkað sem aldrei fyrr
vegna hækkandi húsnæðis-
mats.
Sjálfstæðismenn boða
ábyrga fjármálastjórn. Fast-
eignagjöld á íbúðarhúsnæði
verða lækkuð, holræsagjaldið
verður lækkað í áföngum og
að lokum afnumið. Aðhald og
hagræðing í rekstri verður
að einkenna fjármálastjórn
borgarinnar. Umfang rekst-
urs sveitarfélaga hefur auk-
ist mikið á undanförnum ár-
um og verður ábyrgð þeirra
því meiri í hagstjórninni.
Borgin hefur stundum
ákveðið að fresta fram-
kvæmdum og verður að vera
tilbúin til þess ef nauðsyn
krefur.“
Á Reykjavíkurborg að auka
þjónustu sína við börn og for-
eldra þeirra eftir að fæðing-
arorlofi lýkur og á leik-
skólaaldri?
„Sjálfstæðisflokkurinn í
Reykjavík leggur ríka
áherslu á að foreldrar hafi
val um örugga vistun fyrir
börn sín frá því fæðing-
arorlofi lýkur. Þetta viljum
við gera með því að auka
stuðning borgarinnar við
starfsemi dagforeldra, bæta
ungbarnadeildum við borg-
arrekna leikskóla í öllum
hverfum og tryggja að öll
börn njóti sama stuðnings,
óháð því hvort þau sækja
einkarekinn eða borgarrek-
inn leikskóla. Með þessum
aðgerðum teljum við að hægt
sé að tryggja öryggi og sam-
fellu í þjónustu fyrir ung
börn, en það er einmitt það
sem mestu skiptir. Að auki
leggur Sjálfstæðisflokkurinn
áherslu á að lækka leik-
skólagjöld um 25% strax 1.
september og að foreldrar
greiði aldrei fyrir meira en
eitt barna þeirra sem sam-
tímis nýta sér þjónustu leik-
skóla.“
Með hvaða hætti vilt þú
standa að framboði á bygg-
ingarlóðum á næsta kjör-
tímabili?
„Við ætlum að stórauka
framboð lóða, ekki síst fram-
boð lóða undir sérbýli og
bjóða þeim sem vilja byggja
og búa í Reykjavík lóðir í
borginni fyrir fast sann-
gjarnt verð og tryggja að
framboðið verði það mikið, að
allir geti fengið lóð. Lóðaverð
hefur hækkað gífurlega und-
ir stjórn núverandi meiri-
hluta, en með nægu framboði
getum við lækkað það veru-
lega. Það er sanngirnismál að
allir geti fengið lóðir á við-
ráðanlegu verði.“
Hvernig vilt þú að tryggt
verði að aldraðir njóti mann-
sæmandi umönnunar og
þjónustu og að starfsfólk fá-
ist til starfa á heimilum fyrir
aldraða?
„Eins og ávallt hefur verið
leggjum við sjálfstæðismenn
mikla áherslu á málefni eldri
borgara. Við vorum fyrstir til
að kynna heildstæða stefnu-
mörkun okkar í þeim mála-
flokki. Það er sjálfsagt rétt-
lætismál að leiðrétta lægstu
laun þeirra sem vinna að
umönnun eldri borgara enda
er það algjör forsenda þess
að hægt sé að halda uppi full-
nægjandi starfsemi á heim-
ilum fyrir aldraða. Einnig er
mikilvægt að marka stefnu
til framtíðar um það hvernig
við viljum búa að þeim sem
eldri eru. Sjálfstæðismenn
vilja efla og samræma heima-
þjónustu og heimahjúkrun og
gera stórátak í byggingu
hjúkrunarheimila í samvinnu
við ríkið. Auk þess ætlum við
sjálfstæðismenn að beita
okkur fyrir öflugri uppbygg-
ingu þjónustu- og leiguíbúða
fyrir eldri borgara en það
hefur setið á hakanum á und-
anförnum árum. Það er á
valdi Reykjavíkurborgar að
framkvæma og óþarfi af nú-
verandi valdhöfum í Reykja-
vík að leita að sökudólgi hjá
ríkinu í þeim efnum.
Við leggjum einnig áherslu
á að auka val og fjölbreytni í
húsnæði fyrir eldri borgara
við skipulag nýrra hverfa í
borginni og að tryggja að til
verði fjölbreytt sameiginlegt
búsetuform hjúkrunar-, þjón-
ustu- og leiguíbúða ásamt al-
mennum íbúðum til þess að
vinna gegn félagslegri ein-
angrun eldri borgara.“
Hver á að vera framtíð
Reykjavíkurflugvallar og
hvar vilt þú að miðstöð inn-
anlandsflugsins verði?
„Nú er starfandi nefnd á
vegum Reykjavíkurborgar
og samgönguráðuneytisins
sem hefur það að markmiði
að kanna alla þá flug-
tæknilegu kosti og galla
varðandi Hólmsheiðina og
Löngusker sem og breytta
legu vallarins í Vatnsmýr-
inni. Áður en þessi úttekt
liggur fyrir er óábyrgt að
ákveða fyrirfram hvar fram-
tíðar flugvallarstæði eigi að
vera enda hljóta öryggismál
framtíðar flugvallarstæðis
liggja fyrst og fremst til
grundvallar. Sjálfstæð-
isflokkurinn telur að finna
eigi flugvallarstæðinu stað í
landi Reykjavíkur eða ná-
grennis en mun ekki greiða
því atkvæði að starfsemin
verði flutt til Keflavíkur.“
Hvernig vilt þú að staðið
verði að lagningu Sunda-
brautar?
„Við viljum að Sunda-
brautin verði lögð fjögurra
akreina alla leið upp á Kjal-
arnes í einum áfanga.
Ákvörðun um legu braut-
arinnar verði tekin á þessu
ári í framhaldi af samráðs-
ferli íbúa, borgarinnar og
samgönguyfirvalda og fram-
kvæmdir hefjist á árinu 2008.
Við erum jákvæð gagnvart
jarðgöngum ef þau verða tal-
in heppilegasti kostur út frá
skipulags-, umhverfis-, um-
ferðar- og öryggissjón-
armiðum. “
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, D-lista
Stöðva gegndarlausa
skuldasöfnun