Morgunblaðið - 09.06.2006, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 61
EGILSHÖLL MÁNUDAGINN 12. JÚNÍ
HLJÓMLEIKARNIR HEFJAST STUNDVÍSLEGA KL. 20.00
Veitingasala hefst í tjaldstæði við Egilshöll kl: 16.00
Roger Waters
Dark Side Of The Moon
MIÐAVERÐ:
SVÆÐI A: KR. 8.900 + 540 KR miðagjald
Svæði B Kr. 7.900 + 540 kr. miðagjald
Miðasala á midi.is og í Skífuverslunum
Laugavegi, Kringlunni og Smáralind.
Eins í BT Akureyri og BT Selfossi
uppsel
t á svæ
ði A
3
da
ga
r
í k
al
lin
n!
3 dagar í tónleika
svæði
A 10.00
0 seld
ir mið
ar
Nick Mason trommari Pink Floyd kemur
MANNI hálf-bregður við að sjá
hasarharðjaxlinn Bruce Willis í
upphafi nýjustu spennumyndar
Richards Donners, sem einnig er
vel kunnur hasarmyndum, en
hann leikstýrði m.a. Lethal
Weapon-myndunum. Hér virðist
langur vegur frá því að Willis lék
hörkutólið John McClane, en í
Sextán húsalengjum birtist hann
sem lífsleið og döpur lögga, sem
lítur út fyrir að vera lífsleið og
döpur, er gráhærð, tekin í framan
og komin með ístru. Sextán húsa-
lengjur sver sig engu að síður í
fyrrnefnda hasarmyndahefð, en
hið öllu jarðbundnara sögusvið
gerir hana meira spennandi en
ella.
Hér er engum málamyndatíma
eytt í að stilla upp söguaðstæðum
eða kynna persónur til sögunnar –
málið er einfalt: Drykkfelldur
rannsóknarlögreglumaður fær það
verkefni að flytja fanga í dóms-
húsið til þess að bera vitni. Vega-
lengdin frá lögreglustöðinni til
dómshússins er aðeins sextán
húsalengur í miðborg Manhattan,
en löggunni Jack Mosley (Bruce
Willis) og smákrimmanum Eddie
Bunker (Mos Def) verður hún nær
óyfirstíganleg. Fanginn reynist
nefnilega vera lykilvitni í spilling-
armáli er teygir sig til háttsettra
lögreglumanna, og aðilar innan
lögreglunnar vilja hann feigan áð-
ur en hann getur borið vitni.
Mosley áttar sig á því að það er
enginn tilviljun að honum var
fengið það verkefni að skutla
fanganum á áfangastað.
Hann er bæði þunnur og ósofinn
eftir langa næturvakt og auk þess
þekktur fyrir lífsleiðatengt kæru-
leysi. Að sitja fyrir fanganum í
vörslu Mosleys ætti því ekki að
vera erfitt. En það er kannski ein-
mitt vegna þess að Mosley hefur
engu að tapa að hann ákveður að
gera það sem er rétt, svona einu
sinni – og að því er hann ályktar,
líklega í það síðasta. Hann áttar
sig nægilega snemma á því hvað
er á seyði og neitar að standa að-
gerðalaus hjá meðan lögreglan
myrðir varnarlausan undirmáls-
mann.
Spennufléttan sem á eftir fylgir
er hröð og án málalenginga:
Mosley þarf að koma fanganum
undan tilræðismönnum sínum og
inn í vitnastúkuna, og lögreglan
ætlar að stöðva þá með öllum til-
tækum ráðum. Höfuðpaur spillta
lögregluliðsins, lögregluforinginn
Frank Nugent (David Morse) er
fyrrverandi félagi Mosleys og er
eltingarleikurinn hraður og
spennuþrunginn. Lögreglan er á
hælunum á þeim félögum allan
tímann meðan þeir ýmist reyna að
láta sig hverfa í fjöldann í Kína-
hverfi New York, eða fela sig inni
í byggingum sem á vegi þeirra
verða, þ.e. þar til þeir grípa til
stórtækari aðgerða. Samvinna
leikstjórans reynda Richards
Donners og klipparans Stevens
Mirkovich, skilar sterkri tilfinn-
ingu fyrir spennu og lífsháska, en
leikstjórinn knýr framvinduna
linnulaust áfram, enda gerist
myndin hér um bil í rauntíma.
Mikið mæðir á leikurunum í þess-
um aðstæðum, en þeim tekst að
túlka ekki aðeins spennuhlaðinn
eltingarleik, heldur einnig þá til-
finningu lífsháska og miskunn-
arleysis sem svífur yfir vötnum.
Kattar- og músarleikurinn er
nefnlega ekki síður sálfræðilega
hlaðinn, Mosley væri löngu búinn
að gefast upp ef það væri ekki
fyrir þrjóskuna og þá ákvörðun að
einhver verði að standa vörð um
réttlætið í heiminum, og er hann
dæmigerð hasarhetja að því leyt-
inu til. Mos Def impróvíserar með
sína persónu sem er nokkurs kon-
ar óforbetranlegur kjaftaskur, og
má þannig segja að hann fari
handan við klisjuna með stereó-
týpískt hlutverk vitgranna blökku-
mannsins. Í gegnum allan has-
arinn tekst að byggja upp
áþreifanleg tengsl milli persón-
anna, bæði milli vina og óvina, og
er Sextán húsalengur því sterk og
heilsteypt spennumynd, sem kem-
ur skemmtilega á óvart.
„Samvinna leikstjórans reynda Richards Donners og klipparans Stevens Mirkovich skilar sterkri tilfinningu fyrir
spennu og lífsháska, en leikstjórinn knýr framvinduna linnulaust áfram,“ segir í dómi.
Viðburðaríkur
morgunn
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri.
Leikstjórn: Richard Donner. Aðal-
hlutverk: Bruce Willis, Mos Def, David
Morse og Jenna Stern. Bandaríkin, 105
mín.
Sextán húsalengjur (16 Blocks)
Heiða Jóhannsdóttir