Morgunblaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Af ókunnum ástæðum virðist hinn
mannlegi hugur bregðast sérstaklega
við upplýsingum sem til eru í þríriti.
Þetta á eftir að koma berlega í ljós með
hætti sem hrútnum þykir skemmti-
legur og spennandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú skiptir máli. Segðu öðrum hvað þeir
eiga að gera til þess að hjálpa þér við að
gera meira gagn í samfélaginu sem þú
tilheyrir. Félagsleg færni skiptir máli á
þínu sviði. Ef þú átt ekki góð jakkaföt
eða hefur ekki þétt handtak skaltu
bjarga því sem fyrst.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Aukaskammtur af stíl fær aðra til þess
að horfa á eftir þér. Þú nýtir þér að-
dráttarafl, sem er töfrum líkast, í
hverju sem þú tekur þér fyrir hendur,
sama hversu hversdagslegt eða marg-
tuggið það virðist.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Peningar virðast alltaf rata til þín þeg-
ar þú þarft á því að halda. Þú færð þá
hugdettu að búa til ákveðnar þarfir til
að sjá hvort þeir halda áfram að koma.
Góð hugmynd.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið þarf ekki að breyta viðmóti sínu,
það er nógu aðlaðandi fyrir. En hvað
sem þú gerir til þess að fínstilla þig svo
þú laðir að þér frekari velgengni á eftir
að ganga frábærlega. Valið er þitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Innra samtalið sem meyjan á að jafnaði
við sjálfa sig verður endurskrifað í dag.
Þú ert miklu léttari og dugmeiri þegar
röddin hvetur þig áfram í stað þess að
nöldra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogin er að reyna að vera hugrökk og
ráða sér sjálf en kannski sést henni yfir
sína helstu stuðningsmenn um leið.
Hver trúir á þig? Á hvern trúir þú?
Náðu sambandi við fólk upp á nýtt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn veit hvernig hann á að
láta á sér bera. Snjall byrjunarleikur
kemur hlutunum á hreyfingu. Það er
ekki víst að þú eigir eftir að frétta hvað
aðrir eru hrifnir af þér fyrr en eftir
mörg ár.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er svo upptekinn af því
sem hann er að gera að það hvarflar
varla að honum að leita ráða eða frekari
upplýsinga, sem hann þarf einmitt á að
halda. Farðu aftur á hugmyndastigið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sjálfstraust þitt mínus sjálfsgagnrýni
jafngildir stöðunni í tilfinningalífi þínu í
augnablikinu. Hæðirnar og lægðirnar
hafa verið miklar upp á síðkastið. Hið
gullna meðalhóf hjálpar þér til að ná
jafnvægi á ný.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Sérhvert skref er áfangi á leiðinni og
það hjálpar að vera ákafur. Styrktu
langanir þínar með því að mæla þér
mót við fólk sem á það sem þú vilt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hægt er að losna við peningaáhyggjur
með því að venja sig á að hafa engar
áhyggjur. Skoðaðu staðreyndirnar eins
og þær eru. Þetta eru bara peningar,
tölur – tímabundið ástand og allt það.
Breytileiki þeirra hefur ekkert með það
að gera hver þú ert.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Hið dularfulla tungl í
sporðdreka ljær lífinu rönt-
gensýn. Stoðirnar koma í
ljós. Notum þessa kosmísku gjöf til þess
svipta hulunni af þrálátu vandamáli eða
gaumgæfa eitthvað yndislegt til þess að
finna út hvernig hægt er að endurskapa
það eða magna. Kannski upplifir einhver
djúpa vitneskju um andlegt eðli hinnar
efnislegu tilvistar.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Anima gallerí | Alda Ingibergsdóttir sópran
og Sólveig Jónsdóttir píanóleikari á hádeg-
istónleikum kl. 12.15.
Hafnarborg | Burtfararprófstónleikar. Jana
María Guðmundsdóttir sópran og Kolbrún
Sæmundsdóttir píanóleikari halda ein-
söngstónleika kl. 20. Tónleikarnir eru liður í
burtfararprófi Jönu Maríu frá Söngskól-
anum í Reykjavík, en þar er hún söngnem-
andi Dóru Reyndal.
