Morgunblaðið - 30.07.2006, Side 8
8 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Oberstdorf er syðsti bær Þýskalands, við rætur Alpanna og fjallsins
Nebelhorn (2.224 m) og því sannkölluð paradís útivistarfólks á öllum
aldri. Nú bjóðum við upp á vikuferð í byrjun september þar sem gist
er á hótelum og í fjallaskálum sem bjóða upp á mun meiri þægindi en
fjallaskálarnir hér heima. Gengið er upp undir 6 tíma á dag og er
farangurinn fluttur á milli gististaða, svo einungis þarf að bera
dagspoka. Sérlega fallegt landslag, þar sem einnig gefst tækifæri til
að sigrast á nokkrum tindum og fjallaskörðum í Ölpunum
Fararstjóri: Helgi Benediktsson
Verð: 134.800 kr. Mikið innifalið!
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
2. – 9. september 2006
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
í fjallasölumAlpanna
Gönguferð
Það er meira kana-sjónvarp á Íslandinú en á dögum
sjálfs kanasjónvarpsins,“
skrifaði Ágúst Guðmunds-
son, forseti Bandalags ís-
lenskra listamanna, í
Morgunblaðið nýverið og
átti þar við umfang amer-
ísks efnis í íslensku sjón-
varpi. Hann bendir á að
mjög fáum evrópskum
kvikmyndum sé dreift hér
á landi. „En kvikmynda-
dreifing er menningar-
starf og því fylgja
ákveðnar skyldur við
neytendurna. Það á ekki að þurfa
að lögfesta þær skyldur í formi
kvótakerfis. En kannski þess fari
að þurfa hér?“ spyr Ágúst. Hann
setur fram þá hugmynd að til að fá
að sjónvarpa á Íslandi þurfi að
sýna innlent efni að einhverju
marki og kosta til þess ákveðnum
fjármunum.
Í útvarpslögum er þegar ákveð-
in kvöð á sjónvarpsstöðvum að
sýna íslenskt og annað evrópskt
dagskrárefni, en „eftir því sem
unnt er“, líkt og segir í lögunum.
Útvarpsréttarnefnd hefur eftirlit
með framkvæmd laganna og segir
Benedikt Bogason, formaður
hennar, í grein í Morgunblaðinu
sl. fimmtudag, að nefndinni sé
heimilt að grípa til úrræða séu
lögin brotin, þ.e. stjórnvaldssekt-
um og afturköllun útvarpsleyfis.
Heimild til að beita þessum úr-
ræðum snerti þó ekki dagskrár-
efni. „Til að slíkt kæmi til greina
þyrfti, ef vilji stendur til, að leggja
með lögum mun afdráttarlausari
skyldur á sjónvarpsstöðvar að
þessu leyti og veita útvarpsrétt-
arnefnd skýrar valdheimildir til
að bregðast við,“ segir Benedikt.
Meira innlent efni
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, menntamálaráðherra, segir
ábendingu Ágústs þarfa. Hún sé
hins vegar á móti boðum og bönn-
um og vilji frekar að það verði
ákveðin viðhorfsbreyting hjá
sjónvarpsleyfishöfum. „Ég vil sér-
staklega draga það fram í þessu
samhengi að Ríkisútvarpið og við í
menntamálaráðuneytinu erum í
miklum samræðum og erum að
setja saman drög að samningi sem
mun fylgja væntanlegu frumvarpi
um Ríkisútvarpið hf., þar sem
kemur skýrt fram að við munum
efla íslenska dagskrárgerð. Þar
verður prósentuleg aukning. Við
munum huga að frekari textun og
fleira,“ segir Þorgerður Katrín.
„Ég hvet líka frjálsu stöðvarnar
til að huga vel að þessum þáttum.
Þær eru að gera það ágætlega en
ég er sannfærð um að það megi
gera þetta enn betur.“
Þorgerður hefur ekki hug á að
setja reglur um hlutfall innlends
efnis hjá stöðvunum, í það
minnsta ekki í bili. Um það hafi
verið rætt við RÚV en ekki frjálsu
stöðvarnar ennþá. „Ég vil fyrst fá
að heyra hvaða áform þeir hafa
uppi til þess að koma til móts við
þessar þarfir og kröfur sem við er-
um að setja fram í samfélaginu.
Við viljum íslenskt efni.“
Vilja ekki kvótakerfi
Páll Magnússon útvarpsstjóri
Ríkisútvarpsins bendir á að ríf-
lega 70% af heildardagskrá Sjón-
varpsins sé af öðrum uppruna en
amerískum. Hann segir til standa
að auka hlut íslensks efnis veru-
lega. „Hin nýja löggjöf, sem vænt-
anleg er um rekstrarform Ríkis-
útvarpsins, mun létta mjög
róðurinn í þeim efnum. Ég þykist
t.d. viss um að á grundvelli hinna
nýju laga verði gerður þjónustu-
samningur, sem m.a. kveði á um
tölusett markmið Ríkisútvarpsins
hvað þetta varðar,“ segir Páll.
Hann segist ekki sannfærður
um að „kvótahugmynd“ Ágústs sé
góð eða yfir höfuð framkvæman-
leg. Götin á slíku kerfi yrðu mörg.
„Yrði t.d. nóg að senda út á nótt-
unni gamlar upptökur frá Alþingi
til að hækka hlutfall íslensks efnis
í dagskránni? Ég held að það
verði að kanna aðrar leiðir til að
búa til hvatningu í þessum efn-
um.“
„Ég er ekki hlynntur því að
settur sé kvóti á frjálsar sjón-
varpsstöðvar um útsendingu efnis
á ákveðnu tungumáli,“ segir Ró-
bert Marshall, forstöðumaður
NFS. Honum finnst þó sjálfsögð
krafa að meirihluti efnis Ríkisút-
varpsins sé íslenskt.
