Morgunblaðið - 30.07.2006, Side 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
KARLAR eru stækkandi hópur við-
skiptavina snyrtistofa og ýmiss konar lík-
amsmeðferðir njóta sívaxandi vinsælda,
eins og fram kemur í umfjöllun Tímarits
Morgunblaðsins um útlit og snyrti-
meðferðir í blaðinu í dag. Snyrtistofur hafa
þróast úr því að vera „sterílt“ sjúkrahús-
umhverfi í róandi heilsulindir þar sem
skynfærin eru örvuð með ýmsum hætti. Eitt
af því nýjasta er sérstakt súkkulaðinudd,
sem þykir gott fyrir húðina og sog-
æðakerfið. Í nuddið er notaður kakómassi,
sem blandaður er saman við hágæðaolíur.
Ásóknin í snyrtistofur hefur aukist veru-
lega síðustu ár. Íslendingar vinna mikið og
leggja hart að sér og eru farnir að verð-
launa sig oftar með heimsókn í heilsulind.
Stórborgarlífsstíll í anda Carrie Bradshaw
og vinkvenna hennar í Beðmálum í borg-
inni er orðinn að veruleika. Reykjavík er
markaðssett sem „Spa City“ og sækja
ferðamenn líka mikið í íslenskar snyrtistof-
ur.
Þróunin er í átt til náttúrulega efna og er
lögð áhersla á að rækta hugann um leið og
líkamann. Fólk vill láta sér líða vel og finnst
gott að fá náttúrulegt dekur í dagsins önn.
Morgunblaðið/Eggert
Súkklaðiblandan er girnileg en er þó ekki
ætluð til átu heldur notuð við nudd.
Súkkulaði fyrir
fegurðina
UM 90% þeirra ferðamanna sem koma á Horn-
strandir eru Íslendingar og flestir þeirra sem
þangað sækja eru vanir ferðalangar. Þetta
segir Jón Björnsson, landvörður á Horn-
ströndum, en rætt er við hann og fleira fólk
sem staðnum tengist í blaðinu í dag. Jón segist
hafa á tilfinningunni að margir gönguhópar
vilji undirbúa sig vel áður en þeir halda til
Hornstranda. Hann segir að af erlendum
minna um fugl í björgum og sé ætisskortur
sennilega ástæðan. „Það er áfellisdómur yfir
Íslendingum að vera ekki með vöktun á svona
stöðum. Ef við teljum lífríkið í fuglabjörgunum
nokkurs virði eigum við að fylgjast með þróun
þess. Á Bretlandseyjum og í Færeyjum er það
að hverfa og það sama gæti gerst hér ef fugli
fækkar áfram í björgum, að minnsta kosti á
Vestfjörðum,“ segir Jón Björnsson. | 10–12
ferðamönnum séu Þjóðverjar og Hollendingar
fjölmennastir. „Það er áberandi að útlend-
ingar tjalda ekki á tjaldsvæðum. Þeir hafa oft
lesið greinar í erlendum ferðatímaritum sem
eru með villandi og röngum upplýsingum. Þeir
reisa til dæmis hlóðir um allt vegna þess að
þeir hafa lesið að það sé nóg af eldiviði og því
þurfi ekki prímus.“
Jón segir að undanfarin ár hafi verið æ
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Fræðsla um sögu Horns
90% gesta á Hornströndum eru íslenskir ferðamenn
ÍSLANDSMEISTARAR karla í hand-
knattleik, Fram, verða í F-riðli í Meistara-
deild Evrópu í vetur. Með Fram í riðlinum
verður Celje Pivovarna Lasko frá Slóveníu,
sem varð Evrópumeistari 2003/2004, Gum-
mersbach frá Þýskalandi og sigurvegarinn
úr leik Berchem frá Lúxemborg og Sande-
fjord frá Noregi.
Með Gummersbach leika þrír íslenskir
handknattleiksmenn, Guðjón Valur Sig-
urðsson og Framararnir Róbert Gunnars-
son og Sverrir Björnsson, auk þess sem Al-
freð Gíslason þjálfar liðið.
Fram mætir
Gummersbach
Í SAMNINGI milli Ríkisút-
varpsins og menntamálaráðu-
neytisins, sem gerður verður
samhliða setningu nýrra laga
um RÚV hf., verða sett fram
töluleg markmið um eflingu ís-
lenskrar dagskrárgerðar. Í
samningnum verður einnig hug-
að að frekari textun efnis sem
sjónvarpið sýnir. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra segist ekki hafa
hug á því að setja reglur um
hlutfall innlends efnis hjá frjálsu
sjónvarpsstöðvunum, í það
minnsta í bili. „Ég vil fyrst fá að
heyra hvaða áform þeir hafa
uppi til þess að koma til móts við
þessar þarfir og kröfur sem við
erum að setja fram í samfélag-
inu. Við viljum íslenskt efni.“
Hún segir að eftirspurnin sé
mikil en framboð vanti.
