Morgunblaðið - 09.06.2006, Qupperneq 64
64 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
eee
L.I.B.Topp5.is
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
SHE´S THE MAN kl. 6 - 8 - 10
POSEIDON ADVENTURE kl. 8 - 10
AMERICAN DREAMZ kl. 6
NÚ ER
KOMIÐ
AÐ HENNI
AÐ SKORA
eeee
VJV, Topp5.is
VERÐUR HANN HUND-
HEPPINN EÐA HVAÐ!
Leitið Sannleikans
- Hverju Trúir Þú?
FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY"
OG "PERFECT STORM"
HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ
SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA.
THE POSEIDON ADVENTURE kl. 5 - 7 - 9 - og 11 B.I. 14 ÁRA
THE DA VINCI CODE kl. 4 - 6 - 8 - og 10 B.I. 14 ÁRA
MI:3 kl. 5 - 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
SHAGGY DOG kl. 4 - 6 og 8
eee
V.J.V.Topp5.is
POTTÞÉTTUR HASARPAKKI.
HÖRKUFÍN STÓRSLYSAMYND SEM STENDUR
UNDIR ÖLLUM VÆNTINGUM
-Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ.
eee
S.V. MBL.
eee
VJV - TOPP5.is
eee
D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA STAFRÆ
POSEIDON ADVENTURE kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
X-MEN 3 kl. 5:45 B.i. 12 ára
DA VINCI CODE kl. 10:30 B.i. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 6
INSIDE MAN kl. 8
ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ STELPUNUM AÐ TÆKLA STRÁKANA.
GEGGJUÐ RÓMANTÍSK GAMANMYND ÞAR SEM
AMANDA BYNES FER Á KOSTUM SEM STELPA
SEM ÞYKIST VERA STRÁKUR.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Bright
Nights verður haldin í Árnesi um
helgina. Hátíðin hefst á föstudag
kl. 18 og verður spilað viðstöðulítið
fram á aðfaranótt mánudags.
Til hátíðarinnar mætir fríður
hópur tónlistarmanna. Má þar
nefna Ruxpin, Reykjavik Swing
Orchestra, Apparat & Ellen Allien
og Hermigervil en rösklega 40 tón-
listaratriði eru á dagskrá hátíð-
arinnar.
Fríþenkjandi Frakki
Einn af stærstu gestum hátíð-
arinnar er franski tónlistarmað-
urinn Sebastien Tellier. Sebastien
þessi mun augljóslega hafa slæm
áhrif á gesti hátíðarinnar, því þeg-
ar blaðamaður nær af honum tali
er hann staddur í Parísarborg
reykjandi ólögleg fíkniefni. Ekki er
nóg með það heldur lítur hann á
myndum út fyrir að vera ekta
franskur bóhem og lífskúnstner,
frjálst þenkjandi listamaður með
„Jesúklippingu“ sem semur tónlist
sem er í senn rómantísk og kómísk,
en um leið seiðandi.
„Mig langar mest lítið til að spila
á Íslandi. Mig langar mun frekar
að finna mér bíl og aka um og
skoða landslagið, og kannski baða
mig í goshver,“ segir Sebastien,
sem er að sækja Ísland heim í
fyrsta skipti.
Munúðarfullt og eggjandi
Þegar hann er beðinn um að
festa einhvern merkimiða á tónlist
sína segist Sebastien helst flokka
verk sín sem „crazy pop“: „Ég er
ekki hrifinn af því sem franskir
tónlistarmenn eru að fást við nú til
dags. Ég er hrifnari af því sem var
að gerast fyrir fimmtán árum síðan
eða svo,“ segir tónlistarmaðurinn,
en nefnir þó Daft Punk og Phoenix
sem dæmi um það skásta sem sé
að gerast í frönsku tónlistarlífi.
„Mig langar að gera eins mun-
úðarfulla og eggjandi tónlist og
hægt er og á næstu plötu ætla ég
að hylla kvenkynið,“ segir hjarta-
knúsarinn og býður upp á að blaða-
maður spyrji hvort hann hafi heyrt
af þokka íslenskra kvenna: „Ég hef
ekki séð íslenska konu með eigin
augum, en ég býst við að þær séu
lágvaxnar, brúnhærðar og með
freknur.“
Engin skýring fæst á þessum
hugmyndum Sebastiens um ís-
lensku kvenþjóðina, sem blaðamað-
ur reynir árangurslítið að leiðrétta.
