Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hafþór Sigur-geirsson fæddist á Ísafirði 28. júní 1949. Hann lést af slysförum 27. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Sveinsína Björg Guðmundsdóttir, f. 17. maí 1908, d. 11. september 1983, og Sigurgeir Halldórs- son, f. 2. mars 1908, d. 31. mars 1972. Systkini Hafþórs eru: Guðmundur Hafsteinn, f. 16. september, maki Hróðný Gunnarsdóttir; Ingibjörg, f. 14. maí 1932, d. 6. apríl 1997, maki Þorgrímur Guðnason; Sig- rún, f. 23. apríl 1935, maki Gunn- laugur Valdimarsson; Sæunn Marta, f. 12. nóvember 1936, maki Þórir Bent Sigurðsson; Garðar Ingvar, f. 15. september 1938, maki Ingibjörg Birna Jónsdóttir; Helga, f. 18. febrúar 1940, maki Jörundur Sigurgeir Sigtryggsson; Halldór, f. 7. febrúar 1943, maki Flóra Sigríður Ebenesardóttir; Margrét, f. 23. ágúst 1944, maki Eðvarð Jóhannesson; Lilja, f. 3. mars 1946; og Sveinsína, f. 13. júlí 1950, maki Aðalsteinn Oddsson. Hafþór átti einn hálfbróður sem hét Hörður Bergmann, hann er lát- inn. Hafþór kvæntist 27. maí 1972 Helgu Sigríði Sig- urðardóttur, f. 3. september 1952, frá Akureyri. Foreldrar Helgu eru Sigurður Hannesson, f. 8. des- ember 1923, og Soffía Georgsdóttir, f. 6. október 1930. Börn Hafþórs og Helgu eru: 1) Soffía Margrét, f. 23. jan- úar 1972, unnusti Ólafur Hreinsson, f. 14. febrúar 1966. 2) Sigurður Bjarni, f. 11. desember 1974, unnusta Heið- rún Þorsteinsdóttir, f. 24. júlí 1974, dóttir þeirra er Birta María, f. 30. nóvember 2003. 3) Hafdís Sif, f. 4. mars 1979, unnusti Ingi Torfi Sverrisson, f. 11. júlí 1978, dóttir þeirra er Karen Ósk, f. 1. október 2001. 4) Helgi Freyr, f. 10. október 1986, unnusta Eva Sandra Bents- dóttir, f. 4. desember 1986. Hafþór ólst upp á Ísafirði og vann ýmis störf bæði í landi og á sjó. Árið 1971 fluttist hann með til- vonandi eiginkonu sinni Helgu til Akureyrar. Þar vann Hafþór í nokkur ár á trésmíðaverkstæði. En allt frá árinu 1985 hefur hann lagt stund á sjómennsku og hóf hann störf hjá Samherja árið 1986. Útför Hafþórs verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi minn. Allt frá því að ég var tíu ára gamall hefur þú verið á sjó og ég man enn þann dag í dag hversu erfitt mér fannst að kveðja þig þegar þú fórst. Í gegnum árin fór ég að skilja sjónarmið þín betur þar sem sá tími sem við fengum með þér í landi var ómetanlegur. Allir dagar voru þá laugardagar og við áttum hug þinn allan. Í dag rúmum tuttugu árum síð- ar kemur upp staða sem ég á mjög erfitt með að skilja. Hann pabbi minn, hann elsku pabbi minn er látinn. Hvernig má það vera? Þessi heimur þarf að hafa fleiri menn eins og þig en ekki færri. Það vantar svo mikið þeg- ar þú ert ekki hér lengur. Ég var ekki bara að missa pabba heldur líka besta vin minn. Við áttum mörg sameigin- leg áhugamál enda leit ég mikið upp til þín og geri enn. Allt mitt líf hef ég haft þig sem fyrirmynd og veit að ég mun búa að því alla mína ævi. Þú gafst mér svo mikið. Þegar ég hugsa til baka og rifja upp þær stundir sem ég átti með þér finnst mér ég vera ríkasti maður í heimi. Þessar minningar á ég einn og enginn getur tekið frá mér. En mér fannst við eiga eftir að gera svo mikið saman. Þú svo ungur, heilsuhraustur og fullur af orku. Þegar ég sá þig með Birtu Maríu fékk ég að upplifa á ný hversu hlýr og góður þú ert við börn. Að fá að vera fluga á vegg og fylgjast með ykkur tveimur er ómetanlegt. Svona var þetta þá, svona var þetta þegar ég var lítill. Litla gullið mitt ljómaði af gleði þegar hún heyrði að þú værir að koma. Þegar þið hittust varst þú strax kominn niður á fjórar fætur og farinn að skríða á eftir henni út um allt. Birta María talaði mikið um þig, elsku pabbi minn, og vissi al- veg hvar þú værir. Oftar en ekki heyrðist í henni: „Haffi afi er í skip- inu, greyið afi.