Morgunblaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 29
MENNING
BARÍTÓNSÖNGVARINN Ólafur
Kjartan Sigurðarson, sem syngur
um þessar mundir hlutverk Fígarós
í Brúðkaupi Fígarós eftir W.A. Moz-
art hjá Grange Park-óperunni í
Englandi, hefur hlotið jákvæðar
móttökur fyrir frammistöðu sína.
Á vefsvæðinu The Stage, sem
heldur úti umfjöllun um hvers kyns
sviðslistir í Bretlandi, er Ólafur
ásamt hinum aðalsöngvaranum í
óperunni, Sophie Daneman í hlut-
verki Súsönnu, sagður færa gestum
verðlaunaframmistöðu. „Fígaró
Ólafs Sigurðarsonar hefur ekki ein-
ungis hljómmikla bassarödd heldur
líka kómíska tímasetningu (og
stundum svipbrigðaleysi) Freddie
Starr, en tvöfalt aðdráttarafl hans,“
segir m.a. í umfjöllun the Stage um
sýninguna.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ólafur Kjartan Sigurðarson sem
Fígaró í uppfærslu Íslensku óper-
unnar árið 2004.
Ólafur Kjartan
fær góða
umsögn
www.thestage.co.uk
www.grangeparkopera.co.uk
gerði á öldinni sem leið,“ segir Stein-
unn. Þetta eru sjálfstæð verk sem
gerð eru í fáum eintökum og sýna
ákveðnar aðstæður og tengjast oft
hugmyndum að stærri verkum.
Líkt og annars staðar þar sem
fígúrur Steinunnar er að finna setja
útiverkin við 101 gallerí á Hverf-
isgötu 18a í Reykjavík mjög sterkan
svip á umhverfið. Þarna má sjá tvær
fígúrur sitja á steyptum vegg við
galleríið og aðra sem stendur fyrir
framan bygginguna og horfir á okk-
ur hin.
Verk Steinunnar hafa sem fyrr
segir farið víða um heiminn en alls
hefur hún haldið um 70 samsýningar
í nokkrum heimsálfum auk þess sem
hún hefur haldið á þriðja tug einka-
sýninga hér heima og erlendis. Síðar
á árinu verður hún með einkasýn-
ingar í Kaupmannahöfn og Toronto
og í New York að ári.
101 gallerí er opið fimmtudaga til
laugardaga milli kl. 14–17 og stendur
sýningin til 22. júlí. Þess má geta að í
júnímánuði verða afhjúpuð tvö stór
útiverk eftir Steinunni, annars vegar
á Íslandi og hins vegar á Bretlandi,
til minningar um breska sjómenn og
jafnframt vináttu þjóðanna tveggja.
MYNDLISTARMAÐURINN
Steinunn Þórarinsdóttir opnar sýn-
ingu í 101 galleríi klukkan 17 í dag.
Um er að ræða bæði úti- og inniverk
sem öll er ný af nálinni og verður
þetta í fyrsta sinn sem þau eru sýnd
á Íslandi. Þetta eru fígúratív verk
líkt og Steinunn hefur verið að gera í
gegnum tíðina en flestir ættu að
kannast við einmanalegar járnfígúr-
ur hennar sem finna má víðs vegar
um borgina. Jafnframt hafa sumar
þeirra verið fengnar til að prýða
borgir og bæi víða um heim en ný-
verið fóru tvær slíkar til Toronto í
Kanada og til Sydney í Ástralíu.
Á sýningunni í 101 galleríi notar
Steinunn ýmist ál, gler, pottjárn,
spegilstál eða cortenstál en efni-
viðurinn fer eftir inntaki hvers
skúlptúrs fyrir sig. Hluti sýning-
arinnar eru veggverk sem eru hug-
leiðing um rústir og samspil þeirra.
Steinunn mun auk þess sýna
ákveðna röð lítilla verka en hún var
vön að vinna slík verk fyrir um tutt-
ugu árum síðan og hefur ekki tekið
upp þráðinn fyrr en nú.
„Ég er á vissan hátt að endurnýja
gömul kynni, þó svo að innihald og
efni þessara verka sé ólíkt því sem ég
Myndlist | Steinunn Þórarinsdóttir sýnir nýjar höggmyndir í 101 galleríi
Hugleiðing um rústir
„Hugleiðing um rústir og samspil þeirra.“ Verk Steinunnar í 101 galleríi.
LISTAHÁTÍÐIN Á Seyði verður opnuð í Herðu-
breið á Seyðisfirði á morgun kl. 13. Sama dag
verður opnuð sýning bræðranna Kristjáns og Sig-
urðar Guðmundssona kl. 17 og viðburðir í tilefni
sjómannadags hefjast kl. 10 um morguninn og
standa fram á sunnudag.
Meðal annarra viðburða Á Seyði er Karlinn í
tunglinu – menningardagur barna, hátíð fyrir
börn á öllum aldri þótt dagskráin sé sérstaklega
sniðin að áhugasviði leik- og grunnskólabarna.
Heimasíða Karlsins í tunglinu er www.moon.is.
LungA, Listahátíð ungs fólks Austurlandi verður
dagana 17.–23. júlí. Þar verða listasmiðjur fyrir
ungt fólk á aldrinum 16–25 ára, boðið verður upp á
sirkus, leiklist, hljóðsmiðju Curvers, stomp, fata-
hönnun, útvarpssmiðju og gospel. Þá verða stór-
tónleikar með fjölda verðlaunaðra hljómsveita
haldnir á laugardeginum. Heimasíða LungA er
www.lunga.is. 29. júlí sýnir Elfar Logi leikrit sitt
Dimmalimm, 40 mínútna leikrit fyrir fólk á öllum
aldri, en leikritið hefur hlotið mikið lof áhorfenda.
Tónleikaröðin Bláa kirkjan er á sínum stað og
verða tónleikar á hverju miðvikudagskvöldi frá
28. júní til 16. ágúst. Fjöldi þekktra tónlistar-
manna, innlendra sem erlendra, kemur fram. Á
Seyði 2006 lýkur svo með norskum dögum og 100
ára afmæli sæsímans dagana 12.–26. ágúst nk.
Seyðfirðingar hefja menningarsumarið
www.seydisfjordur.is