Morgunblaðið - 09.06.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 155. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Flugustangir
Tinni í kín-
verska Tíbet
Í félagsskap með Desmond Tutu
erkibiskupi | Af listum 28
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Ofursportbíllinn Ford GT á Akureyri Hundayi
Sonata er sterklegur og stöðugur BMW Mille Miglia
Íþróttir | Vörn og markvarsla áhyggjuefni Fyrstu stig ÍA
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, og Guðni
Ágústsson, varaformaður flokksins,
hittust á fundi á heimili Halldórs
undir kvöld í gær til þess að ræða
málefni Framsóknarflokksins. Lauk
þeim fundi með fullum sáttum
þeirra í milli.
„Við Guðni Ágústsson höfum átt
fundi bæði í gær og í dag og við er-
um hér saman á mínu heimili ásamt
félögum okkar. Við höfum farið yfir
okkar mál og erum sáttir,“ sagði
Halldór í samtali við Morgunblaðið
fyrir utan heimili sitt í gærkvöld.
Þeir sögðust vera að undirbúa mið-
stjórnarfund Framsóknarflokksins,
sem haldinn verður í dag, og ræða
flokksþingið. „Við trúum á einingu
og frið,“ sagði Guðni Ágústsson enn-
fremur í gær.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins munu þeir sameiginlega
leggja til við miðstjórnarfund að
flokksþingið verði haldið í þriðju
viku ágústmánaðar.
Eftir því sem Morgunblaðið kemst
næst kom þingflokkur Framsókn-
arflokksins einnig saman á heimili
Halldórs Ásgrímssonar í gærkvöld
þar sem sameiginleg tillaga for-
manns og varaformanns um tíma-
setningu flokksþings var kynnt.
Heimildir Morgunblaðsins herma,
að þeir Halldór og Guðni hafi orðið
sammála um að hvetja til sátta og
einingar í Framsóknarflokknum á
miðstjórnarfundinum.
Fundur miðstjórnar hefst kl. 16 í
dag í Súlnasal Hótels Sögu. Halldór
Ásgrímsson heldur ræðu í upphafi
fundarins, en síðan verða almennar
umræður. Um 150 fulltrúar eiga
sæti í miðstjórn Framsóknarflokks-
ins.
Halldór og Guðni hittust á heimili forsætisráðherra í Breiðholti í gærkvöld
„Við höfum farið yfir
okkar mál og erum sáttir“
Morgunblaðið/Ómar
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson náðu fullum sáttum í gærkvöld.
Zarqawi, æðsti maður al-Qaeda-
hryðjuverkasamtakanna í Írak, hefði
fallið í loftárás Bandaríkjamanna á
verustað hans við borgina Baquba.
Steinar kvaðst ekki hafa verið á
fundinum með Nouri al-Maliki, for-
sætisráðherra Íraks, en hann hefði
sótt fund þar sem William Caldwell,
talsmaður Bandaríkjahers, greindi
frá atburðunum og sýndi myndir af
líki al-Zarqawis.
„Það tekur alltaf nokkurn tíma að
átta sig á viðbrögðum og áhrifum at-
burða af þessu tagi en til dæmis þeir
súnnítar, sem ég umgengst í starfi
mínu, eru fegnir því, að al-Zarqawi
„VISSULEGA eru margir fegnir
því, að hann skuli allur en líta þó
fyrst og fremst á dauða al-Zarqawis
sem mikinn
áfanga en engin
endalok óaldar-
innar,“ sagði
Steinar Þór
Sveinsson, upp-
lýsingafulltrúi
NATO í Bagdad,
um þau tíðindi, að
Abu Musab al-
skuli vera úr sögunni. Þótt hann hafi
einkum beint spjótunum að sjítum,
þá spyrja sprengjurnar ekki að því
hver fyrir þeim verði,“ sagði Steinar
en lagði áherslu á, að enginn byggist
þó við, að ofbeldinu linnti með dauða
al-Zarqawis. Engu að síður væri
hann mikill sigur.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, talsmaður ESB og
stjórnvöld víða, m. a. í Mið-Austur-
löndum, fögnuðu fréttinni um fall al-
Zarqawis en lögðu þó áherslu á, að
mikil barátta væri framundan. Sum-
ir sérfræðingar sögðu raunar, að
ólíklegt væri, að dauði al-Zarqawis
hefði mikil áhrif á al-Qaeda í Írak.
