Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 23 DAGLEGT LÍF Í JÚNÍ                                !         ""   #$ !    %%%         "&    '$ ! !     !  "   #  (   )  ! * $  %$     +   ,  -*     &# &   ' $    "%   ,  !    $  (   $)    *   ".   #      +    /   $                    ,    /!  $* 0  12          , -    " .         ) .   333    ) ) .    #$ /0121334 ' " ) 5   " .    #         6 "  7    $  7  )   $ -   $   4    5          6     $$         5      6$  !  7   $ "%8%% Ég hef tekið á móti tæplega fjögurhundruð börnum frá því égbyrjaði að starfa sem ljósmóðirfyrir tuttugu árum og vissulega tel ég mig eiga svolítið í hverju og einu þeirra,“ segir Denis Walsh frá Bretlandi en hann hélt í síðustu viku nokkur erindi á ráðstefnu á Landspítalanum hjá Ljós- mæðrafélagi Íslands. Enginn karlmaður sinnir störfum ljósmóður á Íslandi um þessar mundir en Denis segir að karlar í þessu starfi séu um eitt hundrað í Bret- landi. „Við erum hlutfallslega fáir, því fjöldi ljósmæðra í landinu er um þrjátíu þúsund. En ég er fæddur og uppalinn í Ástralíu og þar er miklu algengara að karlar séu ljós- mæður.“ Nær vel til feðra og kærasta Denis segir að flestar konur hafi ekkert á móti því þótt karl taki á móti börnum þeirra. „En þó er menningarbakgrunnur og trú sumra kvenna þannig að ekki leyfist að karlmaður komi nálægt fæðingunni, eins og til dæmis hjá múslimakonum. Þegar konur koma í fæðingu til mín gef ég mér alltaf góðan tíma til að spjalla við þær, til að byggja upp gott traust. Og eftir fæð- inguna lýsa þær oftast yfir ánægju sinni með að hafa haft karlkyns ljósmóður.“ Denis segir eiginmenn og kærasta kvennanna sem hann tekur á móti barni hjá oftast mjög sátta við hann í hlutverki ljósmóðurinnar. „Á vissan hátt er það kost- ur fyrir þá að hafa karlmann í þessu starfi, því ég næ yfirleitt vel til þeirra af þeirri einföldu ástæðu að við erum af sama kyni og samskiptin verða því vandræðalaus.“ Talsmaður ljósmóðurleiddra fæðingardeilda Denis segir ástæðu þess að hann lærði til ljósmóður þá að hann hafi alla tíð haft gaman af börnum. „Ég lærði fyrst hjúkrun og kunni því sérstaklega vel að annast kon- ur og börn. Þess vegna fór ég í þetta sér- nám. Fæðing barns er hamingjuríkur at- burður og mér finnst frábært að fá að taka þátt í honum. Starf ljósmæðra er mjög gef- andi og sérstakt starf.“ Denis er mikill talsmaður eðlilegra fæð- inga (normal birth) þar sem lítið er um inngrip, hvort sem það eru deyfingar, mænustungur eða annað. Hann leggur áherslu á að heimilislegt og afslappað um- hverfi í fæðingu stuðli að eðlilegri fæðingu. Erindi hans á ráðstefnunni á Landspít- alanum voru einmitt innlegg í komandi breytingar í fæðingarþjónustunni á kvennasviðinu þar, en til stendur að opna Hreiðrið fyrir fleiri konur, en þar verður notaleg ljósmæðraleidd fæðingardeild (Birth Centre). Denis er með doktorsgráðu í ljósmóð- urfræðum, en hann stendur aðeins eina vakt í viku sem ljósmóðir, því hann er öðr- um störfum hlaðinn. Hann stundar rann- sóknir við Háskóla í Leicester, heldur fyr- irlestra víða um heim og hefur auk þess skrifað fjölda greina í blöð og bækur.  STARFIÐ | Denis Walsh starfar sem ljósmóðir í Bretlandi Konur eru ánægðar með karlmann í þessu starfi Í lok ráðstefnunnar hjá Ljósmæðrafélaginu dönsuðu Annamaria Ruzza, Jocasta Crofts og Titta Court magnaðan dans, sem túlkar meðal annars löngun kvenna til að eignast barn. Þær eru finnskar og hafa sýnt dansverkið á mörgum fæðingardeildum í Finnlandi. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is www.birthmatters.co.uk www.ljosmodir.is Morgunblaðið/Kristinn Denis Walsh hefur starfað sem ljósmóðir í tuttugu ár. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.