“ Ég áttaði mig ekki al- veg á því sem hún var að segja en ein- hvern veginn varð alltaf erfiðara og erfiðara að kveðja þig. Ég fann fyrir meiri depurð aftur, líkt og þegar ég var aðeins tíu ára gamall. Hvað var að gerast? Af hverju var þetta orðið svona aftur? Ég var líka farinn að hugsa, greyið pabbi minn, en þú varst farinn að tala um að minnka við þig, fara færri túra og vera meira í landi. Möguleikinn á því að byrja á því að taka lífeyri þinn út fyrr og minnka við þig var bara handan við hornið. Ég var jafnvel kominn svo langt að hugsa til þess að kannski gætir þú farið að vinna í landi. Þér var svo margt til lista lagt en þú komst mér svo sannarlega á óvart þegar þú keyptir þér fartölvu og sagðist ætla að læra á hana. Og viti menn, það tókst og gott betur en það. Þú varst meira að segja farinn að taka tölvuna með þér út á sjó til þess að geta verið í netsambandi við okkur. Ég gat núna talað við þig þegar ég vildi og fékk alltaf svar fljótt til baka. Þetta gaf mér mikið og ég veit að þér fannst mestu máli skipta að vita hvað væri að frétta af okkur. Þú varst svo mikill fjölskyldumaður, barst hag okkar allra fyrir brjósti og hugsaðir alltaf fyrst um aðra. Þú varst, ert og munt alltaf vera maður sem engin orð fá lýst. Hvernig er hægt að halda áfram þegar maður fær svona þungt högg? Það vantar svo mikið þegar þú ert ekki hér hjá okkur. Ég finn fyrir dep- urð í hjarta sem ég vissi ekki að væri til, tómarúm sem ekki er hægt að fylla og veit að það getur aldrei neinn kom- ið í þinn stað. Söknuðurinn er svo mikill og svo sár að ég á erfitt með að hugsa fram í tímann meira en mínútu í senn. Ég á aldrei eftir að sætta mig við að þú sért ekki lengur hér og á eft- ir að syrgja þig allt mitt líf en ég veit hvað ég þarf að gera og hvað þú vilt að ég geri en það er bara svo erfitt núna. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk með þér, elsku pabbi minn, og veit að þú verður alltaf hjá mér ef ég þarf að leita til þín. Þegar ég horfi á Birtu Maríu veit ég að hluti af þér er þarna og það gleður mig. Það sama má segja um okkur öll, þú lifir með okkur svo lengi sem við lif- um. Hjarta mitt segir mér að ég muni alltaf eiga þig og þegar minn tími kemur þá tekur þú á móti mér með opnum örmum og þá verðum við sam- an aftur. Bið að heilsa Steina tengdapabba, ég veit að hann er hjá þér núna. Þinn elskandi sonur, Sigurður Bjarni. Það var seinnipart laugardags 27. maí, þegar skyndilega þyrmdi yfir og lífið varð í einni svipan dökkt og þoku- kennt. Elsku Hafþór tengdapabbi er látinn. Eldur kom upp í Akureyrinni með þeim hræðilegu afleiðingum að tveir menn létu lífið. Af hverju er lífið svona ósanngjarnt? Af hverju var hann ekki á vakt þegar slysið átti sér stað? Hvað ef hann hefði verið vak- andi eða á öðrum stað í skipinu? Hvað ef … ? Ótal spurningar koma upp í hugann en sá sem er æðri máttar get- ur einn svarað þeim. Fljótlega eftir að ég kynntist Sigga kom að þeim degi að hitta fjölskyldu hans á Akureyri. Örlítill kvíði greip um sig þar sem ég sat í flugvélinni á leiðinni norður að hitta tilvonandi tengdaforeldra í fyrsta skipti. Siggi tók á móti mér