Nasa | Stórblúsararnir frá Minneapolis, La-
mont Cranston Blues Band, verða með tón-
leika á Ránni í Keflavík 8. júní og á Nasa við
Austurvöll 9. júní. Tónleikarnir hefjast kl. 21
bæði kvöldin og munu Blúshundarnir úr
Keflavík hita upp. Miðaverð er 2.000 kr.
Miðar verða seldir við innganginn.
Norræna húsið | Píanótónleikar. Kl. 20 leika
Margaret Cheng Tuttle og Jón Sigurðsson
fjórhent á píanó. Leikin verða verk eftir
Georges Bizet, W.A. Mozart og Kevin Olson.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. Eldri borgarar og
nemendur 500 kr.
Myndlist
Anima gallerí | Erla Þórarinsdóttir, Dældir
og duldir. Til 25. júní.
Aurum | Árni Sæberg, ljósmyndari hjá
Morgunblaðinu, sýnir í tilefni stórafmælis
síns ljósmyndir til 9. júní.
Árbæjarsafn | Margrét O. Leópoldsdóttir
sýnir íslenskar lækningajurtir á línlöberum í
Listmunahorni Árbæjarsafns.
Bókasafn Seltjarnarness | Jón Axel Eg-
ilsson sýnir vatnslitamyndir til 16. júní.
Byggðasafn Garðskaga | Bergljót S.
Sveinsdóttir sýnir vatnslitamyndir til 14.
júní.
Café Karólína | Sunna Sigfríðardóttir.
Myndir af blómum unnar með bleki á pappír.
Til 30. júní.
Energia | Sandra María Sigurðardóttir –
Málverkasýningin Moments stendur yfir. Til
30. júní.
Gallerí Fold | Málverkasýning Braga Ás-
geirssonar í Baksalnum og báðum hlið-
arsölum Gallerís Foldar við Rauðarárstíg.
Sýningin er sett upp í tilefni af 75 ára af-
mæli listamannsins. Til 11. júní.
Gel Gallerí | Dirk Leroux, „A Model for the
Treeman“. Til 8. júní.
Gerðuberg | Guðjón Stefán Kristinsson –
Sagnir og seiðmenn. Á sýningunni er að
finna verk úr rekaviði og vegghleðslu úr
grjóti og gleri. Ketill Larsen – Andblær frá
öðrum heimi. Ketill sýnir ævintýraleg lands-
lagsmálverk. Jón Ólafsson – Kvunndagsfólk.
Portrettmyndir málaðar með akrýllitum. Sjá
www.gerduberg.is. Til 30. júní.
Grafíksafn Íslands | Ragnheiður Jónsdóttir,
f. 1933, Tanja Halla Önnudóttir, f. 1987, og
Ragnheiður Þorgrímsdóttir, f. 1987. Ljós-
myndir og grafíkverk. Opið fimmtud.–
sunnud. frá kl. 14–18 til 18. júní.
Hafnarborg | Sýning á ljósmyndum og mál-
verkum norska listmálarans og ljósmynd-
arans Patrik Huse til 3. júlí.
Myndhöggvarar eru kynntir sérstaklega í
Hafnarborg í samstarfi við Myndhöggv-
arafélagið í Reykjavík. Sólveig sýnir eitt
skúlptúrverk unnið í Marmara Rosso Ve-
rona.
Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadóttir
sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Ásgerður er
frumkvöðull nútímaveflistar á Íslandi og
hafa verk hennar ætíð haft sterka skír-
skotun til landsins og til náttúrunnar. Sýn-
ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Ís-
lands. Til 26. ágúst.
Hrafnista í Hafnarfirði | Eiríkur Smith list-
málari sýnir í Menningarsal til 12. júní.
Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í
borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýning-
unni er einstakt úrval næfistaverka í eigu
hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns
Hákonar Magnússonar. Meðal listamanna
má nefna Ísleif Konráðsson, Þórð frá Dag-
verðará, Stórval og Kötu saumakonu. Til 31.
júlí.
Hönnunarsafn Íslands | Sýningin 3x3 er
þriðja samsýning leirlistakvennanna Guð-
nýjar Magnúsdóttur, Koggu og Kristínar
Garðarsdóttur. Öll verk á sýningunni eru ný
og unnin sérstaklega fyrir þessa sýningu. Til
18. júní.
Kaffi Sólon | Þórunn Maggý Mýrdal Guð-
mundsdóttir sýnir málverk. Til 9. júní.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk, Mjúkar línur/ Smooth lines. Til
6. okt.
