Morgunblaðið - 08.06.2006, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Bergur Magnús
Guðbjörnsson var allt-
af að vinna sigra í líf-
inu.
Hann og Ármann, sonur okkar,
fæddust í sama mánuði, voru skírðir
saman og tengdust traustum bönd-
um.
Við munum, er Bergi gekk seint
að læra að ganga, hve mikill sigurinn
var þegar það tókst.
Við munum Berg er átti að fara að
stafla honum inn í bíl uppi í Árbæj-
arhverfi ásamt fleiri börnum og
hann lét sig hverfa, en fannst á
strætisvagnabiðstöð, óaðfinnanlega
klæddur í nýjan frakka, og beið
vagnsins. Þá þegar var komin í ljós
einstök snyrtimennska hans. Sumir
undruðust er hann síðar lærði til vél-
stjóra, en þá varð við brugðið af hví-
líkri alúð var gengið um vélar og vél-
arrúm þannig að allt leit út eins og á
safni þar sem hvorki þarf að keyra
né smyrja vélar.
Við munum þegar Bergur heim-
sótti okkur til Englands, sjö ára
gamall, og tók að láta sig hverfa. Í
ljós kom að hann hafði komið sér í
vinfengi við gamla konu er bjó á
neðri hæð hússins og átti litasjón-
varp sem hann sat sigri hrósandi
fyrir framan.
Minni hans var einstætt. Eitt sinn
hitti hann þjóðþekktan rithöfund
sem mátti leggja sig allan fram til að
hafa í fullu tré við hann um atburði
og baksvið bóka sinna. Hann hafði
áhuga á að læra sagnfræði en reglur
Háskóla Íslands leyfðu ekki að vél-
stjóri fengi beinan aðgang að slíku
námi. Missti sagnfræðin þar af
traustum liðsmanni með yfirgrips-
mikla þekkingu og nákvæm vinnu-
brögð.
Hann var mikill göngumaður og
sigraði margan fjallstindinn.
Stærstu sigrana vann hann þó í
einkalífinu. Fyrir nokkrum árum
kynntist hann konu sinni er varð og
tveimur börnum hennar. Aðdáunar-
vert var hvernig honum tókst að
vinna hug og hjörtu barnanna og er
mikill harmur að þeim kveðinn.
Oddný réðst í umfangsmikið nám og
var Bergur vakinn og sofinn í áhuga
sínum á velgengni hennar. Sinn síð-
asta sigur vann hann með henni er
hún í þessari viku lauk náminu með
miklum ágætum.
Með Bergi er mikill öndvegismað-
ur horfinn alltof fljótt. Blessuð sé
minning hans.
Halldór Ármannsson
og Margrét Skúladóttir.
Með Begga er farinn einn af
traustum hornsteinum lífs míns; ein
af aðalpersónunum í æsku minni og
BERGUR MAGNÚS
GUÐBJÖRNSSON
✝ Bergur MagnúsGuðbjörnsson
vélstjóri fæddist á
Ísafirði 22. júní
1969. Hann varð
bráðkvaddur á
Akranesi 28. maí
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Akraneskirkju 6.
júní.
þroskasögu. Við vor-
um jafngamlir nánast
upp á dag, við vorum
skírðir saman, við
deildum súru og sætu
sem guttar og eftir að
kom fram á fullorðins-
árin. Á afmælisdaginn
minn fyrir réttu ári
gekk hann að eiga
Oddnýju, ástina í lífi
sínu, en haustið áður
hafði ég gert slíkt hið
sama með ástinni í
mínu lífi. Þannig höfð-
um við báðir fundið
ástina og eignast hvor sína fjölskyld-
una og hvorugur okkar verið ham-
ingjusamari áður.
Þegar ég kynntist Begga fyrst
voru það jólasveinarnir og Kalli á
þakinu sem áttu hug hans allan; og
segja má að hann hafi tileinkað sér
það besta úr fari þessara átrúnaða-
goða. Á Flateyri átti ég í honum góð-
an leikfélaga og hollan ráðunaut á
öllum sviðum lífsins. Í minningum
mínum um þessa tíma er alltaf sól-
skin og hafgolan bítur létt í kinn-
arnar, og mun ég alltaf hugsa um
Begga þegar sólin skín og golan er
af hafi.