á flugvellinum og tjáði mér á leiðinni að það væru aðeins fleiri fjölskyldumeðlimir sem vildu fá að hitta mig. Ekki voru þessi tíðindi til að draga úr kvíðanum. Þegar heim var komið var öll fjölskyldan mætt, ásamt afa hans og ömmu. Allur kvíði hvarf þó á bak og burt þegar ég kom inn um dyrnar. Koss og stórt faðmlag frá elsku Helgu, hlýlegar móttökur frá systkinum Sigga, afa og ömmu og þessi orð frá Haffa: „Vertu bara eins og heima hjá þér,“ og í kjölfarið fylgdi með bros á vör, sagan af honum sjálf- um þegar hann hitti fyrst sína tengdaforeldra. Mér leið eins og þau hefðu alltaf þekkt mig. Þannig voru móttökurnar hjá þessari elskulegu fjölskyldu. Haffi var einstakur maður og tók ég fljótlega eftir að þarna var á ferð- inni mikill fjölskyldumaður. Það má með sanni segja að fjölskyldan hafi verið honum allt. Alltaf var hann til staðar fyrir börnin sín hvort sem það var að hjálpa til við flutninga, mála, gera við, hengja upp ljós eða vera til staðar þegar leitað var til hans út af öðru. Hann var ekki bara faðir barna sinna heldur einnig félagi þeirra og besti vinur. Í þau skipti sem við Siggi höfum flutt voru Haffi og Helga kon- an hans mætt með uppbrettar ermar, tilbúin að hjálpa. Haffi var með ein- dæmum vandvirkur með þau verk sem hann tók að sér. Fyrir um það bil þremur árum þegar við Siggi vorum að flytja í Funalindina, ég þá kasólétt, var Haffi að mála íbúðina okkar. Hvergi var málað út fyrir þar sem Haffi hafði málað og þótt við segðum við hann að það skipti nú ekki miklu málið þótt eitthvað færi út fyrir þarna eða hérna þá var svarið alltaf á þá leið að hann léti nú ekki sjá svoleiðis vinnubrögð eftir sig, annað hvort væri að gera þetta vel eða hreinlega sleppa því. Haffi var yndislegur afi og mikið var hann góður við dóttur okkar Birtu Maríu og náði svo vel til hennar. Þeg- ar hann kom í heimsókn þá var hann varla kominn inn úr dyrunum þegar hann var kominn á fjóra fætur og byrjaður að leika og sprella við snúll- una sína, Birtu Maríu til mikillar gleði. Þegar Hafdís og Ingi voru í heimsókn með dóttur sína Karen Ósk þá lék Haffi skrímsli, tröll, hest eða hvaðeina og var að reyna að ná þeim og mikið skríktu og hlógu litlar sálir. Þannig var Haffi alltaf þegar fjöl- skyldan hittist þá áttu barnabörnin tvö huga hans allan. Elsku Helga mín, þungt er höggið og hefur þú misst mikið, eiginmann og besta vin þinn. Á þessum sorgar- degi hinn 27. maí áttuð þið 34 ára brúðkaupsafmæli. Þið hafið átt mörg góð ár saman og eigið fjögur börn og tvö barnabörn sem eru lifandi eftir- mynd Haffa. Ég veit að núna virðist sem ekkert geti læknað né hjálpað í sorginni, elsku Helga, en veistu að það mun rofa til síðar og þú munt brosa á ný. Þú átt allar minningarnar sem enginn getur tekið frá þér. Ég veit líka að gullin þín fjögur sem þið Haffi eigið saman standa við hlið þér og það gera tengdabörnin einnig. Elsku Haffi, mikið er ég fegin að hafa fengið tækifæri til að kynnast þér og þykir mér sárast að fá ekki að kynnast þér enn betur hér í þessu lífi. En ég veit að þú ert nú í góðum hönd- um og það verður hugsað vel um þig. Þótt þú kveðjir þennan heim þá lifirðu ennþá í minningu okkar hinna sem þykir svo vænt um þig og elska. Takk fyrir að hafa verið til, takk fyrir að eiga Sigga sem ég elska svo óendan- lega mikið, takk fyrir að Birta María afastelpan þín hafi fengið að kynnast þér og umfram allt takk fyrir að eiga svona yndislega fjölskyldu. Elsku Haffi minn, ég veit að ég á