Morgunblaðið - 08.11.2006, Side 36

Morgunblaðið - 08.11.2006, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar Helga-son fæddist á Hlíðarenda í Fljóts- hlíð 10. apríl 1925. Hann lést á Borg- arspítalanum 24. október síðastliðinn. Hann var yngsta barn Kristínar Eyj- ólfsdóttur húsfreyju, f. 17. febrúar 1884, d. 8. apríl 1942, og Helga Erlendssonar bónda, f. 7. janúar 1892, d. 4. júlí 1967. Systkini Gunnars eru: Svava húsfreyja, f. 31. desem- ber 1912, d. 31. maí 2004, og Guð- jón bóndi, f. 22. mars 1916, d. 4. nóvember 2002. Hinn 23. júní 1945 kvæntist Gunnar Sigríði Pálmadóttur, fyrr- verandi bókaverði, f. 30. september 1923. Foreldrar hennar eru Guð- ríður Vilhjálmsdóttir, húsfreyja og tónlistarkennari, f. 28. júní 1898, d. 9. september 1925, og Pálmi Lofts- son, skipstjóri og síðar forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, f. 17. sept- ember 1894, d. 18. maí 1953. Börn Gunnars og Sigríðar eru: 1) Már, forstöðumaður lögfræðideildar Icelandair Group, f. 4. desember 1944, maki Steinunn Hreinsdóttir, magister í norrænum bókmenntum 16. september 1987. 3) Gunnhildur, félagsfræðingur og námsráðgjafi í MH, f. 22. nóvember 1950, maki Björn J. Björnsson, verkfræðingur og rekur eigin verkfræðistofu, Stuðul, f. 27. júní 1949. Börn þeirra eru: Björn Bragi, flugmaður, f. 22. júlí 1980, og Sigríður Mjöll tónlist- arnemi, f. 11. maí 1988. Gunnar ólst upp á Hlíðarenda en fór síðan til Reykjavíkur í skóla – lauk prófi frá Samvinnuskólanum árið 1945 og starfaði sem erindreki Sjálfstæðisflokksins 1946–1961 og framkvæmdastjóri verkalýðsráðs flokksins 1961–1971. Þá var hann forstöðumaður Ráðningarskrif- stofu Reykjavíkurborgar frá 1971 til 70 ára aldurs er hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Gunnar gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Átti hann sæti í miðstjórn 1952–1979, auk þess að vera formaður verkalýðs- ráðs, formaður fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík, for- maður Heimdallar og varaformaður SUS. Þá var hann borgarfulltrúi í Reykjavík 1966– 1970, í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins 1968 til 1991 og formaður í samtals sjö ár. Þá gegndi Gunnar fjölmörgum öðrum ábyrgðar- og trúnaðarstörfum á vegum Sjálf- stæðisflokksins og Reykjavík- urborgar. Útför Gunnars verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 11. og eftirlitsflugfreyja hjá Icelandair, f. 16. ágúst 1958. Barn Más og Steinunnar er Styrmir nemandi, f. 20. febrúar 1992. Börn Más og Sigrún- ar Andrésdóttur, f. 17. maí 1944, d. 3. ágúst 1978, eru: a) Davíð, markaðs- fræðingur og for- stjóri Avion Aircraft Trading, f. 28. maí 1968, maki Lilja Ragnhildur Ein- arsdóttir flugfreyja, f. 10. desem- ber 1973. Barn þeirra er Styrkár Jökull, f. 11. júní 2003. Fyrir átti Davíð Arnór Kára nemanda, f. 8. maí 1989. b) Gunnar Már flug- maður, f. 15. mars 1971, maki Lína Rut Wilberg myndlistarmaður, f. 11. mars 1966. Börn þeirra eru: Sigrún, f. 18. maí 1998, d. 21. maí 1998, Már, f. 19. nóvember 1999, og Nói, f. 19. júlí 2004. Dætur Línu Rutar eru Erla Kamilla, f. 28. júlí 1990, og Ísold, f. 10. júlí 1992. c) Harpa, flugfreyja, f. 27. nóvember 1975. Þá er Már faðir Helga Þórs, nemanda í verkfræði við HÍ, f. 3. apríl 1984. 