Morgunblaðið - 30.07.2006, Side 40

Morgunblaðið - 30.07.2006, Side 40
Kalvin & Hobbes HÆ SOLLA! VILTU FÁ AÐ SJÁ TÖFRABRAGÐ? FYRST ÞARF ÉG EINN VENJULEGAN 10 KALL OG SÍÐAN LÆT ÉG MIG HVERFA HÆTTU! ÉG VAR BÚINN AÐ SEGJA AÐ ÞETTA VÆRI BRAGÐ! Kalvin & Hobbes SJÁÐU! ÞÚ FÉKKST DULMÁLSHRING! FRÁBÆRT! NÚNA GETUM VIÐ SENT HVER ÖÐRUM DULKÓÐUÐ SKILABOÐ HA HA! NÚNA EIGA MAMMA OG PABBI ALDREI EFTIR AÐ SKILJA UM HVAÐ VIÐ ERUM AÐ TALA! ... EKKI ÞAÐ AÐ ÞAU GERI ÞAÐ NÚNA... Kalvin & Hobbes KOMINN TÍMI TIL AÐ FARA Á FÆTUR! MORGUNSTUND GEFUR GULL Í MUND VEGNA ÞESS AÐ ÞAÐ KEMUR MÉR Á FÆTUR Kalvin & Hobbes ÞÚ MÁTT EKKI KOMA UPP! STELPUR ERU BANNAÐAR Í TRÉHÚSINU HVAÐ FÆR ÞIG TIL AÐ HALDA AÐ MIG LANGI TIL ÞESS AÐ SITJA UPPI Í EINHVERJU HEIMSKULEGU TRÉ AF HVERJU ÞURFA STELPUR ALLTAF AÐ TAKA ALLA SKEMMTUNINA ÚR KYNJAMISRÉTTI? Kalvin & Hobbes HOUSTON, ÞAÐ ERU AÐ KOMA UPP ERFIÐLEIKAR MEÐ ÞYNGDARAFLIÐ Kalvin & Hobbes ÉG ER BÚINN AÐ ÁKVEÐA AÐ VIÐ VERÐUM AÐ VERA SVALARI EN VIÐ ERUM NÚNA ERUM VIÐ EKKI SVALIR? AUÐVITAÐ ERUM VIÐ SVALIR, BARA EKKI EINS SVALIR OG VIÐ GÆTUM VERIÐ SVALT FÓLK GENGUR MEÐ SÓLGLERAUGU! ER SVALT AÐ REKA SIG Í HLUTI ÞEGAR MAÐUR LABBAR? ÞÚ ÁTT EKKI AÐ LABBA, BARA HANGA Dagbók Í dag er sunnudagur 30. júlí, 211. dagur ársins 2006 Víkverji hefur haftmegna andúð á kynþáttafordómum og ofbeldi í íþróttum, sem og á öðrum sviðum þjóðfélagsins um víða veröld. Uppákoman í úrslitaleik heims- meistarakeppninnar í Þýskalandi verður lengi í minnum höfð, þar sem tveir þekktir knattspyrnumenn voru sér og þjóðum sínum til skammar. Uppákoman sem varð á Akranesi á dögunum var með ólíkindum og umgjörðin sem varð síðan um hana – og þá sérstaklega í Kastljósi Sjón- varpsins. Víkverja var í gær sagt frá atviki sem átti sér stað í leik í 2. deildar keppni kvenna í sl. viku er þjálfari annars liðsins gerði hróp að löndum sínum sem léku með hinu liðinu – í leiknum. Það voru ekki margir sem skildu hvað fór fram, enda voru hrópin á framandi tungu. Það kom síðan í ljós að þjálfarinn var með hótanir við leikmennina – hótaði meðal annars líkamsmeiðingum. Víkverji veit að það er búið að senda inn athugasemdir við framkomu þjálfarans til Knattspyrnusambands Íslands. Ruddaleg framkoma þjálfarans í leiknum á ekki heima í íþróttum og það verð- ur að taka hart á mál- unum og koma í veg fyrir að uppákoma sem gerðist í leiknum, endurtaki sig. x x x Víkverja hefur lengiþótt ljúft að fá sér gómsætan brjóstsykur og bjóða öðrum – svo ekki sé minnst á bleiku möndlurnar. Það er þó eitt sem hefur skemmt ánægju Víkverja í „nammiátinu“ – það skrjáfar mikið í pokunum sem geyma sætindin og þá vilja þeir rifna út og suður. Þessir skrjáfandi pokar hafa haft þær afleiðingar að Víkverji hefur minnkað neyslu á brjóstsykri og er það gott fyrir tennur hans. Víkverji telur þó að það væri sterkur leikur í stöðunni hjá fram- leiðendum að koma aftur með gömlu góðu plastpokana sem skrjáfar ekki í. Þá gætu Víkverji og aðrir laumað hendi niður í jakkavasa í leikhúsi og á öðrum opinberum stöðum, án þess að nokkur vissi að hann væri að fara að fá sér brjóstsykur. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     Veður | Þessar yngismeyjar voru á göngu í Laugardalnum vopnaðar regnhlíf og létu rigninguna ekkert á sig fá. Veðurstofan spáir austlægum áttum næstu daga með vætu víða um land, síst þó suðvestanlands. Fremur hlýtt verður, einkum suðvestan til. Morgunblaðið/ Jim Smart Mér finnst rigningin góð MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En sonurinn sagði við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. (Lúk. 15, 21.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.