Beggi var traustur vinur, frænd-
rækinn og húmoristi góður. Það var
gaman að skemmta sér með honum
og gott að leita til hans. Þetta vitum
við öll sem þekktum hann, og við
skiljum því hversu skelfilegur missir
Oddnýjar og barnanna er og hugur
okkar hlýtur að vera hjá þeim í
þeirra miklu sorg.
Ármann.
Mánudaginn 29. maí sl. barst okk-
ur starfsmönnum Norðuráls sú
sorgarfregn að Bergur Magnús
vinnufélagi okkar hefði orðið bráð-
kvaddur deginum áður. Það er ekki
unnt að skilja að ungur maður í
blóma lífsins skuli falla frá svo
skyndilega. Hann var kallaður
Beggi, hann var nýráðinn til starfa á
vélaverkstæði Norðuráls, hafði að-
eins verið í starfi frá því um páska.
Beggi bar með sér góðan þokka og
ljúfmennsku, ávallt reiðubúinn að
leggja hönd að verki og ákaflega
notalegur í garð félaganna. Við viss-
um að hann hafði verið vélstjóri á ís-
fisktogaranum Sturlaugi Böðvars-
syni en áform hans voru að ljúka við
smiðjuhluta sinnar vélstjórnar-
menntunar hjá NA. Einnig voru það
hans áform að annast heimilið með-
an eiginkona hans aflaði sér aukinn-
ar menntunar. Beggi hafði á orði að
eftir sjómennskuna þyrfti hann að
ná sér í betra líkamlegra form og
hafði hann áhuga á að stunda göngu-
ferðir við og í Akrafjalli m.a. sem er
kjörinn staður til þjálfunar. En eng-
inn veit hverjum klukkan glymur,
það er okkur starfsfélögunum ljóst
þegar við hörmum góðan dreng.
Með Bergi er genginn góður liðs-
maður Norðuráls, við starfsfélag-
arnir kveðjum hann með sorg í
hjarta, en minningin lifir um góðan
dreng og ljúfan félaga.
Við vottum fjölskyldu hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur á sorg-
arstundu.
Starfsfélagar og stjórnendur
Norðuráls á Grundartanga.
Æ, brothætt eins og
smákæna er líf mannsins.
Léttum árum rær
hann til hafs- og í dögun
ekki tangur né tetur-
(Þýð. Helgi Hálfdanarson.)
Inntak þessarar japönsku tönku,
sem nefnist Hverfleiki, lýsir vel
hversu skyndilega tilvera okkar get-
ur breyst og það á nú svo sannarlega
við líf minnar kæru Oddnýjar Guð-
mundsdóttur þessa síðustu daga.
Tími sem átti að einkennast af gleði
yfir BS gráðu og verðlaunaritgerð
ykkar Brynju um Þórsmörkina
breytist í djúpa sorg yfir skyndilegu
Kennarar mínir eru
flestir horfnir yfir
móðuna miklu. Einn þeirra síðustu
var að kveðja jarðlífið, eftir alllanga
vist.
Ólafur Hjartar kenndi bókasafns-
fræði í Háskóla Íslands um árabil,
og naut ég kennslu hans þar vet-
urinn 1969-1970.
Auk Ólafs kenndi þessi fræði
Björn Sigfússon, háskólabókavörð-
ÓLAFUR F.
HJARTAR
✝ Ólafur ÞórðurFriðriksson
Hjartar fæddist á
Suðureyri í Súg-
andafirði 15. októ-
ber 1918. Hann lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ 4.
maí síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Seljakirkju 16.
maí.
ur. Ólafur og Björn
tóku saman rit um
bókasafnsfræði, er
nefnist Bókasafnsrit
I. Það notuðum við í
námi okkar, og betri
leiðsögn en þar í
þessari fræðigrein er
torvelt að finna.
Bókasafnsfræði er
fjölþætt fræðigrein og
flókin á köflum, en
Birni og Ólafi tókst
að gera hana vel skilj-
anlega okkur byrj-
endunum. Ólafur lauk
kennaraprófi frá Kennaraskóla Ís-
lands, eftir stúdentspróf frá
Menntaskólanum á Akureyri, og
honum var lagið að gera hlutina
skiljanlega alþýðu manna. Ég lauk
að vísu ekki námi í þessari fræði-
grein, enda stundaði ég hana í or-
lofi mínu frá kennslu og námi í
Kennarskóla Íslands í nokkrum
greinum.