2) Unnur ljósmóðir, f. 17. mars 1947. Barn hennar er Gunnsteinn Þórisson nemandi, f. Tengdafaðir minn fæddist á und- urfögrum stað í skjóli jökla á Hlíð- arenda í Fljótshlíð. Hann var skírður eftir söguhetjunni frægu og ólst upp á Hlíðarenda í faðmi for- eldra sinna þar til hann fór ungur að heiman í nám. Fljótlega stofnaði hann heimili með eftirlifandi lífs- förunaut sínum, Sigríði Pálmadótt- ur, sem var hans mesta lán í lífinu. Hjónaband þeirra var einstakt og hefur tengdamóðir mín staðið með manni sínum í yfir 60 ár og tekið þátt í öllu lífshlaupi hans. Aldrei hefur fallið skuggi á samband þeirra og samrýndari hjón eru vandfundin þar sem væntumþykja og góðmennska voru í fyrirrúmi. Kynni mín af tengdaföður hófust fyrir um sautján árum. Myndaðist strax með okkur gott samband og alltaf var jafn ánægjulegt að hitta tengdaforeldra mína. Oftar en ekki tóku þau á móti okkur á tröppunum í Efstasundi glaðleg í fasi og kvöddu okkur þar með sama hætti eftir góða samverustund og vinkuðu til okkar þar til við hurfum úr aug- sýn. Gunnar var farsæll maður, bæði í leik og starfi. Hann var gamansam- ur og sögumaður góður – hafði gaman af að segja frá þar sem hann sat og mundaði pípuna og var hrók- ur alls fagnaðar. Hann var í er- ilsömu starfi fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Í því starfi ferðaðist hann um landið og hélt fundi. Hann sagði frá því að það hefði gefist vel að brjóta ísinn með því að draga upp neftób- aksdósina og bjóða í nefið. Gunnar minntist oft æsku sinnar og sagði sögur af fólkinu sínu sem hann unni svo mjög. Um æskuna lék ljómi í minningu hans alla tíð og augljóst er að hann naut ástríkis foreldra sinna og systkina. Einnig minntist hann hversu góður afi hans, Erlend- ur, var við litla drenginn og tók þann stutta gjarnan með sér í réttir og á mannamót. Tengdafaðir minn var vel af Guði gerður og mannkostamaður mikill sem eftirsjón er að og á ég honum og tengdaforeldrum mínum báðum mikið að þakka. Hann var vel að sér og hafði gaman af öllum þjóðlegum fróðleik. Hann var sérstakur nátt- úruunnandi og var sveitin hans hon- um afar hugleikin. Gunnar reisti sumarbústað á landspildu sem pabbi hans gaf honum og stundaði þar skógrækt. Hann hafði gaman af öllu sem við kom gróðri, enda ber garðurinn í Efstasundi það með sér. Hann var hörkuduglegur og lét ekki sitt eftir liggja þegar taka þurfti til hendinni. Dáðist ég oft að því hversu léttilega hann sveiflaði orf- inu við slátt í sveitinni. Maðurinn minn og tengdapabbi voru mjög nánir og bestu vinir og sjaldan leið sá dagur að þeir töluðu ekki saman. Þeir fóru í sveitina með tengda- mömmu fyrir stuttu í dásamlegu veðri. Jöklarnir og fjöllin skörtuðu sínu fegursta, haustlitirnir nutu sín og Vestmannaeyjar blöstu bláar við í heiðríkjunni. Þetta var síðasta ferð hans í sveitina. Tengdafaðir minn var ákaflegar hlýr og elskulegur. Hann var vina- margur og hvers manns hugljúfi, af- ar barngóður enda hændust öll barnabörnin og barnabarnabörnin að honum. Hafði sérstaklega fallegt