Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Til leigu verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði 80 fm á 1. hæð (jarðhæð) með sérinngangi á frábærum stað við Holtasmára í Kópavogi. Stórir gluggar, tvö skrifstofu- herbergi ásamt rúmgóðu opnu rými, eldhúsi og snyrtingu. Laust nú þegar. Upplýsingar í síma 693-4490. Stórglæsileg 92 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í miðborginni auk 18 fm herbergis í kjallara. Íbúðin er algjörlega endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt, m.a. öll gólfefni ný, innrétting í eldhúsi og tæki, baðherbergi, innihurðir, lýsing og raflagnir. Rúmgóðar og bjartar sam- liggjandi stofur og 2 herbergi. Grillsvalir út af eldhúsi og hátalara- og sjónvarpstengingar í herbergjum. Frábær staðsetning. Eign sem vert er að skoða. Verð 35,0 millj. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Tjarnargata Glæsiíbúð með útsýni yfir Tjörnina Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli Skólavörðustíg 13 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net Reynir Björnsson lögg. fasteignasali Opið hús milli kl. 17 og 19 í dag Flókagata 6 Miðsvæðis í Reykjavík Gullfalleg 77,7 fm 3ja herb. íbúð á efri hæð í þríbýli á þessum vinsæla stað í Reykjavík. Eignin skiptist í fallegt hol m. skáp, bjarta borðstofu og stofu m. sólríkum suðursvölum. Stórt hjónaherb. m. góðum skápum, snyrtilegt eldhús og flísalagt bað m. sturtuklefa og glugga. Á gólfum er eikarparket nema eldhús er m. dúk. Sér, hellulagt og upphitað stæði v. húsið. Eignin hefur fengið gott viðhald. Verð 19,5 millj. Erna og Laufey taka vel á móti gestum í dag milli kl. 17 og 19. Bjalla merkt Erna. Teikningar á staðnum. ÉG SKIPTIST fyrir hálfu öðru ári á tölvupósti við félaga þinn Björn Bjarnason um gjöld, sem við eldri borgarar skyldum greiða fyrir öku- skírteini. Björn var afar duglegur og lifandi við að útskýra fyrir mér sögu gjaldskrár um gjöld fyrir ökuskírteini. Ég virði hann fyrir þetta sem annað. Hér á árum áður var ekkert gjald tekið fyrir endurnýjun réttinda eldri borgara. Nú er hins vegar heimtað miklu meira af okkur gamlingjunum en hinum yngri, sem kannski eru nýbúnir að fá teinið og kunna vart með að fara. Þeir kunna reyndar sumir varla að keyra. Fjár- málaráðherrann væri samt vís til þess að túlka þetta út og suður. Þetta er endra stjórnarstefnan, eða hvað? Þetta var áður hjá dómsmálaráð- herra, en er nú á sviði fjármálaráð- herra. Svona er ríkisstjórnarstefnan frá sjónarhóli eins eldri borgara: 64 ára og yngri greiða kr. 3900 fyrir skírteini til 10 ára (ekki krafizt læknisvottorðs) þ.e. 390 /ári 65, 66,67,68,69 ára greiða 1100 fyrir skírteini til 5 ára, læknisvottorð kr. 1500 þ.e. 520 /ári 70 ára greiðir fyrir skírteini til 4 ára þ.e. 650 /ári 71 árs greiðir fyrir skírteini til 3 ára þ.e. 867 /ári 72, 73, 74, 75, 76,77, 78, 79 ára greiðir fyrir skírteini til 2 ára þ.e. 1.300 /ári 80 ára og eldri borgarar greiða hvert ár fyrir skírteini til eins 1 árs þ.e. 2.600 /ári Vituð þér enn eða hvat? Já, með aldrandi manni finnst ríkinu bezt að vera. Þetta er stígandi ferill. Gjöldin hafa hækkað um 10 til 11 prósent á hálfu öðru ári. Þrátt fyrir smá skatta- lækkanir hafið þið tekið til baka það, sem lífeyrir frá ríkinu hefur skánað, með hækkunum á gjaldskrá. Ég sé að útborgaður lágmarkslífeyrir eftir skatta hefur hækkað pínulítið, en gjöldin enn meira, sem er dæmigert í of- ansögðu. Sem og gildir þetta fyrir nánast öll önnur mál trúi ég. Vissulega má segja, að sumir hrörna, en fæstir þeirra aka sínum bíl, nota ef til vill strætó. Gott er samt að sjá, að við skyldum vera sjálfbær. Við tollum þá í tízkunni, erum sjálf- bær! Ráðherrann kynni að segja, að við værum til vandræða. Ég hafna slíkum svörum, hver sem segja vildi. Hver er ekki til vandræða? Sjónin breyttist meira, er ég var á bezta aldri, en núna. Viðbrögðin eru háð miklu fleira en aldri. Ég var ekki til vandræða fyrir tæpum sextíu árum, er ungi maðurinn hljóp suður í Há- skóla Íslands. Nú þurfa stúdentarnir helzt ókeypis bílastæði. Jafnvel stúd- íósarnir í framhaldsskólum þurfa stór bílastæði rétt utan skólastof- unnar. Þeir geta hvorki gengið, hjól- að né farið í strætó. Og þeir borga bara 390 krónur á ári fyrir öku- skírteinið. Gamlingjarnir punga út 2600 krónum á ári. Nú kemur pólitíkin. Já, þið segið. Þið hafið það bara gott. Ég skamm- ast mín ekki fyrir mig, ekki heldur fyrir föður eða móður. Nú hefi ég strikað út eitthvað um erft og áunnið, sem ég hafði skrifað í uppkasti, sleppum því. Mér finnst ég skilja vandamál sumra okkar heldri