Ólafur var sonur Friðriks Hjart-
ar, skólastjóra og forystumanns
kennarastéttar. Það var Ólafur,
sem skrifaði um föður sinn, skóla-
stjórann, í samnefnda bók, er ég sá
um á sínum tíma.
Honum tókst vel að gera grein
fyrir þessum ötula fræðara og hug-
sjónamanni. Ólafur hélt fram merki
föður síns í bindindismálum, sjálfur
templari og fastur fyrir í þeim efn-
um. Hann átti sér háar hugsjónir
eins og faðir hans.
Mér er það mikil ánægja að
minnast Ólafs Hjartar, bókavarðar
og kennara. Hann skilaði góðu ævi-
starfi, og er nú kvaddur með þökk
og virðingu af mörgum, sem honum
kynntust og með honum unnu.
Minning hans geymist í þakklátum
huga.
Auðunn Bragi
Sveinsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT EINARSDÓTTIR,
Maddý,
Barðastöðum 7,
sem lést fimmtudaginn 31. maí, verður jarðsungin
í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. júní
kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sími 543 1159.
Jón Árnason,
Ásta Gunnarsdóttir, Oddur Halldórsson,
Jóna Gunnarsdóttir,
Valdís Gunnarsdóttir,
Eyrún Gunnarsdóttir,
Trausti Kristjánsson, Therese Grahn
og ömmustrákarnir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir, mágkona og amma,
HELGA JÓHANNSDÓTTIR,
lést laugardaginn 3. júní.
Útför Helgu verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 9. júní og hefst athöfnin kl. 15:00.
Jón M. Samsonarson,
Heiðbrá Jónsdóttir, Einar Baldvin Baldursson,
Svala Jónsdóttir,
Hildur Eir Jónsdóttir, José Enrique Gómez-Gil Mira,
Sigrún Drífa Jónsdóttir, Árni Sören Ægisson,
Gyða Jóhannsdóttir, Haukur Viktorsson
og barnabörn.
Útför okkar elskaða
PÁLS JÓNSSONAR,
Hóli,
Hvítársíðu,
fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 10. júní
kl. 11:00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabba-
meinsfélag Borgarfjarðar.
Edda Magnúsdóttir,
Jón Magnús Pálsson, Hrafnhildur Hróarsdóttir,
Finnbogi Pálsson, Hrönn Vigfúsdóttir,
Páll Bjarki Pálsson, Eyrún Anna Sigurðardóttir,
Erlendur Pálsson, Guðrún Harpa Bjarnadóttir,
Þorbjörg Pálsdóttir, Ragnar Páll Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
EINARS ÖGMUNDSSONAR
fyrrverandi formanns
Landssambands vörubifreiðastjóra,
Grímshaga 3,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítala við Hringbraut föstu-
daginn 2. júní fer fram frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 13. júní kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á styrktar- og minningarsjóð Félags nýrnasjúkra, sími
568 1865.
Ögmundur Einarsson, Magdalena Jónsdóttir,
Ingibjörg Einarsdóttir, Júlíus Sigurbjörnsson,
Ingveldur Einarsdóttir, Trausti Sveinbjörnsson,
Þórunn Einarsdóttir, Frank Jenssen,
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
BERGUR VERNHARÐSSON,
Elliðavöllum 2,
Keflavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 31. maí.
Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 9. júní kl. 14.00.
Margret Sigurðardóttir,
Birnir Bergsson,
María Bergsdóttir,
Vernharður Bergsson,
tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur bróðir minn og móðurbróðir okkar,
GUNNLAUGUR JÓHANNSSON
frá Krossi
í Óslandshlíð,
áður Freyjugötu 40,
Sauðárkróki,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks föstudaginn 2. júní verður
jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 10. júní kl. 11.00.
Elínborg Jóhannsdóttir,
Þóra Ólafsdóttir,
Guðrún Ólafsdóttir,
Jóhann Ólafsson.