viðmót sem af stafaði mikil vænt- umþykja. Hann átti þá Guðs gjöf að geta gefið án skilyrða sem er mikil gifta. Þá bjó hann yfir þeim eig- inleika að geta notið augnabliksins – sem gjarnan gleymist í kröfum og áreiti nútímans. Hann naut sérstak- lega góðs veðurs og fegurðar nátt- úrunnar eins og hún birtist hverju sinni – sem margir telja sjálfsagða. Þá var hann ávallt þakklátur fyrir góða heilsu. Á kveðjustund sem þessari er margs að minnast og margs að sakna. Við kveðjum ynd- islegan mann sem af stafaði mikilli hlýju og ástúð. Missirinn er mikill og heimurinn litminni en tökum lífs- sýn tengdaföður míns og mann- gæsku til fyrirmyndar og eftir- breytni. Varðveitum það sem hann kenndi okkur með fallegri fram- komu sinni og viðmóti sem vega- nesti inn í framtíðina. Þannig lifir hann áfram í hjarta okkar. Elskulegri tengdamóður minni votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að blessa hana nú og um alla framtíð. Steinunn Hreinsdóttir. Eins og flestir tilvonandi tengda- synir kom sá sem þetta ritar óboð- inn í líf Gunnars Helgasonar fyrir tæpum fjörutíu árum. Við hittumst fyrst að vetrarlagi á útidyratröpp- unum í Efstasundi 7. Hann var að moka snjó. Ég kom til að reyna að hitta á yngri heimasætuna. Ég man enn þá tvíræða brosið sem hann sendi mér þegar ég bar upp erindið. Hvorugan grunaði þá að þetta væri upphaf að langri samvist í gegnum lífið og örugglega datt hvorugum í hug að annar ætti eftir að skrifa minningargrein um hinn í Morg- unblaðið. Í mínum augum var Gunnar tengdapabbi allaf sveitamaðurinn í borginni. Ekki það að honum þætti slæmt að búa í Reykjavík, það var nú öðru nær. Hann bara var alinn upp í sveit og það ekki í neinum af- dölum: Þvert á móti, hann var alinn upp á sjálfu höfuðbólinu Hlíðarenda í Fljótshlíð og bar nafn hetjunnar. Auðvitað er ekki hægt að slíta slíkar rætur. Mér fannst alltaf eins og gróð- urmold og vatn ættu sterk ítök í honum, ásamt votti af hetjuskap. Hann gerði berhentur við gaddavírs- girðingar og stökk stígvélalaus út í straumvötn til ná smábröndum, best var að verða blautur upp að mitti og veiða með berum höndunum. Ein- hvern tímann gáfum við honum regngalla fyrir garðvinnuna, hann notaði hann aldrei og gaf hann ein- hverju barnabarninu og var áfram jafnblautur í garðinum. Hann var fæddur sjálfstæðismað- ur, var sem unglingur innanbúðar hjá Ingólfi á Hellu og þótt hann gengi í Samvinnuskólann tókst Jón- asi á Hriflu ekki að koma honum til framsóknarmanns. Gunnar sneri aft- ur eins og nafni hans forðum, viss um framtíðarstefnuna og jafn sjálf- stæður og áður. Kornungur náði hann í skipstjóra- dóttur úr Reykjavík sem hafði verið send í sveit austur á Rangárvelli. Úr varð hjónaband til æviloka og þrjú börn. Það voru því tekin gæfuspor á sveitaböllunum í Fljótshlíðinni. Eftir skólagönguna hjá Jónasi á Hriflu lá leiðin til Reykjavíkur. Þar starfaði tengdapabbi fyrir Sjálfstæð- isflokkinn og var í forystusveit ungra sjálfstæðismanna í dimmustu éljum kalda stríðsins þegar pólitík skipti máli og var upp á líf eða dauða. Mér fannst tengdapabbi samt sem áður aldrei vera sérstaklega póli- tískur. Mér