Heimir Jónasson, dagskrár-
stjóri innlendrar dagskrár á Stöð
2, segist ekki hlynntur því að
skylda sjónvarpsstöðvar til að
sýna ákveðið magn tiltekins efnis.
Taka verði m.a. tillit til smæðar ís-
lensks markaðar. Ómögulegt sé
fyrir stöðvar á borð við Stöð 2,
sem sendi út allan sólarhringinn,
að senda t.d. helming eða meira út
af íslensku efni. Hins vegar megi
nota aðra mælikvarða en útsend-
ingartíma og bendir Heimir á að
Stöð 2 áætli að eyða rúmum 500
milljónum króna í framleiðslu á
innlendu efni í ár, en innan við 500
milljónum í erlent efni. Hann seg-
ir stefnu Stöðvar 2 að framleiða
skemmtiefni sem fái sem mest
áhorf. Annað geti gilt um Ríkisút-
varpið. „Við höfum fyrst og fremst
þá stefnu að sýna það sem selur
mest og virkar best,“ segir Heim-
ir. Hann segist kalla eftir því að
menningarlegt hlutverk Ríkisút-
varpsins verði skilgreint áður en
lög um RÚV verði sett.
Fréttaskýring | Þarf menningarkvóta?
„Við viljum
íslenskt efni“
Til stendur að efla íslenska dagskrárgerð
og textun samhliða frumvarpi um RÚV
Bandaríski kvikmyndaiðnaðurinn ræður.
Stöðvar skulu kappkosta
að senda út innlent efni
Í útvarpslögum frá árinu 2000
segir m.a.: „Sjónvarpsstöðvar
skulu kosta kapps um að meiri
hluta útsendingartíma sé varið í
íslenskt dagskrárefni og annað
dagskrárefni frá Evrópu.“ Þá
segir einnig að stöðvarnar skuli,
eftir því sem unnt er, sjá til þess
að minnst 10% af útsending-
artíma á ári hverju eða minnst
10% af árlegu dagskrárfé sé var-
ið til evrópskra verka frá sjálf-
stæðum framleiðendum.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
og Elvu Björk Sverrisdóttur
BIRNA Svavarsdóttir hjúkrunar-
forstjóri verður formaður stjórnar-
nefndar Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss eftir næsta fund
nefndarinnar. Birna hefur verið
varamaður Pálma R. Pálmasonar,
sem lætur af formennsku frá sama
tíma.
Pálmi hefur verið formaður frá
ársbyrjun 2004 en sat í stjórnar-
nefndinni næsta kjörtímabil á und-
an, skipaður af Ingibjörgu Pálma-
dóttur, þáverandi heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
Varamaður
Birnu Svavars-
dóttur verður
Sigrún Magnús-
dóttir, fyrrver-
andi borgar-
fulltrúi og
forstöðumaður
Sjóminjasafnsins.
Birna Svavars-
dóttir var formað-
ur stjórnarnefnd-
ar í fjarveru Pálma frá mars til
desember á liðnu ári.
Nýr formaður stjórn-
arnefndar LSH
Birna
Svavarsdóttir
BREYTINGAR verða gerðar á
dreifingu Fréttablaðsins á næstunni.
Aukin áhersla verður lögð á dreif-
ingu að nóttu til í stað tímabilsins
milli klukkan sex og sjö að morgni. Í
tilkynningu segir að á þeim svæðum
sem breytingarnar nái til megi búast
við uppstokkun í blaðberahópnum
þar sem ekki sé heimilt að ráða ung-
linga til starfa um nætur. Blaðber-
um sem sagt hafi verið upp störfum,
en náð hafi tilskildum 18 ára aldri,
verði boðin endurráðning á nýjum
forsendum. Markmið breytinganna
er að mæta stöðugt vaxandi kröfum
um öryggi og áreiðanleika í dreif-
ingu Fréttablaðsins auk þess sem
þær eru liður í undirbúningi Póst-
hússins ehf. fyrir aukin umsvif í kjöl-
far þess að almenn dreifing pósts
verði gefin frjáls á næstu árum.
Fréttablaðið borið
út á nóttunni
KANNABISPLÖNTUR í ræktun og
nokkuð af kannabislaufum og tækj-
um til neyslu eiturlyfsins fundust
við húsleit í Kópavogi aðfaranótt
laugardags. Að sögn lögreglunnar í
Kópavogi voru húsráðendur færðir
til yfirheyrslu, en um var að ræða
þrjá karlmenn um tvítugt. Málið
telst upplýst. Þá voru tveir menn
teknir í bænum aðfaranótt laug-
ardags, grunaðir um ölvun við akst-
ur og voru tekin blóðsýni úr þeim.
Kannabisrækt í
Kópavogi
MAÐUR var fluttur á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss eft-
ir líkamsárás á Selfossi í nótt og ann-
ar á Heilsugæslustöðina á Selfossi.
Deilur hófust milli nokkurra manna
fyrir utan skemmtistaðinn Pakk-
húsið. Lögregla stíaði þeim í sundur
og fóru nokkrir í heimahús þar sem
slagsmál brutust út síðar um nóttina.
Var þar m.a. notuð keðja til að slá
frá sér og slösuðust margir en tveir
voru fluttir á sjúkrahús, sá sem verr
var haldinn á slysadeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss. Læknir á slysa-
deild segir árásina hafa verið alvar-
lega en að maðurinn sé ekki í lífs-
hættu. Ekki er vitað hvað olli
deilunum og er málið í rannsókn.
Tveir á sjúkrahús
eftir hörð slags-
mál á Selfossi