Morgunblaðið - 08.06.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.06.2006, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SLÓ ÍSLANDSMETIÐ Frystitogarinn Arnar UH-1, sem gerður er út af FISK-Seafood á Skagaströnd, kom til hafnar í Reykjavík í gærkvöld með metafla að verðmæti 184 milljónir króna, en samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er um nýtt Íslandsmet að ræða. Menntaverðlaunin afhent Íslensku menntaverðlaunin voru veitt í annað sinn í gær við hátíðlega athöfn í Hjallaskóla í Kópavogi. Til verðlaunanna var stofnað af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á grundvelli hugmynda sem hann kynnti í nýársávarpi 1. janúar 2005. Getur komið öllum til góða Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir aukna fólksflutninga milli landa koma öll- um til góða ef rétt sé staðið að mál- um en mikilvægt sé að koma í veg fyrir að gengið sé á réttindi þeirra sem leita sér betri kjara utan heima- lands síns. Royal styrkir stöðu sína Forysta franska Sósíalistaflokks- ins samþykkti í gær stefnuskrá flokksins í þing- og forsetakosning- unum á næsta ári og er það túlkað sem mikill sigur fyrir líklegan for- setaframbjóðenda hans, Segolene Royal. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Fréttaskýring 8 Minningar 38/43 Úr verinu 14 Myndasögur 41 Erlent 16/17 Dagbók 42/46 Minn staður 18 Velvakandi 49 Akureyri 19 Staður&stund 50/51 Höfuðborgin 20 Leikhús 52 Austurland 20 Bíó 54/57 Daglegt líf 22/25 Ljósvakamiðlar 58 Menning26/29, 52/57 Veður 59 Forystugrein 30 Staksteinar 59 * * * Kynningar – Morgunblaðinu fylgir dagskrárritið „Hátíð hafsins, Reykja- víkurhöfn – Miðbakki 10.–11. júní“. Dreift á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %        &         '() * +,,,                     HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef- ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 70 milljónir króna í sekt fyrir stórfelldar rangfærslur við virðisaukaskattskil með því að búa til tilhæfulausar virðisaukaskatt- skýrslur á árunum 2003 til 2004. Verði sektin ekki greidd innan fjög- urra vikna þarf maðurinn að sæta fangelsi í sex mánuði. Honum er jafnframt gert að greiða rúmar 23 milljónir í skaðabætur til ríkissjóðs. Samtals sveik maðurinn 24,2 millj- ónir króna út úr ríkinu sem endur- greiddan innskatt samkvæmt skýrslum en tilgreindur innskattur samkvæmt skýrslunum var að mestu studdur fölsuðum sölureikningum og fölsuðum bankayfirlitum, sem mað- urinn lagði fram til skattstjórans í Reykjanesumdæmi. Þá var maðurinn einnig fundinn sekur um að hafa reynt að svíkja út rúmar 9,2 milljónir króna með sama hætti. Stríddi við mjög lágt sjálfsmat Í dómi héraðsdóms kemur fram að ákærði játaði brot sín skýlaust og á ekki að baki neinn sakaferil. Hann hafi verið liðlega tvítugur þegar brotin voru framin og samkvæmt vottorði sálfræðings átti ákærði við mjög lágt sjálfsmat að stríða, sem einkenndist af ríkri þörf til að koma vel fyrir í augum annarra og vera viðurkenndur og virtur af öðru fólki. Hafi ákærði því verið reiðubúinn til að brjóta af sér í þeirri von að öðlast viðurkenningu og virðingu samborg- ara sinna. Taldi dómari að af vott- orðum sálfræðings og geðlæknis mætti draga þá ályktun að brotin ættu rætur sínar að rekja til heilsu- farsvandamála ákærða og var tekið tillit til þess að honum gengi vel að ná tökum á vanda sínum og að hann stundaði meðal annars nám. Brotin þóttu hins vegar stórfelld og refs- ingin því hæfileg átján mánuðir, en tilefni til að skilorðsbinda hana þar sem fangavist gæti að mati dómara dregið mjög úr líkum á að ákærða tækist að fóta sig í lífinu. Héraðsdómarinn Sveinn Sigur- karlsson kvað upp dóminn. Jón H. B. Snorrason saksóknari flutti málið af hálfu ákæruvaldsins en Hanna Lára Helgadóttir hrl. varði manninn. Dæmdur til að greiða tæpar 100 milljónir kr. ÞESSIR öflugu guttar á Akranesi láta hvorki vont veð- ur né annað hafa áhrif á fótboltaæfingarnar. Enda al- kunna að á Skaganum er lífið fótbolti. Strákarnir spila með sjöunda flokki karla og eru á aldrinum sex til átta ára. Og þeir eru alltaf í fótbolta. Að