fannst hann fyrst og fremst vera sanngjarn í dómum um menn og málefni líðandi stundar. Líklega fannst honum stjórnmála- umræða síðustu áratuga fremur bragðdauf miðað við það sem á und- an gekk. Hann var glaðlyndur maður, góð- ur sögumaður og hló smitandi hlátri. Þegar ferðum í Fljótshlíðina fækk- aði voru ræturnar vökvaðar með góðum sögum frá uppvextinum. Oft- ast fékk hann alla viðstadda til þess að hlæja með sér löngu áður en kom að fyndna hlutanum í sögunni. Í samræmi við þessa eiginleika var hann góður ræðumaður og flutti flotta ræðu í áttræðisafmæli sínu fyrir tæpum tveimur árum. Fyrir nokkrum dögum sagði hann að það sem hann hræddist í sam- bandi við ellina væri það að konan dæi á undan honum. Þá vil ég ekki lifa lengur, sagði hann. Konan hans og öll börnin voru hjá honum síðustu stundirnar og ég held að hann hafi notið lífsins allt til hins síðasta. Hann var „eitthvað slappur“ á fimmtudagskvöld. Gekk sjálfur inn á sjúkrahúsið á föstudag og var látinn á þriðjudagsmorgun. Líklega má segja að þetta séu góð örlög. Það er bara svo undarlegt að eiga ekki von á einni sögu enn. Björn Jóhann Björnsson. Eitt erfiðasta hlutskipti sem ég hef þurft að kljást við í lífinu er að kveðja afa minn, hann Gunnar. Afi var minn besti vinur alla tíð og vil ég minnast hans hér með nokkrum orð- um. Afi Gunnar var sérstaklega fjöl- fróður og hafði gaman af lestri góðra bóka. Ég minnist þeirra tíma er amma Sirrí bar heim af bókasafn- inu heilu staflana af bókum sem afi las sér til skemmtunar og fróðleiks. Það var alltaf hægt að leita til afa og það var oft sem hann gaf okkur barnabörnunum holl og góð ráð. Léttleiki og góður húmor fylgdi afa alla tíð, og það var ósjaldan sem hann fékk alla fjölskylduna til að hlæja og hafa gaman. Sögumaður var hann góður, og minnugur vel á gömlu tímana, og Íslendingasögur kunni hann utanbókar. Ég er þakklátur öllum þeim sögu- stundum sem ég átti með afa, og það er mér minnisstætt er við sátum saman í hlíðinni á Hlíðarenda, horfð- um til suðureyja og nutum fegurðar náttúru og flugeldasýningar frá Þjóðhátíð í Eyjum. Afi var mjög fróður um söguslóðir Hlíðarenda í Fljótshlíð, og þótti hon- um skemmtilegt að segja fólki frá þessum merka sögustað þar sem hann ólst upp og þótti svo vænt um. Afi átti mjög auðvelt með að að- stoða fólk, og í gegnum vinnu sína um ævina byggðist starf hans m.a. á að liðsinna fólki og að útvega því störf við hæfi. Það var oft sem afi fékk þakkir frá fólki á förnum vegi sem hann hafði rétt hjálparhönd. Hvort sem afi var að vinna með borgarstjóranum eða þá verkafólki, þá gerði hann aldrei mannamun. Nærvera og hlýja afa og ömmu var svo mikil að ég sótti mikið til þeirra alla tíð, og þær voru margar næturnar sem ég fékk að sofa uppí hjá þeim sem barn og framundir fermingaraldur. Þær voru ófáar ferðirnar sem afi keyrði mig á Valsvöllinn snemma á sunnudagsmorgni til að ég gæti stundað knattspyrnu, og það skipti engu máli þó úti væri norðanbylur og skyggni slæmt, alltaf náði ég á æfingu. Og er heim var komið útbjó afi heitt súkkulaði, sem yndislegt var að fá með brauðinu hennar ömmu. Ég mun búa vel að því alla tíð að