Morgunblaðið - 21.05.2006, Síða 61

Morgunblaðið - 21.05.2006, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. MAÍ 2006 61 UMRÆÐAN Góð eign á draumastað í Vesturbænum. 4ra herbergja, 96 fermetra jarðhæð (aðeins niður- grafin) í fallegu tvíbýli sem staðsett er innst í lokuðum botnlanga. Sérinngangur er í íbúðina en hún skiptist í þrjú svefnherbergi, góða stofu og stórt eldhús. Íbúðin er við kyrrláta götu en stutt er í alla þjónustu, skóla og íþróttasvæði. Íbúð á besta stað í bænum. OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 21. MAÍ MILLI KL. 14 OG 16 Í GRANASKJÓLI 22 Albert Björn Lúðvígsson sölumaður, s. 840 4048 Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali Fjárfesting við Laugardalinn Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694-1401. Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Vorum að fá í einkasölu þessa einstöku eign við Sundlaugaveginn. Húsið er frábærlega vel staðsett og er lóðin um 2.000 fermetrar. Í húsinu í dag eru þrjár íbúðir, tvær þeirra um 70 fm, tveggja og þriggja herbergja á jarðhæð. Sérhæð er með risi og afar falleg ásamt tvöföldum bílskúr, alls um 245 fm. Samtals 380 fm í heildina. Húsinu hefur verið mjög vel viðhaldið alla tíð. Þar sem lóðin er um 2.000 fm, geta ýmsir möguleikar verið til staðar hvað varðar stækkun eða bygg- ingu á öðru húsi. Verð 115 milljónir. ÉG HEFI áður skrifað pistil um sama mál, það eru öll orðin um gamla fólkið og skyldu þjóðarinnar við það. Ekki hefur neitt breyst í þessu efni, kosningar á næstu grösum og allir uppfullir af loforðum, sem inni- halda allt sem búið er að segja um árabil. En það sem að mér snýr persónu- lega og 660 félögum mínum sem eru ellilífeyrisþegar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, þar kemur fram hin hliðin, sú sem ég var að reyna að koma á framfæri í fyrri pistli mínum. Þannig standa mál að í desember 2005 gerði félag okkar nýjan kjara- samning, sem ég ætla að ekki hafi farið fram hjá neinum, þvílíku mold- roki sem hann olli, allt launakerfið átti að hrynja, þó var fyrst og síðast verið að hækka laun þeirra sem höfðu orðið út undan. Í þessum samningi, sem gildir frá 1. október 2005, var nefnt að greiðslur samkvæmt honum myndu koma til framkvæmda 1. febrúar 2006 og í síðasta lagi 1. mars 2006. Allt í lagi, ásættanlegt, þetta ákvæði gekk eftir hjá öllum þeim sem voru í starfi. En nú kemur að aðalatriðinu; við þessir 660 félagar í Starfsmannfélagi Reykjavíkur, eigum eðli málsins samkvæmt hlutfallslegan rétt á þeim kjarabótum sem samningurinn inni- hélt, misjafnlega þó, sem fer eftir starfsaldri og launaflokkum sem við- komandi þáðu laun eftir á meðan þeir höfðu starfsleyfi! En í dag, 9. maí 2006, þá bólar ekkert á þessu til okkar þessara 660 eldri félaga og þá er spurt? Eru öll orðin um umhyggju við gamla fólkið bara notuð af því þau líta svo vel út á prenti eða fara vel í munni á kosn- ingavöku. Ekki getur verið að fjárhæðin vegna þessa fólks muni ríða fjár- hagsstöðu borgarinnar niður fyrir eðlileg mörk. Nei, mitt mat, eftir að hafa hamrað á ýmsar dyr til að leita svara, er eitt. Það er búið að lofa svo miklu á ýms- um sviðum, fríum leikskólum, fríum mat í gunnskólum, nýjum flugvelli úti í ballarhafi og svo áfram og ég nenni ekki að telja öll loforðin upp. Það sem veldur er innst inni að þetta fólk sem ræður ferðinni hefur aldrei skilið hvað foreldrar þess, afar þess og ömmur gerðu fyrir það, og sitjandi uppi með þetta gamla fólk sem ekki kann á að kostnaður við glys og listir er meira virði en rétt- látar greiðslur á örfáum krónum til 660 gamalla karla og kerlinga sem byggðu Reykjavík. Ég ætla bara að vona að það fólk, sem við tekur að loknum kosningum, muni að orð og efndir fara saman. ATLI ÁGÚSTSSON ellilífeyrisþegi. Frá Atla Ágústssyni: Atli Ágústsson Orð og efndir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.