borg- ara betur en sumir stjórnmálamenn. Meðaltalsreglan er röng. Þetta er dá- lítil hugleiðing, hvar við hægri menn mættum hlusta lítið eitt á suma vinstri menn, hvað þeir sögðu stund- um. En hvað vita menn á miðjunni um hægri og vinstri? Þeir vaða bara beint áfram. Sextíu ár eru liðin síðan undirrit- aður gekk í Heimdall. Við stofnuðum þá andsellur gegn fimmtu herdeild kommúnistanna. Vér stóðum vaktina í Holstein og stilltum okkur fyrir framan þinghúsið 1949. Í það minnsta tveir vinir mínir voru þó í hinu liðinu. Nú í dag talið þið stjórn- málamennirnir við okkur eins og við værum hálfvitar, asnar. Halldór stjórnarformaður í hinum flokknum er eins. Þið viðurkennið ekkert, sem gæti þótt yður misjafnt, og snúið út úr hreinum og klárum staðreyndum. Hættið þið ekki þessum leiða vana, skal gamli flokkurinn minn ekki fá mitt atkvæði hvorki til ríkis né sveit- ar. Ráðherra Árni! Hvað um þetta? Sveinn Guðmundsson fjallar um málefni aldraðra og ríkisstjórnina ’Nú í dag talið þið stjórn-málamennirnir við okkur eins og við værum hálf- vitar, asnar. ‘ Sveinn Guðmundsson Höfundur er verkfræðingur. KOSNINGARNAR eru lukku- lega afstaðnar eða stóra skoð- anakönnunin eins og einhver orðaði það svo skemmtilega eftir ofhlæði skoðanakannana. Þótt nægt væri tilefnið ætla ég ekki að gjöra einstök úrslit að umræðuefni, enda hlutleysi í pólitík ekki mín sterka hlið, en margt hefði maður nú viljað sjá öðruvísi að úrslitum fengnum og ekki meira um það. Það sem einkenndi stefnu flokkanna um- fram annað voru mál- efni eldri borgara, þar sem allir áttu sam- merkt í því að segjast vilja vinna þeim af al- hug og enginn skal þar vændur um óheilindi. Sannleikurinn enda sá að eldri borgarar eru í öllum flokkum, aðstandendur þeirra einnig, og því eðlilegur samhljómur þarna á ferð. Því skal líka treyst að nú leggist all- ir á þá sveif að tryggja sem bezt búsetuskilyrði og sem mesta þjón- ustu fyrir þá eldri borgara sem á þurfa að halda og er þá litið jafnt til brýnna hjúkrunarrýma sem ann- arra úrræða sem samfélaginu ber að hafa sem fjölbreyttust. Inn í allt þetta fléttast svo fjárræði eldri borgara, sjálfsögð mannréttindi þeirra allt til æviloka og ætti ekki að þurfa um að tala hvað þá meir. En svo er komið að því meg- inatriði sem flesta eldri borgara snertir, kjörum sem aðstöðu allri, og þá er vikið frá sveitarstjórn- arstiginu yfir í landsmálin, þar sem allt ræðst um kjaramál eldri borg- ara í víðastri merkingu. Við sem störfum á vettvangi eldri borgara gjörum okkur vissulega glögga grein fyrir því að eldri borg- arar eru ekki eins- leitur hópur, kjara- og aðstöðumunur þar á bæjum er mikill og yf- ir það engin fjöður dregin af okkur, aldrei. Í hópi eldri borgara, þessa fjölmenna þjóð- félagshóps, eru margir afar vel settir, hafa góðan lífeyrissjóð eða búa vel að innistæðum í bönkum og verð- bréfum eða hafa hvoru tveggja að að hverfa og fyrir þetta fólk erum við ekki að krefjast bættra kjara eins og fáfróðir stjórnmálamenn halda stundum fram, en það eru reyndar þeir hinir sömu sem full- yrða, að allir eldri borgarar lifi í vellystingum praktuglega eins og sagt var hér fyrrum. Hin beizka staðreynd er hins vegar sú að nær þriðjungur eldri borgara býr við lágmarkskjör samfélagsins, í raun þau allra lægstu í okkar þjóðfélagi, ásamt verst settu öryrkjunum. Fyr- ir þetta fólk ber okkur að berjast, það er einfaldlega heilög skylda okkar sem þar förum með einhver áhrif innan raða eldri borgara og þess vegna lætur oft hátt í okkur í kröfugerð í þágu þessa þriðjungs eldri borgara. Of dagljóst er það til þess að frekar þurfi þar um að ræða. Okkar álit er einfaldlega það að það sé heilög skylda áhrifa- manna í þjóðmálum, þingheims sem ríkistjórnar, já, raunar heilög skylda samfélagsins alls að tryggja árangur þeirrar baráttu, ég segi hiklaust: að þvo þennan skamm- arblett af hinu ofurríka íslenzka samfélagi. Þar duga engir út- úrsnúningar, ekkert meðaltal, hvað þá viðmiðun við þá bezt settu eins og jafnvel heyrist. Það á að vera að- alsmerki okkar allra að stuðla að velferð allra – ekki bara sumra. Að því marki beinist öll barátta eldri borgara og má ég trúa því að þar vilji allir vera með. Velferð allra – ekki bara sumra Helgi Seljan fjallar um málefni eldri borgara ’Hin beizka staðreynd erhins vegar sú að nær þriðjungur eldri borgara býr við lágmarkskjör samfélagsins, í raun þau allra verstu í okkar þjóð- félagi, ásamt verst settu öryrkjunum. ‘ Helgi Seljan Höfundur er varaformaður FEB Reykjavík. ókeypis smáauglýsingar mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.