hafa fengið að vera samferða afa Gunnari í gegnum tíðina og er þakk- látur hverri stund sem við áttum saman. Afi Gunnar var afskaplega falleg- ur og góður maður, og minningin um hann mun alltaf lifa í hjarta mínu. Mínar bænir sendi ég afa og bið Guð um að styrkja elsku ömmu og pabba minn og aðra aðstandendur á erfiðum tímum. Gunnar Már Másson. Ef að næðir um þig kalt og ekkert skjól að finna þá beindu þínum innri yl í átt til vina þinna. Þá mun anda um þig hlýtt ófátt ganga í haginn. Gott er þá á góðum stað að gleðjast eftir daginn. Þessi litla vísa, ort af stóra bróður hans afa, er vel viðeigandi er ég set nokkur orð á blað um vin minn Gunnar Helgason sem er jafnframt afi minn. Afi var umfram allt vinur okkar barnabarnanna og hafði alla tíð tíma fyrir okkur, mig langar með þessum orðum að þakka afa fyrir; Að lesa fyrir mig úr Njálu við ol- íulampa á dimmum síðsumarskvöld- um í litla sumarhúsinu ykkar ömmu í túngarðinum á Hlíðarenda. Að kenna mér smáguttanum að slá með orfi og ljá. Að draga á fyrir sjóbirting um tunglskinsbjartar haustnætur á Markarfljótsaurum. Að kenna mér að meta og njóta náttúrunnar í fegurstu sveit lands- ins. Að reiðast ekki er ég sex ára henti hamri í höfuð þér er þú náðir mér á hlaupum niður brekkurnar niður að þjóðvegi á leiðinni að strjúka heim. Að halda yndislegu heimili ykkar ömmu í Efstasundi ávallt opnu er ég þurfti á stuðningi og hlýju að halda. En eins og sjúkrahúspresturinn orðaði, í stuttri minningarathöfn sem við áttum skömmu eftir andlát afa, Gunnar lifir ekki einungis í myndrænum minningum sem við eigum að vera þakklát fyrir heldur umfram allt lifir hann í okkur sem hann tók þátt í að móta og vonandi vísa rétta veginn. Afi, ég er þakk- látur fyrir þá lífssýn sem þú deildir með mér, jafnaðargeðið þótt ég sem unglingur reyndi að espa þig upp í pólitískum rökræðum, kankvísina og vægan gálgahúmorinn sem sló unga æsingarmanninn oftar en ekki út af laginu. Já, afi, það var alltaf stutt í kímnina og það hefur alla tíð þótt gott í okkar fjölskyldu að reyna að sjá spaugilegu hliðina á alvöru lífs- ins, það er nú víst einu sinni þannig að þeir Hlátur og Grátur eru bræð- ur. Og það hjálpaði okkur frænd- fólkinu að kljást við sorgina, í fram- haldi af ótímabærri brottför þinni, að rifja upp skondnar athugasemdir og litla brandara úr smiðju þinni. Elsku afi, ég veit að þú ert kominn á Gunnar Helgason ✝ Þökkum auðsýndan hlýhug og samúð vegna andláts og jarðarfarar móður okkar, ömmu og langömmu, RÓSU HALLGRÍMSDÓTTUR. Börn, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGFÚS J. JOHNSEN kennari og félagsmálastjóri, Sóltúni 28, Reykjavík, lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 2. nóv- ember. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 9. nóvember kl. 13.00. Kristín S. Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Ingi Sigfússon, Bergþóra K. Ketilsdóttir, Árni Sigfússon, Bryndís Guðmundsdóttir, Gylfi Sigfússon, Hildur Hauksdóttir, Margrét Sigfúsdóttir, Bjarni Sigurðsson, Þór Sigfússon, Halldóra Vífilsdóttir, Sif Sigfúsdóttir, Búi Kristjánsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.