miklu er að stefna enda hefur margur góður knattspyrnumaðurinn komið af Akranesi og ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Þar að auki er framundan nú í júnílok Skagamótið í knattspyrnu. Það er þúsund manna mót þar sem strák- ar á þessum aldri koma saman og spila. Vafalaust verð- ur þar mikið um dýrðir og skemmtunin góð því auðvit- að skiptir meira máli að skemmta sér en vinna. En kannski verður það þessi æfing, í rigningu og óhræsisveðri, sem hjálpar til við að gera þessa stráka að meisturum einn góðan – eða slæman – veðurdag. Æfingin skapar meistarann Morgunblaðið/Sigurður Elvar GRUNDVALLARVERÐ í samn- ingum Landsvirkjunar og Alcoa um raforkuverð til Reyðaráls er umtals- vert hærra en nefnt var á heimasíðu Alcoa í Brasilíu, samkvæmt upplýs- ingum Friðriks Sophussonar, for- stjóra Landsvirkjunar, en af heima- síðunni mátti skilja að það væri 15 Bandaríkjadalir fyrir megavattið. Fram kom á íslenskri heimasíðu um samfélagsmál í gær, og var vitn- að til fréttar á heimasíðu Alcoa í Brasilíu frá því í október sl., að orku- verð í Brasilíu væri 30 dalir, sem væri helmingi hærra en verðið sem Alcoa á Íslandi greiddi, sem væri 15 dalir fyrir megavattið. Friðrik Sophusson sagði, aðspurð- ur hvort þetta væru réttar upplýs- ingar, að grundvallarverð í samning- um Alcoa og Landsvirkjunar væri umtalsvert hærra en nefnt væri í þessari grein og til viðbótar að ef ál- verið væri komið í gang myndi orku- verðið vera nær því sem sagt væri að orkuverðið til brasilíska fyrirtækis- ins væri, þar sem verð á áli í dag væri svo miklu hærra en verið hefði. Í yfirlýsingu sem Alcoa Fjarðaál sendi frá sér í gær er Landsvirkjun beðin afsökunar. „Alcoa Fjarðaál tjáir sig ekki um raforkuverð fyrir- tækisins á Íslandi, enda er það trún- aðarmál. Vegna fréttar á heimasíðu Alcoa í Brasilíu, þar sem vitnað er í blaðaviðtal við forstjóra Alcoa frá í fyrra, verður samt að taka fram að þar er um fráleitan og rangan sam- anburð að ræða. Það voru mistök að birta viðtalið á heimasíðunni og það hefur verið tekið þaðan út. Alcoa Fjarðaál telur ástæðu til að biðja Landsvirkjun afsökunar á þessu leiðindaatviki.“ Hærra orku- verð í samningi Alcoa biður Landsvirkjun afsökunar LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir 24 ára karl- manni, Hauki Frey Ágústssyni, en ekkert hefur spurst til hans frá því á fimmtu- deginum 1. júní sl. Haukur Freyr er 180 cm á hæð, um 100 kg, þrekinn, hokinn, ljós- skolhærður og var með ljóst skegg. Hann sást síðast klæddur í galla- buxur, hvíta skó, svartgráa peysu og með svartan og gráan bakpoka. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Hauks Freys eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma 444-1000. Lýst eftir karl- manni á þrítugs- aldri í Reykjavík Haukur Freyr „VIÐ ræddum þetta heilmikið en það er ekki búið að taka neina af- stöðu,“ segir Gylfi Arinbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusam- bands Íslands, en á miðstjórnar- fundi samtakanna í gær var rætt um tilboð Samtaka atvinnulífsins um taxta- og launahækkanir. Gylfi segir að verið sé að skoða málið með mjög góðum hug en sumt þurfi að kanna betur, s.s. sam- skipti við stjórnvöld. „Það verður engin formleg afstaða hjá okkur fyrr en upp úr helginni, menn eru að skoða hvaða áhrif þetta muni hafa. Það er ljóst að það er verið að kalla eftir því að klára endurskoð- unina núna og við erum að skoða hvort það sé hægt, en einnig hvað muni gerast í framhaldinu.“ Formleg afstaða ASÍ eftir helgi OLÍUFÉLAGIÐ ehf. hækkaði í gær verð á eldsneyti á stöðvum sínum um 2,50 krónur á bensínlítra og um 1,50 krónur á lítra af dísilolíu. Eru þær skýringar gefnar að staða krónunnar hafi veikst gagnvart Bandaríkjadal, auk þess sem heims- markaðsverð á olíu hafi hækkað. Eftir að ljóst varð um hækkanir hjá ESSO var ekki langt að bíða þar til tilkynntar voru sömu verðbreyt- ingar hjá Skeljungi og í gærkvöldi var verð hækkað til jafns hjá Olíu- verzlun Íslands. Ekki höfðu borist fréttir af frek- ari hækkunum í gærkvöldi. Verðhækkanir á eldsneyti

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.