Ágúst Guðmundsson, forseti
Bandalags íslenskra lista-
manna, setti fram þá hugmynd í
grein í Morgunblaðinu nýverið
að til að fá að sjónvarpa á Ís-
landi þyrfti að sýna innlent efni
að einhverju marki og kosta til
þess ákveðnum fjármunum.
Menntamálaráðherra segir
ábendingar Ágústs þarfar en að
sumum öðrum kvótakerfum.
Yrði t.d. nóg að senda út á nótt-
unni gamlar upptökur frá Al-
þingi til að hækka hlutfall ís-
lensks efnis í dagskránni?“ spyr
Páll.
Heimir Jónasson, dagskrár-
stjóri innlendrar dagskrár á
Stöð 2, segir að nota megi aðra
mælikvarða en magn á íslenskt
dagskrárefni og bendir á að
Stöð 2 áætli að eyða rúmum 500
milljónum króna í framleiðslu á
innlendu efni í ár en innan við
500 milljónum í erlent efni.
hún sé á móti boðum og bönnum
og vilji frekar að það verði
ákveðin viðhorfsbreyting hjá
sjónvarpsleyfishöfum.
Forsvarsmenn þeirra sjón-
varpsstöðva sem Morgunblaðið
ræddi við eru andsnúnir hug-
myndum um kvóta á innlent
dagskrárefni. Páll Magnússon,
útvarpsstjóri RÚV, segist ekki
sannfærður um að „kvótahug-
mynd“ Ágústs sé framkvæman-
leg þó að hann taki undir með
honum að hlutur íslensks sjón-
varpsefnis sé of lítill. „Götin á
svona kvótakerfi yrðu líka mörg
– eins og raunin hefur orðið á
Forsvarsmenn sjónvarpsstöðvanna mótfallnir því að
settur verði kvóti á umfang íslensks dagskrárefnis
Íslenskt efni hjá
RÚV verður aukið
Við viljum | 8
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BANDARÍSKA
vefleitarfyr-
irtækið Google
hleypti nýverið
af stokkunum
þjónustu sem
gerir fólki kleift
að fylgjast með
umferðarþunga
á hraðbrautum í
stórborgum
Bandaríkjanna í
gegnum far-
síma. Auk þess
geta notendur
þjónustunnar
leitað uppi heim-
ilisföng og nýtt
sér almenna
kortaþjónustu
sem fyrirtækið
býður nú þegar
upp á í gegnum
vefinn: „Þetta er
svipað og Go-
ogle Maps, hægt
er að færa kort-
ið til, „súmma“ inn og út, leita að hlutum, fá
leiðbeiningar til að komast á milli staða og
svo er hægt að fá gervihnattamyndir líkt
og í Google Earth. Og þetta fer allt fram á
netinu þannig að þetta kemur beint frá Go-
ogle samtímis. Nýjungin sem við kynntum
um daginn er sú að nú sjást grænar, gular
og rauðar línur sem sýna hvernig umferðin
er á hraðbrautunum í Bandaríkjunum.“
Guðmundur sagði í samtali við Morg-
unblaðið að notkun á þjónustu sem þessari í
farsímum væri að aukast mikið þar sem
fólk væri stöðugt á faraldsfæti og í nýjum
borgum. Stórfyrirtæki legðu sífellt meiri
áherslu á að nýta sér farsímatæknina og
því væru framtíðarmöguleikar miklir. | 4
Þróar kort
fyrir farsíma
hjá Google
Þessi mynd blasir við
farsímanotendum með
Google þegar Ísland er
slegið inn.
NOKKUR viðbúnaður verður hjá lögregl-
unni í Reykjavík vegna tónleika Sigur Rós-
ar sem fram fara á Klambratúni í kvöld.
Árni Friðleifsson, varðstjóri hjá umferðar-
deild lögreglunnar, segir lögreglu hafa ver-
ið í sambandi við tónleikahaldara vegna
tónleikanna. Hann segir erfitt að áætla ná-
kvæmlega hversu margir muni sækja þá,
en ætla megi að fjöldinn verði að minnsta
kosti 5.000 manns.
Við undirbúning hafi verið hugað að því
hvar tónleikagestir geti lagt bílum sínum.
Fólki sé einkum bent á bílastæði við
Kringlusvæðið. Einnig verði hægt að leggja
við Borgartún, við Perluna og á Skóla-
vörðuholti. Árni segir mikilvægt að eðlileg-
ur umferðarhraði haldist á Miklubraut
meðan á tónleikunum stendur. „Við hvetj-
um ökumenn til þess að aka á eðlilegum
hraða en hægja ekki um of á sér.“
Viðbúnaður
vegna tónleika
á Klambratúni
♦♦♦