Það fæst ekki meira upp úr lista-
manninum, sem vinnur hörðum
höndum um þessar mundir að tón-
list sinni. Þegar hann er spurður
hvort hann vilji segja eitthvað að
lokum svarar hann (og tekur sér
örugglega annan smók, hinum
megin á línunni): „Já, mig myndi
langa til að njóta ásta með Jacques
Chirac. – Og þú mátt nota það sem
fyrirsögn.“
Tónlist | Tónlistarhátíðin Bright Nights verður haldin í Árnesi um helgina
Með augastað á Jacques Chirac
„Ég hef ekki séð íslenska konu með
eigin augum, en ég býst við að þær
séu lágvaxnar, brúnhærðar og með
freknur,“ segir m.a. í viðtalinu.
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
Föstudagur 9. júní
Dagskráin hefst kl. 18.
Daveeth, Berglind, Tonik,
Bjargey, Ilo, Plat, Unsound,
Aggzilla, Dr. Disco Chrimp, Ada,
Misc., Breakbeat.is.
Laugardagur 10. júní
Dagskráin hefst kl. 12.
Lay Low, Yagya, Ruxpin, Kiki-
Ow & Curver, Frank Murder,
Melody, Betamaking Troopa,
Hermigervill, Siggi úr Hjálmum,
Judith Juillerat, Biogen, Daedelus,
Oculus Dormans, eftirpartí undir
stjórn DJ Thor, DJ Xylic & DJ
Steinars.
Panomarix, For Tuens, Mr. Silla &
Mongoose, Sebastien Tellier,
Sometime, T-World, Reykjavik
Swing Orchestra, Biggi Veira &
Maggi Legó, Gorbachev, Apparat
& Ellen Allien.
Sunnudagur 11. júní
Dagskráin hefst kl. 12.
Kira Kira, Siggi Lauf, Ace #1,
Huxun, Thunder Cats, Original
Dagskrá Bright Nights-tónlistarhátíðarinnar
Nánari upplýsingar á
www.bright-nights.com.
Íslenskir aðdáendur „thrash“-rokkhljómsveitarinnar Slayer
hafa væntanlega þóst hafa himin
höndum tekið þegar það kvisaðist út
á miðvikudaginn að hljómsveitin
væri á leiðinni til Íslands. Ástæðan
er sú að á heimasíðu hljómsveit-
arinnar kom fram að sveitin hygðist
enda tónleikaferðalag sitt hérlendis í
nóvember. Svo virðist hins vegar
sem rangar upplýsingar hafi birst á
heimasíðunni og samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins hyggst
hljómsveitin ekki koma við á Íslandi
eins og sakir standa. Hins vegar var
ekki hægt að útiloka að áætlanir
sveitarinnar kynnu að breytast
þannig að íslenskir aðdáendur henn-
ar geta enn haldið í vonina.
Fyrrum gítarleikari Pink Floyd,David Gilmour, hvetur hina
frægu og ríku til þess að veita meira
fé til góðgerðarmála. Gilmour gaf
nýverið 3,5 milljónir punda til bygg-
ingar íbúða fyrir fátæka, eftir að
hafa selt eina af fasteignum sínum.
„Ástæðan fyrir því að ég læt op-
inberlega vita af þessu er sú að ég vil
hvetja annað þekkt fólk sem er auð-
ugt til þess að taka þátt í slíkri góð-
gerðarstarfsemi,“ segir Gilmour.
Gilmour segist ekki þekkja nógu
marga fræga listamenn til þess að
hvetja þá beint til þess að verja tíma
og fé í slík mál. Í viðtali við breska
dagblaðið Daily Express sagði
Gilmour að áður fyrr hefði það verið
hefð í Bretlandi að sýna slíka líkn-
arlund en svo væri ekki lengur.
Hann hitti aðeins ríka listamenn í
veislum og þá væri hvorki staður né
stund til að ræða málin.
Fólk folk@mbl.is