Morgunblaðið - 08.06.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 49
DAGBÓK
Hátíð hafsins er haldin í sjöunda sinnhelgina 10. og 11. júní. Hátíðin sam-anstendur af Hafnardeginum og Sjó-mannadeginum, en þessir tveir hátíð-
isdagar voru sameinaðir árið 1999 í tveggja daga
hátíðahöld á Miðbakka Reykjavíkurhafnar.
„Viðburðir og skemmtiatriði hátíðarinnar
verða af ýmsum toga en eiga það öll sameiginlegt
að minna okkur á hafið, og þá menningu og sögu
sem hafinu tengist,“ segir Sif Gunnarsdóttir,
verkefnisstjóri viðburða hjá Höfuðborgarstofu.
„Margs konar sýningar og skemmtun er í boði.
Á Miðbakkanum verður gestum leyft að smakka
alls kyns lostæti úr hafinu. Einnig munu fyr-
irtæki og stofnanir sem tengjast hafi og sjósókn
kynna hátíðargestum starfsemi sína. Boðið verð-
ur upp á siglingar og líkt og undanfarin ár verð-
ur starfrækt flöskuskeyta-listsmiðja. Þar munu
leiðbeinendur aðstoða við gerð fallegra flösku-
skeyta, sem síðan verður siglt með út á sundin
blá á skólaskipi Landsbjargar, Sæbjörginni, og
flöskunum kastað út í hafsauga með þeirri von að
þau rati á spennandi staði,“ segir Sif.
Í Sjóminjasafninu í Reykjavík, Grandagarði 8,
verður að vanda mikið um að vera í tilefni hátíð-
arinnar. Harmonikkur verða þandar og hnýtt net
að gömlum sið. Auk fastasýninga verður í safn-
inu sýning á vatnslitamyndum Jóns Baldurs
Hlíðberg sem gerðar voru voru fyrir bókina „Ís-
lenskir fiskar“ sem kom út fyrr á þessu ári.
„Í ár heldur Hafrannsóknastofnun að vanda
sýningu á alls kyns furðufiskum á Miðbakkanum.
Þar gefur að líta stór ker með kynjaverum hafs-
ins en sýningin hefur vakið mikla athygli ár
hvert. Að þessu sinni tökum við upp á þeirri ný-
breytni að halda fiskiveislu í samstarfi við 10 úr-
vals veitingastaði í miðborg Reykjavíkur, þar
sem boðið verður upp á sérstakan hátíð-
armatseðil og hægt að bragða á því besta úr ís-
lensku sjávarfangi á mjög hóflegu verði.“
Tónlist eru gerð sérstaklega góð skil á hátíð-
inni í ár: „Undanfarin tvö ár höfum við haldið
sjómannalagasamkeppni í samstarfi við Rás 2.
Útkoman hefur verið gríðarlega skemmtileg og
fjöldi laga sem berst til keppninnar hverju sinni.
Í ár bætum við um betur og höldum fyrstu sjó-
mannalagahátíðina, en sams konar hátíðir eru
haldnar víða um heim við miklar vinsældir,“ seg-
ir Sif. „Meðal þeirra sem taka þátt í sjó-
mannalagahátíðinni eru okkar eina sanna tog-
arahljómsveit, Roðlaust og beinlaust, sem flytur
jafnt frumsamin og sígild sjómannalög, Tríóið
Flís ásamt hinum geðþekka Bogomil Font mun
flytja gömlu góðu sjómannalögin sem allir eiga
að geta raulað með, og við fáum til okkar erlenda
gesti: írsku sjómannalagasveitina Ceol na Mara.
Þá verður haldið veglegt og líflegt málþing um
sjómannalög í Hafnarhúsinu.“
Margt fleira verður á dagskrá á Hátíð hafsins
víða um miðborg Reykjavíkur. Finna má dag-
skrá hátíðarinnar í heild sinni á www.Reykjavik-
.is
Sjávarútvegur | Hátíð hafsins haldin í sjöunda sinn á Miðbakka Reykjavíkurhafnar um helgina
Margt í boði á Hátíð hafsins
Sif Gunnarsdóttir
fæddist í Reykjavík
1965. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MS 1985,
BA í dönsku frá HÍ 1990
og lauk MA í menning-
arfræði við Háskólann í
Óðinsvéum 1996. Sif
starfaði við dag-
skrárgerð hjá Rás 1 um
nokkurra ára skeið, hún
var aðstoðarfor-
stöðumaður í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í fjögur ár. Sif hóf störf sem verkefn-
isstjóri viðburða hjá Höfuðborgarstofu árið
2002. Sambýlismaður Sifjar er Ómar Sig-
urbergsson innanhússarkitekt og á hún dótt-
urina Áróru Arnardóttur.
140 ÁRA afmæli. Hjördís ogGeir, Breiðholti. Í tilefni af
samanlögðu 140 ára afmæli okkar
hjóna tökum við á móti gestum 10. júní
kl. 19.50 í Félagsheimilinu Þjórsárveri.
Ættingjar, vinir, sveitungar fyrr og nú,
eru boðnir velkomnir með góða skapið
og vináttuna, aðrar gjafir afþakkaðar.
Árnaðheilla
ritstjórn@mbl.is
Aukamöguleiki.