Steinar Þór sagði, að dagurinn
hefði verið mikill merkisdagur og þá
ekki aðeins vegna atburðanna í Ba-
quba, heldur ekki síður vegna þess,
að nú hefði tekist að skipa í embætti
varnar-, innanríkis- og öryggismála-
ráðherra. Óháður sjíti, Abdel Qader
al-Obeidi, mun gegna því fyrst-
nefnda, óháður súnníti, Jawad Pol-
ani, verður innanríkisráðherra og
Shirwan al-Waili, sem er sjíti, mun
annast öryggismálin.
„Andlit“ | miðopnaSteinar Þór
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Fall al-Zarqawis mikill áfangi
Afbrigði af
fuglaflensu
greindist í
rauðhöfðaönd
AFBRIGÐI af fuglaflensu hefur
greinst í rauðhöfðaönd á Mývatni.
Fuglaflensan er ekki af H5 eða H7
stofni, en það eru skæð afbrigði og
hafa menn óttast að þau leiddu til
faraldurs sem ógnað gæti heilsu
fólks.
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir sagði að þetta sýni frá Mývatni ylli
engum áhyggjum. Alltaf hefði mátt
reikna með að afbrigði af fuglaflensu
fyndist þegar skipulögð leit að fugla-
flensu hófst snemma á þessu ári, en
margar tegundir af fuglaflensu eru
til í villtum fugli. Flestar valda þær
vægum einkennum. Fuglaflensa hef-
ur einu sinni áður greinst í fugli hér á
landi, árið 1980 í önd á Mývatni.
Búið að taka 368 sýni
Búið er að taka 368 sýni úr fuglum
hér á landi og er þetta eina sýnið sem
reyndist jákvætt. Þessi sýni hafa
verið tekin úr 26 fuglategundum á
þessu ári, þar af eru 35 sýni sem tek-
in voru úr sjálfdauðum fuglum.
Nýlega drápust tvær álftir á Aust-
urlandi og sagðist Halldór hafa orðið
var við ótta hjá fólki vegna þessa.
Náðst hefði sýni úr öðrum fuglinum
og í ljós hefði komið að hann hefði
ekki drepist úr fuglaflensu.
Halldór sagði að haldið yrði eitt-
hvað áfram að taka sýni úr fuglum.
Viðbúnaður hér á landi færi m.a. eftir
stöðu mála í nágrannalöndum okkar.
Það hefði greinst fuglaflensa í Rúm-
eníu og Ungverjalandi og þarlend yf-
irvöld hefðu gripið til ráðstafana í
samræmi við kröfur Evrópusam-
bandsins. Engar nýjar fréttir hefðu
hins vegar borist af fuglaflensu á
Bretlandseyjum. Allir farfuglar
væru komnir til landsins og því væru
minnkandi líkur á að þessi sjúkdóm-
ur kæmi upp hér á landi. Heilbrigð-
isyfirvöld væru þó áfram á verði.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Ljósmynd/Jóhann Óli
TALSVERÐAR lækkanir urðu á
erlendum hlutabréfamörkuðum í
gær en þá tilkynnti Seðlabanki
Evrópu 0,25 prósentustiga hækkun
stýrivaxta. Nema þeir nú 2,75% en
þetta er í þriðja skipti á hálfu ári
sem bankinn hækkar stýrivexti.
Talið er að lækkanirnar megi rekja
til óróa á mörkuðum vegna ótta við
enn frekari vaxtahækkanir á
heimsvísu sem geti þá leitt til þess
að dragi úr hagvexti, en bankinn
gaf til kynna að frekari hækkana
væri að vænta á næstunni vegna
aukins verðbólguþrýstings.
Í Evrópu lækkaði FTSE vísital-
an um 2,5%, OMX vísitalan í
Stokkhólmi um 4,3% og CAC 40 og
DAX vísitölurnar um 2,9%. Þá
lækkaði Nikkei vísitalan í Japan
um 3,1%. Í Bandaríkjunum lækk-
uðu vísitölur um allt að 2% fyrri-
part dags en þegar nær dró lokun
markaða gengu lækkanirnar til
baka.
Úrvalsvísitala Kauphallar Ís-
lands lækkaði einnig í gær en þó
ekki í líkingu við þær lækkanir sem
áttu sér stað í Evrópu. Nam lækk-
unin 1,6 prósentustigum.
Órói á erlendum mörkuðum