Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
FRYSTITOGARINN Arnar HU-1, sem gerður
er út af FISK-Seafood á Sauðárkróki og Skaga-
strönd, kom til hafnar í Reykjavík í gærkvöldi
með metafla að verðmæti 184 milljóna króna.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er
talið að um nýtt Íslandsmet sé að ræða.
Árni Sigurðsson skipstjóri segir að túrinn
hafi alls verið 39 dagar og mestallan tímann hafi
skipið verið á úthafskarfaveiðum á Reykjanes-
hrygg. „Veiðin hefur verið óvenjugóð. Samtals
eru þetta um 1.800 tonn upp úr sjó sem þýðir að
34 tonn voru unnin um borð á hverjum degi. Þá
er verð á úthafskarfa á mörkuðum úti sérlega
hátt, auk þess sem gengi krónunnar er okkur
hagstætt um þessar mundir. Allt leggst þetta
saman í langbesta túr sem við höfum nokkurn
tíma átt,“ segir Arnar.
Áhöfnin á Arnari hefur ástæðu til að halda
sjómannadaginn hátíðlegan um helgina, þar
sem hásetahluturinn er í kringum 1.800 þúsund
krónur.
Morgunblaðið/Eggert
Börn skipverja á frystitogaranum Arnari fylgdust spennt með þegar skipið kom til hafnar í Reykjavík í gærkvöldi.
Arnar HU-1 landaði afla að
verðmæti 184 milljóna króna
LEIKSÝNINGIN
Pétur Gautur í
sviðsetningu Þjóð-
leikhússins hlaut
flestar tilnefning-
ar til Grímunnar,
íslensku leiklist-
arverðlaunanna,
eða tólf talsins.
Kynnt var í Borg-
arleikhúsinu í gær
hvaða verk væru
tilnefnd og afhenti
Ólafur Ragnar
Grímsson þeim sem voru tilnefndir viður-
kenningarskjal.
Verðlaunaafhendingin fer fram 16. júní
nk. og eru afhent verðlaun í alls sextán
flokkum. Í ár komu 61 leiksýning og 11
útvarpsleikrit til álita. | 26
Pétur Gautur
tilnefndur til 12
Grímuverðlauna
KARLMAÐUR var fluttur á slysadeild í
Vestmannaeyjum í fyrrakvöld eftir að
hann hrapaði tugi metra niður í fjöru en
hann hafði látið draga sig á loft, í svif-
vængjaflugi, með slöngubát frá Skrans-
fjörunni. Að sögn sjónarvotta var mað-
urinn kominn í um 30 til 40 metra hæð
þegar taug í bátinn slitnaði, með þeim af-
leiðingum að maðurinn hafnaði í stórgrýt-
isfjörunni utan við hafnargarðinn.
Dró svifvængurinn manninn fyrst upp í
fjöruna og svo aftur út í sjó áður en tókst
að bjarga honum um borð í bátinn. Við
fyrstu athugun var talið að maðurinn hefði
brotnað á þremur stöðum en eftir rann-
sókn lækna á slysadeild kom í ljós að hann
er óbrotinn og virðist hafa sloppið afar vel.
Maður í svif-
vængjaflugi
hrapaði í fjöru
BÖRNUM sem búa hjá báðum for-
eldrum sínum líður í heildina betur en
öðrum börnum. Þá benda niðurstöð-
ur könnunar til þess að sérstaklega
þurfi að skoða líðan og aðlögun barna
sem búa hjá föður sínum og þá eink-
um ef hann er einstæður.
Þetta og fleira kemur fram í
skýrslu um líðan barna í tengslum við
fjölskylduaðstæður sem Benedikt Jó-
hannsson sálfræðingur hefur nýlega
unnið. Gögnin sem liggja til grund-
vallar koma úr könnun sem unnin var
á líðan nemenda í 5.–7. bekk í Reykja-
vík árið 2003 og tæplega 4.400 börn
svöruðu. Að því er Benedikt telur hef-
ur slík töluleg úttekt sem byggir á
svörum barnanna sjálfra ekki verið
gerð áður hérlendis.