Kling og Bang gallerí | Sýning Hannesar
Lárussonar, Ubu Roi Meets Humpty
Dumpty (in Iceland), í Kling & Bang galleríi. Í
kjallara sýnir Helgi Þórsson stærðarinnar
innsetningu. Opið fim.–sun. frá kl. 14–18 til 11.
júní.
Lista- og menningarverstöðin Hólmaröst |
Málverkasýning Elfars Guðna. Opið frá kl.
14–18 alla daga. Sýningu lýkur 11. júní.
Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega
nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð-
urinn við Freyjugötu er alltaf opinn.
Listasafn Íslands | Sýning á verkum Birgis
Andréssonar og Steingríms Eyfjörð til 25.
júní. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar Einarssonar
frá Miðdal. Unnið í samstarfi við Nátt-
úrufræðistofu Kópavogs. Safnbúð og kaffi-
stofa. Til 3. júlí.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur, sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn, þar
sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á
völdum skúlptúrum og portrettum Sig-
urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema
mánudaga 14–17. Kaffistofan opin á sama
tíma. Sumartónleikar hefjast 11. júlí.
Listasalur Mosfellsbæjar | Þórdís Alda Sig-
urðardóttir sýnir lágmyndir sem gerðar eru
m.a. úr járni og textíl. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar. Til
24. júní.
Nýlistasafnið | Gæðingarnir. Sýning sem
gefur Íslendingum einstakt tækifæri á að
kynnast verkum 24 ungra listamanna alls
staðar að úr heiminum. Sýnt er í Ný-
listasafninu og 100° sal Orkuveitu Reykja-
víkur.
Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir
sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til
28. ágúst.
Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í
Evrópu, Karin Sander og Ceal Floyer, sýna
nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í
eigu Safns. Sýningin er opin mið.–fös. kl. 14–
18 og lau.–sun. kl. 14–17. Aðgangur er ókeyp-
is. Leiðsögn á laugardögum.
Thorvaldsen Bar | Marinó Thorlacius með
ljósmyndasýninguna „Dreams“. Ljósmynd-
irnar hans eru alveg sér á báti og hafa þær
vakið mikla athygli bæði hérlendis sem og
erlendis. Til 9. júní.
Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndir Rob
Hornstra eru afrakstur af ferðum hans um
Ísland og veita sýn á Ísland nútímans og
vitna um samfélagsbreytingar síðustu ára.
Rjúpnaskyttur hjálpuðu Bryndísi Snæ-
björnsdóttur og Mark Wilson að skapa lista-
verk. Skytturnar skutu haglaskotum á kort
af miðborg Reykjavíkur. Gæludýrahúsin
sem urðu fyrir skoti voru mynduð og eru til
sýnis á Veggnum. Líka var unnið með nem-
endum Austurbæjarskóla og má sjá afrakst-
urinn á Torginu. Til 11. júní.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Borgarskjalasafns í anddyri Laugardals-
laugar um Laugarnesskóla í 70 ár. Sögu-
legur fróðleikur, ljósmyndir og skjöl. Opin á
opnunartíma laugarinnar. Allir velkomnir. Til
30. júní.
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 settur hjá, 8
korn, 9 fróð, 10 rödd, 11
hagnaður, 13 dimma, 15
holur, 18 safna saman, 21
fugl, 22 þvoi, 23 skellur, 24
vafamáls.
Lóðrétt | 2 kona, 3 bragð-
vísar, 4 drengs, 5 fiskar, 6
ránfugl, 7 spotti, 12 ýlfur,
14 snák, 15 hrósa, 16 dug-
legur, 17 dylgjur, 18
litlum, 19 stétt, 20 kjáni.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kjúka, 4 þokar, 7 eðlan, 8 kumls, 9 auk, 11 kúts, 13
fráa, 14 larfa, 15 strý, 17 rakt, 20 ótt, 23 pukur, 23 ennið, 24
næðið, 25 tóman.
Lóðrétt: 1 kverk, 2 útlát, 3 arna, 4 þykk, 5 kamar, 6 ræsta,
10 umrót, 12 slý, 13 far, 15 súpan, 16 rokið, 18 afnám, 19
taðan, 20 óráð, 21 tekt.