Morgunblaðið - 08.06.2006, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
CARNEGIE Art Award, sýning
sem kennd er við samnefnd verð-
laun, verður opnuð í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag. Á
sýningunni getur að líta 49 verk eftir
21 listamann. Þeir voru valdir til
þátttöku úr hópi 115 tilnefndra nor-
rænna listamanna. Var valið í hönd-
um dómnefndar skipaðrar sérfræð-
ingum á sviði nútíma myndlistar. Þó
viðfangsefnið sé myndlist er keppn-
inni lagður til grundvallar víður
skilningur á því sem í því felst. Sýn-
ingin er að meginuppistöðu myndlist
í hefðbundnari skilningi en einnig
gefur að líta innsetningar, kvik-
myndir og verk þar sem notaðar eru
bylgjur hljóðs og ljóss.
Ein stærstu verðlaun
sinnar tegundar
Carnegie Art Award verðlaun-
unum var upprunalega komið á fót
árið 1998 í því augnamiði að efla nor-
ræna samtíma-málaralist og til að
styðja framúrskarandi listamenn á
Norðurlöndunum. Viðburðurinn var
í fyrstu árlegur en hefur frá og með
árinu 2003 farið fram annað hvert
ár.
Anne Folke, verkefnisstjóri sýn-
ingarinnar, segir að verðlaunin séu
ein þau stærstu sem veitt séu á sviði
myndlistar, ef ekki þau stærstu.
Hún ítrekar hins vegar að á meðan
það sé augljóslega mikill fjárhags-
legur ávinningur í að hreppa verð-
launin sé það eitt að vera valinn til
þátttöku í sýningunni gríðarlega góð
kynning fyrir listamennina. „Hvar
sem við höfum komið hefur ein-
hverjum listamönnum í framhaldinu
verið boðið að taka þátt í eða halda
eigin sýningar.“ Kynningin nær
einnig út fyrir Norðurlöndin. „Þegar
sýningum lýkur í Hafnarhúsinu 20.
ágúst förum við til London eins og
verið hefur síðastliðin ár. Við
stefnum svo á frekari landvinninga.
Til að mynda fer sýningin í ár til
Nice í Frakklandi, en það er í fyrsta
skipti.“
Halldór Björn Runólfsson, einn af
dómnefndarmeðlimum vegna verð-
launanna, tekur undir orð Anne og
segir sýninguna hafa gríðarlega þýð-
ingu fyrir þá listamenn sem þar eiga
verk. „Þetta er orðið miklu heitara
en það nokkru sinni var. Frá og með
2001 fóru hin ýmsu gallerí langt fyr-
ir utan Skandinavíu – í New York,
London, Tókíó, París, Berlín – að
fylgjast grannt með viðburðinum.
Það er staðreynd að nokkrir lista-
menn hafa beinlínis slegið í gegn
fyrir tilstuðlan sýningarinnar.“ Hall-
dór bætir við að fyrir nokkrum árum
hafi verið tekið upp á því að velja
einn dómnefndarfulltrúa út fyrir
Skandinavíu og þá heimsfrægt fólk.
Það hafi tvímælalaust greitt götu
sýningarinnar.
Meðal sýnenda eru að sjálfsögðu
vinningshafarnir. Dómnefndin var
einhuga um að veita sænsku lista-
konunni Karin Mamma Andersson
fyrstu verðlaun og hlaut hún sem
svarar um tíu milljónum íslenskra
króna. Önnur verðlaun, sex milljón
krónur, hlaut íslenski mynd-
listamaðurinn Eggert Pétursson.
Finnska listakonan Petra Lindholm
hlaut þriðju verðlaun en að auki féll í
skaut Sirous Namazi frá Svíþjóð
styrkur ætlaður listamanni af yngri
kynslóð.
Auk Eggerts eiga íslensku lista-
mennirnir Finnbogi Pétursson, Jón
Óskar og Steingrímur Eyfjörð verk
á sýningunni. Mega Íslendingar því
una hlut sínum vel í ár.
Aðspurður segir Halldór að dóm-
nefndin gangi ekki út frá neinum
fyrirfram ákveðnum forsendum þeg-
ar listamenn eru valdir. „Við viljum
gjarnan forðast kríteríur og reynum
að velja það sem okkur finnst áhuga-
vert og fínt í tengslum við málverk.