eftir að kynnast þér betur þótt seinna verði og við munum öll hittast aftur. Þín tengdadóttir Heiðrún. Elsku besti Haffi afi, takk fyrir að vera svona duglegur að leika við mig þegar ég hef komið í heimsókn til ykkar ömmu. Það var svo gaman þeg- ar við fórum í eltingarleik í eldhúsinu í kringum eyjuna, amma hélt á mér og þú eltir okkur, það var sko mikið hleg- ið þá. Sú vögguvísa sem að þú söngst og kenndir mér er vögguvísan úr Dýrunum í Hálsaskógi og við sungum hana oft saman og nú langar mig að syngja hana fyrir þig, elsku besti Haffi afi eins og þú varst vanur að syngja fyrir mig. Dvel ég í draumahöll og dagana lofa litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa. Sígur ró á djúp og dal dýr til hvílu ganga. Einnig sofna skolli skal með skottið undir vanga. (Thorbjörn Egner.) Takk fyrir að vera alltaf svona góð- ur við mig, ég elska þig mest, Haffi afi, og ég skal lofa þér að passa Helgu ömmu vel fyrir þig. Nú kveð ég þig að sinni, eins og ég var vön að kveðja þig með kossum og knúsi. Kveðja, Karen Ósk. Söknuður sál mína kvelur, minn kæri vinur. Þú ei lengur hér á jörðu dvelur, þinni lífsgöngu ei ætlað var lengri veg. Sárt er því að taka vildi að þú værir ennþá hér. Nú þú leið þína hefur lagt yfir móðuna miklu. Með vissu ég veit þar þú mætt hefur móttökum góðum, þar hlýtur nú að vera glatt á hjalla. Þannig ávallt það var er þú mættir með brosið þitt bjarta. Þú einstaka sál hafðir að geyma, þér ég aldrei mun gleyma. Minningin um þig er björt og mikil hér á jörðu niðri, hún áfram lifir í hjarta mínu, þinn stað þú ætíð munt eiga. (Jónína Sesselja Gísladóttir) Hvað getum við sagt? Vegir guðs eru órannsakanlegir, við erum harmi slegin yfir skyndilegu fráfalli bróður okkar og mágs. Hvernig gat þetta gerst? Hvers vegna? Er það fyrsta sem maður spyr sig. Þú sem áttir svo margt eftir að gera með fjölskyldu þinni, með litlu afastelpunum þínum sem voru augasteinarnir þínir. En nú hefur þú verið kallaður til annarra starfa í ljósi alföður á himnum, nú ert þú umvafinn ljósinu sem mun lýsa þér og okkur um eilífð því við vitum að guð er ljósið sem lýsir okkar veg. Eftir situr minning um bróður sem okkur öllum var svo kær. Elsku Helga, Soffía, Sigurður, Haf- dís, Helgi, tengdabörn, barnabörn og tengdaforeldrar, við biðjum guð að vera styrkur í ykkar miklu sorg. Með þessu ljóði kveðjum við þig, elsku Hafþór: Á bænanna vængjum burtu hann fer er englarnir komu með himnanna her. Kvaddi ég kæran bróður. Tárin þau voru dýr frá okkur er hann farinn því nú á himnum hann býr (Elínbjört Halldórsdóttir) Hvíl þú í friði. Þín systkin og tengdasystkin. Ég var stödd á ljósmyndasýningu fyrir nokkrum árum þar sem myndir móðurafa míns voru til sýnis. Sú mynd sem fangaði huga minn var af litlum dreng þriggja, fjögurra ára, fegurðin í myndinni var ólýsanleg, hann stóð þarna lítill og mannalegur klæddur eins og sjómaður og hafði aflann, litla síld, hangandi í bandi í annarri hendinni. Ég sneri mér að mömmu og spyr: „Hver er þetta?