Norður
♠G3
♥ÁD1098
♦D106
♣DG10
Suður
♠Á2
♥732
♦ÁK2
♣Á9843
Suður opnar á einu grandi og norður
kýs að stökkva beint í þrjú grönd, þrátt
fyrir fimmlitinn í hjarta. Sú ákvörðun
lítur ekki út fyrir að vera góð þegar
vestur kemur út með spaðakóng.
En hvernig á að spila?
Best er auðvitað að svína í laufinu,
en hins vegar er óþarfi að afskrifa
hjartalitinn. Það er í lagi að spila blind-
um inn á hjartaás og athuga hvað ger-
ist – hugsanlega fellur kóngurinn
blankur fyrir aftan og þá má fá fimm
slagi á hjarta.
Þar með er málið afgreitt: spaði
dúkkaður, næsti drepinn og hjarta
spilað á ás:
Norður
♠43
♥ÁD1098
♦D106
♣DG10
Vestur Austur
♠KD10976 ♠854
♥64 ♥KG5
♦753 ♦G984
♣52 ♣K76
Suður
♠Á2
♥732
♦ÁK2
♣Á9843
Og austur fylgir með KÓNG!
Framhaldið segir sig sjálft – sagn-
hafi fer heim á tígul til að svína í hjarta,
en austur á gosann og vörnin tekur
fjóra slagi í viðbót á spaða: tveir niður.
„Fyrirgefðu, makker,“ sagði austur
eftir spilið. „Ég hélt að sagnhafi hefði
svínað hjartadrottningunni.“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjórn@mbl.is
Borgarstjóri fólksins
ÞAÐ var sem birti yfir borginni
þegar ég frétti að Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson yrði næsti borgarstjóri
Reykjavíkur. Loksins, loksins erum
við laus við R-listann eftir heil 12 ár.
Vissulega er nú ekki hægt að segja
annað en að innan um hafi þar verið
ágætis fólk. Ég vil líka þakka Stein-
unni Valdísi fyrir hennar störf, ég
veit að hún stóð sig prýðilega. Ég
veit að Vilhjálmur vill láta hreinsa
borgina og vernda útivistarsvæðin
en R-listinn vildi alls staðar byggja.
Það var ekkert hugsað um það
hvernig fólkinu í borginni liði með
það. Og einn úr vinstra liðinu lét
hafa eftir sér að sveit gæti ekki ver-
ið í borg. En það er nú einu sinni
svo að við þurfum að hafa borgina
manneskjulega ef okkur á að líða
vel. R-listinn skar allt niður varð-
andi fátæka fólkið hér í borginni og
var það mörgu þessu fólki erfitt. Ég
veit að Vilhjálmur vill fjölga leigu-
íbúðum og efla velferðina og bæta
hag aldraðra.
Ég vil óska Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni til hamingju með starfið.
Birni Inga og hinum borgar-
fulltrúunum óska ég líka innilega til
hamingju og óska þeim velfarnaðar
í starfi.
Sigrún Á. Reynisdóttir.
Páfagaukur týndist
í Fossvogi
ÁSTARGAUKUR flaug út mánu-
daginn 5. júní í Fossvoginum. Hann
er mjög gæfur og leitar oftast til
fólks. Hann er ljós og dökkgrænn
að lit, gulur neðan við gogginn og
með blátt stél.
Þeir sem gætu gefið upplýsingar
vinsamlega hafi samband í síma
553 4954 eða 845 6558.
Kettlingar fást gefins
ÞRÍR 9 vikna kettlingar, allt brönd-
óttar læður, vantar framtíðarheim-
ili. Kátar og kassavanar. Upplýs-
ingar í síma 692 1194.
Læða í óskilum í Sandgerði
ÞESSI fallega læða fannst í Sand-
gerði fyrir viku skítug og svöng. Ég
fékk veður af henni undir palli í húsi
þar sem hún var búin að vera und-
anfarnar vikur og á þeim tíma hafði
hún gotið 5 kettlingum sem eru 4-6
vikna núna. Ég tók þau að mér og
er að vona að eigandi hennar sjái
hana hér og fagni henni og hennar
kettlingum við heimkomu. Hún er
mjög gæf og yndisleg og tel ég hana
því ekki vera villikött. Hún er
ómerkt og ólarlaus. Eigandi hafi
samband við Helgu í síma 846 0349
og 421 5609.
Vinur týndist í Hafnarfirði
VINUR er hvítur með svartan depil
á kollinum og svart skott. Hann er
eyrnamerktur 05G195 og með
svarta ól. Vinur týndist frá Ölduslóð
47 í Hafnarfirði og gæti hafa lokast
inni í kjallara eða bílskúr í nágrenn-
inu. Er fólk beðið um að svipast um
eftir honum. Þeir sem gætu gefið
upplýsingar vinsamlega hafi sam-
band í síma 865 3398 eða 867 6916.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90 ÁRA afmæli. Laugardaginn 10.júní nk. verður níræður Hjalti
Gestsson frá Hæli, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Búnaðarsambands Suð-
urlands. Hjalti og fjölskylda hans
munu fagna þessum tímamótum laug-
ardaginn 10. júní og bjóða ættingjum
og vinum til afmælisveislu í Þingborg,
Hraungerðishreppi, kl. 16–19.