Best félagslega að búa
hjá báðum lífforeldrum
Um 2/3 hlutar barnanna búa hjá
báðum foreldrum. 15,9% búa hjá ein-
stæðri móður, 11,8% hjá móður og
stjúpföður, 2,1% hjá öðrum en for-
eldrum, 1,6% hjá einstæðum föður og
1,0% hjá föður og stjúpmóður. Al-
mennt mælist líðan barnanna góð. Þó
segja þau sem búa hjá einstæðum
föður sjaldnar að þeim líði vel en
81,8% þeirra sögðu sér líða vel á móti
91,6% barna sem búa hjá báðum for-
eldrum.
Benedikt segir raunar að í þessari
könnun hafi tengsl líðunar barna ver-
ið einna sterkust við það hvernig
börnunum gekk í samskiptum við
jafnaldra. Því skipti miklu að við
skilnað setji foreldrar í forgang að
stuðla að samfellu í tengslum barna
við félaga.
Þegar samskipti barnanna við jafn-
aldra eru skoðuð í tengslum við fjöl-
skylduaðstæður kemur í ljós að þeim
sem búa hjá báðum lífforeldrum
vegnar félagslega best en þau sem
búa hjá einstæðum feðrum eiga undir
högg að sækja. Þau sem búa hjá móð-
ur lenda þarna á milli en nær þeim
sem búa hjá báðum foreldrum.
Hlutfall barna sem eiga enga eða
fáa vini er helmingi hærra hjá þeim
sem búa hjá einstæðum föður en hjá
þeim sem búa hjá báðum foreldrum,
eða 15,5% á móti 8,0%, sbr. meðfylgj-
andi töflu. Hlutfall barna sem oft eða
stundum eru skilin útundan er 17,1%
hjá þeim sem búa hjá einstæðum
feðrum en 7,0% hjá þeim sem búa hjá
báðum foreldrum og 8,9% hjá þeim
sem búa hjá einstæðum mæðrum.
Hafa skyldi í huga að orsakir erf-
iðari félagslegra aðstæðna þeirra
barna sem búa hjá feðrum má líklega
rekja til margs og ekki endilega þess
að feðurnir standi sig illa.
Samskipti við jafn-
aldra skipta miklu
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
Könnun á líðan barna í tengslum við fjölskylduaðstæður
(
)
*
0" , .)
0" 6 ) "+'.
0" 6
0" . ) "+'6
0" .
./ )
=
F60) . 4
) $ 4 G
/"#*
'+#H
'+,H
#+,H
%+%H
&+&H
$+%H
ÁRTÚNSSKÓLI í Reykjavík hlaut í
gær Íslensku menntaverðlaunin
2006. Forseti Íslands, Ólafur Ragn-
ar Grímsson, afhenti verðlaunin við
hátíðlega athöfn í Hjallaskóla í
Kópavogi, en þetta er í annað sinn
sem þau eru veitt.
„Ég er mjög ánægður með að Ís-
lensku menntaverðlaunin hafi nú
þegar, þótt ung séu, fest sig í sessi.
Þau eru mikilvæg viðurkenning á
því merkilega starfi sem unnið er í
grunnskólunum,“ sagði Ólafur
Ragnar í samtali við Morgunblaðið.
Hann vonaðist til að verðlaunin
yrðu til þess að skapa sátt um
grunnskólastarfið. Sólveig Sveins-
dóttir, kennari í Laugarnesskóla,
hlaut verðlaunin í flokki kennara
sem skilað hafa farsælu ævistarfi.
Þá hlaut Íris Róbertsdóttir, kennari
við Hamarsskóla í Vestmanna-
eyjum, verðlaun fyrir að hafa í upp-
hafi kennsluferils sýnt hæfileika og
lagt alúð í starf sitt. Sólrún Harð-
ardóttir, endurmenntunarstjóri við
Háskólann á Hólum og námsefn-
ishöfundur, var verðlaunuð fyrir
námsefni sitt á sviði náttúru- og
umhverfisfræða.
Morgunblaðið/Ómar
Ólafur Ragnar Grímsson afhendir nemendum Ártúnsskóla verðlaunin.
Mikilvæg viðurkenning
á merkilegu starfi
Augljóst | Miðopna
♦♦♦