Höfuðverkurinn liggur hins vegar í
því að skilgreina hvar mörk mál-
verksins liggja.“
Í sjöunda skipti á Íslandi
Sýningin í ár er sú sjöunda sem
kemur til Íslands. Halldór segir sýn-
inguna alltaf hafa verið vel tekið hér-
lendis og hlutur hennar fari vaxandi.
„Ég viðurkenni að þegar sýningin
kom fyrst hingað til lands þá var alls
ekki auðvelt að vekja áhuga almenn-
ings á málverkasýningu á norrænu
plani. „Norrænt“ og „málverk“ voru
orð sem gengu ekki svo glatt ofan í
landann. Þetta hefur hins vegar
breyst enda fólk farið að gera sér
grein fyrir hvað norrænir mynd-
listamenn hafa fram að færa.“
Myndlist | Carnegie Art Award-sýningin opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag
Verk verðlaunahafans Eggerts Péturssonar á Carnegie Art Award.
Fjölbreytileiki í
norrænni samtímalist
Verk Karin Mamma Andersson, er hlaut fyrstu verðlaun.
Morgunblaðið/ÞÖK
Frá blaðamannafundi vegna opn-
unar Carnegie Art Award í Hafn-
arhúsinu. Í forgrunni er Anne
Folke verkefnisstjóri.
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
TILNEFNINGAR til Grímunnar,
íslensku leiklistarverðlaunanna,
voru tilkynntar í Borgarleikhús-
inu síðdegis í gær. Flestar til-
nefningar hlaut leiksýningin Pét-
ur Gautur í sviðsetningu
Þjóðleikhússins, eða tólf alls.
Auk hennar voru tilnefndar
sýningarnar Eldhús eftir máli eft-
ir Völu Þórsdóttur í sviðsetningu
Þjóðleikhússins, Forðist okkur
eftir Hugleik Dagsson í sviðsetn-
ingu Common Nonsense og Leik-
listardeildar Listaháskóla Íslands,
Maríubjallan eftir Vassily Sigarev
í sviðsetningu Leikfélags Ak-
ureyrar og Woyzeck eftir George
Büchner í sviðsetningu Leik-
félags Reykjavíkur og Vest-
urports.
Verðlaunin verða afhent í sam-
tals 16 flokkum þann 16. júní nk.
og alls komu 61 leiksýning og 11
útvarpsleikrit til álita í ár.
„Mesta grósku- og glæsi-
tímabil í íslensku leikhúsi“
Forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, ávarpaði sam-
komuna auk þess að afhenda
þeim tilnefndu viðurkenning-
arskjöl. Hann hafði á orði að ef
hann hefði sótt allar sýningar
sem hefðu verið í boði á Akureyri
og á höfuðborgarsvæðinu hefði
það tekið hann einn og hálfan
mánuð að komast yfir þær allar,
miðað við venjulega vinnuviku.
Ólafur sagði að Gríman væri
orðin ein af höfuðverðlaunum
okkar Íslandinga og sagðist „vera
sannfærður um það að á allra síð-
ustu árum höfum við orðið vitni
að einhverju mesta grósku- og
glæsitímabili í íslensku leikhúsi.
Það er bjargföst sannfæring mín,
vegna þess að breiddin, hæfileik-
arnir, nýsköpunin, frumleikinn og
dirfskan sem einkennir sýning-
arnar, hvort sem það er í Þjóð-
leikhúsinu, Borgarleikhúsinu, á
Akureyri eða í öðrum leikhúsum
sem stofnuð hafa verið af ein-
stökum leikurum, er með slíkum
ólíkindum að það er nánast
kraftaverk.“
Ólafur minntist orða sinna þeg-
ar verðlaununum var ýtt úr vör,
að leikhús ættu ekki bara að
skemmta, heldur gengju þau líka
á hólm við samtímann, hikuðu
ekki við að ögra og að ýta við
þeim sem með valdið færu. Ólaf-
ur lauk svo máli sínu með því að
segja að það væri ekki síður mik-
ilvægt að vera tilnefndur til verð-
launanna og að tilnefningar væru
kannski stærri heiðursvottur en
verðlaunin sjálf, enda gæti alltaf
verið tilviljunum háð hver á end-
anum hlyti verðlaunin.
Leiklist | Pétur Gautur með flestar
tilnefningar til Grímunnar
Morgunblaðið/ÞÖK
Þráinn Karlsson er tilnefndur sem besti leikari í aukahlutverki og tekur
við viðurkenningarskjali úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar.
„Ekki síður mikilvægt
að vera tilnefndur“