“ „Þetta er Hafþór bróðir minn,“ svarar hún og stoltið leyndi sér ekki. Það hefur mikið vatn til sjávar runnið síðan þessi mynd var tekin af litla bróður hennar mömmu þar til hann lést af slysförum sem sjó- maður á hafi úti. Við fráfall hans rifjast upp dýr- mætar minningar sem gott er að sækja í og leita sér huggunar. Hafþór var fæddur inn í stórfjöl- skyldu í orðsins fyllstu merkingu, hann átti sjö systur og fjóra bræður. Það sem einkenndi þessa móðurfjöl- skyldu mína fannst mér hvað þeim þótti vænt hverju um annað og voru samheldin svo eftir því var tekið. Stóra ástin í lífi Hafþórs kom frá Akureyri, Helga var ekki lengi að vinna traust ömmu minnar og mér býður í grun að það hafi talist henni til tekna að hún var húsmæðraskóla- gengin. Allavega flutti hann norður og öllum leist vel á ráðahaginn. Fyrir norðan eignaðist Hafþór frændi aðra stórfjölskyldu því for- eldrar Helgu tóku honum eins og syni og voru honum afar góð alla tíð. Haf- þór og Helga eignuðust saman fjögur börn sem bera foreldrum sínum gott vitni. Þegar minnst var á Hafþór í sam- ræðum var það yfirleitt gert með því að tala um Haffa og Helgu nánast sem eitt. Í fyrrasumar fréttist hingað vestur að von væri á þeim á mót sem halda átti og nefnt var Stóra púka- mótið. Þetta var knattspyrnumót fyr- ir ísfirska knattspyrnumenn þrjátíu ára og eldri. Við þessar fréttir fékk ég um stund áhuga á fótbolta. Sú íþrótt hefur aldr- ei heillað mig, en þegar ég vissi að móðurbræður mínir ríflega fimmtug- ir og sextugir myndu spila fótbolta þá gat maður ekki látið sig vanta! Ég verð að viðurkenna að það var smááhyggjuefni að vita af því að í öðru markinu var Pétur með gamla hjartaþræðingu og í hinu Baddó bróð- ir með nýja … en traust mitt var á starfsfólki sjúkrahússins með Þor- stein lækni í broddi fylkingar ef eitt- hvað myndi klikka. Komu Hafþórs var beðið með eft- irvæntingu þar sem óljóst var hvort af því yrði en menn voru farnir að panta hann í sitt lið, enda fór það svo að liðið hans, Krókspúkar, vann mót- ið. Á þessu móti skapaðist frábær stemmning, menn nutu virðingar, það var talað meðal áhorfenda um gömlu liðin, Hörð og Vestra, rifjuð upp fót- boltaferðalög … sigrar en ekki svo mikið talað um ósigrana. Þennan dag gat ég verið sammála að gaman væri að spila og horfa á fótbolta. Ég fylltist stolti þegar ég heyrði á tal manna sem vísuðu í hvað strákarnir hans Geira í Vallarborg hefðu alltaf verið góðir í fótbolta. Ég leit út á völlinn og sá Hafþór móðurbróður minn í rauðri fótboltatreyju og svartri skýlu á fleygiferð inn völlinn, spengilegur, fallegur og umfram allt góður maður. Þannig mun ég muna hann. Elsku Helga, ég sendi mínar inni- legustu samúðarkveðjur til þín, barnanna og fjölskyldna þeirra, til foreldra þinna og systkina þinna og Hafþórs. Megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorginni og ykkar mikla missi. Einnig vil ég senda fjölskyldu Birg- is Bertelsen skipsfélaga Hafþórs mín- ar innilegustu samúðarkveðjur svo og áhöfninni á Akureyrinni sem misst hefur félaga og vini. Þessi áhöfn sýndi fádæma hugrekki við aðstæður sem enginn getur gert sér í hugarlund. Í mínum augum eru þessir menn hetjur og ég veit að frændi minn hef- ur verið stoltur af því að vera hluti af þessu liði. Kolbrún Sverrisdóttir, Ísafirði. Ég kynntist Hafþóri fyrst þegar við vorum saman á togaranum Bald- vini Þorsteinssyni og síðan lágu leiðir okkar aftur saman á Akureyrinni. Hafþór var öruggur og ábyrgur sjó- maður sem vel kunni til verka. Með Hafþóri er fallinn frá maður sem ávallt var mikilvægur hlekkur í góðri áhöfn. Hafþór hafði einstaklega góða nærveru og leituðu margir til hans með ýmis mál, sem úrlausnar kröfð- ust. Ég mun ávallt minnast Hafþórs sem félaga sem gott stafaði frá. Ég votta fjölskyldu hans mína innileg- ustu samúð á erfiðum tímum. Leifur K. Þormóðsson, skipstjóri á Akureyrinni. HAFÞÓR SIGURGEIRSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.