Morgunblaðið - 08.11.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 304. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
HEILSUBRUNNURINN
DR. SIGMUNDUR GUÐBJARNASON SEGIR MARGA
LÆKNISDÓMA AÐ FINNA Í JURTUNUM >> 24
ÞÝÐANDINN
GLÍMAN VIÐ
DOSTOJEVSKÍ
BÓKMENNTIR >> 40
ÍSLENSK stjórnvöld hafa ákveðið að nýta sér
aðlögunarfrest til tveggja ára gagnvart Búlg-
aríu og Rúmeníu, sambærilegan þeim sem við-
hafður var gagnvart átta löndum Evrópusam-
bandsins (ESB) árið 2004. Löndin tvö ganga í
ESB á næsta ári. „Við höfum þannig ákveðið að
nýta okkur fyrstu tvö árin til að sjá hver þörf
verður fyrir vinnuafl hér á landi og hver ásókn-
in verður og taka yfirvegaða ákvörðun í fram-
haldi af því, fyrir 1. janúar 2009,“ sagði Magnús
Stefánsson félagsmálaráðherra, í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í gær. Tilefnið var
fyrirspurn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar,
þingmanns Frjálslynda flokksins, um fjölgun
útlendinga á Íslandi.
Ráðherra sagðist vilja auka sýnilegt eftirlit
með kjörum og aðbúnaði erlends vinnuafls í
samvinnu við aðila á vinnumarkaði og sagðist
vinna að því um þessar mundir. | 10
Ætla að
nýta aðlög-
unarfrestinn
DEMÓKRATAR voru vongóðir
eftir að hafa unnið öldungadeild-
arsæti í Ohio og Pennsylvaníu í
þingkosningunum í Bandaríkjun-
um í gær en þetta voru talin tvö
af lykilsætunum í baráttunni um
meirihluta í öldungadeildinni.
Samkvæmt fyrstu tölum voru
niðurstöður að mestu eftir bók-
inni og fátt kom á óvart en demó-
kratar gerðu sér vonir um að ná
meirihluta á þingi í fyrsta sinn í
12 ár.
Nýlegar skoðanakannanir
bentu til þess að demókratar
hefðu stuðning meirihluta lík-
legra kjósenda en forskotið
minnkaði eftir því sem nær dró
kosningum. Flestir stjórnmála-
skýrendur töldu að demókratar
næðu meirihluta í 435 sæta full-
trúadeildinni, þar sem kosið var
um öll sætin, en til þess þurftu
þeir að bæta við sig 15 sætum. Í
100 sæta öldungadeildinni var
kosið um 33 sæti og þurftu demó-
kratar að bæta við sig sex sætum
til að ná meirihluta en í því efni
var einkum horft til Ohio, Penn-
sylvaníu, Virginíu, Rhode Island,
Missouri og Montana.
Um 200 milljónir Bandaríkja-
manna höfðu atkvæðisrétt og var
talið að kosningaþátttaka yrði um
40% eða að um 80 milljónir manna
myndu kjósa. Kjörfundi lauk frá
því um miðnætti til klukkan fimm
í morgun að íslenskum tíma.
Um 80% kjósenda notuðu kosn-
ingavélar og þar af um þriðjungur
nýjar vélar. Um leið og kjörfund-
ur hófst komu upp vandamál með
margar vélarnar. Snertiskjáir og
rafrænir kjörseðlar virkuðu ekki
eins og til stóð eða starfsfólk
kunni ekki á vélarnar og töfðust
kosningar sums staðar um allt að
tvo klukkutíma, með þeim afleið-
ingum að kjósendum leiddist bið-
in og fóru án þess að kjósa. Í
sumum tilvikum var skipt yfir í
hefðbundna kjörseðla og á nokkr-
um stöðum var kjörfundur fram-
lengdur vegna tafa.
Demókratar vongóðir
eftir að hafa unnið sæti
Í HNOTSKURN
» Um 200 milljónir Banda-ríkjamanna höfðu atkvæð-
isrétt og var talið að kosn-
ingaþátttaka yrði um 40% eða
að um 80 milljónir manna
myndu kjósa.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
KARLMAÐUR og kona á miðjum aldri eru í
lífshættu með alvarleg brunasár eftir að eldur
kom upp á annarri hæð í þriggja hæða blokk í
Ferjubakka í Breiðholti á ellefta tímanum í
gærkvöldi. Eldurinn náði ekki að breiðast í
nærliggjandi íbúðir og vel gekk að ráða nið-
urlögum hans.
Slökkviliðið kom fljótt á vettvang en slökkvi-
liðsmenn af höfuðborgarsvæðinu öllu komu á
staðinn, samtals um 20 manns. „Þegar við kom-
um var augljós reykur og eldur á annarri hæð-
inni, allir gluggar voru orðnir svartir af reyk.
Þetta var talsvert mikill eldur,“ segir Lárus
Petersen, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins, sem stýrði aðgerðum á vettvangi.
„Okkur var sagt að það gætu hugsanlega ver-
ið tvær manneskjur þarna inni og það fyrsta
sem við gerðum var að senda inn reykkafara til
að leita að fólki,“ segir Lárus. Reykkafararnir
fundu karl og konu meðvitundarlaus inni í íbúð-
inni og voru þau flutt á bráðamóttöku Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss.
Hjá lækni á bráðamóttöku fengust þær upp-
lýsingar á tólfta tímanum í gærkvöldi að fólkið
væri með talsvert mikið af alvarlegum bruna-
sárum, karlmaðurinn sérstaklega, og þau væru
bæði í lífshættu.
Slökkviliðið hófst handa við að reykræsta
ganginn til að hægt væri að ná íbúum nærliggj-
andi íbúða út en íbúum var ráðlagt að halda sig
inni í stað þess að fara út í gegnum reykjar-
mökkinn. Mikill eldur var í íbúðinni – hann var
mestur í stofunni og er íbúðin mikið skemmd.
Lárus sagði að mjög vel hefði gengið að slökkva
eldinn en eftir það þurfti að reykræsta gang og
nærliggjandi íbúðir.
Tvennt í lífshættu eftir bruna
Reykkafarar fundu
karl og konu á miðjum
aldri meðvitundarlaus
í brennandi íbúðinni
„ÉG FANN skrýtna lykt, og svo
var barið á dyrnar hjá okkur,“
segir Anna Þorbjörg Björns-
dóttir, sem býr í næstu íbúð við
þá sem eldurinn kom upp í, en
hún flúði íbúðina á náttfötunum
með teppi vafið utan um sig, og
fundið fyrir hita heldur aðeins
orðið vör við reyk.
Áfallahjálparteymi Rauða
kross Íslands veitti íbúum sem
flýja þurftu íbúðir sínar áfalla-
hjálp í strætisvagni eftir að eld-
urinn hafði verið slökktur.
sér út. „Íbúðin okkar var öll að
fyllast af reyk þegar við þutum
út,“ segir Sindri.
Hann segir að þau hafi verið
stödd í þeim hluta íbúðarinnar
sem er fjærst íbúðinni sem eld-
urinn kom upp í, og hafi ekki
fylgdist með slökkvistörfum í
frostinu í gærkvöldi.
Sindri Höskuldsson, eig-
inmaður hennar, segir að ná-
granni sem fyrstur varð var við
reyk frá eldinum hafi barið á
dyrnar hjá þeim, og þau forðað
Morgunblaðið/Júlíus
Íbúum veitt áfallahjálp eftir eldsvoða í Breiðholti